Dagur - 26.09.2000, Qupperneq 16
16- ÞRIDJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
LANWM
Öll þjóðin erstoltaf
Völu Flosadóttur sem
náði verðlaunasæti á
ólympíuleikunum í
Sydney ígænnorgun er
hún stökk á stönginni
yfir 4.50 m með bros á
vör. Mesturerað sjálf
sögðufógnuðurinn hjá
foreldrum og öðrum
vinum. Dagurhafði
samband viðfóður
hennarog nokkra vini
frá æskuárunum á
Bíldudal, strax eftirað
úrslit lágufyrir.
„Mér er rótt núna en meðan á
keppninni stóð held ég hjartað
hefði ekki þolað mikið meira
álag,“ sagði faðir hennar, sr.
Flosi Magnússon. Hann kvaðst
hafa fagnað með sjálfum sér og
guði yfir frammistöðu hennar á
mótinu. Aðspurður neitaði
hann þó að hafa beðið guð um
gott gengi henni til handa. „Ég
bið ekki slíkra bæna, hún verð-
ur sjálf að leita til guðs um
styrk og er fullfær um
það,“sagði hann og kvaðst
ánægður með að dóttirin virðist
í góðu andlegu jafnvægi og vel á
sig komin í alla staði. „Hún
næði heldur ekki svona árangri,
án þess.“
Sjálfur segist Flosi hafa sofið
h'tið nóttina fyrir keppnina en
náð að blunda. Hann er þó ekk-
ert yfir sig hissa á árangri
stelpunnar. „Ég gat alveg átt von
á því að hún hreppti verðlauna-
sæti, það kom mér ekkert á
óvart. Fetta er vissulega hennar
besta stökk til þessa, hún hefur
ekki farið yfir 4.50 áður. En óg
hef trú á að hún eigi enn eftir að
bæta sig. Hún á meira eftir."
Flosi kveðst síðast hafa fengið
Völu í heimsókn um verslunar-
mannahelgina. „Pá skaust hún
hingað milli móta og gisti eina
nótt. Svo á ég von á henni í byrj-
un október, þá verður hún eitt-
hvað lengur. Vonandi sem lengst.
Fn hún verður að sinna stangar-
stökkinu vel til að ná þeim ár-
angri sem hún skilar. Hún er að
gera þetta bæði fyrir sjálfa sig og
okkur öll, blessuð stúlkan mín.
Hún er góður fulltrúi fyrir sína
þjóð.“
Metnaðarfull
og yfirveguð í skóla
Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skóla-
stjóri Grunnskóla Bfldudals var
umsjónarkennari Völu á sínum
tíma. „Vala stóð sig vel í námi
og var strax mjög metnaðarfull
en róleg og yfirveguð eins og í
dag. Hún var snemma hávaxin
inu heima og keyrði svo í vinn-
una milli stökka. Ég var nú
búinn að segja fólkinu hér á
skrifstofunni að hún ætti eftir
að koma á óvart."
- Kom hún þér á óvart?
„Bæði og. Innst inni var ég
nokkuð viss um að þetta
mundi ganga upp hjá henni.“
Valdemar segir Völu hafa byrj-
að að æfa frjálsar íþróttir
strax 6-7 ára gömul en skyldi
hann hafa séð þetta afrek fyrir
þá? „Viljinn var strax óvenju-
legur af svo ungum krakka og
hann drífur menn langt. Vala
var strax með rosalega
íþróttadellu og góð bæði í
frjálsu íþróttunum og bolta-
greinunum. Þegar hún flutti út
til Sviþjóðar 14 ára gömul
sagði ég foreldrum hennar að
það skipti engu máli í hvaða
grein hún færi, hún gæti náð
langt í hverju sem væri.“
- Eyddi hún miklum tíma í
œfingar þegar hún var fyrir
vestan?
„Hún hélt eiginlega til á
vellinum. Á litlum stöðum eins
og Bfldudal eru vellirnir opnir
og hún gat æft sig eins og hún
vildi. Ef hún komst ekki ein-
hverja hæð sem hún var að
glíma við í hástökkinu þá var
hún bara lengur."
Táraðist í sófanum
„Ég hreinlega táraðist í sófanum
í morgun,“ sagði Iða Marsibil
Jónsdóttir, fyrrverandi bekkjar-
og keppisfélagi frá Bfldudal.
„Vala er þannig að þegar hún
tekur sér eitthvað fyrir hendur
þá gerir hún það hundrað og tíu
prósent. Annars væri hún ekki
komin svona langt. Þetta hefur
fylgt henni frá unga aldri því
metnaðurinn var strax hennar
persónueinkenni. Hún var al-
hliða keppandi í íþróttum en ég
aðallega í hástökki. Við eigum
sameiginlegt héraðsmet í há-
stökki hjá héraðssambandinu
Hrafnaflóka, stukkum 1.52. Þá
var hún þrettán ára og ég ijórt-
án.“
- Heldurðu sambandi við
hana ennþá?
„Það var mjög gaman að hitta
hana í sumar á landsmótinu á
Bfldudal. Ég hafði ekki séð hana
í nokkur ár nema í sjónvarpinu.
Hún er alltaf jafn indæl.“
GUN.
í Sydney. Hér eru þær Þórey Edda Elísdóttir og Vala Flosadóttir með Sergei
Bubka, einn fremsta stangarstökkvara allra tíma, á milli sín
og kraftmikil og stóð sig vel í
íþróttunum, sérstaklega há-
stökkinu en var ekki byrjuð að
æfa stangarstökk hér. Á þessum
tíma var mikil drift í íþrótta-
málunum hér og Bflddælingar
stóðu sig vel á mótum. Ég veit
þó ekki til að neinn hafi haldið
áfram í íþróttunum nema Vala.
Að minnsta kosti er ljóst að
enginn fer á verðlaunapall á
ólympíuleikum nema hún.“
Flaggað á hverri stöng
„Það er hátíðastemmning á
Bfldudal og búið að flagga á
hverri einustu stöng,“ sagði
Gísli Ágústsson, formaður
íþróttafélagsins á Bfldudal.
Hann er á aldur við Völu og
keppti á sömu mótum og hún á
unglingsárunum. Ég er rosa-
lega stoltur. Það eru karlarnir
á bryggjunni líka og allir hér í
plássinu, alveg sama hvert farið
er, á bryggjuna eða í búðina,
allir tala um Völu og geta ekki
vatni haldið fyrir hrifningu."
- Áttuð þið von á því þegar
hún var að keppa við ykkur að
hún œtti eftir að komast svona
langt?
„Nei, ég held okkur hafi nú
ekki dreymt um það. En hún
kom hingað til okkar á ung-
lingalandsmótið sl. sumar og
var fagnað eins og þjóðhetju.
Hún stoppaði reyndar alltof
stutt en við gamlir félagar náð-
um að halda henni grillveislu
áður en hún fór.“
Öskraði alveg rosalega
„Ég öskraði alvega rosalega í
hvert skipti sem hún flaug yfir
slána í morgun,“ segir Valde-
mar Gunnarsson, íþróttakenn-
ari og starfsmaður hjá UMFÍ
en hann var íþróttakennari
Völu vestur á Bfldudal. „Ég
horfði fyrst á hana í sjónvarp-
Vala keppti á unqlinqalandsmóti UMFÍsl. sumar, á æskuslóðunum
í Bíldudal.
Feðginin Vala og Flosi árið 1996.