Dagur


Dagur - 03.10.2000, Qupperneq 2

Dagur - 03.10.2000, Qupperneq 2
2 - ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 rD^tr FRÉTTIR L A Öryrkj ar og aldraðir blása til sóknar Alveg síðan við voram hár síðast á tröppum alþingis 1997 hafa kjör okkar verið að drabbast niður sagði Benedikt Davíðsson formaður LEB. Engiun mannlegur máttur fær stöðvað okkur ef við stöndum saman, sagði Garðar Sverrisson, for- maður Öryrkjahanda- lagsins. Samtök aldraðra og öryrkja voru með mótmælastöðu, til að mót- mda bágum kjörum sínum og því að þeir hafa ekki fengið sinn hluta af góðærinu eins og aðrir Iands- menn, fyrir framan Alþingishúsið við setningu alþingis í gær. Bene- dikt Davíðsson er formaður Lands- sambands eldri borgara. Hann var á Austurvelli í gær og var spurður hvort mótmælastaðan væri tilkom- in vegna þess að aldraðir og öryrkj- ar væru skildir eftir hvað kjör varð- ar samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í gær? „Við höfum ekki fengið að sjá tjárlagafrumvarpið og engar tölur séð þrátt fyrir það að við höfum formlega séð samráðsnefrid með ríkisstjórninni sem á að fjalla urn alla tillögugerð er varðar kjör og aðbúnað aldraðra. Við erum hér íyrst og fremst til að mótmæla þeirra þróun sem orðið hefur und- anförnum misserum og árum. Al- veg síðan við vorum hér síðast á tröppum alþingis 1997 hafa kjör okkar verið að drabbast niður, bæði hin efnahagslegu kjör og einnig hafa biðlistarnir á hjúkrun- arheimilunum verið að lcngjast. Hvorugt það er ásættanlegt í þjóð- félagsástandi eins og við búum við nú, þegar fjármálaráðherrann kemur fram og gumar af 23 þús- und milljóna króna tckjuafgangi ríkisins," sagði Benedikt. Aðskilnaðarstefna stjómvalda Á Hótel Borg héldu öryrkjar fjöl- mennan baráttufund. Þar hélt Garðar Sverrisson milda baráttu- ræðu. Hann hvatti öryrkja til að hefja þegar í stað baráttu fyrir bættum kjöijum. Hann sagði ör- yrkja geta verið það afl sem enginn fær stöðvað ef fólk bara stendur saman. „Ef við berum gæfu til að standa þétt saman þá mun enginn, ekki nokkur mannlegur máttur geta komið í veg fyrir sigur okkar í bar- áttunni gegn aðskilnaðarstefnu ís- lenskra stjórnvalda.“ Þannig end- aði Garðar Sverrisson ræðu sína við gífurlegan fögnuð fundargesta. - S.DÓR Leiðir nor- rænt sam- starf Jónína Bjartmarz, formaður lands- samtakanna Heimili og skóli, hef- ur teldð við sem formaður nor- rænnar samstarfsnefndar lands- samtaka foreldra skólabarna, til næstu þriggja ára. Sameiginlegt þing samtakanna var haldið í Osló dagana 22.-24. september síðast- liðinn, undir yfirskriftinni „For- eldrar sem auðlegð skólastarfs". Þar voru sarnan komnir fulltrúar Danmerkur, Finnlands, ísfands, Noregs og Svíþjóðar, en auk full- trúa frá landssamtökum sat þingið Ijöldi foreldra og fulltrúar skóla- stofnana. I ályktun þingsins í Osló kemur ffarn að samtökin kreljast þess að í kennaranámi verði hætt að hunsa kennslu og þjálfun í for- eldrasamstarfi. „Kennaramenntun á Norðurlöndum tryggir ekki kennaranemum nægilega hæfni til samskipta við foreldra um nám og uppeldi nemenda. Foreldrar eru bakhjarlar barna og skóla,“ segir í ályktun. — BÞ Ekki við Evrópu- umræðu að sakast Flokksformeun hafna því að áhugi þeirra á Evrópusamhandinu sé orsök minnkandi fylg is flokkanna í skoð- anakönnunum. Það vakti athygli í skoðanakönn- un DV um fylgi flokkanna, sem birt var í gær, að þeir flokkar sem hafa verið hlyntastir því að skoða hugsanlega aðild Islands að Evr- ópusambandinu, Framsóknar- flokkurinn og Samfylkingin, töp- uðu fýlgi. Hinir Uokkarnir sem hafna inngöngu Islands í ES eða segja hana ekki á dagskrá vinna á. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar voru spurðir hvort þeir teldu umræðuna um Evr- ópusambandið orsök fylgistaps flokkanna í skoðanakönnuninni? Ekki Evrópuumræðan „Nei, ég held að þessi niðurstaða Halldór Ás- Össur Skarp- grímsson. hédinsson. sé engin vísbending um það. Eg held að þessi könnun sé ekki nægilega marktæk vegna þess að nær helmingur aðspurðra svar- aði ekki. Við höfum reynslu að því að það fólk sem svarar ekki í þessum skoðanakönnunum DV sé fólk sem styður okkur í kosn- ingum. Við tökum mun meira mark á skoðanakönnunum Gallups. Þess vegna held ég að þetta sé engin vísbending um af- stöðuna til Evrópusambands- ins,“ sagði Halldór Ásgrfmsson. Hann sagði ummæli sín þess efnis að hann teldi eðlilegt að út- lendingar fái að fjárfesta í ís- lenskum sjávarútvegi heldur ekki ástæðu niðurstöðunnar í skoð- anakönnuninni. Hann benti á að Islendingar væru farnir að fjár- festa erlendis í stórurn stíl og leggja þar í sparnað um 180 milljarða og það kæmi ekki nægi- Iega mikið af erlendu fjármagni inn í landið á móti því. „Við erum komin á opinn fjár- málamarkað hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ sagði Hall- dór. Lítil uniræða Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar tók undir með Halldóri að því leyti að það væri ekki Evrópuumræðan sem hér ætti hlut að máli. „Hún er enda komin svo stutt á veg og er svo óþroskuð hjá stjórnmnálaflokkunum að það er nær óhugsandi að hún geti átl hér hlut að máli. Það væri þá heldur sú staðreynd að tæp 50% aðspurðra kusu að svara ekki sem gæti ef til vill skýrt útkom- una,“ sagði Össur Skarphéðins- son. - S.DÓR Uppsagnir hjá SÍF Nokkrum hópi starfsmanna SÍF hefur verið sagt upp í kjölfar skipulagsbreytinga innan fyrir- tækisins. Friðrík Pálsson, stjórn- arformaður SÍF, segir að ekki sé uin margra einstakiinga að ræða. Það sé t.d. verulega orðum auldð að verið sé að segja upp fimm framkvæmdastjórum, enda væri þá enginn stjórnandi eftír. Töluverður tilfærslur eiga sér stað nú að starfsfólki í hagræð- ingarskyni og í kjölfar þess var íjórum eða fimm starfsmönnum sagt upp. Ekki náðíst í Róbert Agnarsson, framkvæmdastjóra SIF-lsland, vegna þessa máls. - GG lalldor svaraði gagnrýni ’yrsta verk alþingis eftir að pað hefur |^ggj erið sett er að kjósa sér forseta. Hall- ór Blöndal var í gær endurkjörinn for- eti alþingis. Hann hlaut 52 atkvæði, 6 usu ekki og fjórir voru fjarverandi. Þá ar Guðmundur Árni Stefánsson, Guð- án Guðmundsson, Isólfur Gylfi ’álmason og Árni Steinar Jóhannsson osnir varaforsetar eins og í fyrra. Halldór Blöndal hélt ræðu eftir að lann var kjörinn forseti. Hún fjallaði ingöngu um alþingi fyrr og nú og töðu þess í samfélagi samtímans. lann svaraði þeirri gagnrýni sem fram oma á alþingi og störf þess hjá forseta slands Ólafi Ragnari Grímssyni í inn- etningarræðu hans I. júlí í surnar. /-/o//WAr D/rinr/o/ Oftrá á hálcarlalýsid? Sú útbreidda trú meðal margra þjóða að hákarlar geti ekki fengið krabbamein hefur verið notuð til að auglýsa hákarlalýsi sem vörn gegn krabbameini. En rannsóknir amerísks vísindamanns við Georgs Wasington University hafa nú Ieitt í ljós að brjóskfiskar, þar á meðal há- karlar og skötur, geta fengið minnst 40 tegundir krabbameina. Enda trúir vísindamaðurinn, J.C. Harshbarger, því ckki að neysla hákarls og skötu minnki líkur á því að menn fái krabbamein og „segir að það sé álílta gáfulegt og að borða kanínukjöt til að geta hlaupið". Sem vænta mátti hafa niðurstöður rannsókna Harshbargers kallað á hörð viðbrögð þeirra sem trúa því að hákarlsneysla rninnki líkur á krabbameini í mönnum, scgir í Ægi, tímariti um sjávarútveg. — mi i Eggiit kærð hjá Bónus 12 egg eru orðin kæruefni til Samkeppnisstofnunar. Heildsölubakaríið hefur kært Bónus fyrir meint brot á samkeppnislögum með því að selja 12 egg á 129 krónur og halda því frarn í auglýsingum að allar vörur Bónuss séu á lægsta verði. Heildsölubakaríið selur 12 egg á kr. 79 en framkvæmdastjóri Bónuss segir verslunina miða verðlagningu sína við aðrar matvöruverslanir en eldd bakarí, söluturna eða byggingavöruvcrsl- anir sem hafi matvæli á hoðstólum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.