Dagur - 03.10.2000, Side 4
4- ÞRIÐJUDAGU R 3. OKTÓBER 2000
FRÉTTIR
Lögregla barin
og Imidrud í starfi
Talsverdur vidbúnaður var hjá lögreglu vegna heimsóknarinnar. Lögreglu var tilkynnt
um mótmælastöðu við Austurvöll sem fór friðsamlega fram.
Annasöm helgi að haki í
Reykjavík. Banaslys, of-
heldi og eldsvoðar.
Helgin var annasöm hjá iögreglunni í
Reykjavík. I dagbók kemur f’ram að alls
sinnti lögreglan 470 verkefnum.
Banaslys varð í Ártúnsbrekku þegar
ekið var á gangandi vegfaranda og alls
voru 54 árekstrar tilkynntir til lögreglu.
Höfð voru afskipti af 37 ökumönnum
vegna hraðaksturs og 7 kærðir vegna
gruns um ölvun við akstur.
Ráðist var að lögreglumönnum er
þeir komu til að sinna heimilisofbeldis-
máli í Árbænum á föstudagskvöldið.
Karlmaður sló lögreglumann í höfuðið
með vínflösku svo sauma varð nokkur
spor. Maðurinn var handtekinn og
vistaður í fangageymslu.
Þrír karlmenn voru handtcknir er
þeir hindruðu störf lögreglu í Breið-
holti skömmu eftir miðnætti á sunnu-
dag. Lögreglan hafði verið kölluð til
vegna karlmanns sem þar hafði gengið
berserksgang. Kona var flutt á slysa-
deild vegna áverka sem hún hlaut
vegna átaka við mann í Hafnarstræti
aðfaranótt sunnudags.
Eldur á veitingastað
Eldur kom upp á veitingastað í Mos-
fellsbæ síðdegis á föstudag. Talsverðar
skemmdir urðu á staðnum og einnig í
nærliggjandi verslun. Tilkynnt var um
eid í íhúð við Miklubraut á föstudags-
kvöldið. Húsráðandi hafði brugðið sér
af bæ meðan lærið var í ofninum og
pottur á eldavélinni. Talsverður reykur
var í íbúðinni sem slökkviliðið
reykræsti.EIdur kom upp í Vættarborg-
um aðfaranótt sunnudags. Fjölmennt
lið slökkviliðs og lögreglu var sent á
staðinn. Stúlka var flutt á slysadeild
vegna reykeitrunar og einnig ná-
grannafjölskylda.
ÚtivistaiTeglur hrotnar
Lögreglan kannaði útivistarmálefni
ungmenna þessa helgi og voru gerðar
athugasemdir í nokkrum tilvikum. Að
FRÉTTAVIÐTALID
þessu sinni var ástandið sérstaklega
skoðað á Seltjarnarnesi og í Vestur-
bænum. Þá fór lögreglan ásamt starfs-
mönnum barnaverndaryfirvalda á
nokkra veitingastaði til að kanna með
aldur gesta. Fjórum gestum undir aldri
var vísar af stöðunum þetta kvöld en
eigendum veitingastaða ber að tryggja
að ekki séu brotin ákvæði áfengislaga
um aldursheimild gesta.
Þá voru höfð afskipti af tveimur ölv-
uðum ungmennum 13 og 14 ára sem
voru í miðbænum um kl 02 aðfaranótt
sunnudags. Ekki þarf að taka fram að
þar hafa uppalendur ekki fylgt laga-
reglum né hefðbundnum gildum um
uppeldi barna.
Sófasett á túni
Nokkrir dagdrykkjumenn virðast hafa
verið orðnir þreyttir á hörðum bekkj-
um við Austurvöll. Þeir tóku sig til og
voru komnir með sófasett þar á túnið
um helgina og nutu drykkja sinna.
Ekki sátu þeir þó lengi í mjúkum sóf-
anum því hann var fjarlægður af lög-
reglu og mönnunum vísað frá og gerð
grein fyrir að hörðu bekkirnir yrðu að
nægja þeim við þessa iðu þeirra.
Karlmaður kom á lögreglustöðina við
Hverfisgötu að morgni laugardags
vegna leitar sinnar af unnustu sinni
sem lögreglan hafði haft afskipti af.
Hann brást illa við þegar uppgötvaðist
að stúlkan var á hrott. Til átaka kom
milli hans og lögreglu og reyndist
nauðsynlegt fyrir Iögreglu að handtaka
manninn. Ætluð fíkniefni fundust við
leit á manninum sem kannski skýrir
hegðun hans að hluta til skv. dagbók
lögreglu.
Friðsæl mótmæli
Um helgina stóð yfir opinber heim-
sókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Talsverður viðbúnaður var hjá Iögreglu
vegna heimsóknarinnar. Lögreglu var
tilkynnt um mótmælastöðu við Austur-
völl sem fór friðsamlega fram.
- BÞ
Greinilegt er að niöur-
stöður úr DV könniniim
á fylgi stjómmálaflokk-
aima hefur komið fram-
sóknarmönnum nokkuð á
óvart. í pottinum var í gær
verið að ræða um viðbrögð
Evrópuandstæðinganna í
flokknum, en þeir hafa
heldur betur látið í sér
lieyra og segja íylgislrrmúð
bemtengt Evrópuútspilinu
hjá flokknum. En aðrir í flokknum hafa bragðist
við af vantrú á niðurstöðu köimunariimar. Á
Maddömunm, vefsíðu ungra framsóknarmanna
segja menn einfaldlega aö ekkert sé að marka
könnunina því um helmingur spurðra hafi verið
óákveðinn. Segja SUFarar að í HÍ sé keimt að
svona htil svörun sé ígildi þess að könnunin sé
ómarktæk - og í pottinum segja menn að þetta
séu hin dæmigerðu viðbrögð í flokknum...
Ríkisútvarpiö er stöðugt á dagskrá
heita pottsins og þá ekki síst fræg-
ur leiðari Moggans á sunnudag
fyrir rúmri viku þar sem Markús
Öm var skammaður fyrir að vilja
ríkisrekna afjireyingu. Ýmsir hafa
orðið til að skrifa um leiðarami,
m.a. Jón Ásgeir Sigurðsson dagskrárgerðarmað-
ur og starfsmannafélagsmaður á RÚV sem er al-
veg hissa á illsku blaðsins út í RÚV. í pottinuin
er nú altalað að hugmyndin að umræddum leið-
arastubb liafl ekki fæðst á ritstjómarskrifstofu
Morgunblaðsins heldur uppi í menntamálaráðu-
neyti hjá Bimi Bjamasyni sjálfum!!
Og emi um ríkisútvarpið. Þaðan
hefur nú verið að fara vant fjöl
miðlafólk og meðal þeirra sem
horfnir em frá stofnuninni era
menn eins ogÆvar Öm Jósepsson,
sem lengi var á Rás 2. Ævar mun
nú hættur a útvarpinu og komhm
tii Vísis.is þar sem liann er í fréttaliarkinu...
V
Ævar Örn
Jósepsson.
Markús Örn
Antonsson.
Bílstjórar hóta aðgerðum
Unnur
Sverrisdóttir
jfamkvæmdastjóri Landssambands
vörubijteiðastjóra
Mælirínn fullur. 13% hækk-
un á díselolíu. Safna liði og
móta kröfur. Langlundargé
landans rannsóknarefni.
- Hvernig koma þessar eldsneytishækk-
anir við félagsmenn?
„Þetta er bara skelfilegt og það Ioga allar
símalínur hingað á skrifstofuna. Það er eins
og þessi síðasta hækkun hafi verið dropinn
sem fyllti mælinn. Þetta er húið að vera
hægt og stígandi með stöðugum hækkun-
um. Við höfum hins vegar setið dálítið á
bremsunni gagnvart okkar mönnum. Það er
m.a. vegna þess að þungaskatturinn er inn-
heimtur sér hér á Iandi. Þannig að ég hef
verið að benda mönnum á að þetta horfi dá-
lítið öðruvísi við hér en í nágrannalöndum
okkar þar sem hægt er að krefjast lækkunar
á sköttum. Eg verð þó að játa það að þegar
ég heyrði um þessa síðustu hækkun þá skip-
ti ég hreinlega um skoðun. Eg held að það
verði að fara að skoða þessi vinnubrögð hjá
olíufélögunum í verðlagningunni þvf þetta
er ekki eðlilegt. Ef t.d. eitt olíufélög mundi
taka sig til og hækkaði verðið ekki nema 2-3
krónum minna en hin þá mundi það fá alveg
rífandi viðskipti út á það. Það er hins vegar
eins og þau þori það ekki. Það er eins og það
sé eitthvert heiðursmannasamkomulag þeir-
ra í milli sem engum dettur í hug að brjóta.“
- Eru nienn famir að íhuga einhverjar
aðgerðir?
„Já. Við ætlum að reyna að fá sem flesta
með í þær. Þá þarf einnig að vera eitthvað
vit í kröfunum. Það |~>ýöir ekkert að gera
eins og menn gerðu í fyrra þegar nokkrir
tóku sig saman og lokuðu Keflavíkurvegin-
um.“
- Til hvaða aðgerða geta menn gripið?
„Því erum að velta fyrir okkur. Það er t.d.
spurning hvort við eigum að gera sömu
kröfur og nágrannaþjóðir okkar hafa gert.
Það er að það verði gripið tímabundið innf
verðlagningu með lækkun skatta á meðan
þessi ósköp eru að ganga yfir. Við áttum
okkur hins vegar alveg á því að við stjórnum
ekki samtökum olíuframleiðsluríkja. Það
verður hins vegar að vera eitthvað kjöt á
beinunum ef menn ætla að fara fram með
einhverjar kröl’ur."
- Hvað er þetta mikil hækkun og hvern-
ig koma þær við rekstur hílanna?
„Þetta er 13% hækkun á díselolíu. Þá ætl-
um við að taka saman hvað þessar hækkan-
ir eru miklar frá áramótum, enda erum við
að vinna á fullu í þessu. Það sem mér finnst
einna alvarlegast í þessu er að félagsmenn
eru margir að vinna verk samkvæmt útboð-
um. Þar erum við að tala um verksamninga
til eins og tveggja ára. Svo eru menn allt í
einu l’arnir að horga alveg stórkostlega með
þér í þessum verkum."
- Hefurðu einliverja skýringu d því af-
hverju landinn hefur sýnt svona mikið
langlundargeð gagnvart þessum eldsneyt-
ishækkunum miðað við margar nágranna-
þjóðir i' Evrópu?
„Ég held að það sé fyrst og fremst vegna
þess að þetta er aðskilið eins og t.d. það að
verð á díelsolíunni snýr að atvinnubílstjór-
um. Þá virðist FIB vera f þcirri stöðu sem ég
held að sé dálítið einkennandi fyrir þjóðina
að ntenn fá ekki hinn almcnna borgara í
einhver læti. Það er þá kannski helst núna
eftir þessar síðustu hækkanir.“
- Hefurðu einhverja skýringu á þessu
háttalagi landans?
„Nei. Þetta er eitthvað rannsóknarefni
fyrir Kára Stcfánsson. Eg vil t.d. líkja þessu
saman við Jrað að fólki þykir alveg sjálfsagt
að horga fimm sinnum meira íyrir íslenska
tómata þegar þeir koma fyrst á markaðinn.
Eða þá að horga jafnmikið fyrir græna
papriku og fyrir nautasteik. Þetta er sama
ruglið. Það mundi hins vegar enginn gera í
nágrannalöndunum." - GRH