Dagur


Dagur - 03.10.2000, Qupperneq 9

Dagur - 03.10.2000, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBF.R 2000 - 9 Úr leik Stjörnunnar og ÍBV um helgina. Jafnt á toppnum Eftir leiki aimarrar umferðar árvalsdeildar kveirna í haudknatt- leik, sem fram fóru um helgina, eru Haukar, Stjaman og Fram jöfn í toppsætum deildariun- ar með fullt hús stiga. Svo er að sjá, eftir fyrstu leiki úr- valsdeildar kvenna í handknattleik að baráttan á toppnum gæti orðið nokkuð hörð og spennandi í vetur. Haukarnir eru þó sterkastir á pappírunum og líklegt að Víkingur, Stjarnan og Grótta/KR muni helst velgja þeim undir uggum, auk þess sem FH, Fram og IBV gætu eitt- hvað blandað sér í baráttuna. Onnur lið virðast ekki hafa styrk á við áðurnefnd lið og má búast við að erfiður vetur bíði ungra og efni- legra liða Vals, KA/Þórs og IR. Valsarar hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku og misst svo að segja all- an kjarna liðsins frá því í vor, eins og reyndar FH-ingar og íslands- meistarar IBV, sem hafa misst sjö leikmenn úr meistaraliðinu. I stað- inn hefur Eyjaliðið fengið til sín þær Ingibjörgu Yr Jóhannsdóttur úr 1R, írisi Sigurðardóttur og Eddu Garðarsdóttur úr Aftureldingu og Asrúnu Osk Guðgeirsdóttur mark- mann frá Selfossi, auk Marinu Ba- kulinu frá Ukraínu, sem á að baki 60 landsleiki. Eyjaliðið sýndi það gegn Stjörnunni að það er til alls líklegt, en eflaust mun taka tíma að slípa liðið saman. FH-ingar hafa einnig misst stór- an hóp og má þar nefna landsliðs- konurnar Þórdísi Brynjólfsdóttur og Drífu Skúladóttur, sem héldu til Noregs og Hrafnhildi Skúla- dóttur sem er ófrísk. Einnig er Guðrún Hólmþórsdóttir farin til Víkings, þannig að liðið hefur misst mikið. Það virðist þó að ein- hverju leyti hafa tekist að fylla í skörðin miðað við fyrstu leikina og að sjá að þær sem hafa tekið við geti staðið sig í deildinni. Judit Esztergal er liðinu mikill styrkur og virðist engu hafa gleymt eftir nokkurt hlé vegna meiðsla. Framliðið með Marinu Zouevu í broddi fylkingar stillir upp svipuðu liði og í fyrra og gæti komist nokk- uð Iangt á seiglunni með þær Hug- rúnu, Marínu, Díönu og Katrínu sem helstu burðarása. Það virðist þó há liðinu hve breiddin er lítil og þá sérstaklega í sóknarleiknum, þar sem Zoueva er allt í öllu. Góð innkoma Signýjar í síðasta leik gef- ur þó góð fyrirheit og víst að liðið á eftir að reyta inn nokkur stigin í Safamýrinni. Urslit úr leik IBV og IR sem fram fór í Eyjum í gærkvöldi höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prent- un og skipta engu um stöðuna á toppnum, þar sem bæði Iiðin voru án stiga fyrir Ieikinn. Næsta um- ferð hefst annað kvöld og eftir hana ættu línur að skýrast enn frekar um stöðuna. Næstu leikir: Miðvikud. 4. okt. KI. 20.30 Fram - Haukar KJ. 20.00 ÍBV - FH Laugcird. 7. okt. KI. 16.30 Grótta/KR - ÍR Kl. 14.00 Valur - Stjarnan Kl. 16.30 Víkingur - KA Stelpumar tryggðu sætið í A-hópnuui íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér sæti í efsta styrkleika- hópi UEFA, þegar það vann 8-0 stórsigur á því rúmenska í seinni leik þjóðanna á Laugardalsvelli á laugardaginn. Fyrri leikurinn sem fram fór í Rúmeníu, endaði með 2-2 jafntefli, þannig að íslenka liðið vann sam- tals 10-2 og heldur þar með sæti sínu á A-hópi. Islenska liðið byijaði Ieikinn af miklum krafti, en fann þó ekki leiðina í markið fyrr en á 23. mínútu, þegar Asthildur Helgadóttir skoraði eftir hornspyrnu Margrétar Olafsdóttur. Sjö mínútum síðar skoraði Rakel Ög- mundsdóttir annað mark íslenka liðsins, eftir góðan undirhúning Olgu Færseth, en Rakel átti heldur betur eftir að koma við sögu í leiknum og voru mörkin hcnnar orðin fjögur þegar flautað var til leiksloka. Fleiru urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik, en eftir að Katrín Jónsdóttir hafði brotið ísinn, þegar 12 mínútur voru Iiðnar af seinni hálfleik, fylgdu þrjú í kjölfarið á sex mínútna kafla. Það fyrsta gerði Rakel Ögmundsdótt- ir á 64. rnínútu, eftir sendingu frá Margréti og síðan Guðlaug Jónsdóttir það næsta með þrumuskoti eftir sendingu frá Rakel. Tveimur mínútum síðar fylgdi svo þriðja mark Rakelar og staðan orðin 6-0. Þar með var allt púður úr rúmenska liðinu og aðeins spurning hve sigurinn yrði stór. Rakel bætti síðan við sínu Ijórða marki á 79. mínútu eftir sendingu frá Guðlaugu og þremur mínútum fyrir leikslok kom það áttunda, sem Erla Hendriksdóttir gerði eftir sendingu frá Asgerði lngibergsdóttur. Tvöfaldur sigur Baudaríkjamauna Eins og flestir bjuggust við, unnu Bandaríkjamenn tvöfaldan sigur í körfuknattleikskeppni ólympíuleikanna í Sydney. Karlaliðið, sem nú vann sitt tólfta ólympíugull, þurfti að hafa þó nokkuð fyrir sigrinum að þessu sinni og var alls ekki það yfirburðalið sem það til dæmis var á síð- ustu tveimur Ieikum. Það vann aðeins tveggja stiga sigur gegn Litháum, 85-83, í undanúrslitum og síðan tíu stiga sigur gegn Fröklvum, sem er sá minnsti, sem liðið hefur unnið í úrslitaleik. Þar að auki vann liðið þijá aðra leiki á leiðinni í úrslitin, með minna en fimmtán stiga mun, sem er mun lakara en til dæmis á síðustu tveimur leikum, þegar liðin vann alla sína Ieiki með meira en 22ja stiga mun og mest með fjörtíu stiga mun. I úrslitaleiknum gegn Frökkum missti liðið dampinn í seinni hálfleik, gegn firnasterkri vörn Frakkanna og þegar um Ijórar mínútur voru til leiksloka tókst Frakkanum Stephane Risacher að minnka muninn í Ijög- ur stig, 76-72, með tveimur þriggja stiga körfum í röð. Það er þó ekki hægt að segja að sigurinn hafi verið í hættu, því Bandraríkjamennimir hreinlega skiptu í fluggír og skoruðu níu af tólf síðustu stigum leiksins. Frakkar unnu Ástrali 76-52 í undanúrslitum og komust þar með alla leið í úrslitaleikinn í fyrsta skipti síðan 1948, en þá máttu þeir þola tólf stiga tap, 106-94, gegn Bandaríkjamönnum. Fjórða ólympíugulL Edwards 1 úrslitum kvenna unnu bandarfsku stúlkurnar 22ja stiga sigur, 76-54, á þeim áströlsku eftir að hafa náð þrettán stiga forskoti í hálfleik, 43-30. Áströlsku stúlkunum, sem unnu bronsið í Atlanta fyrir fjórum árum, tókst að minnka muninn í sjö stig snemma í seinni hálfleik, en þá tók bandaríska liðið öll völd á vellinum og valtaði yfir það ástralska. Hinn 36 ára gamla Teresa Edwards, fyrirliði bandaríska liðsins, vann þarna sitt fjórða ólympíugull á ferlinum, en hún var nú á sínum fimmtu leikum - vann gull í Los Angeles, Seoul og Atlanta og brons í Barcelona. Hin nítján ára gamla Lauren Jackson var langbest í átralska Iiðinu, skoraði alls 20 stig, tók 13 fráköst og varði 3 skot. Ástralska liðið komst í úrslitaleikinn eftir tólf stiga sigur, 64-52, á því brasilfska, þar sem þær Lauren Jackson og Sandy Brondello skoruðu sextán stig hvor lyrir Ástrali, en brasilíska liðið vann silfrið í Atlanta árið 1996. I hinum undanúrslitaleiknum vann bandaríska liðið þrettán stiga sigur á Asíumeisturum Suður-Kóreu eftir að hafa leitt með aðeins tveim- ur stigum í hálfleiki, 42-40. Rakel og Hlymir leikmemi ársins Knattspymumeim héldu um helgiua áx- legt lokahóf sitt, þar sem valdir voru hestu og efnilegustu leik- menn nýliðins leik- tímahils. Þau Rakel Ögmundsdóttir, Breiðabliki og Hlynur Stefánsson, IBV, voru valin bestu leikmenn úrvalsdeilda karla og kvenna á ár- legu lokahófi knattspyrnumanna sem haldið var á Broadway á laug- ardagskvöldið. Það voru leikmenn og þjálfarar liðanna í cfstu deild- um sem þátt tóku í valinu og voru einnig valdir efnilegustu leik- mennirnir, sem að þessu sinni voru þau María B. Ágústdóttir, markvörður Stjörnunnar og Helgi V. Daníelsson, leikmaður Fylkis. Rakel Ogmundsdóttir. Besti dómarinn var valinn KR- ingurinn Kristinn Jakobsson og prúðustu leikmennirnir þau Bjarni Þorsteinsson og Guðrún Gunnarsdóttir, bæði úr KR. Háttsemisverðlaun KSl fyrir prúðastan leik liða voru einnig af- Hlynur Stefánsson. hent á lokahófinu og hlutu kvennalið Breiðbliks og karlalið Fylkis verðlaunin. Gullskórinn var að venju veittur og hlaut hann Andri Sigþórsson úr KR, sem varð markahæstur í Landssímadeildinni ásamt Guð- mundi Steinarssyni úr Keflavík, en þar sem Andri lék færri leiki, hlaut hann gullskóinn en Guð- mundur silfurskóinn. Þriðji markahæsti leikmaður deildar- innar varð Fylkismaðurinn Gylfi Einarsson. Að lokum var tilkynnt um val íþróttafréttamanna á liðum ársins í karla- og kvennaflokki, þar sem Ijórir leikmenn frá Islandsmeist- urum KR voru valdir í karlaliðið og jafnmargir frá silfurliði Fylkis. í úrvalsliði kvenna eiga KR-ingar einnig fjóra leikmenn og lslands- meistarar Breiðabliks jafnmarga, en Stjarnan tvo og IBV einn. Crvarlslið karla: Markvörður: Kritján Finnboga- son (KR) Varnarmenn: Sigurður Örn Jónsson (KR), Þórhallur Dan Jó- hannsson (Fylki), Hlynur Stef- ánsson (IBV) og Bjarni Þorsteins- son (KR). Miðvallarleikmenn: Sverrir Sverrisson (Fylki), Gylfi Einars- son (Fylki), Ólafur Örn Bjarnason (Grindavík) og Helgi Valur Daní- elsson (Fylki). Framherjar: Veigar Páll Gunn- arsson (Stjörnunni) og Andri Sig- þórsson (KR). Úrvalslið kvenna: Markvöróur: María B. Ágústs- dóttir, Stjörnunni. Vamarmenn: Guðrún Gunnars- dóttir (KR), Iris Sæmundsdóttir (ÍBV), Helga Ósk Hannesdóttir (Breiðabliki) og Auður Skúladótt- ir, (Stjörnunni). Miðvallarleikmenn: Guðlaug Jónsdóttir (KR), Margrét Ólafs- dóttir (Breiðabliki), Ásthildur Helgadóttir (KR) og Ema B. Sig- urðardóttir (Breiðabliki). Framherjar: Rakel Ögmunds- dóttir (Breiðabliki) og Olga Fær- seth (KR).

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.