Dagur - 03.10.2000, Page 19
Akureyri-Norðurland
: ;■ ■: ", ■ ".■'■■;. ■ .■ ;. ■ ■■ ■ ■ " . . ■..■■ ■■■""".,.■,■;■.■ .' ■..;, , .. •■■ .■.. .-. ..■■;.■.;; ;;; :' ''..■. ;-■,■■■ ';■. : ;. . , ;■■
ÞRIDJVDAGUR 3. OKTÓBER 2000 - 19
Visthótel flýr kjiikl
ingaeldi á D amk
„Þetta snýst um ímynd Dalvikur. Það er ekki hægt að setja sláturhús niður við
hliðina á verslunarmiðstöð, bakaríi og veitingastað og í nágrenni við brottfarar-
stað hvalaskoðunar þar sem fjöldi útlendinga kemur, “ segir Sigurbjörg Árna-
dóttir sem er að leita að nýjum stað fyrir visthótel. Myndin er frá Dalvík.
Ingileif Ástvaldsdóttir,
forseti bæjarstjómar
Dalvíkurbyggðar, segir
að ákvörðun Sigur-
bjargar Ámadóttur
hafi komið sér vem-
lega á óvart og húu
hafi ekki verið með
nein skilyrði um það
hvaða starfsemi mætti
vera og hvað ekki þeg-
ar Dalvíkurbyggð sam-
þykkti að gerast hlut-
hafi í fyrirtækiuu.
Hlutafélagið Bjálkinn. sem hugð-
ist byggja vistvænt hótel í Dalvík-
urbvggð sem bera átti heitið Pól-
stjarnan, hefur Iagt þau áform á
hiliuna. Sigurbjörg Arnadóttir
segir ástæðuna þá að veitt hafi
verið leyfi íyrir rekstri kjúklinga-
bús skammt frá Ióðinni þar sem
stóð til að reisa hótelið. Kjúklinga-
búið verður að hluta til að Ytra-
Holti, en kjúklingasláturhús á
halnarsvæðinu þar sem um tíma
var rekin rækjuverksmiðja. Hótel-
ið átti hins vegar að rísa sunnan
og ofan Böggvisbrautar, efst í
bænum.
Kuni verulega á óvart
Ingileif Astvaldsdóttir, forseti bæj-
arstjórnar Dalvíkurbyggðar, segir
að ákvörðun Sigurbjargar Arna-
dóttur hafi komið sér verulega á
óvart og hún hafi ekki verið með
nein skilyrði um það hvaða starf-
semi mætti vera og hvað ekki þeg-
ar Dalvíkurbyggð samþykkti að
gerast hluthafi í fvrirtækinu.
Kjúklingabúið sé matvælaiðnaður
á sama hátt og fiskvinnslufyrir-
tækin sem starfi í byggðarlaginu.
„Kjúklingabúið er sett upp ná-
kvæmlega samkvæmt þeim hcil-
brigðisstöðlum sent eru í dag. Við
bæjarfulltrúar, eins og aðrir bæj-
arbúar, erum að hcyra af hennar
áformum í útvarpi og blöðum, en
en okkur hefur enn ekki borist er-
indi um að hún ætli að endur-
skoða áform sín. Þegar þannl.
ágúst sl. lá sú ákvörðun fyrir að
kjúklingahúið verði staðsett í Dal-
víkurbyggð og því kemur mér á
óvart að sú gagnrýni sem rfs upp
nú sé að koma fram tveimur mán-
uðum seinna,“ segir Ingileif.
Komið aftan
að liæjaryfírvöldiun
Sá meirihluti bæjarstjórnar Dal-
víkurbyggðar sent Sigurbjörg
Arnadóttir gagnrvnir mest segir
Ingileif jafnframt vera þann meiri-
hluta sem hefur stutt hana í þessu
verkefni sem nú sé sagt í hættu.
„Við höfum gert þetta í góðri trú,
en ekki séð yfirlýsta stefnu, held-
ur aðeins orðið „umhverfisvæn-
asta“. Með þessum yfirlýsingum
nú tel ég komið aftan að okkur og
það er ekkert í Staðardagskrá-21
sem segir það að hér megi ekki
vera matvælaiðnaður samkvæmt
ítrustu heilbrigðisstöðlum. Fyrir
mér er þetta upphlaup stormur í
vatnsglasi, því sá hópur sem nú rís
upp er sami hópur og segir að
fólki hafi ekki verið gefnar neinar
upplýsingar. Sama tólk er samt
með yfirlýsingar um hversu
hættulegt þetta sé," segir Ingileif
Astvaldsdóttir.
Piikur?
Sigurbjörg Árnadóttir segir það
rangt að bún hafi vitað um
ákvörðun bæjaryfirvalda í tvo
mánuði, bún hafi engar tilkynn-
ingar fengið þar að lútandi og það
hafi aldrei hvarlað að henni að
þessum vinnubrögðum yrði beitt.
„Ef bæjarfélagið er að taka þátt í
Staðardagskrá-21 af heilum hug
og taka þátt í uppbyggingu um-
hverfisvænstu ferðamiðstöðvar í
Evrópu þá á ekki samtímis að vera
að pukrast með mál, eins og stað-
setning kjúklingabúsins er. Það er
ekki framleiðslan sem ég er að
agnúast út í heldur staðsetningin.
Með því að staðsetja búið á þrem-
ur stöðum sleppa þeir við lög-
formlegt umhverfismat og ég hélt
að þau vinnubrögð að bæjarhúar
fengju ekki að tjá sig heyrðu til
grárrar forneskju.“
Hóteli fimdinn aiiiiar staður?
- En var bj'gging hótelsins ekki
bara orðid vonlaust dæmi og þii að
leita lítgöngu sem lwm þama u-pp
í hendumar á þér?
„Þetta er alls enginn útganga í
málinu, og raunar ekki svaravert.
Þetta snýst um ímynd Dalvíkur.
Það er ekki hægt að setja slátur-
hús niður við hliðina á verslunar-
miðstöð, bakaríi og veitingastað
og í nágrenni við brottfararstað
hvalaskoðunar þar sem Ijöldi út-
lendinga kcmur. Eg er hins vegar
alls ekki að hætta við byggingu
hótelsins, en staðsetning á Dalvík
kemur ekki til greina ef áform
bæjarstjórnar stendur óhögguð.
Ég er að skoða ýmsa staði, einnig
erlendis, en þó ekki í Finnlandi,
enda þori ég ekki að orða þessa
hugdettu Dalvíkinga við þá Finna
sem taka þátt í verkefninu," segir
Sigurbjörg Arnadóttir.
GG
•■ -- ■................-■-
’r.T...', „v ** i>. ...•—-jsps'V:,;.'
; 1 m £ & t & já& I 1 itl]
Stefnt er að því að Ijúka við allt tréverk neðan Sigurhæða á Akureyri i haust, en um 2. áfanga verksins er að ræða. Næsta sumar verður svo lokið við að
ganga frá köntum og lýsingu. Kostnaðaráætlun nam um 15 milljónum króna og að sögn Tryggva Marínóssonar hjá umhverfisdeild Akureyrar, eru allar
líkur á að sú heildaráætlun standist. mynd brink
Kristján Þór Júliusson bæjarstjóri
og Jón Ellert Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Nett, takast i hendur
að lokinni undirskrift samnings
Nett og Akureyrarbæjar.
Scmur
við Nett
Akureyrarbær hefur samið við
Nett ehf. um rekstur netkerfis
bæjarins, fjarskiptatenginga
stofnanna bæjarins, internets-
þjónustu og um notendaþjón-
ustu við starfsmenn bæjarins.
Samningurinn er gerður í kjölfar
útboðs á vegum Ríkiskaupa og
tilboð bárust frá öllum stærstu
tölvufyrirtækjum á Akureyri auk
lslandssíma hf. og Alits hf. í
Reykjavik.
Samningurinn, sem er sá
stærsti sem Nett hefur gert til
þessa, felur í sér að Nett mun
annast margvíslega þjónustu við
starfsmenn og stofnanir bæjar-
ins. Sem dæmi má nefna rekst-
ur og hýsingu á netþjónum,
tengingu á öllum grunnskólum
við internetið hjá Nett með 2
mb. gagnalínum og tengingu á
öllum leikskólum og ýmsum
stofnunum sem hingað til hafa
ekki verið með fastlinutengingu,
alls 23 að tölu. Þessu til viðbót-
ar hefur Akureyrarbær falið Nett
að annast notendaþjónustu við
starfsmenn bæjarins, sem var
ekki innan útboðsins.
Skilorö fyrir
líkamsárás
21 árs gömul kona hefur hjá
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmd í 4ra mánaða fang-
elsi skilorðsbundið eftir Iíkams-
árás. Hún kastaði glasi í andlit
annarrar konu á skemmtistaðn-
uni Club 13 aðfararnótt 7. apríl
sl. með þeirn afleiðingum að
fórnarlambið hlaut skurð á vin-
stri vanga. Ekki var farið fram á
skaðabætur.
Við meðferð málsins fyrir
dómi viðurkenndi ákærða ský-
laust sakargiftir í ákæruskjali og
er játning hennar í samræmi við
rannsóknargögn lögreglu. Ligg-
ur þannig fyrir í málinu að
ákærða átti í orðahnippingum
við árásarþolann á nefndum
skemmtistað og að tilefni þeirra
hnippinga hafi verið stimpingar
er félagar þeirra höfðu átt í
skömmu áður. Lauk nefndum
orðahnippingum stúlknanna
með þvi að ákærða kastaði glasi
í andlit árásarþolans. Sam-
kvæml frumskýrslu lögreglu
voru nefndir aðilar allir töluvert
ölvaðir og var ákærða handtekin
og færð á lögreglustöð en árás-
arþoli á slysadeild FSA til að-
hlynningar. Samkvæmt áverka-
vottorði var stúlkan með skurð á
vinstri vanga um 1,5 cm á lengd
og var gert að sárum hennar en
hún síðan útskrifuð.
BÞ