Dagur - 03.10.2000, Side 20
20 - ÞRIDJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
i-Norðurland
Jóti er ekki hér“
„Tóti er ekki hér!“
Sagði imgur maður
sem þóttist eiga far-
síma jafnaldra síns.
Dæmdur í 45 daga
faugelsi fyrir brotið.
21 árs gamall karlmaður hefur
verið dæmdur í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi eftir að hafa
haldið ranglega fram að hann
ætti Nokia-síma. Maðurinn hef-
ur margoft komið áður við sögu
lögreglu.
Málavextir eru þeir að mánu-
daginn 15'. maí s.l. kom við-
skiptavinur í verslunina Strax við
Byggðaveg með GSM síma, sem
hann hafði fundið fyrir utan
verslunina og spurðist fyrir um
hvort einhver væri eigandi hans.
A vettvangi gaf sig fram karlkyns
viðskiptavinur er lýsti sig eiganda
símtækisins. Nokkrum dögum
síðar hafði jafnaldri ákærða
símasamband við starfsmenn
verslunarinnar og spurðist fyrir
um GSM síma af gerðinni
Nokia 5110, sem hann kvaðst
hafa glatað þar fyrir utan.
Vegna þessa var lögreglu gert
viðvart og þ.á.m. um að starfs-
menn verslunarinnar hefðu
þekkt ákærða fyrir þann aðila
sem tekið hefði við símtækinu
þann 15. maí s.I. Samkvæmt
frumskýrslu lögreglu fóru lög-
reglumenn á heimili ákærða,
21. maí s.l., en hann kannaðist
þá ekki við aðild sína að málinu.
Við skýrslutöku á lögreglustöð
þann 24. maí sl. vísaði ákærði
til þess að hann hefði verið ölv-
aður þann 15. maí s.l. og gæti
af þeim sökurn ekki tjáð sig um
gjörðir sínar vegna minnisleysis.
Þcss má geta að síminn hring-
di skömmu eftir að dæmdi hafði
lagt á hann ólögmætt eignar-
hald. Samkvæmt afgreiðslu-
stúlku í Strax svaraði dæmdi:
„Tóti er ekki hér, Tóti er í fríi.“
I staðfestri yfirheyrsluskýrslu
skýrði ákærði nánar svo frá:
„Kærði segist ekki muna eftir
því að hafa sagst eiga farsíma
sem fannst í versluninni Strax
þann 15.05. 2000. Hann segist
ekki muna eftir því að hafa tek-
ið við símanum né hvort eða
hvernig hann ráðstafaði honum
ef hann hefur tekið við honum.
Hann segist hafa leitað símans í
vistarverum sínum en ekki
fundið hann. Hann segist hafa
sett sig í samband við starfsfólk
verslunarinnar Strax og fengið
símanúmer hjá þeim sem til-
kynnti hvarf símans. Hann seg-
ist hafa sett sig í samband við
þann mann og samið um að
greiða honum andvirði símans."
Símanum var síðar skilað.
Olafur Ólafsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
BÞ
Tekist á viö flóðið á sínum tíma.
2 milljóiiir í
flóðaDætur
Hákon Stefánsson, bæjarlög-
maður á Akureyri, segir að bær-
inn hafi ákveðið að bæta íbúum
á Oddeyrinni tjón sem varð í
miklu votviðri í sumar. Mannleg
mistök eru hugsanlega talin
hafa átt þátt í að vatn og skólp
flæddi um götur og kjallara með
ömurlegum afleiðingum. Hákon
segir að þótt ákveðinn vafi leiki
á bótaskyldu hafi bærinn ákveð-
ið að verjast ekki í málinu.
„Bærinn telur að staðan í mál-
inu sé frekar erfið þótt í reynd
hafi ekki verið tekið á því hvort
sökin sé okkar. Við höfum þar af
leiðandi ákveðið að koma á móts
við fólk og bæta því tjónið," seg-
ir bæjarlögmaður. Skaði bæjar-
ins er 2 milljónir króna vegna
málsins. Bærinn tryggir hjá Sjó-
vá-Almennum.
BI>
Sametnaðar
veitur verða
Norðurorka
Samkvæmt frumdrögum að Ijár-
hagsáætlun fyrir sameinað veitu-
fyrirtæki á Akureyri er gert ráð fyr-
ir rétt rúmlega 6 milljón króna
hagnaði af þessu nýja fyrirtæki á
næsta ári, árinti 2001. Heildar-
velta fv'rirta'kisins er áætluð rúm-
lega 1,1 milljarður króna en að
rekstrargjöldin verðí rétt rúmur
milljarður. Þegar hefur verið
ákveðiö nafn á nýja lyrirtækið en
það var valið úr potti með um 50
tillögum sem borist höfðu. Niður-
staðan var nafnið „Norðurorka11
og er höfundur nafnsins Hlynur
Kristjánsson, og mun veitustjórn
veita honum sérstaka viðurkenn-
ingu íyrir nafnið.
SKODANIR BRYNJÓLFS
Verður vmdurinn
verðlagður?
Þessi spurning vaknar þegar
heyrðist frá Auðlindanefnd.
Ekki var hann tilgreindur sér-
staklega en ýmsir aðrir þættir í
andrúmsloftinu eru þarna til-
greindir. Ef vindmyllur yrðu
settar upp til þess að framleiða
rafmagn er mjög Ifklegt að
gjalds yrði krafist fyrir þær til
að jafnræðis yrði gætt. Þá gæti
líka þurft að taka auðlindagjald
af seglskútum til að gæta sama
jafnræðis. Ekki er gott að segja
hvar þessi jafnræðisvitleysa
endar! Einari Ben þættu þetta
athyglisverðir viðskiptahættir ef
hann væri á meðal okkar.
Nýr starfsdagur
á kikskólimuni
Skólanefnd Akureyrar hefur
samþykkt að bætt verði við ein-
um starfsdegi á leikskólum bæj-
arins skólaárið 2000-2001.
Þennan starfsdag á að nýta til
námskeiðahalds fyrir alla starfs-
menn leikskólanna og er búið
að fastsetja starfsdaginn á dag-
inn fyrir skírdag. I samþykkt
skólanefndar kemur fram að á
þessum degi sé yfirleitt mikið
um fjarvistir barna á leikskólum
og frí sé í öðrum skólum. Rask
fyrir foreldra vegna starfsdags-
ins ætti því að vera í minna lagi.
Niðurstaða þessi byggist á
reynslunni af tilraun sem gerð
var í leikskólum þann 19. apríl
síðast liðinn en þá var haldinn
sérstakur námskeiðadagur. Eftir
að hafa skoðað greinargerðir
um hvernig þessi dagur hafi
nýst leikskólunum í starfi og að
Náttúrugripasafn í
rannsóknarhús HA
Námskeiðadagur, er nýr starfsdagur á leikskólum sem verður daginn fyrir
skirdag í ár, en þá fellur hefðbundið leikskólastarf niður á meðan starfs-
fólkið menntar sig.
fenginni ósk leikskólastjóra um viðburði samþykkti skólanefnd-
að svona dagur yrði að árlegum in að verða við því erindi.
Náttúrugripasafnið á Akureyri
stendur almenningi ekki til boða
að skoða um þessar mundir þar
sem það er niðurpakkað í köss-
um og bíður þess að því finnist
framtíðarstaður í ásættanlegum
sýningarsal.
Kristinn Albertsson, forstöðu-
maður Akureyrarseturs Náttúru-
fræðistofnunar Islands, sem hef-
ur umsjón með Náttúrugripa-
safninu, segir að vonir standi til
þess að Náttúrufræðistofnun Is-
lands verði f framtíðinni í nýju
rannsóknarhúsi Háskólans á Ák-
ureyri og þar verði það nemend-
um Háskólans sem og almenn-
ingi til sýnis í aðgengilegum sýn-
ingarsal.
„Umhverfisráðuneytið hefur
enn ekki tekið ákvörðun um það
hvort Náttúrufræðistofnun verði
staðsett í rannsóknarhúsinu. Það
er talað um að húsið rísi nokkuð
hratt því um alútboð á smíði þess
verði og að inn í það verði flutt
eigi síðar en 1. maí 2002,“ segir
Kristinn Albertsson.
Þórður Olafsson í umhverfis-
ráðuneytinu, segir málið á al-
gjöru frumstigi en vonandi verði
verkið boðið út eftir áramót, þ.e.
bæði bygging og eignarhald. Það
komi ekki í ljós íýrr en eftir opn-
un tilboða hvaða stofnanir fari
inn í húsið, og um mun fleiri
stofnanir sé að ræða en bara
Náttúrufræðistofnun Islands,
t.d. séu rannsóknarstofnanir
staðsettir víða um Akureyrarbæ
sem eðlilegt væri að sameina
undir einu þald. Því komi mun
fleiri ráðuneyti að þessu en að-
eins umhverfisráðuneytið.
GG