Dagur - 03.10.2000, Qupperneq 21
X^wr
ÞRIDJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 - 21
Akureyri-Norðurland
EinstaMlngsframtaMó
íUðiKAvannHK
Það hafa sennilega flestir sem
lögðu leið sína í KA-heimilið sl.
föstudagskvöld komið til að horfa
á KA innbyrða fremur auðveldan
sigur gegn HK í Nissan-deild
karla í ljósi frammistöðu liðanna
i æfingarmótum í haust. En því
fór fjarri. HK náði fljótlega for-
ystu í Ieiknum og leiddi með eins
marks mun í hálfleik, 1 1-10, ekki
síst vegna góðrar frammistöðu
Sverris Björnssonar, fyrrum KA-
manns, og Jaliesky Garcia, Kúbu-
manns sem er kominn til HK. Það
hafa þá sennilega margir minnst
orða þjálfara KA, Atla Hilmarsson-
ar, fyrir mótið þegar hann sagði að
sá árangur teldi alls ekki neitt þeg-
ar í sjálft Jslandsmótið væri komiö.
KA-Iiðið tók kipp í byrjun seinni
hálfleiks, Jónatan Magnússon
kom KA í 12-11, en HK missti
KA-liðið ekkert frá sér, ekki síst
vegna þess að markmenn HK voru
að verja rnjög vel, cn markverðir
KA, þeir Flóki Ólafsson og Hans
Heimisson, nánast ekkert. Það
hlýtur að vera mikið áhyggjuefni ef
markvarslan ætlar að vera mjög
misjöfn, rétt eins og jó-jó frá leik
til leiks.
HK komst í 16-14 en Heimir
Örn, bestur Ieikmanna KA, jafn-
aði 17-17 og Halldór Sigfússon
átti tækifæri að koma KA yfir í
vítakasti en Arnar Freyr í marki
HK varði vítiö og einnig skot af
línunni frá Halldóri eftir að hann
náði frákastinu. Guðjón Valur
kom KA yfir 18-17 með víti en
HKjafnaði strax. Þegar 9 mínút-
ur voru eftir hafði KA náð for-
ystu, 22-19 og sigurinn virtist f
höfn, en sofandaháttur í vörninni
hafði næstum því klúðrað því.
Jafnt var 23-23, en línumaðurinn
Andreas Stelmokas skoraði sigur-
markið á síðustu mínútu leiksins
og undir lokin var boltinn dæmd-
ur af HK, mjög sérkennilcgur
dómur þeirra Ingvars Guðjóns-
sonar og Jónasar Elíassonar, scm
voru nánast utangátta allan leik-
inn án þess þó að það bitnaði
fremur á öðru liðinu. Sigur KA í
afspyrnulélegum leik er ekki
hægt að telja sanngjarnan, en
hefði ekki komið til einstaklings-
framtak þeirra Heimis Arnarson-
ar og Guðjóns Vals Sigurðssonar,
sem báðir gerðu 7 mörk, væri KA
liðið án stiga.
Með KA lék nýr leikmaður í
hægra horninu, Litháinn Giedri-
us Gserniavskas, en lítið kom út
úr hans lcik, hvort sem því er að
kenna að hann eigi eftir að
kynnst öðrum leikmönnum KA
og Ieikkerfum, eða einhver ferða-
þreyta hafi setið í honum, skal
ósagt látiö, Kannski er hann ein-
faldlega ekki betri. Erfitt er að
dæma um það eftir einn leik, og
ósanngjarnt. Hann fær tækifæri í
kvöld til að sanna sig gegn fyrr-
um félögum í ÍBV, er KA leikur
frestaðan Ieik í Vestmannaeyjum.
Síðan leikur KA gegn Breiðabliki
í Smáranum 7.október og heima-
leik gegn Fram 13. október. GG
Sigurbjörg Hjart-
ardóttir best í liði
KA/Þórs
Björgvin Björgvinsson, ÍFR, keppti i rennuflokki á íslandsmótinu i Boccia og vard í 2. sæti. mynd: gg
SauðkræMngar með tvo
íslandsmeistara í Boccia
Islandsmótið í Boccia fyrir árið
2000 var haldið í íþróttahöllinni
á Akureyri um helgina. Um ein-
staklingskeppni var að ræða og
voru keppendur um 200 talsins
frá 13 félögum vfðs vegar af
landinu. Mótið var í umsjón
Iþróttafélagsins Akurs og Lions-
klúhhsins Hængs á Akureyri í
samvinnu við Iþróttasamband
fatjaða.
I 1. deild sigraði Aðalsteinn
Friðjónsson, Akri á Akureyri; í
2. deild Helga Marín Kristjáns-
dóttir, Nesi á Suðurnesjum; í 3.
deild Iris Eva Gunnarsdóttir,
Snerpu á Siglufirði; í 4. deild
Ragnhildur Ólafsdóttir, ÍFR í
Reykjavík; í 5. deild Ragnar
Olafsson, Nesi; í 6. deild
Rökkvi Sigurlaugsson, Grósku á
Sauðárkróki, í rennuflokki Að-
alheiður Bára Steinsdóttir,
Grósku og f opnum flokki Þor-
gerður M. Kristjánsdóttir, Akri.
GG
Lið KA/Þórs í úrvalsdeildinni í
handknattleik kvenna tapaði
fyrir Fram í KA-heimilinu sl.
laugardag 25-17 og var mikið
batamerki á leik liðsins frá
leiknum við Hauka í 1. umferð.
Sigurbjörg Hjartardóttir mark-
vörður var best leikmanna
KA/Þórs, varði 16 skot, þó svo
Hugrún Þorsteinsdóttir í marM
Fram stæði sig betur með 21
skot varið. Sigurbjörg kemur til
liðs við KA/Þór frá Húsavík, en
hún er ein fjögurra nýrra leik-
manna liðsins sem kemur frá
Húsavík. Það var fyrst og
fremst reynsla Framara sem
skóp sigur þeirra en meðalaldur
þess liðs er
Asdís Sigurðardóttir var
stærstan hluta leiksins klippt út
þar sem hún spilaði í horninu
og fékk því ekki boltann. Hún
var þó markahæst leikmanna
KA/Þórs nteð 7 mörk, þar af 2
úr vítum en Marina Zoueva var
markahæst Framara með 9
mörk. Asdís Sigurðardóttir er
langskeinuhættasta vopn
KA/Þórs í dag en liðið á von á
liðsstyrk frá rússneska liðinu
Lada Taliatti, sem var í 4. sæti í
deildarkeppninni þar í landi á
síðustu leiktíð. Von er á tveim-
ur leikmönnum þaðan, örv-
hentri og rétthentri skyttu sem
eru 1,85 og 1,86 metrar að
hæð, en pappírar vegna at-
vinnuleyfis eru að koma en síð-
an þarf verkalýðsfélagið að skri-
fa undir þá. Þá fyrst er hægt að
senda út flugmiðana. Vonir
standa til að þær rússnesku
verði með gegn íslandsmeistur-
um IBV á Akureyri 14. október,
en næsti Ieikur KA/Þórs“ér gegn
Víkingi í Reykjavík næsta Iaug-
ardag, 7. október. Með rúss-
nesku stúlkunum kemur maður
með alla pappíra, og eru þær
hér til reynslu í vikutíma, áður
en endanleg ákvörðun um ráðn-
ingu þeirra er tekin. Þannig
ætti að vera hægt að komast hjá
því að kaupa köttinn f sekkn-
um. GG
Þórsarar byija körfubolta-
vertíðina af kraftí
Tindastóll mætti
ofjörlum sí mi in í
Grindavik
Byrjun úrvalsdeildarliðs Þórs á
Akureyri á körfuboltavertíðinni
lofar góðu, liðið hefur unnið tvo
fyrstu leiMna, fyrst Skallgrím frá
Borgarnesi stórt í Iþróttahöllinni
á Akureyri og síðan Isfirðinga á
heimavelli þeirra á Isafirði um
helgina. Sigurganga Þórsara
heldur því áfram, en þeir luku
deildarkeppninni á síðasta vori
ineð fimm sigrum í röð.
Staðan í hálfleik var 35-33 fyr-
ir Isfirðinga en varnarleikurinn
var í fyrirrúmi í fyrri hálfleik og
þá sýndu Isfirðingar klærnar
jafnframt því sem skotnýting
Þórsara var léleg. Leikur heima-
manna riðlaðist f síðari hálfleik,
sérstaklega varnarleikurinn,
Þórsarar gengu á Iagið, komust í
47-63 og 68-76 en Iokatölur
urðu 80-73, sanngjarn sigur.
Clifton Bush var stigahæstur
Þórsara með I 7 stig, en bestir f
liði Þórs voru Oðinn Asgeirsson,
sem skoraði 16 stig, Hermann
Hermannsson sem einnig gerði
16 stig og Magnús 1 lelgason sem
skoraði 12 stig. Sveinn Blöndal
var bestur heimamanna en stiga-
hæstur var Dwayne Fontana mcð
25 stig. Agúst Guðmundsson,
þjálfari Þórs, scgir að byrjun
seinni hálfleiks l'-tfi gert útsíagið,
þá skoruðu Þórsarar 17-3 á 5
mínútna leikkaíla og gerðu út
um leiMnn þó svo einbeitingar-
leysi undir lok leiksins hleypti Is-
firðingum í 6 stiga mun.
„Þetta hefur aldrei verið svona
gott í byrjun móts, við erum á
toppnum, með jafnmörg stig og
Grindvíkingar en hagstæðari
stigamun. Við leikum aftur við
ísfirðinga í Eggjarbikarnum en
þá leikum við á Isafirði á föstu-
dag og á Akureyri á sunnudag.
Næsti deildarleikur er gegn
Haukum á Akureyri en þeir eru
með mun sterkara lið en fyrstu
andstæðingar okkar. Þá fyrst fer
að reyna á okkur,“ segir Agúst
Guðmundsson.
Tmdastóll lá fyrir Grmdavik
Tindastóll tapaði fyrir Grindavík
suður með sjó 94-81 og komu
þeir fullir sjálfstrausts til leiks
eftir að hafa unnið Njarðvíkinga í
fyrsta leik mótsins á SauðárkróM.
Tindastóll komst í 33-20 en þá
sMpti Grindavíkurliðið um ham,
skoraði grimmt og fyrr en varði
var staðan orðin 44-33 fyrir þá,
og þeirri forystu slepptu þeir
ekM. Grunnurinn að sigri þeirra
var miMll hraði sem Tindastóll
einfaldlega réði ekki við og gerði
þau reginmistök að reyna að
leika á sama tempói. Bestur í liði
Stólanna var Shawn Myers og
hann var einnig stigahæstur þeir-
ra með 20 stig. Stigahæstur
Grindvíkinga var Páll Vilbergs-
son með 23 stig. GG