Dagur - 24.10.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 24.10.2000, Blaðsíða 1
83 og 84. árgangur - 202. tölublað Nektardansstaðir á íslandi eru eins margir og í Kaupmannahöfn. MátiunDani í nektardansi Starfsfólki danskra hjálpar- stöðva fyrir vændiskonur þótti hreint ótrúlegt „að hægt væri að reka 8 nektarstaði á höfuðborg- arsvæðinu, 1 í Keflavík og 3 á Akureyri þar sem burðarásinn í starfseminni væri „einkadans- inn“, sem væri óþekktur í Dan- mörku. En 13 nektarstaðir væru í Kaupmannahöfn, sem ekki hefðu leyft sér að bjóða upp á slfka þjónustu," segir Rúna Jónsdóttir í Stígamótafréttum, sem er nýkomin úr hringferð um Skandinavíu þar sem hún kynnti sér ýmislegt sem að gagni mætti koma í starfi Stígamóta og heimsótti m.a. tvo staði sem berjast gegn vændi: Pro-setrið og Hreiðrið. „Þegar fjöldi þeirra erlendu kvenna sem seldar eru íslensk- um og dönskum körlum er bor- inn saman, kemur í ljós hversu stór útgerðin er á íslandi. Minnt skal á að við erum að hera okkur saman við Dan- mörku, sem hingað til hefur ver- ið talið klámlengnasta land Norðurlandanna," segir Rúna. Danskir viðmælendur hennar hafi áætlað að árlega komi um 500 konur frá Austur-Evrópu til Danmerkur í gegn um alþjóð- lega skipulagða starfsemi og dveljist þar í stuttan tíma við ýmis konar kynlífsþjónustu. Fleiri „úrsúlur“ hér Samkvæmt upplýsingum Karls Steinars Valssonar hjá lögregl- unni í Reykjavík er varlega áætl- að að 70 erlendar stúlkur hafi sl. ár starfað á hverjum tíma á nektardansstöðum í Reykjavík. Landvistarleyfi þeirra hafi að- eins verið til eins mánaðar og því hljóti stúlkurnar að hafa ver- ið a.m.k. 840 yfir árið í Reykja- vík einni. „Danir hvöttu okkur eindregið til að spyrna við fótum og stöðva þessa starfsemi áður en hún festist enn frekar í sessi,“ segir Rúna. - HEI Verð ílausasölu 150 kr. 25 árfrá kveiuiafdi í dag 25. októbcr eru liöin 25 ár frá því að kvennafrídagurinn var haldinn á Islandi undir kjörorð- inu „Áfram stelpur". Atburður þessi vakti heimsathygli á sínum tíma og er ýmislegt gcrt í dag til að minnast afmælisins. I Degi í dag er m.a. rætt konur sem tóku þátt og undirbjuggu kvennafrí- daginn og ýmsar uppákomur verða vítt um landið. Upp á af- mæli kvennafrídagsins ber nú hcimsganga kvenna gegn örbirgð og ofbeldi. Heldur hún frá l llemmtorgi (klukkan 17.30 í dag) niður Laugaveg og á Ing- ólfstorg, þar sem haldinn verður stuttur útifundur. Samkvæmt Stígamótafréttum er gangan þátlur í alþjóðlegu átaki, fjölda samtaka í I 57 þjóðlöndum, og í því skyni að knýja fram breyting- ar. Hérlendis hafa a.m.k. 23 samtök og stéttarfélög ákveðið að standa að þessum aðgerðum. Sja bls. 16 - HEl Ekki stefmunarkandi ákvörðim fyrir fram- tíðina þótt umhverfis- ráðherra hafi heimil- að kviaeldi í Mjóafirði án þess að krefjast umhverfismats. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra hafnar þeirri gagnrýni Orra Vigfússonar, formanns Verndar- sjóðs villtra laxastofna, að stefnu- breyting hafi orðið hjá ráðherra í mengunarmálum í sjó. Orri hef- ur gagnrýnt ráðherra fyrir að staðfesta ákvörðun skipulags- stjóra um að fyrirhugað laxeldi í sjókvíum í Mjóafirði, þurfi ekki að fara í umhverfismat. „Það er alrangt að einhver stcfnubreyting hafi orðið hér. Við fórum vandlega yfir þctta mál og það eru fleiri en við og skipulags- stjóri sem höfum haft um þetta að segja. Hollustuvernd ríkisins gaf út starfsleyfið og er sömu skoðunar, þ.e.a.s. að þetta þurfi ekki að fara í um- hverfismat. Stað- setningin vegur mjög þungt þegar umhverfisáhrif eru metin,“ segir Siv Friðleifsdótt- ir. Lítil hætta Gagnrýnin hefur m.a. beinst að mengunarmálum og hættu á blöndun stofna en Siv segir að endurnýjun vatns sé mikil í Mjóa- firði vegna þun- gra strauma. Því sé ekki talið að um veruleg óaft- urkræf umhverfisáhrif verði að ræða, enda komi til mótvægisað- gerðir og eftirlit. „Umdeildasti þátturinn samkvæmt kærunum sem bárust okkur hefur verið hugsanleg erfðablöndun en við teljum þá hættu litla. Leyfi fyrir norskum laxi er hins vegar á hendi veiðimála- stjóra og það er einnig í gildi reglugerð á veg- um landbúnað- arráðuneytisins um þessi mál. Við höfurn stað- fest úrskurð skipulagsstjóra en í framhaldinu þarf Hollustu- vernd að gefa út starfsleyfi og gera kröfur til bestu fáanlegrar tækni og tækja. Síðan er það í höndum veiðimálastjóra að meta umsóknir um þennan norska lax,“ segir Siv og bendir með því Siv Fridleifsdóttir: Alrangt að nokkur stefnubreyting hafi orðið. á að ferli málsins sé langt í frá lokið. Hvert mál skoðað Skiptar skoðanir eru um veður- farsáhrif á laxeldi í sjókvíum og hefur verið bent á að ein ramm- gerðasta kví landsins, sjálfur Keikóbústaðurinn, hafi látið undan veðri og vindum. Hættan á að eldislax sleppi hlýtur því að vera fyrir hendi en Siv vísar aftur til sérstöðu svæðisins og bendir á að eldið eigi sér stað inni í firðin- um. Skilja má af orðum hennar að ákvörðunin sé ekki stefnu- mótandi fyrir framtíð laxeldis al- mennt við strendur Islands. „Við skoðum hvert mál út frá stað- setningu." Orri hefur bent á að þörunga- blómi hafi tekið til sín megnið af súrefninu í Iaxakvíum á Aust- fjörðum í fyrri tilraunum. Hvað þetta varðar vísar Siv aftur til hinna miklu strauma í Mjóafirði, þ.e.a.s. hreinsunar vatnsins. - BÞ Nemendur Menntaskólans á Akureyri ráku höfuðin inn og út um gluggann á Möðruvöllum í gær og brostu fram- an í lífið og Dag. Blikur eru þó á lofti hvað varðar vetrarstarfið. Kennaraverkfall gæti sett strik i námsreikninginn innan skamms. Sjá umfjöllun bls. 12-13. mynd: brink ~ Kæhskapur • RG 2255 ^ • Kælir 183 Itr. • Frystir 63 Itr. Sjálfvirk afþýðing í kæli • Orkunýtni C Mál hxbxd: 152x55x60 KMLDM A 39.900 stgr. I jinDesiT Það voru hinir blóðheitu ítalir sem hönnuðu Indesit kæliskápana enda veitir þeim oft ekki af því að kæla sig aðeins niður. En Indesit er ekki fyrir alla, nei, nei blessaður vertu. Indesit er bara fyrir þá sem vilja töff hluti í eldhúsið og kjósa að borga sem minnst fyrir þá. B R Æ Ð U R N I R OKMSSON Lágmúla 8 • Slmi 530 2800 www.ormsson.is Mjóifjörður er ekki fordæmi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.