Dagur - 24.10.2000, Page 2
2- l’RIÐJUD AGV K 24. OKTÓB ER 2000
Xfe^MT'
FRÉTTIR
Siðferð-
isbrestur
Smygl er lögbrot og
það era emkeimileg
skilaboð að formaður
S j ómannafélags
Reykjavíkur telji
áfeiigisiimílutiiiug
farmanna ekki al-
varlegan að mati
tollara.
Ummæli Jónasar Garðarssonar,
formanns Sjómannafélags
Reykjavíkur, í útvarpsfréttum í
gær hafa vakið hörð viðbrögð.
Jónas, sem sjálfur var opinber-
Iega bendlaður við smyglmál sl.
sumar, sagði að forysta sjó-
mannasambandsins liti áfengis-
smygl farmanna ekki alvarlegum
augum. Það hefði viðgengist
lengi en allt öðru máli gegndi um
fíkniefnasmygl.
Sigvaldi Friðgeirsson er stað-
gengill tollstjórans í Reykjavík og
hann segir að það mætti ætla að
sjómannasam-
bandið væri að
senda einhver
andkannaleg
skilaboð til
samfélagsins.
„Allt smygl er
alvarlegt mál
og það skiptir
ekki máli
hverju er verið
að smygla.
Smygl er refsi-
vert athæfi.
Aðili sem er í
forsvari fyrir
hreyfingu get-
ur ekki sagt
sínum mönn-
um að það sé
allt í lagi að
gera sumt en
ekki hitt af því að eitt brot sé
ekki alvarlegt miðað við annað.
Lögbrot er lögbrot þótt refsingin
geti verið mismikil," segir Sig-
valdi.
Fjórfalt meira tóbakssmygl
Samkvæmt tölum frá tollstjóra-
embættinu í
Reykjavík um
haldlagningu
áfengis og tó-
baks, hefur
ólöglegur
innflutningur
aukist tölu-
vert. Árið
1995 var lagt
hald á
56.000 þús-
und vind-
linga árið
1995 en
196.000 árið
1999 eða
næstum fjór-
falt magn á
fjórum árum.
Svipað magn
fannst af
smygluðum bjór í fyrra miðað við
árið 1995 eða 4.733 lítrar á móti
4.131 árið 1995. Hins vegar hef-
ur orðið tvöföldun á upptæku
magni ef miðað er við annað
áfengi en bjór. Árið 1995 fund-
ust 893 lítrar af sterkara áfengi
en 1610 lítrar í fyrra.
Stundum hefur verið áætlað
að aðeins 1-10% af srnygli séu
gerð upptæk en Sigvaldi segir
erfitt að túlka þessar tölur.
„Strandlengjan er löng og auðvit-
að er erfitt að eiga við skipulagða
starfsemi eins og þegar förmum
er kastað útbyrðis og litlir bátar
látnir hirða það síðar við baujur í
einhverjum eyðifjörðum hingað
og þangað. Það er kannski okkar
helsta vandamál.“
Tveir skipverjar á skipum Eim-
skips eru nú í haldi, grunaðir um
aðild að umfangsmiklu fíkni-
efnasmygli og er lögregla að
rannsaka mál skipverja á einu
skipa Samskipa. Stjórn Sjó-
mannafélags Reykjavíkur lýsir
áhyggjum af fíkniefnasmygli
með íslenskum kaupskipum og
krefst þess að félagsmenn haldi
vöku sinni í þeim efnum og
vinni með lögreglu og tollgæslu.
Ef marka má orð Jónasar Garð-
arssonar er eitthvað minni áhugi
á samstarfi með lögreglu og toll-
gæslu þegar áfengisinnflutning-
ur er annars vegar. - BÞ
Ríkisstjórn
Davíðs Odds-
sonar var harð-
lega gagnrýnd á
aðalfundi Ör-
yrkjabandalags
íslands (ÖBÍ)
ins voru stjórn-
völd sökuð um sökuð um sið-
„alvarlegan sið- ferðisbrest.
ferðisbrest" og
„efnahagslega skammsýni" vegna
aðgerða sinna og aðgerðarleysis í
málefnum öryrkja.
ÖBI gerir þá kröfu til Alþingis
að það gangist við ábyrgð sinni
gagnvart öryrkjum eins og öðrum
landsmönnum, enda alkunna að
almannatryggingar séu hér um-
talsvert lakari en víðast hvar í V-
Evrópu og almennt lakari nú en
fyrir áratug. Til að „aflétta þeirri
fjárhagslegu neyð sem öryrkjar
búa við“ ber að mati ÖBI brýna
nauðsyn að grípa til aðgerða á
borð við verulega hækkun trygg-
ingabóta, að draga verulega úr
tekjutengingu bóta, að hækka
skattleysismörk, að skila öryrkj-
um til baka niðurgreiðslum
vegna lyfjakaupa, símnotkunar
og bifreiðakaupa og eins er gerð
krafa um að ítarlegra upplýsinga
verði aflað um þann sparnað sem
hlytist af eflingu almannatrygg-
inga. Ekki náðist í fjármálaráð-
herra í gær um kröfur ÖBI. - FÞG
Jónas á hálum ís
í smyglumræðu
Hörð viðbrögð gegn ummælum
Jónasar Garðarssonar.
Ein setnrng og
Island sat nja
ÞegarSameinu þjóðirnar fordæmu valdbeitingu ísra-
elska hersins i garð Palístínumanna var hafnað að for-
dæma ofbeldi beggja aðila. Þess vegna sat ísland hjá
við afgreiðslu tillögunnar
Það vakti athygli margra að
ísland skyldi sitja hjá á
þingi Sameinuðu þjóðanna
þegar ályktun, sem for-
dæmir framkomu Israels-
hers í garð íbúa Palestínu,
var samþykkt sl. föstudags-
kvöld. Tillöguna sam-
þykktu 92 þjóðir, 6 voru á
móti, þar á meðal Banda-
ríkin og Israel en 46 þjóðir
sátu hjá og var Island f
þeim hópi. Það vekur líka
athygli að fulltrúar landa
Evrópusambandsins voru
ekki samstiga því um það
bil helmingur þeirra sam-
þykkti tillöguna en hinn
helmingurinn sat hjá.
Að sögn Hjálmars W.
Hannessonar, ráðuneytis-
stjóra í utanríkisráðuneyt-
inu, var ástæða þess að Island sat
hjá sú að lagt var til að bæta inn
í ályktunina fordæmingu á of-
beldi beggja aðila en þó alveg
sérstaklega væri fordæmd yfir-
þyrmandi valdbeiting ísraelska
hersins. Setninguna um að for-
dæma ofbeldi beggja gátu þeir
sem fluttu tillöguna ekki sam-
þykkt. Vegna þess að setningin
var ekki tekin inn sátu 46 þjóðir
hjá við afgreiðslu ályktunarinnar.
Arabarikin á móti
Arabaríkin höfnuðu því al-
gerlega að þessi eina setn-
ing yrði tekin inn í ályktun-
ina og var mikið deilt um
málið á þingi SÞ og tugir af
ræðum fluttar vegna þessa.
Það var líka tímapressa á
þeim þjóðum sem vildu
samþykkja ályktunina
vegna þess að leiðtoga-
fundurinn, sem haldinn
var í Egyptalandi, var rétt
að hefjast.
Þau ríki Evrópusam-
bandsins sem voru sam-
þykk ályktuninni voru
Frakkland, Austurríki,
Belgía, Finnland, Grikk-
land, Lúxembúrg, Portúgal
og Spánn.
Þau lönd ESB sem sátu
hjá voru Bretland, Danmörk,
Holland, Italía, Svíþjóð og
Þýskaland. - s.DÓR
Brynt ad vera vel á verði
Stjórn alþjóðlegra bifreiðatrygg-
inga á Islandi (ABÍ) kom til
fundar f gær vegna ástandsins
sem skapast hefur á trygginga-
markaði eftir viðskipti Lloyd's og
FIB-tryggingar. Stjórnin vill
beina því til tryggingaþega að
þeir bifreiðaeigendur, sem nú
eru með gildar vátryggingar hjá
LloydYs / FÍB-tryggingu séu vá-
tryggðir út umsaminn vátrygg-
ingatíma en ekki sé að óbreyttu
hægt að endurnýja þær eða stof-
na til nýrra ökutækjatrygginga
hjá þeim aðilum. Þetta eigi menn
að hafa í huga við endurnýjun
trygginga og kaup og sölu bif-
reiða.
Þá vill stjórnin benda á að
hlutaðeigandi sé frjálst að velja
sér það bifreiðatryggingafélag
hér á Iandi, sem þeir sjálfir
kunna að kjósa. Afar brýnt sé að
viðskiptavinir Lloyd's / FIB-
tryggingar hugi að þessum mál-
um þegar í stað og sjái til þess að
vátryggingaskyldu sé fullnægt
Iögum samkvæmt.
„Það þarf ekki að hafa um það
mörg orð, að hafi hifreiðaeigend-
ur ekki lögboðnar vátryggingar í
gildi, getur slíkt auðveldlega rið-
ið fjárhag þeirra að fullu, enda
geta einstaka bótakröfur numið
milljónum króna,“ segir Sigmar
Ármannsson hjá ABI.
Nokkrir tugir stunda vændi
„Til Stígamóta hafur á undanförnum árum leitað fólk sem vegna erf-
iðra afleiðinga kynferðisofbeldis hefur leiðst út í eiturlyfjaneyslu og
síðar vændi. Þessi hópur er ekki skráður sérstaklega, en við vitum að
um er að ræða nokkra tugi einstaklinga. Eins og í öðru starfi Stíga-
móta er fyrst og fremst um konur að ræða, en nokkrir karlar hafa líka
leitað sér hjálpar vegna svipaðrar reynslu," segir Rúna Jónsdóttir í
Stígamótafréttum. Þar sem þær Stígamótakonur hafi lcngi langað að
bjóða upp á sjálfshjálparhópa fý'rir þessa aðila sagðist hún hafa heim-
sótt tvo staði í Danmörku þar sem vændiskonum bjóðist stuðning-
ur og unnið sé gegn vændi. „Mcð í för voru tvær fræðikonur frá
„Rannsóknum og greiningu" sem vinna að úttekt á vændi á íslandi
fyrir dómsmálaráðherra." - hei
762 milijónir í gróða hjá Össuri
I óendurskoðuðu 9 mánaða árshluta-
uPPSöri Össurar hf. er hagnaður fyr-
ir afskriftir 610 milljónir og í endur-
skoðaðri áætlun er nú gert ráð fyrir
762 milljóna króna hagnaði fyrir af-
skriftir fyrir árið í heild.
Heildarvelta samstæðunnar á
tímabilinu janúar til september er
2.827 milljónir eða um 170% hærri
en á sama tíma í fyrra. Helstu ástæð-
ur veltuaukningarinnar eru: Rekstr-
arniðurstaða Flex-Foot gætir í rekstri
félagsins frá 1. apríl. Sala á nýjum
vörum, sem settar voru á markað á
tímabilinu, hefur gengið vel auk þess
sem sölukerfi félagsins í Bandaríkj-
unum hefur náð fullum afköstum.
Afslættir voru lækkaðir til dreifiaðila
I. júlí sem hækkar sölutekjur fyrirtækisins auk þess sem Bandaríkja-
dollar hefur hækkað á tímabilinu.
15 máiiaða fangelsi fyrir
kynferðisafbrot
Karimaður liefur í Héraðsdómi Norðurlands vestra verið dæmdur í
1 5 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum.
Brotin stóðu yfír í langan tíma að mati dómsins og höfðu mikil áhrif
á stúlkurnar. Maðurinn hefur leitað aðstoðar hjá presti og sálfræð-
ingi. Honum cr jafnframt gert að greiða stúlkunum 700.000 kr. í
bætur.