Dagur - 24.10.2000, Síða 12

Dagur - 24.10.2000, Síða 12
12 - ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 FRÉTTASKÝRING Xkgftr „Kentiir öðnim Verkfall blasir við í framhaldsskóliun eftir hálfan mánuð. Kröfur kennara þýða helm- ings hækkun á launa- kostnaði riMsins. Erfitt og flókið. Ótrú- verðugheit. Það virðist flest benda til þess að verkfall skelli á í franihaldsskól- um landsins eftir hálfan mánuð, eða 7. nóvcmber n.k. Hvort það sé tilviljun eða ekki þá er þessi dagur einna þekktastur í nútíma- sögunni sem rússneski byltingar- dagurinn, auk þess sem Banda- ríkjamenn kjósa sér nýjan forseta á þessum sama degi í ár. I það minnsta ber enn mjög mikið á milli ríkisins og framhaldsskóla- kennara og svo helur verið frá því viðræður hófust. Þá hefur það styrkt baráttu kennara til muna að yfirgnæfandi meirihluti þeirra samþykkti verkfallsboðunina í allsherjaratkvæðagreiðslu. Þátt- takan var yfir 90% og tæplega 82% samþykktu verkfall. Elna Katrín Jónsdóttir formaður Fé- lags framhaldsskólakennara segir að kjarabarátta þeirra með áher- slu á launaleiðréttingu komi stéttarfélögum og viðsemjendum þeirra á almenna markaðnum nánast ekkert við. Ef til verkfalls kemur ætti það ekki að koma neinum á óvart að það mundi standa yfir í nokkrar vikur sé miðað við lengd fyrri verkfalla framhaldsskólakennara eins og t.d. 1989 og 1995. Launakrafa kennara um launa- Ieiðréttingu á dagvinnulaunum til jafns við aðra hópa innan BiVlH er sögð fela í sér um 34% Iauna- hækkun strax og aðrar Iaunakröf- ur uppá 15% hækkun árlega á tveggja ára samningstíma. A sama tíma vill ríkið ræða breytingar á vinnutíma kennara og auka vægi dagvinnulauna á kostnað yfir- vinnu. Kennarar hafa verið lítt hrifnir af þessum hugmyndum ríkisins og telja að fyrir því vaki að reyna að auka kennsluskyldu þeirra. Það sé öndvert við þróun kennarastarfsins á hinum Norð- urlöndunum. Kastast í kekki Komi til verkfalls mun kennsla falla niður í öllum ríkisreknu framhaldsskólum landsins sem í eru um 15-20 þúsund nemend- ur. Að öllum líkindum mun það einnig verða til þess að brottfall nemenda muni eitthvað aukast frá því sem það er alla jafna ár hvert. Þessi kjaradeila kennara og ríkisins hefur valdið mörgum áhyggjum og m.a. landssamtök- unum Heimili og skóli, auk þess sem töluverðs kvíða er farið að gæta meðal margra nemenda og foreldra þeirra. Til marks um hvað þessi deila er viðkvæm þá hefur þegar kastast í kekki á milli Jónínu Bjartmarz þingmanns Framsóknarflokksins sem jafn- framt cr formaður Heimilis og skóla og formanns Félags fram- haldsskólakennara sem telur Jón- ínu ekki vera trúverðuga í mál- flutningi sínum. Því vísar Jónína á bug. Þótt skólastjórnendur séu ekki enn farnir að skipuleggja skólastarfið með tilliti til yfirvof- andi verkfalls ætla þeir að hittast á fundi n.k. mánudag í Hafnar- firði til að ræða stöðuna. Þá er viðbúið að sú eindrægni sem ríkir í röðum framhalds- skólakennara muni stappa stálinu f aðra hópa opinberra starfs- manna en samningar margra þeirra losna um mánaðamótin. Framhaldsskólanemar ætla ekki heldur að liggja á liði sínu og hafa m.a. boðað að þeir muni verða með aðgerðir á götum úti til stuðnings kennurum ef til verk- falls kemur og það dregst eitthvað á langinn. Síðast en ekki síst horfa stéttarfélög og atvinnurek- endur á almenna markaðnum vökulum augum á allar hreyfing- ar í samningamálum ríkisins við kennara og aðra opinbera starfs- menn vegna launarammans sem samið var um sl. vetur með stuðningi ríkisins. Raskast for- sendur þeirra samninga með verðlagsbreytingum eða launa- hækkunum er launaliður þeirra brostinn. Fyrir vikið yrði að semja uppá nýtt. Staða þessara mála var meðal þess sem rætt var á fyrsta fram- kvæmdastjórnarfundi Starfs- greinasambands íslands í síðustu viku. Halldór Björnsson formað- ur sambandsins segir að menn verði að sjá betur í spilin hjá kennurum og öðrum áður en hægt verður að tjá sig mikið um hvaða áhrif það kann að hafa á forsendur samninga á almenna markaðnum. Hins vegar munu menn fylgjast grannt með fram- vindu mála. Stif fundahöld Mikil fundahöld eru fyrirhuguð á milli saminganefnda framhalds- skólakennara og ríkisins í Karp- húsinu þessa vikuna, enda mun ríkissáttasemjari reyna allt hvað hann getur til að þoka deiluaðil- um nær hvor öðrum við samn- ingaborðið. Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari segir að erfitt sé að leggja mat á stöðuna þar sem þarna sé um flókið og viðamikið mál að ræða sem tengist m.a. hugsanlegri kerfisbreytingu á launafyrirkomulagi kennara til viðbótar kröfum um launahækk- un. Hann segir að viðræðurnar séu ekki enn komnar á það stig að menn séu farnir að kasta á milli sín gagntilboðum. Það sé því við- búið að framundan sé löng leið áður en samningar takast. I sinni vinnu þarl’ ríkissáttasemjari að vinna með tvcimur nefndum kennara við samningaborðið gegn ríkinu. Stjórnendur framhalds- skóla, þ.e. svonefndir millistjórn- endur eru með sína viðræðu- nefnd og svo kennarar með aðra. Ríkissáttasemjari segir að þessi verkaskipting sé m.a. vegna þess að áherslumunur sé á störfum þessara tveggja hópa þótt kröf- urnar séu þær sömu og þeir séu innan sama stéttarfélagsins. Nemendur Menntaskólans á Akureyri skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við kröfur kennara á Ai Tvöföldun á launakostnaði Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins segir að útlitið sé ekki bjart í kjaraviðræð- um þeirra við framhaldsskóla- kennara. Hann segir að ef gengið verði að ítrekustu kröfum kenn- ara mundi það tvöfalda árlegan launakostnað ríkisins vegna framhaldsskólakennara, eða úr 4 milljörðum króna í 8 milljarða króna. Þetta sé þó gróft reiknað. Gunnar bendir einnig á að ríkið sé búið að skuldbinda sig til að fylgja sambærilegri launastefnu 'og um var samið á vinnumark- aðnum sl. vor. Hann segir að samninganefnd ríkisins sé ennfremur tilbúin til að ræða breytingar á launasam- setningu kennara með því færa stærri hluta launanna yfir í dag- vinnu á kostnað yfirvinnu og gera vinnutíma kennara mun sveigjan- Iegri en verið hefur. Hluti af því sé að losa um þá miðstýringu sem verið hefur á skilgreiningu starfa í kjarasamningum og hvað hver verkþáttur tekur langan tíma. Þá er einnig vilji hjá rfkinu að fá fram breytingu á kennsluafslætt- inum. Gunnar viðurkennir þó að það geti orðið erfitt. Þá sé eðlilegt að öll prófavinna verði hluti af dagvinnu í stað yfirvinnu, enda sé sú vinna hluti af reglulegri vinnu kennarans. Þá séu allir þættir í vinnuskyldu kennara byggðir á mati. Gunnar segir að bak við þetta mat séu misjafnlega áreið- anlegar mælingar. 1 sumum til- vikum séu þær raunhæfar og í öðrum ekki. Ríkið hafnar og hafnar Elna Katrín Jónsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara segir að staðan í samningamálun- um hafi einkennst af því að ríkið hefur keppst við að hafna fram- komnum Iaunakröfum kennara. Hún segir að kennarar hafi einnig verið í viðræðum við ríkið um Iaunakerfismál og m.a. hefur ver- ið lögð talsverð vinna í það í tengslum við nýja aðalnámskrá. Það sé hins vegar með öllu óljóst hvað úr því muni koma. Elna seg- ir að ef ríkið sé að ræða um að koma ekki til móts við launakröf- ur þeirra, þá þýði lítið að ræða um nýtt launakerfi. Hún segir að þetta sé allt háð því að það fari citthvað að rofa til í afstöðu ríkis- ins og hvað það sé sem það ætlar að bjóða kennurum. Það sé því orðið töluvert brýnt að fá það fram hjá ríkinu hvaða hugmyndir það hefur um gerð nýs kjara- samnings við kennara og hver sé stefna þess. í viðræðum um nýtt launakerfi hafa kennarar lagt áherslu á að breyta framsetningu á kaflanum um launaröðum þannig að það líktist meira sambærilegum köfl- um í samningum annarra há- skólamanna hjá ríkinu. Elna Katrín áréttar þó að þar með sé ekki verið að tala um vinnustaða- samninga, heldur endurskilgrein- ingu á störfum með tilliti til menntunar, starfstengdra þátta, ábyrgðar og reynslu. Þá hefur kennurum reynst erfitt að fá fram hjá samninganefnd ríkisins hvað sé átt við með því að reyna að auka vægi dagvinnulauna á kostnað yfirvinnu. Formaður framhaldskólakennara bendir á að þorri allrar yfirvinnu sem unn- in sé í skólanum séu kenndar yf- irvinnustundir. Það sé því erfitt að sjá hvernig þessi tilfærsla geti átt sér stað nema því aðeins að ríkið stefni að því hækka kennslu- skyldu kennara í dagvinnu. Hún telur að með þessum hugmynd- um sínum sé ríkið ennfremur að reyna að ná til baka afsláttum kennara í kennsluskyldu. í því sambandi bendir hún á að aðal- námskrá framhaldsskóla hefur leitt til enn meiri vinnu kennara. Afslátturinn ekki falnr Hún áréttar það sjónarmið kenn- ara að kennsluafslátturinn sé ekki falur. Enda væri það mjög undarlegt ef menn léðu máls á því í Ijósi þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað meðal starfsystkina þeirra á öðrum Norðurlöndum sem jafnframt séu með hærri Iaun. Kennsluskylda kennara sem er að byrja kennslu f framhalds- skólum er um 24 tímar á viku. Með afslættinum sé algeng kennsluskylda í 100% starfi um 22 tímar í viku hverri. Formaður framhaldsskólakennara segir að miðað við margt annað sem kennarinn þarf að sinna í sinni vinnu séu 22 tímar í vikulegri kennslu alveg yfrið nóg. Af þeim sökum hafna kennarar því að auka þessa kennsluskyldu. I kröfum kennara er farið fram á að byrjunarlaun hækki með launaleiðréttingu úr 109 þúsund- um í' 149 þúsund og í lok hugsan- legs 2 ára samningstíma yrðu þau komin í 190 þúsund á mánuði. Meðaklagvinnulaun kennara mundu þá hækka með þessari leiðréttingu úr 135 þúsund krón- um í 180 þúsund og sfðan uppí 240 þúsund á mánuði í lok samn- ingstímans. Upphafskrafan er að kennarar fái rúmlega 34% leið- réttingu á dagvinnulaunum sín- um miðað við þá Iaunaþróun sem átt hefur sér stað hjá öðrum há- skólamenntuðum hópum hjá rík- inu. Þá er miðað við stöðuna eins og hún var í mars í ár. Viðbúið er að sú krafa geti orðið eitthvað hærri sé miðað við þróunina eins og hún var orðin í sl. mánuði, en verið er að gera úttekt á þeirri

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.