Dagur - 25.11.2000, Page 7

Dagur - 25.11.2000, Page 7
IWmt LAUGARDAGUR 25. NÚVEMBER 2000 - 7 Mér finnst umræðan taka alltof mikið mið af því að þátttakend- ur tala fyrir eða eiga ákveðinna hagsmuna að gæta. Það er auðvitað ágætt að hagsmuna- aðilar láti í sér heyra en það er fráleitt að þeir fái að ráða nið- urstöðunni, eins og þeir hafa gert.“ - Segðn mér í stuttu máli hvaða fyrirkomulag í sjávarút- vegi þú telur geta gagnast þjóð- inni best. „Eg hef verið talsmaður þess að allur afli sem veiddur er á Islandsmiðum væri boðinn upp á fiskmörkuðum. Með því vinnst ýmislegt, til dæmis eru menn þá húnir að afgreiða þessa endalausu deilu við sjó- menn um fiskverð. Verðið ræðst þá á markaði og sjómenn myndu sætta sig mjög vel við það. Þetta myndi síðan gera það að verkum að fiskvinnslan þyrfti ekki að eiga kvóta og skip heldur ætti hún aðgang að afla til verkunar á fiskmörkuðum. Útgerðin myndi þá væntanlega ganga betur því tekjur hennar yrðu eitthvað hærri, og þær kannanir sem hafa verið gerðar benda til þess að þarna muni einhverjum milljörðum á ári. Þetta leiddi einnig til þess að menn stæðu jafnir að vígi, en nú er mjög mikil mismunun milli þeirra sem eru með fisk- vinnslu og þurfa að kaupa afla sinn af öðrum og hinna sem eru með fiskvinnslu og eiga líka út- gerð og geta þá verslað við sjálfa sig. Mér hefur orðið starsýnt á til- skipun Evrópusambandsins um orkugeirann sem við eigum að vinna eftir árið 2002, en þar er tilskilið að greint sé á milli þeirra sem framleiða orkuna, þeirra sem flytja hana og þeirra sem dreifa henni. Þetta er allt annað skipulag en í sjávarútveg- inum en þar hafa sterkir hags- munaaðilar fengið að ráða því að sá sem á kvóta er með putt- ana í öllu ferlinu, allt frá kvóta- úthlutun þar til afurðirnar eru seldar á erlendum markaði. Mönnum virðist finnast í lagi að gefa orkufyrirtækjunum fyrir- mæli um að þau verði að hluta sig upp í einingar sem verði að eiga víðskipti hver við aðra eftir markaðslögmálum, en slíkt þykir ekki koma til greina í sjávarút- veginum. Þetta er dæmi um það hvernig hagsmunaaðilar fá að ráða niðurstöðunni þó hún sé í blóra við það sem þykir eðlilegt í öðrum atvinnugreinum. Þetta er líka vond byggðastefna því það er fráleitt ef fiskvinnslan þarf allsstaðar að byggja á því að eiga skip og kvóta. Eg vil líka fara yfir þá aðferð sem Samfylkingin hef- ur Iagt til að verði viðhöfð við úthlutun veiðiheimilda, að þær verði boðnar upp svo hæfustu aðilar á hverjum tíma sjái um útgerðina í landinu og nálægðin við miðin fái að njóta sín. Fram að þessu hafa menn að stærst- um hluta fengið veiðiheimildirn- ar vegna reynslu á tilteknu tíma- bili og hafa svo getað selt þá reynslu, keypt sér reynslu ann- arra eða leigt til sín tímabundið. Niðurstaða mín er sú að það sé langeðlilegast að útgerðin bjóði í veiðiheimildirnar. Þannig verður meiri sátt uin það hverjir fá að veiða og með þessum hætti fcngi þjóðin eölilegan arð af auðlind sinni, eins og sjálfsagt er. Ef fiskveiðistefnan á að vera skilvirk eins og nauðsynlegt er íyrir alvöru atvinnugrein þurfa menn að sætta sig við að hugs- unarháttur gamla veiðimanna- samfélagsins á ekki lengur við. Hluti af hinum nýja verulcika er að krafan um að menn borgi fyr- ir aðgang að sameiginlegri auð- lind. Það komast ekki allir að, miklu færri en vilja því auðlind- in er takmörkuð og því eðlilegt að þeir sem fá að nýta hana greiði fyrir það.“ - Nú eru mjög margir sem botna ekkert í umræðunni um sjávarútveginn, eru þetta svona flókin mál? „Mér finnst umræðan um sjávarútveginn stundum gerð alltof flókin. Menn eru ekki að tala um meginatriðin heldur flækja umræðuna í útfærslum og tæknilegum smáatriðum sem gerir það að verkum að fólk skil- ur oft og einatt ekki hvað verið er að tala um. Þegar stjórnmála- menn eru með óskýran mál- flutning er það oft tilfinning mín að það sé vegna þess að þeir skilji ekki sjálfir það sem þeir eru að segja eða vilji ekki að aðr- ir skilji um hvað þeir eru að tala. En af því ég er að tala um grundvallaratriöi þá finnst mér að í tillögu auðlindanefndar að stjórnarskrárákvæði sé því hreyft sem mestu skiptir, það er að eignarhald þjóð- arinnar á auðlindinni sé tryggt, að auðlindina megi ekki selja varanlega, ein- staklingar eða lögaðilar geti fengið að nýta hana tímabundið og þá gegn gjaldi." Á sama tíma og verkefni sem blasa við, og eru jafnvel lög- bundin, eru fjársvelt þvkjast ráð- herrar vera í ægilegum barningi við að flytja störf út á land, en árangurinn af því er auðvitað enginn eins og kunnugt er Það virðist svo oft vanta pen- inga þegar gera á eitthvað úti á landi. En það er oft ótrúlegt hversu litlar fjárhæðir geta skipt miklu. Tækifærin eru miirg og nóg er til af einstaklingum og fé- lögum sem gætu gert stóra hluti. Þess vegna er mikil synd að möguleikarnir skuli ekki nýttir og það segir meira en mörg orð um byggðastefnu ríkisstjórnar- innar. Vandi landsbyggðarinnar er ekki síst ímyndarvandi. Ef taka ætti mark á því hvernig talað er væri eðlilegt að álykta að land- byggðin væri nánast óbyggileg. Við sem eigum heima þar og þekkjum til vitum hinsvegar að um allt land er gróskumikið mannlíf og menning sem er Vandi landsbyggðarinnar Vikjum aðeins að byggðamálum, er það ekki töpuð barátta að ætla sér að sporna við fólksflótta til Reykjavik- ur? „Byggðamál eru ekki eiginlegur málaflokkur heldur spurning um við- horf þar sem virðing fyrir fólki og rétti þess til inni- haldsríks lífs er í önd- vegi. Mín stefna hefur jafnan verið sú að ræða um möguleikana og það sem hægt er að gera í stað þess að hamra á því sem miður hefur farið, það hafa nefnilega verið nógir um það á undan- förnum árum. Mér hefur Iíka alltaf fundist vitlaust að nota Reykjavík sem viðmið í samanburði í stað þess að lyfta kostum landsbyggðarinnar og sérstöðu sem er jú ástæða þess að ég og fleiri kjósa að búa þar. Ég sé næga möguleika en fólk þarf að fá hvatn- ingu, aðstöðu og fjár- muni til að koma hug- myndum í framkvæmd. Stjórnvöld draga lapp- irnar ótrúlega mikiö, til dæmis gagnvart Akureyri sem ég bý í næsta ná- grenni við. Akureyri er staður sem stjórnvöld ættu að örva uppbygginu á ef þau á annað borð hafa áhuga á að efla eitt- hvert annað svæði en suðvesturhornið, því þar eru svo margir möguleik- ar. En í stað þess að ýta rösklega undir vaxta- möguleikana sem þar eru í skóla- og menning- armálum er tímanum og orkunni eytt í endalaust ’ þref um smáaura. Það segir mér meira en margt annað um viðhorf- ið í menntamálaráðu- neytinu. Stjórnvöld nýta alls ekki þá möguleika sem liggja í menningarmálun- um til atvinnusköpunar. „Skólastefna Sjálfstæðis- flokksins hefur algjörlega brugðist. Við erum ekki bara með kennara í verkfalli og for- eldra og nemendur í uppnámi heldur er atvinnulífið líka í vanda vegna þessa. Ef vilji hefði verið fyrir hendi, og skilningur á mikilvægi mennt- unar, hefði verið gengið skipulega að því að endurnýja skólakerfið en þá bregðast menn við með því að setja hlutfallslega minni peninga til menntamála“ mikilvægt að viöhalda til að halda í þann fjölbreytileika sem gerir ísland byggilegra. Vællinn fer óstjórnlega í taugarnar á mér. Mér finnst hann niðurlægj- andi og til þess eins fallinn að rýra sjálfsmynd fólks og draga úr því kjarkinn. Það er nóg fyrir flesta að takast á við veruleikann þó mcnn þurfi ekki líka að berj- ast við þennan niðurdrepandi máinutning." Breytt valdahlutföll - Nú er kennaradeila í linút enn eitt árið. Hvernig hefðir þií sem gamall kennari viljað leysa mál- ið? „Það er alltaf erfitt fyrir stjórnarandstæðing að eiga að Ieysa mál sem stjórnvöld eru búin að setja í hnút. Ég hefði í fyrsta lagi aldrei látið málið fara í þennan vitleysislega far- veg. Skólakerfið hefur vcrið fjársvelt. Þar var allt komið á suðupunkt fyrir nokkru síðan. Hér er minna hlutfalli af lands- framleiðslu varið til skólamála en í þeim löndum sem við eig- um í samkeppni við og minna en fyrir tíu árum síðan. Þeim sem þessu ráða á þó að vera ljóst að menntun verður það sem helst kemur að haldi í lífs- baráttu einstaklinga og þjóðar á nýrri öld. Atvinnulífiö líður orðið fyrir það fjársvelti sem framhalds- skólinn hefur verið í. Samtök atvinnulffsins segja að það vanti orðið fólk með sérskóla- menntun, en framhaldsskólinn hefur nú tekið við öllum sér- skólunum. Þeir segja að fólki sem einungis hefur grunn- skólamenntun og ef til vill styttri námskeið fjölgi, svo og fólki með háskólamenntun en fólkið með framhaldsskóla- menntunina vanti. Þetta sé hluti af skýringunni á því að sú „Málefnalegar áherslur okkar eru mannúðlegar, nútimalegar og líklegar til að tryggja góð lífskjör allra þjóðfélagshópa. Hinir flokkarnir leggja hinsvegar allt kapp á að viðhalda óbreyttu ástandi." aukning á framleiðni í atvinnu- lífinu sem varð fram tii 1998 er nú horfin. Þetta segir okkur að skólastefna Sjálfstæðisflokksins hefur algjörlega brugðist. Við erum ekki bara með kennara í verkfalli og foreldra og nem- endur í uppnámi heldur er at- vinnulífið líka í vanda vegna þessa. Ef vilji hefði verið fyrir hendi, og skilningur á mikil- vægi menntunar, hefði verið gengið skipulega að því að end- urnýja skólakerfið en þá bregð- ast menn við með því að setja hlutfallslega minni pcninga til menntamála. Við í Samfylkingunni erum sannfærð um að menntun muni ráða úrslitum á nýrri öld, ekki bara fyrir einstaklingana heldur fyrir samfélagið allt og höfum lýst því yfir að menntun verði forgangsmál þegar Samfylkingin fær hér forystu í landmálunum" - Össur Skarphéðinsson hefur lýst því yfir að Samjylkingin sé- höfuðandstæðingur Sjálfstæðis- flokksins. Hver er í reynd mun- urinn á Sjálfstæðisfiokknum og Samfylkingunn i ? „Þar er sá grundvallarmunur að Samfylkingin stendur fyrir al- mannahagsmuni en Sjálfstæðis- flokkurinn fyrir sérhagsmuni. Þetta kristallast á ýmsum svið- um, ég nefni sjávarútveginn sem dæmi og hvernig Sjálfstæðis- flokkurinn leggur lamandi hönd á samkeppni á ýmsum sviðum f þágu ákveðinna fyrirtækja. Við viljum meiri samkeppni í at- vinnulífinu en þeir. Og á meðan sjálfstæðismenn daðra við einka- væðingu mennta-og heilbrigðis- kerfisins tölum við samfylking- arraenn um rétt fólksins til þjónustu í heilbrigðiskerfinu og að öryggisnetið sé traust. Við viljum jöfn tækifæri, að fólki sé ekki mismunað eftir efnahag og teljum menntakerfið niikilvægan lið í því að jafna aðstöðu og tryggja þátttöku fólks. Afstaða þessara flokka til utanríkismála er einnig ólík. Hjá Sjálf- stæðisflokknum ber sí- fellt meira á tilhneig- ingu til einangrunar og þjóðernishyggju. Sam- fylldngin hefur hinsveg- ar það sjálfstraust fyrir hönd þjóðarinnar sem þarf til að eiga samstarf við aðrar þjóðir á jafn- réttisgrundvelli. Okkur finnst löngu tímabært að breyta valdahlutföll- um í íslenskum stjórn- málum þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur deilt og drottnað alltof lengi. Til þess var Sam- fylkingin líka stofnuð. Málefnalegar áherslur okkar eru mannúðlegar, nútímalegar og líklegar til að tryggjá góð Jífskjör allra þjóðfélagshópa. Hinir flokkarnir leggja hinsvegar allt kapp á að viðhalda óbreyttu ástandi, sem þýðir að Sjálfstæðisflokkurinn getur í krafti stöðu sinn- ar deilt hér og drottnað áfram. Og það merkilega er að viðhald þessa ástands Mrðist el-tki minna áhugmál Vinstri- grænna en Sjálfstæðis- flokksins sjálfs. Þetta er sú staða sem Samfvlk- ingin var stofnuð til að breyta og viö munum ekki linna Iátunum lyrr en okkur hefur tekist það. Það er orðið nauð- synlegt fyrir fslenskt samfélag að valdahlut- föllum verði breytt.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.