Dagur - 25.11.2000, Page 9

Dagur - 25.11.2000, Page 9
 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 - 9 Drekka í sig teiknimyndir Síbreytilegt hvað vinsæl- ast er. Krakkar drekka sig teiknimyndir í dag. Enn lifa Frank og Jói. „Það cr margt í umhverfínu sem stjórnar því hvaða bækur eru vin- sælastar meðal barna og unglinga á hverjum tíma," segir Þorbjörg Karlsdóttir sem starfar á barna- bókadeild Borgarbókasafnsins í Trygg\'agötu í Reykjavík. „Þarna getum við til dæmis tekið bæk- urnar um Harry Potter sem dæmi. Eg hef lesið kafla og kafla í bókunum og virðist honum alltaf takast að halda lífi sínu með ein- hveijum göldrum, og kemst alltaf þannig lengra og lengra. Yfirstígur svona hverja hindrunina. Þetta er rétt einsog í tölvuleikjum krakk- anna, sem ganga út á að komast af einu borði yfir á það næsta með því að yfirstíga einhveijar hindranir. Núna eru fleiri bækur af þessum toga að koma út.“ Teiknimyndimar vinsælar Ævintýrí Harry Potter eru rétt einsog tölvuleikir krakkanna, ganga út á að komast afeinu borði yfir á það næsta með því að yfirstíga hindranir, segir Þorbjörg Karls- dóttir í barnabókadeiid Borgarbókasafnsins f Tryggvagötu íReykjavík. Líkt og kannanir og staðfestar töl- ur úr skólunum segja þá er það jafnframt mat Þorbjargar Karls- dóttur að lestur barna sé mestur á aldrinum átta til tólf ára. Eftir það dragi talsvert úr honum, en í efri bekkjum grunnskóla og þegar kemur upp á framhaldsstigið fari krakkar svo aftur að leita til safn- anna til dæmis við heimildaleit vegna ritgerðasmíða. „Teikni- myndasögur eru vinsælastar hjá unglingum, þau hreinlega drekka þetta f sig og þá skiptir tungumál- ið ekki öllu. Strákarnir eru að vísu meira í teiluiimyndunum en stelpurnar og á þessu sviði bók- mcnntanna þekkja þeir alla helstu strauma og stefnur, hvað- an sem þeir nú einu sinni koma,“ segir Þorbjörg, sem kveðst að- spurð engan kvíðboga bera gagn- vart því þó börn leiti í teikni- myndabækur, frekar en bækur með massívum texta. Svona séu straumar dagsins í dag, og tíðar- andinn. Silfurkrossinn og Frank og Jói „Það sem breytist nokkuð frá einu ári til annars er hverskonar bækur krakkar vilja lesa. Fyrir tveimur árum voru nokkuð marg- ir barnabókahöfundar til dæmis nokkuð að skrifa um yfimáttúru- lega hluti og mikilla vinsælda naut þá til dæmis bókin Silfur- krossinn eftir Illuga Jökulsson. Þetta sama ár komu svo út nokkr- ar bækur um hvali, en það var í september þetta ár sem komið var með hvalinn Keiko til Eyja,“ segir Þorbjörg. Bækur Iifa misjafnlega lengi. Sumar þeirra bóka sem nánast hvert barn í landinu drakk í sig á sinni tíð eru nú nánast öllum gleymdar en aðrar lifa lengur. Að- spurð um þetta segir Þorbjörg að enn lesi íslenskir krakkar ævin- tyrabækur Enit Blyton, svo sem Fimm á Fagurey - svo einhver þeirra sé nefnd. Einnig bækurnar um leynilögreglukonuna Nancy sem Carolyn Keene skrifaði og enn standa Frank og Jói sína plikt í þeim frægu bókum sem Frank- Iin Dixon skrifaði um þá. Hver eru Adda og Árni? Ástarbókmenntirnar vinsælar sem og ís- lendingasögurnar. En Árni í Hraunkoti og Adda hvergi nefnd. Ung, tvö og bálskotin - kunnum ekkert að passa okkur. Þetta er bókin sem Jóhanna Halldóra Kristjáns- dóttir sem er nemandi í 9. bekk Brekkuskóla á Akur- eyri nefndi fyrst þegar Dag- ur spurði hana um hvaða bækur væru í mestu uppá- haldi hjá henni. Bókin sú eru leiðbeiningar til hins unga æskufólks um hvernig það eigi að bera sig að á akri ástarinnar svo vega- gerðin þar verði stórslysalaus. Guðrún kveðst ekki vera lestrarhestur einsog stundum er um krakka sagt, en ver þó alltaf nokkrum tímum í viku hverri við að hlaða í bókum og tímaritum á bókasafni skólans. „Onnur bók sem ég er að lesa er Bara við tvö. Hún fjallar um strák sem er skotin í stelpu og ...." Þarf nokkuð að segja meira hér. Hver þekkir ekki þanka- gang á þessum nótum frá sfn- Stefán Jóhann Jeppesen og Jóhanna Halldóra Kristjánsdóttir, nemendur i Brekkuskóia stödd í bókasafni skólans. „Bókin fjallar um strák sem er skotinn í steipu." mynd: brink. um æskuárum. „Hver var það?“ segir Jó- hanna Halklóra þegar hún er spurð hvort hún þekki Árna í Hraunkoti, þyrluflugmanninn fræga sem Ármann Kr. Einars- son skrifaði um í mörgum af barnabókum sínum. Og sömu svör fengum við þegar spurt var um Öddu sem þau Jenna og I Ireiðar Stcfánsson skrifuðu um í Oddubókunum og einu sinni var sagt að allir krakkar læsu. Grettla er skemmtileg „I skólanum höfum við í vetur verið að lesa Gunnlaugssögu Ormstungu og Grettissögu. Fyrrnefnda sagan er leiðinleg, en Grettla er skemmtileg. I lún er spennandi, íslcnskan er góð og einnig er gaman að sjá hvað málið hefur breyst mikið frá því sagan var skrifuð og til dagsins í dag. Mér finnst margfalt skemmtilegra að lesa íslendingasögurnar heldur en að sjá kvikmyndir sem hafa verið gerðar eftir sumum þeirra,“ segir Stefán Jóhann Jeppesen, sem einnig er nemi \ 9. beldt Brekku- skóla. Hann kveðst lesa tals- vert mikið af bókum. Stefán Jóhann kveðst frekar velja sér skáldsögur lyrir full- orðna til aflestrar en hinar svo- nefndu unglingabækur. Þar nefri- ir hann meðal annars bókina Einn í stríði eftir Evert Har- mann og Síðasti móhíkaninn eftir Cooper. Annars er spenna og húrnor þar sem Stefán leitar helst eftir þegar hann velur sér bækur og er það í samræmi við það sem bókasafnsfræðingar og aðrir segja að æsku Iandsins fvsi helst að fá þegar hún velur sér bækur. „Börnum á íslandi er frá biautu barnsbeini kennt að meta góðar bækur og það skiiar sér að sjáifsögðu þegar þau fullorðnast, “ segir Hiidur Hermóðs- dóttir hjá bókaforlaginu Söiku. Unglingabækur lent f öngstræti Krakkar kröfuharðir les- endur. Raunsæisbækur fyrir nútfmakrakka virka. Góðar bækur eru tímalausar. Hildur Hermóðsdóttir, annar tveggja eigenda bókaforlagsins Sölku, er meðal þeirra sem hvað lengst hafa starfað að útgáfu barnabóka hér á landi, var í rúm- lega áratug ritstjóri barnabóka Máls og menninga. Hún var spurð að því hveijar væru að hennar dómi helstu skýringarnar á því að lestur barna drægist mik- ið saman þegar á táningsaldurinn kæmi, en ykist svo aftur þegar á framhaldsskólaaldurinn kærni. Leið á að lesa um kynlíf og partý „Ég ímynda mér að skýringarn- ar á þessu séu meðal annars- stórlega aukið framboð á af- þreyingarefni sem flæðir yfir krakka á þessu aldursskeiði," segir Hildur Hermóðsdóttir. „Áreiðanlega eru líka færri bækur sem höfða til þessa ald- urshóps en annarra. Krakkar lesa upp fyrir sig og á þessum aldri ættu þeir að lesa hinar svokölluðu unglingabækur. Sannleikurinn er að undanfar- inár hafa þær lent dálítið í öng- stræti. Krakkar verða leiðir á að lesa stöðugt um partí og kynlíf, þeir eru kröfuharðari cn svo og fá h'ka nóg af slíku í kvikmyndum. Krakkar eru hins vegar spenntir fyrir ævintýrum og vísindaskáldsögum og fram- boö á slíku hefur reyndar vaxið.“ Hildur segir ennfremur að á þessum aldri séu börn afar mis- munandi að þroska ... og eru að fikra sig áfram út í veröldina - þess vegna hafa þau sjálfsagt minni eirð í sér til að kúra yfir bókum. Þannig er það auðvitaö í hraða nútímans. En sem betur fer koma þau til baka og fara aftur að lesa - bæði vegna þcss að þau róast en ekki síst vegna þess að niikið er unnið með bók- menntir á öllum skólastigum. Það er ómetanlegt. Börnum á Islandi er frá blautu barnsbeini kennt að meta góðar bækur og það skilar sér að sjálfsögðu þeg- ar þau fullorðnast." Sögur af samfélagi Hildur var spurð að því hvort rit- höfundar sem skrifa fyrir börn gerðu í nægilega ríkum mæli út á það sem börn á íslandi lifa og hrærast í nú um stundir. Þarf i' bókum líðandi stundar ekki að koma eitthvað inn á Pókymon- mjmdir, hettupeysur, hlaupahjól og rasssíðar buxur svo einhver tákna úr samfélagi líðandi stund- ar séu nefnd. „Margir höfundar eru reyndar að skrifa raunsæisbækur lýrir nú- tímakrakka. Hins vegar er það svo að bækur um tískubólur endast yfirleitt illa, þær fara hreinlega úr tísku um leið og fýrirbærin sem þær fjalla um. Börn vilja heldur lesa um það sem skiptir máli - sögur sem segja þeim eitthvað um mannleg samskipti, um for- tíðina, um samfélagió í fortíð eða nútíð. En umfram allt þurfa þau skemmtilegar bækur á máli sem þau skilja án þess að talað sé nið- ur til þeirra." Dálítill höfuðverkur. En eru bókaforlögin í landinu nægilega meðvituð um lítinn lest- ur barna og hvaða ráð hafa þau séð til að auka hann og þar með auka sölu barnabóka. Og hcfur verið gripið til einhverra slíkra ráða? „Bókaforlög velta auðvitað frrir sér hverjir lesa og hvernig er mögulegt að koma til móts við þá. En óneitanlega er 12 til 15 ára aldurinn dálítill höfuðverkur. I ár koma samt út ýmsar góðar bækur sem höfða til þessa hóps og út- gefendur treysta mest á jólamark- aðinn eins og venjulega," segir Hildur. Og hún bætir við: „Ég er búin að starfa bráðum 13 ár við bókaútgáfu, aðallega við barnabækur fram undir þetta. Þegar ég byrjaði á níunda ára- tugnum var mikil gróska í útgáfu unglingabóka sem seldust eins og heitar lummur. Þá var skrifaður fjöldi bóka um nútímaunglinga, margar eru gleymdar, jafnvel þótt þær þættu góðar á sínum tíma en einstaka hefur lifað af, t.d. Gauragangur eftir Olaf Hauk, bók sem orðin er nokkurskonar klassík. Þetta er dæmi seiri sann- ar að skemmtilegar og innihalds- ríkar sögur sem tala til unglinga eins og jafningja eru tímalausar í þeim skilningi að þær höfða stöðugt jafn mikið til lesenda sinna þótt tíminn líði. Þetta á auðvitað við um allar bækur."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.