Dagur - 25.11.2000, Síða 23

Dagur - 25.11.2000, Síða 23
 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 - 23 SKAKMOLAR UMSJÓN: HALLDÓR B. HALLDÓRSSON T.R. efst! Æsispennandi keppni er í fyrstu deild íslandsmóts skák- félaga þegar fyrri hlutanum er lokið en seinni hlutinn fer fram í vor. Það er Taflfélag Reykjavíkur sem leiðir með 24 vinninga af 32 en Taflfélagið Hellir kemur þar skammt á eftir með 22/. Skákfélag Ak- ureyrar er þó alls ékki langt undan með 21 vinning. Það verður þó að teljast líklegast að Hellir fari með sigur af hólmi í fsTstu deildinni því að félagið á mun auðvaldari and- stæðinga eftir. Það má segja að þær tvær viðureignir sem ráða úrslitum í seinni hlutan- um séu viðureignir Hellis og T.R.-b annars vegar og T.R.-a og S.Á. hins vegar. I annari deild stefnir allt í sigur Skák- félags Grandrokks en félagið hefur komist upp um deild á hverju einasta ári frá stofnun þess. Grandrokk hefur fjög- urra vinninga forskot á næstu sveit en T.R.-c Taflfélag Bol- ungavíkur og Skákfélag Akur- eyrar koma næstar í einum hnapp. Þess ber þó að geta að að- eins eitt félag skiptir um deild. Keppnin í þriðju deild er mjög jöfn en þar er þó Taflfélag Vestmannaeyja efst með 16 vinninga en næstar koma S.A.-c, Taflfélag Reykjanes- bæjar og Taflfélag Dalvíkur. Það verður þó að teljast líklegt að úrslit deildarinnar hafi ráð- ist þegar S.A-c missti unna viðureign niður í jafntefli á mjög klaufalegan hátt gegn Taflfélagi Vestmannaevja. I fjórðu deild er T.R.-e langefst í b-riðli með 22 vinninga af 24 mögulegum. A-riðilinn er hins vegar mun meira spennandi en þar eru það Grandrokk-c með 18/í og S.A.-d 16/ sem að berjast á toppnum. Leiðindaatvik Tvö leiðinleg atvik settu svip sinn á deildakeppnina að þessu sinni. 1 fyrstu umferð fyrstu deildar mættust a og b sveitir félaganna eins og venja er (þ.e.a.s. þau sem eru í sömu deild). 1 fyrstu deild kepptu T.R.-a við b-sveit sína. Athygli vakti að T.R-b var mun veikari í þessari umferð en hinum og ekki geta þeir borið það fyrir sig að menn hafi ekki geta komist því að nýkrýndur skákmeistari félagsins sem að tefldi á fyrsta borði mætti á staðinn en fékk ekki að tefla! Það er að mínu mati Ijóst að eitthvað verður að gera til að koma í veg fýrir svona lagaö en þó er ljóst að elcki bætir þetta orðstír félagsins. Þess má svo geta að T.R.-a sigraði í viðureigninni 7/. Seinna at vikið átti sér svo stað í fjórðu deild. í upphafi móts spurði liðsmaður S.A. skákstjóra hvort að tvær efstu sveitir hvors riðils kæniust ekki upp en fékk ekkert svar. í miðju móti var það svo tilkynnt að aðeins efsta sveitin kæmist upp. Siík vinnubrögð eru til skammar og áö sjálfsögðu það að liggja fyrir .áður en mót hefst hvert fyrirkomulag þess FINA OG FRÆGA FQLKIÐ Er Madonna trúlofuð? Það virðist vera ótímabært að senda Madonnu brúðkaupsgjafir, þrátt fyrir miklar sögur umað hún og Guy Ritchie væru í þann veginn að fara að gifta sig. Heimurinn var ekki búinn að smjatta á þessari nýju trúlofun- arfrétt nema í tvo daga þegar sérstök tilkynn- ing var send út frá poppdrottningunni um að hún væri bara ekkert að fara að gifta sig, ekki í bráð í það minnsta! Það var sérlegur tals- maður Madonnu, Liz Rosenberg sem sagði opinberlega frá þessu í gær. Þar sagði tals- maðurinn hreint út að Madonna væri ekki trúlofuð. Þar með er hún í raun að bera til baka ummæli sín frá því fyrr í vikunni þegar bún sagði að Madonna og Guy væru trúlof- uð. Greinilegt er að Rosenberg hefur í milli- tíðinni talað um málið við Madonnu og breytt yfirlýsingu sinni í kjöfarið. Raunar lýsti Madonna því svo sjálf yfir í viðtali við The Sun í gær að Guy væri búinn að biðja hana um að giftast sér, og hún hefði sagt já. Hins vegar væri ekkert ákveðið um bvenær brúðkaupið myndi verða. Nú velta menn því fyrir sér hvað sé hér í gangi, annars vegar keppist talsmaður Madonnu við að af- neita því að stjarnan sé trúlofuð og svo kem- ur Madonna sjálf hins vegar og lýsir því yfir að hún sé trúlofuð. Fjölmiðlamenn hafa spurt hvort hér sé e.t.v. á ferðinni enn eitt kynningarbragðið hjá Madonnu? Svo er ekki segir talsmaðurinn í viðtali á MTV og heldur því fram að ummæli Madonnu hafi verið tek- in úr samhengi - hún sé ekki trúlofuð, ekki einu sinni „leynilega"!!!! Madonna og Guy Richie BARIUAHORIUIÐ Tveir eru eins I fljótu bragði virðast allir þessir vfkingar vera eins en svo er ekki. Aðeins tveir þeirra eru al- veg eins. Getur þú fundið hvaða tveir það eru? Ólíkar í fimm atriðun Þótt svo kunni að vjrðast f- fyrstu þá eru þessar myndir ekkí eins. Þær cru ólíkar í að minnsta kosti fimm litlum atriðum. Hvaða atriði eru þettá? Gpp- Iagt væri síðan að lita myndirnar á eftir. Brandarar A eIliheimilinu:„Af hverju ertu farinn að vefja sí- „Ágæti sálfræðingur! Þú verður að hjálpa mér. garetturnar þínar sjálfur?" Ég hef það á tilfinningunni að ég sé ísskápur." „Læknirinn sagði að ég þyrfti á hreyfíngu að „Já, það skal ég gera. En byrjaðu nú samt á hakla.“ því að loka munninum. l jósið skín 'sv.o í'augun.á H HHr mér.“*-** Vatnsberinn Ekki útiloka þinn innri mann. Það eru flestir búnir að fá leið á þeim ytri. Fiskarnir Það ríkir góðæri hjá þér um helg- ina. En það staldrar stutt við. Hrúturinn Hafðu auga með snúnings- hraðamælinum. Þú ert eins og skopparakringla þessa dagana. Nautið Stofnaðu flugfé- lag til að leysa samgönguvanda- málin við eigin skýjaborgir. Tvíburarnir Þetta eru vissu- lega erfiðir tímar, en Lorelei syngur þig í svefn á hverju kvöldi. Krabbinn Það eru ham- ingjutímar í vændum ef þú aðeins spiiar rétt úr því sem þú hefur. Þrjú grönd eru í burðarliðn- um. Ljónið Bann við lausa- göngu hrossa er eina ráðið. Fastur hestur verður samt aidrei besti hestur. Meyjan Þá átt stjörnuleik um helgina, en það fer nokkuð leynt því áhorf- endur vantar. Vogin Samband flóð- hests og naggríss blessast ekki nema ákveðnum grundárvailarregl- um sé fylgt og annar verði ofan á í sambandinu. Sporðdrekinn Þrjú tonn af sandi duga skammt þegar hálkan í einkalífinu er slík að hvurgi er stætt. Bogamaðurinn Landmælingar ís- : lands hafa komist að þeirri niður- stöðu að þú sért heldur lítill kall. En það má reikna með nokkrum skekkjumörkum. Steingeitin : Skippí kengúra verður á vegi þín- um afturgengin. Hún er verri ; hrossjeggur en Viduka.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.