Dagur - 10.01.2001, Page 1

Dagur - 10.01.2001, Page 1
I I I > í k > > » Bætur greiddar 4 ár aftur í tímann Titringur hefur verið í ríkisstjórninni vegna öryrkjadómsins bætur 4 ár aft- ur í tímann. Talan rúmir 2 milljarðar hef- ur verið nefnd en ekki fengist staðfest. Það skal tek- ið fram að í gær var frum- varpið sem lagt verður fyr- ir Alþingi n.k. mánudag, alls ekki endanlega frá gengið. MiMl átök hafa verið síðustu daga uiilli stjómarflokkaima um hvemig svara eigi ör- yrkjadómnum. Ríkis- stjómarfundi var frestað í gær. Ráð- herrahópar stjómar- flokkanna funduðu sitt í hvom lagi í gær. Samkomulag mun vera að nást niilli stjórnarflokkanna um frum- varpsdrögin sem samin voru af fjögurra manna nefnd vegna ör- yrkjadómsins. Agreiningsmál stjórnarflokkanna voru fleiri en eitt og þá aðallega um aðferðar- fræðina við að framfylgja dómn- um. Sá ágreiningur varð til um leið og dómurinn féll. I gær var hefðbundnum þriðjudags-ríkis- stjórnarfundi frestað. En á sama tíma hittust ráð- herrar flokk- anna sitt í hvoru lagi og funduðu um málið. Aætlað er að ríkis- stjórnarfundur verði haldinn í dag. Kunnugir segja þetta mestu átök sem orðið hafi í þessu stjórnarsamstarfi. Það sem mest er deilt um er hvort greiða eigi öryrkjum bætur alveg aftur til ársins 1994 þegar skerðingin hófst eða fara eftir fyrningarreglum um annað hvort 4 ár eða 2 ár aftur í tímann. Nið- urstaðan mun hafa orðið sú að greiða öry'rkjum bætur 4 ár aftur í tímann. I gær var unnið að út- reikningum um hvað það muni kosta ríkissjóð að greiða öryrkjum EinstaMingar Eitt af því sem öllum þykir mjög ósanngjarnt varðandi dóm Hæsta- réttar er að einungis þeir sem eiga maka fá bætur 4 ár aftur í tímann vegna þess að dómurinn gengur út á skerðingu örorkubóta vegna tekna maka. Einstæðingar fá því engar bætur. Bent er á að þeir hafi hins vegar fengið fullar ör- orkubætur alla tíð en nú fái þeir sem giftir eru, og því betur settir, fullar bætur 4 ár aftur í tímann. Endurskoða tryggingalöggjöfina I sáttmála ríkisstj'órnarinnar er klausa um að endurskoða þurfi al- mannatryggingalöggjöfina. A síð- asta kjörtímabili var það mál að- eins skoðað en ekkert varð úr því að af endurskoðun yrði. Nú er hins vegar talið víst að löggjöfin verði tekin til endurskoðunar al- veg frá grunni. Stjórnarsinnar, sem Dagur hef- ur rætt við, segja að svo margir meinbugir hafi komið í ljós við ör- yrkjadóm Hæstaréttar að ekki verði hjá þ\4 komist að endur- skoða almannatryggingalögin. Ymsir halda því fram að þau lög sem ríkisstjórnin undirbýr nú vegna öryrkjadómsins séu á þann veg að málaferli muni halda áfram. Oryrkjabandalagið muni ekki getað unað niðurstöðunni. - S.DÓR Forsendur brostnar Nýgerðir kjara- samningar fram- haldsskólakennara verða til þess að taka verður upp launalið kjarasamn- inga á almenna markaðnum. Þetta var niðurstaðan á framkvæmstjórnar- fundi Starfsgreina- sambandsins í gær. „Það er okkar mat að samningsforsendur séu brostnar," sagði Aðalsteinn Bald- ursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, sem sæti á í stjórninni, í samtali við Dag. „Kennarar eru að fá meira en við fengum með samningum á al- menna markaðnum, þó ég gagn- rýni ekki að þeir hafi fengið eðli- lega leiðréttingu sinna launa. Rík- ið að hins vegar að ganga bak orða sinna, sem voru þau að ekki væri meira til skiptanna en sú pró- sentuhækkun sem við fengum í okkar samningum sl. vor,“ sagði Aðalsteinn. - SBS Þeir eru margir sem koma við i Essóskálanum á Blönduósi á leið sinni um þjóðveginn norður í land. / góðviðrinu í gær greip Svanhildur Birgisdóttir tækifærið til að þvo glugga skálans þannig að timabundnir vegfarendur gæti séð hvort þar væri allt fullt inni eða ekki. - mynd: brink Búnaðarbankinn. Hlutabréfavið- skipti hans í Pharmaco í skoðun. Búnaðar- banMí rannsóMi Búnaðarbanki Islands og Hluta- bréfasjóður Búnaðarbankans kunna að hafa brotið lög um verð- bréfaviðskipti, segir Fjármálaeftir- litið sem lokið hefur rannsókn sinni á viðskiptum bankans og sjóðsins með hlutabréf í Pharmaco frá því í apríl 1999 til mars á sl. ári. Talið er, skv. rannsókninni, að starfsmenn bankans kunni að búa yfir trúnaðarupplýsingum um nefnt fyrirtæki og viðskiptin hrjóti því í bága við lög um verðbréfavið- skipti. Af þeirri ástæðu telur Fjár- inálaeftirlitið nauðsyn á því að láta rannsaka málið frekar og hefur sent Ríkislögreglustjóra erindi þar um. Fram kom í fréttum Sjón- varpsins í gærkvöld að viöskipta- ráðherra hefði óskað eftir því að þeirri rannsókn yrði hraðað. Vilja vita um ætluð brot Búnaðarbankamenn ætla ekki að sitja þegjandi undir athugasemd- um Fjármálaeftirlitsins og því hafa bankaráð og bankastjórn látið fara fram ítarlega skoðun á öllum við- skiptum bankans og sjóða hans með hlutabréf í Pharmaco hf. á því tímabili sem ósk Fjármálaeftirlits- ins um nánari rannsókn Ríkislög- reglustjóra nær til. Sú athugun, sem innri endurskoðun bankans annaðist, hefur ekki Ieitt í Ijós að reglur hafi verið brotnar, að því er segir í tilkynningu sem Búnaðar- bankans í gærkvöldi. Þar segir að yfirstjórn Búnaðar- bankans líti málið alvarlegum aug- um. „Bankinn hefur óskað þess að fá að kynna sér hver ætluð brot eru þannig að honum gefist kostur á að setja fram skýringar og andmæli í samræmi viö reglur stjórnsýslu- laga. Fjármálaeftirlitið hefur hafn- að þeirri ósk og telur málsmeð- ferðarreglur stjórnsýslulaga ekki eiga við. Búnaðarbankinn gerir al- varlegar athugasemdir við máls- meðferðina og hefur tekið ákvörð- un um að kæra þessa ákvörðun til kærunefndar sem starfar skv. lög- um urn opinbert eftirlit með Ijár- málastarfsemi," segir í tilkynning- unni, þar sem kemur fram að Bún- aðarbankinn hafi falið Gesti Jóns- syni hrl. að annast málið fyrir sína hönd. mnm ammmmammm taeknival.is Nýjar Netfréttir ...daglega

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.