Dagur - 17.01.2001, Blaðsíða 5

Dagur - 17.01.2001, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 - S FRETTIR L A Aðalsakbomingar j áta kókaínkaup Egill R. Guðjohnsen og Geir H. Ericsson í dómssal ásamt lögmönnum. Liðlega 6 milljónir króna komu til þeirra frá Sverri Þór Gunnarssyni. „Við erum bara að þvo... þetta er mjög flott og einfalt“ sagði Egill í símasamtali við Sverri. Aðalsakbomingar hafna peningaþvætti en játa á sig kókaín- kaup og neyslu. Geir grunaði Egil um að fé- fletta sig. Einn kók- neyslufélaginn kallað- ur „Hoover“. Lögmað- urinn hvatti „sóma- kæra tannlækninn“ ítrekað til að fara til lögreglunnar. Egill R. Guðjohnsen tannlæknir neitaði því við aðalmeðferð pen- ingaþvættismálsins í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær að hann væri sekur um peningaþvætti og jafnframt dró hann framburð sinn fyrir lögreglu og dómi til baka og sagðist ekki hafa keypt allt að 1 50 grömm af kókaíni af Sverri Þór Gunnarssyni - heldur aðeins um 27 grömm. Gegn því stendur að Sverrir Þór hefur þegar verið dæmdur fyrir að selja Agli allt að 150 grömm. Egill sagði í gær að honum hefði gef- ist tækifæri til að fara gaumgæfi- lega yfir neyslu sfna og að fyrri magntölur væru „einhver rugl- ingur" og hann hafi ekki verið að hugsa rökrétt. Sameigandi Egils að kjötvinnslufyrirtækinu Rimax, Geir H. Ericsson viðurkenndi kaup á 5 grömmum af kókaíni af Sverri en sagðist saklaus af pen- ingaþvættisákæru. Reyndar kom fram á hljóðupp- tökum símtala að félagarnir Egili og Geir hafi orðið sundurorða um peningalega hlið reksturs Rimax við kaup Sverris á 30% hlut í fyrirtækinu og að Geir hafi grunað Egil um græsku. Sagði hann við Egil í símtali að ef hann kæmist að því að Egill væri að fé- fletta sig mælti hann fara með Faðirvorið áður en þeir hittust næst. Dóppeningar á tannlækna- stofunni Egill er ákærður fyrir að hafa á tannlæknastofu sinni mótttekið yfir fjórar milljónir króna í reiðu- fé frá Sverri, sem hann vissi að var ávinningur fíknjefnabrota. Egill geymdi peningana í banka- hólfi þar til Sverrir var úrskurð- aður í gæsluvarðhald. Lögmað- urinn Sigurður Guðmundsson er ákærður fyrir að hafa gert mála- myndakaupsamning um kaup Sverris á Rimax fyrir sömu upp- hæð og fyrir að hafa tekið vörsl- ur peninganna með því að varð- veita lykil bankahólfsins. Egill og Geir eru og ákærði fyr- ir að hafa tekið við tveimur millj- ónum króna af Sverri fyrir 30% hlut í Rimax, en þeir vissu að var ávinningur af sölu fíkniefna. Geir er ákærður fyrir að hafa tekið við kæliskáp, uppþvottavél, litasjónvarpi, myndbandstæki og sjónvarpsskáp frá Sverri, sem töldust ávinningur af sölu fíkni- efna. Egill er ákærður fyrir að hafa keypt um 150 grömm af kókaíni af Sverri og Geir fyrir að hafa keypt um 5 grömm af kóka- íni af Sverri. Neytanda líkt viö Hoover ryksngu Við aðalmeðferð var framburður Egils allur annar en í vfirheyrsl- um og fyrir dómi vegna gæslu- varðhaldsúrskurðar. Sem fyrr segir eru kókaínkaupin nú kom- in úr 150 í 27 grömm og segir að nokkurn hluta af því hal’i fengið neyslufélagi hans Sigurður Olafsson - sem Egill og Sverrir kölluðu á einni símaupptökunni „Hoover" og áttu þá væntanlega við hversu rösklega sá maður saug kókafn upp í nefið. Að- spurður sagðist Egill hafa byrjað að neyta kókaíns þar sem hann færi yfirleitt í „hlack-out" við áfengisdrykkju og hefði hann heyrt að kókaín væri mótverk- andi gegn því. Akæran miðast við að bæði Egill og Geir hafi vitað að þeir peningar sem Sverrir lagði í fyr- irtækið - í reiðufé - væru fengnir ólöglega, þ.e. með fíkniefnasölu. J einu símtala Egils og Sverris sagði Egill um frágang fjármála: „Við erum bara að þvo... þetta er mjög flott og einfalt". Fyrir dómi sagði Egill að þetta hafi ekki ver- ið eins og það hljómaði, enda hefði viðkomandi ráðstöfun aldrei farið fram. Hins vegar meðtók Egill annars vegar tvær milljónir króna frá Sverri fyrir 30% hlut í Rimax og síðar 4,15 milljónir, sem átti að vera fyrir allan hlut Egils í fyrirtækinu, eða, samkvæmt öðrum lýsingum, peningar til kaupa á pökkunar- vél. Því reiðufé kom Egill fyrir í bankahólfi. Sagðist Egill ekki hafa talið féð illa til komið - þá hefði hann ekki selt honum - heldur til komið vegna lögmætra fasteignaviðskipta. ímynd sómakærs tannlæknis Þegar Sverrir var síðar handtek- inn vegna stóra fíkniefnamálsins svokallaða (Samskipamálsins) leitaði hann til lögmannsins Sig- urðar um ráð. Fyrir dómi bar Eg- ill að niðurstaðan hefði verið að bíða og sjá til. Egill bað lög- manninn um að setja á blað inni- hald munnlegs samnings milli Egils og Sverris, sem hafi verið gert, en Egill neitaði því að lög- maðurinn hefði ráðlagt honum að Iáta samninginn finnast heima hjá sér ef til húsleitar kæmi. Áður en EgiII fór af fund- inurn með lögmanninum aflienti hann Sigurði lykillinn að banka- hólfinu og bað hann að geyma hann, því til staðfestingar að fundurinn hafi átt sér stað, enda hafi alltaf staðið til að fara til lögreglunnar og skila þessum peningum, en það dregist. Santninginn hafi Egill hugsað sem sönnun fyrir því að hann hafi ekki átt peningana, heldur Sverrir og var textinn saminn eft- ir forskrift hans - gerð hans hafi verið vitleysa og ímyndun, sem sýndi þá örvilnan sem hann var kominn í. Egill viðurkenndi að hafa sagt lögmanninum ranglega frá mála- vöxtum í samræðum þeirra og ekki hugsað skýrt. Lögmaðurinn Sigurður bar að hann hafi oft áður unnið fyrir Egil og ekki vit- að annað en að hann væri „sómakær tannlæknir" og alls ekki dottið í hug að hann væri kókaínneytandi. Egill hefði greint sér frá því að hann hefði selt manni að nafni Sverri hlut sinn í fyrirtækinu, en síðan hefði kaupandinn verið hnepptur í gæsluvarðhald. Sigurður kvaðst þá hafa varað Egil við því að hann gæti saklaus lent í gæslu- varðhaldi og ítrekað hvatt hann til að fara til lögreglunnar að gera grein lyrir viðskiptum hans við Sverri, annað væri óskynsam- legt. 1 lok þessa fundar hefði Eg- ill afhent sér lykla að bankahólf- inu, sem hann hefði sett í um- slag og læst í peningaskáp og geymt í ljósi yfirlýsinga Egils um að hann færi til lögreglunnar - ekki hefði hvarflað að sér að hann yrði bendlaður við málið við það að geyma Iykilinn. MiHjónir króna í fhitningum Skýrslutaka fór einnig fram yfir Sverri Þór Gunnarssyni í síðdeg- is í gær, en í þessu máli er hann „bara“ vitni þótt hann væri færð- ur fyrir dómara í lögreglufvlgd - enda hans þætti í málinu lokið fyrir undirrétti. Aðahneðferð málsins heldur áfram í dag. Þá hefur aðalmeðferð í máli manns farið fram sem ákærður er fyrir að hafa tekið við unt 120.000 hollenskum gyllinum frá öðrum manni og flutt f\'rir liann til Amsterdam ogþar aflient Rúnari vcgna fíkniefnakaupa, vitandi að um ávinning af fíkniefnasölu væri að ræða. 1 málapakkanum er annar maður ákærður lyrir að hafa tek- ið við og geymt fyrir Sverri 5 milljónir króna og enn annar fyrir að hafa tekið við 12 milljón- um króna frá Sverri og skipt þessum peningum fyrir Sverri í erlenda mynt. Þá eru nokkrir aðrir einstaklingar ákærðir fl'rír móttöku fíkniefnafjármuna. Fylgistap stjornar Eins og kom fram í skoðana- könnun í DV í gær eru ríkis- stjórnarflokkarnir komnir í minni hluta á Alþingi. Fram- sóknarflokkurinn er kominn nið- ur í 9,7% fylgi, Sjálfstæðisflokk- urinn niður í 37,4%, Samíýlking- in fer upp í 27,0% og VG í 24,1%. Frjálslyndiflokkurinn mælist með 1,4%. Upplýsingavandi Halldór Asgríms- son, formaður Framsóknarflokks- ins segir að þegar könnun er tekin sem gengur út á öryrkjadóm Hæsta- réttar og milli 80 og 90% fram- sóknarmanna eru andvíg með- ferð ríkisstjórnarinnar á málinu, þá hljóti það að hafa mikil áhrif. „Við þurfum að bregðast við með þeim hætti að koma réttum upplýsingum til þjóðarinnar og við erum að því,“ sagði Halldór Asgrímsson. Almennmgur aö vakna Margrét Frímanns- dóttir, varaformað- ur Samfyikingar- innar, segir að það sé án nokkurs vafa viðbrögð ríkis- stjórnarinnar við dómi Hæstaréttar í öryrkjamál- inu sem mestu ræður um útreið stjórnarflokkanna og uppsveiflu stjórnarandstöðunnar. „Að þessu sinni hefur ríkis- stjórnin ekki getað falið raun- verulega stefnu sína eins og henni hefur oft áður tekist. Eg held að almenningur sé að vakna til vitundar um það hverjir það eru sem halda á málum fyrir þá sem minnst mega sín í þessu þjóðfélagi, sem og fjölskyldur í millitekjuhópi. Eg hef hins veg- ar ekki trú á því að framsókn verði svona neðarlega lengi,“ sagði Margrét Frímannsdóttir. Ekki náðist í Ossur Skarphéðins- son formann flokksins í gær. Þetta mun leiðréttast „Eg er sannfærður um að ástæða þessa fylgistaps stjórnarflokkanna sé þetta svo nefnda öryrkjamál. Eg held líka að sú um- ræða eigi eftir að fara frarn scm þarf til að fólk átti sig á því hvað þar er að gerast," segir Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Hann segir að sú staðreynd að ekkert heyrðist frá ríkisstjórninni í marga sólarhringa eftir að Hæstiréttur kvað upp sinn dóm, hafi orðið til þess að upplýsingar sem almenningur fékk hafi verið of einhliða. Aðvörun Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG segist taka skoðanakönnun- um með yarúð og stjórnarflokkarnir hljóti að taka henni sem aðvörun. „An nokkurs vafa er þessi skoðanakönnun undir áhrifum af klúðri ríkisstjórnarinnar og for- kastanlcgri framgöngu hennar í öryrkjamálinu. Það er athyglis- vert að nú eru það báðir stjórnar- flokkarnir sem tapa og loksins virðist óvinsæl framganga ríkis- stjórnarinnar vera farin að hitna á þeim báðum en ekki bara öðr- um þeirra eins og verið hefur,“ segir Steingrímur. - S.DÓR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.