Dagur - 17.01.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Fylgismenn og andstæðingar forsetans söfnðustu saman í tugþúsundatali við þinghúsið þegar rannsóknarnefnd
tók mál hans fyrir. Hér er einn sem hrópar ókvæðisorð að Estrada.
Er forsetinn þjófur
eða fómarlamb?
Estrada lýðræðiskjör-
inn forseti Filipps-
eyja er sakaður imi
margþætta glæpa-
starfsemi sem þó er
erfitt að sanna
Estrada forseti Filippseyja er
fyrsti lýðræðiskjörni þjóðhöfð-
inginn í Asíulandi sem er dreg-
inn fyrir dóm ákærður fyrir
margs kyns glæpi, aðallega fjár-
málasvik og þjófnað frá ríkinu.
Þingnefnd rannsakar nú mál
hans opinberlega og dregur fram
í dagsljósið óhófslifnað forsetans
og gripdeildir. Forsetinn er sak-
aður um að hafa stundað glæp-
samlega iðju sína í æðsta emb-
ætti þjóðarinnar. Peningana sem
hann náði með ólögmætum
hætti notaði hann til að kosta
óhófslíferni sitt og fylgikvenna.
Fillipseyingar eru viðkvæmir
fyrir fjármálamisferli á æðstu
stöðum, minnugir hvernig
Marcos fyrrum forseti og Imelda
eiginkona hans létu greipar sópa
um fjárhirslur þjóðarinnar og
létu eins og þær væru þeirra
einkaeign.
Þingnefndin sem fer með mál-
ið er skipuð að bandaríkskri fyr-
irmynd, enda munu venjulegir
dómstólar ekki hafa vald til að
ákæra og dæma þjóðhöfðingja
landsins. Nefndarmenn eru
ómyrkir í máli í ásökunum sín-
um og kalla forsetann ótíndan
þjóf sem noti glæpaklíkur til að
aðstoða sig við að ná undir sig
opinberum eigum. Lagðar hafa
verkið fram ljósmyndir af dýrind-
is höllum sem hann hefur gefið
þrem ástkvenna sinna, sem allar
voru keyptar fyrir illa fengið fé.
Nefndarmenn halda því fram, að
Estrada, sem áður var vinsæll
kvikmyndaleikari, sé verri bófi
en Ferdinand Marcos, forseti.
Meðal ákæruefna á hendur
Estrada eru mútur, spilling,
stjórnarskrárbrot og að hafa fyr-
irgert trausti fólksins í landinu.
Til að hægt verði að hrekja hann
frá völdum verða 15 af 22 öld-
ungadeildarþingmönnum að
sakfella hann. Forsetinn neitar
öllum ásökunum og heldur því
fram að þær séu runnar undan
rifjum andstæðinga sinna. Rík-
issaksóknarinn hefur látið hafa
eftir sér að ekki liggi fyrir nægi-
legar sannanir fyrir sekt Estrada
til að sakfella hann og dæma frá
embætti.
Margir óttast lfka að verði
Estrada hrakinn úr embætti tak-
ið við einræðisstjórn, enda
munu margir eldri hershöfðingj-
ar vera þess fysandi og til í tusk-
ið.
Allur málatilbúnaðurinn er
álitinn vera prófsteinn á heldur
vanburðuga lýðræðisþróun á Fil-
ippseyjum. Joseph Estrada er
lýðræðislega kjörinn forseti,
Hann kemur hvorki úr hefð-
bundnum röðum stjórnmála-
manna eða hershöfðingja sem
Iöngum hafa deilt með sér völd-
um í heimshlutanum. Sem fyrr
segir var hann vinsæll kvik-
myndaleikari þegar hann var
kosinn forseti og er sú fortíð
þjóðhöfðingja sjálfsagt mörgum
þyrnir í augum.
Þegar réttarhöldin eða rann-
sóknin hófst söfnuðust tugir
þúsunda manna utan við þing-
húsið. Voru þar bæði fylgjendur
og andstæðingar forsetans og
fjölmennt lið lögreglumanna og
hermanna varnaði fólki inn-
göngu og reyndi að halda mann-
fjöldanum í skefjum.
En hvernig sem málin æxlast í
þinginu er næsta víst að óróa-
tímar eru framundan í stjórn-
málum á Filippseyjum, enda lýð-
ræðið valt og hershöfðingjar
ávallt tilbúnir að grípa til sinna
ráða. Að bjarga þjóð sinni með
hervaldi. - OÓ
Friöarviðræðux lialda áfram
JERUSALEM - Friðarviðræður
fulltrúa Israela og Palestínu-
manna gengu vel í gær og náðu
samninganefndirnar að Ijúka
sínum fundum samkvæmt við-
ræðuáætlun. Þær fóru síðan til
fundar við ýmsar baknefndir
sfnar til skrafs og ráðagerða um
framhaldið. Ekki lá fyrir ná-
kvæmlega um hvað var rætt í
þessari þriðju fundahrinu á
fimm dögum, en Ijóst er að
menn hyggjast halda viðræðum
áfram þrátt fyrir að átök hafi
orðið milli skjólstæðinga aðila
á herteknu svæðunum og þrátt
fyrir að gagnrýni harðh'numanna úr báðum herbúðum þyngist sífellt.
Veruleg spenna er t.d. á Gazasvæðinu, spenna sem ekki minnkaði við
það að einn ísraelskur landnemi var drepinn þar á mánudag.
Fleiri kúariðutilfelli
LONDON - Enn berast nýjar fréttir af útbreiðslu kúariðu í Evrópu,
þrátt fyrir að jTirvöld Evrópuríkja geri nú allt sem þau geta til að
draga úr útbreiðslu hennar og minnka taugaveiklunina sem gripið
hefur um sig meðal neytenda vegna hennar. Kjötútflutningur frá Evr-
ópu riðar nú til falls.
A Spáni var í gær tílkynnt um þrjú ný tilfelli um kúariðu en á
Spáni greip um sig mikill ótti meðal neytenda í nóvember síðastliðn-
um þegar nokkur tilfelli af veikinni uppgötvuðust. Er nú svo komið
að stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar spænska landbúnaðarráð-
herrans fyrir að hafa sofið á verðinum. Ráðherra, Miguel Arias
Canete, segist hins vegar ekki ætla að segja af sér og bað fólk um að
halda ró sinni vegna kúariðunnar og benti á að ekkert tilfelli af hinu
banvæna afbrigði veikinnar, Kreutzfeldt Jacobs, hafi enn komið upp
á Spáni.
Ehud Barak flytur hér ræðu yfir stúd-
entum í ísrael en Barak á mikið undir
því að friðarsamningarnir takist.
Eiui eftirskjálftar
SAN SALVADOR -
Björgunarsveitir reyndu í
gær að koma mat, drykk,
meðulum og teppum til
tuga þúsunda íbúa E1
Salvador sem urðu illa
úti í jarðskjálfta upp á
7,6 stig á Richter, sem
varð í landinu á laugar-
dag. Höfuðborgin San
Salvador er í rúst, meira
en 600 manns eru látnir
og yfir 500 er enn saknað
og er óttast að þeir kunni
að vera látnir. Víðtækt _______________________
alþjóðlegt hjálparstarf er
nú komið í gang vegna
skjálftanna en enn eru eftirskjálftar að trufla hjálparstarfið enda eru
sumir þeirra nokkuð stórir - allt upp í 5 stig á Richterkvarða. Slíkir
skjálftar geta valdið aurskriðum í fjallshlíðum og þeir ná því að rugga
þeim byggingum sem þó stóðu af sér stóra skjálftann og valda veru-
legri hættu fyrir björgunarmenn. Mikil taugaspenna er á svæðinu
sem magnast um allan helming þegar eftirskjálftarnir ríða yfir.
Ung kona í San Salvador fylgist með útför í
kirkjugarði.
FRÁ DEGI TIL DAGS
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR.
17. dagur ársins, 348 dagar eftir.
Sólris kl. 10.49, sólarlag kl. 16.27.
Þau fæddust 17. jan.
• 1706 Benjamin Franklin, bandarískur
prentari, rithöfundur og uppfinninga-
maður.
• 1820 Anne Bronte, enskur rithöfundur,
systir Charlotte og Emily.
• 1880 Mack Sennett, bandarískur kvik-
myndaleikstjóri, gerði fjöldan allan af
ærslafullum þöglum myndum.
• 1899 AI Capone, frægasti glæpon
Bandaríkjanna.
• 1926 Moira Shearer, skosk ballettdans-
mær.
• 1942 Muhammad Ali, bandarfskur box-
ari.
• 1962 Jim Carrey, bandarískur leikari
Þetta geröist 17. jau.
• 1806 gerðist það í íýrsta sinn að barn
fæddist í Hvíta húsinu í Washington,
aðsetri forseta Bandaríkjanna.
• 1850 hrópuðu skólasveinar Lærða skól-
ans „pereat" að Sveinbirni Egilssyni
rcktor, en það er latína og mun þýða
„niður með hann".
• 1914 var Eimskipafélag Islands hf.
stofnað.
• 1966 rákust tvær bandarískar herþotur
á í lofti fyrir olán Spán með þeim afleið-
ingum að vetnissprengja úr annarri
þeirra hrapaði til jarðar. Hún fannst ekki
fyrr en tveimur mánuðum síðar þar sem
hún lá í vatni.
•1991 hófst Heklugos, hið fjórða á öld-
inni sem leið.
• 1991 skutu Irakar sjö flugskeytum á
Israel og einu á Saudi-Arabíu á öðrum
degi Persaflóastríðsíns.
Afmælisbam dagsins
Bandaríski Ieikarinn James Earl Jones
er sjötugur f dag. Flann hefur komið
fram í á annað hundruð kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum, en fyrsta kvik-
myndin sem hann lék í var Dr. Strang-
elove eftir Stanley Kubrick. I æsku
stamaði James Earl svo mikið að hann
neitaði að tala í átta ár samfleytt. Það
var kennari f framhaldsskóla sem áttaði
sig á því að hann gæti ort ljóð. Þessi
kennari losaði hann að mestu við
starnið mcð því að kreljast þess að hann
læsi eitt Ijóð fvrir bekkinn á hverjum
degi.
Sá mælir minnst sem mest veit.
Spænskur málsháttur.
Vísa dagsins
Grafarbakkann cr ég á
öðrum fæti stiginn,
en sjái ég þcr bros á brá,
bregður roða á skýin.
Páll Ólafsson
Heilabrot
Hvað er það sem ferðast um fótalaust,
rennblautt að neðan og gleypir í sig fæðuna
með afturendanum?
Lausn á síðustu gátu: Gríski auðmaður-
inn varð 65 ára árið 1986 fyrir Krist (þótt
hann hafí sjálfur vitaskuld ekki notað það
tímatal), cn þá voru egipsku píramídarnir
margir þegar orðnir ævagamlir.
Vefur dagsins
A vef Sinfóníunljómsveitar Islands er að
finna margvíslegan fróðleik um tónleika
hennar, tónverkin og listamennina:
www.sinfonia.is