Dagur - 17.01.2001, Blaðsíða 17

Dagur - 17.01.2001, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 - 17 WNPlHM Er Jíf á Mars? Það er langur vegur frá hlýja, litla fjörupollinum hans Darwins til þessa raunverulega upphafs lífs á jörðinni. Fyrir fjórum árum, eða 7. ágúst 1996 bár- ust mönnum tíðindi um það að hugsanlega hefðu fundist ummerki um líf á loftsteini frá Mars. Þetta var niðurstaða tveggja ára rannsókna hæf- ustu manna afnota öll bestu rannsóknartæki sem þá voru til á jörðinni. Þetta var steinn á stærð við kartöflu sem fannst á Suðurheimskautslandinu meira en tíu árum áður en þessi skýrsla var birt. í niðurlagi skýrslunnar segir: Þó að til séu aðrar skýringar höfum við kom- ist að þeirri niðurstöðu að hér sé að finna vísbendingar um frumstœtt líf frá árdögum Mars. Undir þetta skrifuðu níu vísindamenn og lokaniðurstað- an var að þeir töldu sig senni- lega hafa fundið steingervinga af bakteríu. Þetta voru mikil tíðindi en umdeilanleg. Vís- indaheimurinn var yfirleitt þeirrar skoðunar að þetta væri sennilegt en ekki sannað. Geim- skipin tvö sem nefnd voru Vík- ingur og lentu á Mars 1976 fundu þar ekki líf en upplýsing- ar frá þessum leiðangri stað- festu hins vegar að loftsteinn- inn okkar væri raunverulega frá Mars. Það má gera því skóna að í meira en fjögur þús- und ármilljónir hafi loftsteinar frá Mars alltaf öðru hvoru fallið á jörðina og að sjálfsögðu meiri hluti þeirra fallið í höfin, fallið þar til botns og grafist þegar tímar liðu í jarðlögum undir hafsbotninum. Það eru til kenn- ingar um það að einmitt á þennan hátt hafi lífið á jörð- inni byrjað, undir sjávarbotn- inum, jafnvel fyrir um fjögur þúsund ármilljónum. Líf getur byrjað með mörgu móti, þetta er aðeins ein af mörgum leið- um þegar fjallað er um upp- runa lífsins á jörðinni. Flestir loftsteinar sem falla á yfirborð jarðarinnar grafast í jörðinni en loftsteinninn okkar féll á Suðurheimskautslandið og þar er öðru máli að gegna. Slíkir steinar grafast í ísinn og geymast þar. Þegar ísinn skríður fram í átt að sjó springur hann og brotnar nið- ur og loftsteinninn getur aftur komist upp á yfirborðið. Á þessu svæði hafa margir loft- steinar fundist, sá fyrsti 1569. Nú fara vísindamenn á Suður- heimskautslandið á hverju sumri í leit að loftsteinum. Reimandi vatn á Mars Víkingsmyndirnar virðast sýna að rennandi vatn hafi verið á Mars, líklega á tímabilinu frá því að Mars er fimm hundruð ármilljóna gamall og þar til hann er orðinn þúsund ár- milljóna gamall. Á þessu tíma- bili gæti frumstætt líf hæglega hafa myndast á Mars og að sjálfsögðu einnig borist þaðan til jarðarinnar. Þetta er hvorki hægt að sanna né afsanna enn sem komið er með neinni vissu. Það sem menn töldu sig finna í rafeindasmásjánni voru að þeirra dómi frumstæð lífs- form sem þeir kölluðu ovoids og líktust bakteríum. Þær voru engan veginn auðgreindar því að þær eru um það bil tíu sinnum minni en minnstu þekktu bakteríur á jörðinni. Það er ekki hægt að útiloka að þetta mynstur sé eitthvað ann- að, að það sé efnismynstur og sanni ekki neitt um líf á Mars. Á jörðinni hafa menn fundið vísbendingar um að bakteríur hafi hér verið þróaðar fyrir þrjú þúsund og fimm hundruð ármilljónum. Það þurfti nýja rannsókn til að komast að raun um hvað menn raunveru- lega hefðu fundið í loftsteinin- um frá Mars. Hún var fram- kvæmd af hæfustu mönnum með bestu tæki. Líkurnar juk- ust fyrir því að hér væri um leifar af lífveru að ræða. Samt sem áður voru þetta aðeins líkindasannanir sem aldrei eru fyllilega marktækar fyrir vönd- uðum dómi. Hið endanlega svar við spurningunni um hvort líf hafi verið á Mars bíð- ur því þriðja árþúsundsins og við þurfum sennilega ekki að bíða mjög lengi. Það eru auð- vitað mikil tíðindi þegar það sannast en það þarf raunar engum að koma mjög á óvart. Hitt finnst mér stórfurðulegt ef það yrði niðurstaðan að líf hefði aldrei orðið til á Mars. En menn verða ævinlega að hafa það sem sannara reynist. Lífíð kom seint til yfirhorðs jarðarinnar Stjörnuryk með öllum þeim þungu frumefnum sem líf byggðist á féll í hin ungu höf jarðarinnar fyrir tæpum fjögur þúsund ármilljónum og mynd- aði lag á sjávarbotninum sem undir miklum þrýstingi breyttist smám saman í berg. I þessum lögum mynduðust lífverur, bakteríur sem voru óháðar sól- arljósinu. Þær hafa nú fundist í bergi sem er þrjú þúsund og fimm hundruð ármilljóna gam- alt og gerð þeirra sýnir að þær eiga töluvert langan þróunar- feril að baki. Þær ganga undir nafninu stromatrolitar. Á fyrstu skeiðum jarðarinnar var hún glóandi heit á yfirborð- inu. Ilún var skotmark hala- stjarna og stórra loftsteina sem juku eldvirkni jarðarinnar. Höf- in voru ekki lífvænleg, en líf gat myndast bæði í lofthjúpnum og á eða undir hafsbotninum á þessuni elstu tímum, nokkrum hundruðum ármilljóna frá upp- hafi jarðarinnar. Það er langur vegur frá hlýja, litla íjörupollin- um hans Darwins til þessa raunverulega upphafs lífs á jörðinni. Lífið gat heldur ekki byrjað á yfirborði jarðarinnar á þessum tíma, fyrir um íjórum ármilljónum, það var of heitt og höfin voru sjóðheit við allar strendur. Lífið kom tiltölulega seint til yfirborðs jarðarinnar en h'frænar sameindir voru þá fyrir löngu komnar bæði í gufu- hvolfinu og í heit gljúfur úthaf- anna. Þjóðverjinn Gúnter Wáchtersháuser nefnir þessar lífrænu sameindir thio ester. Rannsóknir hans sýna að lífið gæti hafa byrjað í lögum hafs- botnsins þar sem það var vel varið fyrir umróti náttúruafl- anna sem fóru hamförum um öll höf og lönd. Við heitar uppsprettur á hafsbotni finna menn mjög gamlar lífverur sem ekki eru háðar sólarljósinu. Þær eru „gemósýnthetiskar“ en ekki „phótósynthetiskar". Þær breyta ekki ljósinu í orku held- ur efninu í orku. Þessar lífverur þola mjög mikinn hita og lifa einnig langt undir sjávarbotnin- um. Þetta eru mjög frumstæðir einfrumungar. Lífið byrjar víða þar sem skilyrði eru. Það er hugsanlegt að því hafi verið út- rýmt aftur á vissum stöðum, það heldur áfram á öðrum. Því liggur ekkert á, það gefur sér nægan tíma. Þegar hinum miklu náttúruhamförum upp- hafsins loks linnir leggur það undir sig himin, haf og jörð. HORN HEIM- SPEKINGSIIMS sem höfðu til Aður hefur í þessum þætti verið vakið máls á þeirri röngu stefnu sem um langt skeið hefur verið rekin í íþróttakennslu hér á landi. Þegar afreksmenn íþrótta komast inn í grunnskólana og liefja þar kennslustörf, sem stundum virðist helga þann emasta tilgang að búa til ólympíufara úr öllum. Niður- læging af hálfu iþróttakennara er jafnvel raunin ef kennslan hæfir ekki atgervi eða áhuga nemend- anna. Hið sarna má segja um tón- listarkennsluna, sem í meginat- riðum helgast af því að koma ölf- um í sinfóníuhljómsveit eða stall. MENNINGAR VAKTIN Sigurðun Bogi Sævansson skrifar á viðhka Hreyfingarleysi og Þórsmerkurljóð Öllum ætti að skiljast að þau markmið í starfi grunnskóla sem hér eru að framan reifuð eru útilokuð i' framkvæmd. Eðli- legra er að til dæmis íþrótta- kennsla sé með þeim hætti að hún hvetji sem flesta - strax í æsku - til almennrar hreyfingar. Á því er full þörf, þegar hreyfing- arleysi er eitt af stærstu heil- brigðisvandamálum þjóðarinnar. í tónlistarkennslu á stefnan vita- skuld að vera sú að sem flestir geti orðið sjálfbjarga í tónlist; jafnvel lært vinnukonugrip á gítar þannig að skammlaust sé í partý- um eða útilegum að spila Undir bláhimni, Einu sinni á ágúst- kvöldi, Þórsmerkurljóð og slíka rútubflaslagara. En auðvitað er farin þveröfug leið. í grunnskólum er enginn greinarmunur gerður á því að sitthvað eru íþróttir eða eðlileg hreyfing - það síðarnefnda á að vera hluti af daglegu lífi allra. íþróttir eru allt annar handleggur; spurning um Alþýðusöngvar eru vissulega menningar- verðmæti, sem efla má, sé tóniistar- kennsla í skólum í einhverjum takti við tónlistarsmekk þjóðarinnar, segir m.a. hér í greininni. að geta sigrað kappleiki, komið fyrstur í mark eða lyft þyngri lóðum en allir hinir. Og í tónlistarkennslu á efling menningar- harðlífis ekki að vera allt umlykjandi. Að leiðarljósi á að vera að við getum notið tónlistar okkur til skemmtunar, sungið hátt og snjallt í góðra vina hópi. Aljjýðusöngvar Þeir sem telja sig geta náð árangri öðr- unt betur í íþróttum eiga að stunda þær og æfa innan vébanda íþróttafélaga og með sama hætti eiga lagvísir að fara í tónlistarskóla, þar sem er eðlilegt að gera sem flesta að snillingum. En um grunnskólastarf, skyldunámið, eiga önn- ur lögmál að gilda. Það á að miðast við ijöldann; meðalmennskuna. Sá sem þetta skrifar er reynir að kappkosta að synda nokkur hundruð metra í viku hverri. Eitthvað í þá veruna á að vera sjálfsagður hluti af allra h'fi - og hvatning til slíks á að vera hlutverk skól- anna. Og enn er mér í minni að hafa á vinafundi austur á Héraði í fyrrahaust sungið heilt kvöld með góðu fólki alþekka alþýðusöngva. Sem vissulega eru menn- ingarverðmæti, sem efla má sé tónlistar- kennsla í skólum í einhverjum takti við tónlistarsmekk þj óðarinnar. sigurdur@dagur. is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.