Dagur - 17.01.2001, Síða 14
14- MIDVIKUDAGU R 17. JANÚAR 2001
.Thyur
SMÁAUGLÝSINGAR
Bolstrun__________________________
Klæðningar, viðgerðir, nýsmíði.
Klæði og geri við bólstruð húsgögn.
Áklæði i miklu úrvali. Fagmaður vinnur
verkið.
Greiðsluskilmálar.
Bólstrun Björns Sveinssonar.
Hafnarstræti 88, Akureyri
Sími 462-5322
Klæðningar - viðgerðir.
Svampdýnur og púðar í öllum stærðum.
Svampur og bólstrun
Austursíðu 2, sími 462 5137.
Bólstrun og viðgerðir.
Áklæði og leðurlíki í miklu úrvali.
Vönduð vinna.
Visa raðgreiðslur.
K.B. bólstrun, Strandgötu 29,
sími 462 1768.
Sendiferðabíll__________________
Tek að mér búslóðaflutninga og ýmsa
léttaflutninga. hvert á land sem er.
Geri út frá Akranesi.
Upplýsingar i GSM 866 7734 eða
heimasíma 431 3646 eftir kl. 19.00
Til leigu __________________________
Vantar þig ibúð til leigu á stór Reykja-
víkursvæðinu, í viku eða yfir helgi.
Hef eina fullbúna húsgögnum og helstu
þægindum á mjög góðum stað, stutt í allt.
Upplýsingar í síma 464 1138 eða 898 8305
Spákonur____________________
Spái í Tarotspil og ræð drauma.
Fastur símatími 20-24 á kvöldin.
Er við flesta daga f. eða e. hádegi.
Sími 908-6414 - Yrsa Björg
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og
samúö viö andlát og útför
BJÖRNS FR. BJÖRNSSONAR
Hávallagötu 31
Reykjavík
og viröingu sýnda minningu hans.
Ragnheiöur Jónsdóttir
Birna Björnsdóttir Rafn Þorsteinsson
Grétar Björnsson Helga Friöbjarnardóttir
Guörún Björnsdóttir
Gunnar Björnsson Aöalheiður Þorsteinsdóttir
Björn Friðgeir Björnsson
barnabörn og langafabörn
Öllum þeim sem sýndu okkur hlýju og
vináttu viö andlát og jaröarför
AÐALHEIÐAR HELGADÓTTUR
frá Laugaseli,
sendum við hugheilar þakkir, og sérstakar þakkir til starfs-
fólksins á hjúkrunarheimilinu Seli.
Guö blessi ykkur öll.
Ásmundur Kjartansson
Stefán Kjartansson
og fjölskyldur
er 800 7080
mm mmmmm ilymmr
{ORÐ DAGSINS 4I 521840
STJÖRNUSPfl
Vatnsberinn
Fram allir verka-
menn og fjöldinn
snauði, því fáninn
rauði vort merki er.
Byltingin étur
bömin sín.
Fiskarnir
Þú hittir flugdólg á
förnum vegi.
Kveiktu strax á
lendingarljósurium
og hringdu svo í
loftferðaeftirlitið.
Hrúturinn
Láttu ekki baktals-
menn koma þér
að óvörum með
frammíköllum. Oft
er altalað það sem
enginn þykist
heyra.
Nautið
Tónlist verður mik-
ið á dagskránni á
næstunni og hefur
sérkennileg áhrif á
líf þitt. Farðu í
mollið.
Tvíburarnir
Súpan er aldrei
ókeypis nema nið-
urgreidd sé. En
enginn er sjálfkrafa
bónbjargamaður
þó grautinn þiggi.
Krabbinn
Þó stuttur fari um
á stultum verður
hann ekki meiri
maður af. Enginn
leynir sinni raun-
verulegu stærð-
argráðu til lengdar.
Ljónið
Kafbátahernaður-
inn er hafinn og
beinist gegn þér.
Þú þarft að leggja
rækt við beinið í
nefinu á þér til að
standast áhlaupið.
Meyjan
Þú færð hrós fyrir
flest sem þú tekur
þér fyrir hendur á
næstunni og það
sem meira er - þú
átt það skilið.
Vogin
Farðu í grenndar-
kynningu á sjálf-
um þér eftir megr-
unarkúrinn, svo
grannarnir þekki
þig fyrir sama
mann.
Sporðdrekinn
Upp með húmor-
inn. Þorrablótið er
að skella á og þá
þýðir hvorki að
vera þurr á mann-
inn né þurrbrjósta.
Bogamaðurinn
Láttu gott af þér
leiða. Leiðindin
skemmta aðeins
skrattanum og
gleðin er sjálfbær.
N /j Steingeitin
Gefðu breskum
vv vini þinum hákarl.
Tf Segðu að þetta sé
High Charles.
■ HVAD ER Á SEYDI?
SAMHLIÐA SÝNIR í STRAUMI
Ný-Sjálendingarnir
Wayne Barrar (Ijós-
myndari, f. 1957)
og Kerry Hines
(ljóðskáld) bjóða
Hafnfirðingum og
öðrum áhuga-
mönnum um ljós-
myndun, kveðskap
og landafræði á fyr-
irlestur í Listamið-
stöðínni Straumi
við Reykjanesbraut í kvöld kl. 20. Fyrirlesturinn nefna þau Samhliða
sýnir (Parallel Views) og leggja áherslu á samanburð eyjanna tveggja.
Wayne hefur haldið ljölda einka- og samsýninga frá árinu 1984 og á
verk á mörgum söfnum, aðallega í heimalandi sínu, ásamt því að hafa
birt margar rnyndir í tímaritum. Hann leggur áherslu á náttúru og
gróðurfar og mun sýna myndir bæði héðan og að heiman. Eiga lönd-
in eitthvað sameiginlegt?
Mun skemmra er síðan Keny' byrjaði að fást við kvcðskap. Margt má
segja um Ijóðin en e.t.v. liggur beinast við að segja hana fást við
ferðalög í ýmsum myndum. Hún starfar annars í heilbrigðisgeiran-
um.
Fyrirlesturinn hefst kl. átta í stóra sal Straums. Kaffiveitingar verða
í boði hússins og ókeypis inn.
Fjársjóður nútímans
Nú stendur yfir í Baksalnum í
Gallerí Fold við Rauðarárstíg
sýningin lslensk myndlist um
aldamót: Fjársjóður nútímans.
Sýningin var fyrst sett upp í
húsakynnum Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í Washington. Eftir-
taldir listamálarar eiga verk á
sýningunni: Bragi Asgeirsson,
Daði Guðbjörnsson, Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Guðrún Krist-
jánsdóttir, Karólína Lárusdóttir,
Pétur Gautur Svavarsson, Soff-
ía Sæmundsdóttir, Tryggvi
Olafsson og Þorgerður Sigurð-
ardóttir. Verk eftir þrjá skúlpt-
úrista og einn textillistamann,
sem þátt tóku í sýningunni í
Washington, eru til sýnis í frem-
ri rýmum gallerísins, þeir eru:
Guðrún Halldórsdóttir, Ingi-
björg Styrgerður Haraldsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir og Magn-
ús Þorgrímsson.
Island undir jökli
í Norræna húsinu
Afmælisfundur um íssjármæl-
ingar verður haldinn í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.00. Helgi
Björnsson flytur erindi um Is-
land undir jökli - íssjármælingar
í aldarfjórðung.
Hana-nú Kópavogi
Fundur í Bókmenntaklúbbi
Hana-nú á Lesstofu Bókasafns
Kópavogs kl. 20.00 í kvöld mið-
vikudagskvöld 17. janúar.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Göngu-Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi í dag kl.
10.00. Söngfélag FEB kóræfing
kl. 17.00. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19.15. Baldvin
Tryggvason verður til viðtals urn
fjármál og leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB á morg-
unn fimmtudaginn 18. janúar
kl. 11-12. Panta þarf tíma.
Námskeið í framsögn hefst
mánudaginn 29. janúar leið-
beinandi Bjarni Ingvarsson
skráning hafin á skrifstofu FEB.
Breyting hefur orðið á viðtals-
tíma Silfurlínunnar opið verður
á mánudögum og miðvikudög-
um frá kl. 10.00 til 12.00 fh. í
sírna 588-2111. Upplýsingar á
skrifstofu FEB í síma 588-2111
frá kl. 10.00 til 16.00.
Námskeið og heilun á Dalvík
Orkumiðlarnir og heilararnir
Lilja Petra Asgeirsdóttir, Er-
lendur M. Magnússon og Björk
Ingadóttir munu starfa hjá
Bjarmanum á Dalvík helgina
19. - 21. janúar næstkomandi.
Þar munu þau halda námskeið
og bjóða upp á einkatíma í
sálnalestri og heilun. A nám-
skeiðinu verður farið í hug-
leiðslur til að tengjast betur
sjálfsvitundinni, hreinsun á
orku líkömunum gegnum hug-
leiðslur og æfingar. Upplýsingar
í síma 566-7748 eða 466-1400
eftirkl. 19.00.
■gengið
Gengisskráning Seölabanka íslands 16. janúar 2001
Dollari 84,76 85,22 84,99
Sterlp. 124,66 125,32 124,99
Kan.doll. 56,34 56,7 56,52
Dönsk kr. 10,677 10,737 10,707
Norsk kr. 9,709 9,765 9,737
Sænsk kr. 8,956 9,01 8,983
Finn.mark 13,4066 13,49 13,4483
Fr. franki 12,152 12,2276 12,1898
Belg.frank. 1,976 1,9884 1,9822
Sv.franki 51,87 52,15 52,01
Holl.gyll. 36,1717 36,3969 36,2843
Þý. mark 40,756 41,0098 40,8829
Ít.líra 0,04117 0,04143 0,0413
Aust.sch. 5,7929 5,8289 5,8109
Port.esc. 0,3976 0,4 0,3988
Sp.peseti 0,4791 0,4821 0,4806
Jap.jen 0,718 0,7226 0,7203
írskt pund 101,2132 101,8434 101,5283
GRD 0,2339 0,2355 0,2347
XDR 110,19 110,87 110,53
EUR 79,71 80,21 79,96
Hkrossgátan
Lárétt: 1 málmur 5 galla 7 vökvi 9 ólm 10
kjaftæði 12 fátæka 14 fölsk 16 eðja 17
eldstæði 18 bleytu 19 venju
Lóðrétt: 1 sæti 2 heimshluti 3 ólærða 4
hlóðir 6 stundar 8 setningarhluti 11 sveig-
ur 13 gripi 15 geislabaugur
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kvöl 5 tóbak 7 ásum 9 lá 10 sal-
ur 12 raki 14 ós 16ker 17 fálki 18 vél 19
ami
Lóðrétt: 1 krás 2 ötul 3 lómur 4 mal 6
káfir 8 sauðfé 11 rakka 13 keim 15 sál
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR