Dagur


Dagur - 17.01.2001, Qupperneq 16

Dagur - 17.01.2001, Qupperneq 16
16- MIBVIKVDAGVR 17. JANÚAR 2001 mml LANPiWM „Fyiir þetta liflr maður“ Vladimir Ashkenazy á æfingu með Sinfóníuhljómsveit íslands i gær. mynd: þök Vladi mirAshkemzy er kominn afturhmgad til lands að stjóma Sinfón- íuhljómsveit íslands. Hljómsveitarstjórinn og píanó- leikarinn Vladimir Ashkenazy er enn íslenskur ríkisborgari, þótt hann búi í Sviss og hafi það að aðalstarfi að vera tónfistarstjóri Tékknesku íilharmómusveitar- innar. Hann var einn helsti hvata- maður að stofnun Listahátíðar í Reykjavík á sínum tíma og hefur komið þar fram oftar en nokkur annar listamaður, ýmist sem pí- anóleikari eða sem hljómsveitar- stjóri, síðast fyrir fimm eða sex árum. betta er þó í fyrsta skipti í meira en tuttugu ár sem hann stjórnar sinni gömlu hljómsveit, Sinfóníuhljómsveit íslands. Ashkenazy hefur einbeitt sér meira að hljómsveitarstjórn und- anfarinn áratug, en kemur engu að síður reglulega fram sem ein- leikari á píanó. Hann er spurður hvort hann ætli að hafa þann háttinn á áfram. „Já, ég ætla að halda því áfram eins lengi og mögulegt er,“ segir hann. - Ertu að ferðast megnið af árinu? „Já, það má segja það. Ég held þó jólunum fyrir mig og sumrinu. - Hvenœr komstu síðast til íslands? „Síðast var ég hérna í nokkra daga sumarið 1999, en ég reyni að koma hingað eins oft og ég get. En sjaldnar á vet- urna. Pað;er langt síðan ég hef komið hingað að vetri til, vegna kuldans og myrkursins. Ég vil frekar koma á sumrin, nema ég sé með tónleika." - Hvers konar tilfinning er það að koma núna að stjórna þessari hljómsveit? „Það er mjög góð tilfinning. Ég er fagmaður og kem hingað til þess að halda góða tónleika. Ég fæ mjög góð viðbrögð frá hljómsveitinni, þau eru mjög vingjarnleg, fagmannleg og með athyglina vakandi. Þetta eru góðir tónlistarmenn. Fyrir þetta lifir maður. Ég ferðast stöðugt og er að stjórna öllum bestu hljómsveitum heims. Það veitir manni mikla ánægju.“ - Pú segir að Sinfóníuhljóm- sveitin hafi breyst. Er hœgt að segja að þetta sé í raun sama hljómsveitin lengur? „Nei, mér flnnst hún vera gerólík núna. En 23 ár eru langur tími. Ef ég hefði hlustað á þá hljómsveit í gær og þessa í dag, þá er hún tvímælalaust miklu betri núna.“ - Þú vissir það áður en þú komst? „Já, ég vissi það vegna þess að ég hafði heyrt hljóðritanir á diskum, sem eru mjög góðar. Það er mjög fagmannlega gert. Ég hafði líka heyrt það frá fólki sem kom hingað og hafði heyrt í hljómsveitinni. Hún er miklu betri." Þegar Ashkenazy hætti sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveit- arinnar fyrir meira en tveimur áratugum voru mikil sárindi á báða bóga út af deilumálum sem flestir hafa sennilega gleymt hver voru. Ashkenazy er spurður hvort eitthvað sé óupp- gert af þessum málum frá enn- þá? „Nei, í rauninni ekki. Ég held að sumir hafa haft þörf fyrir að vera mjög árásargjarnir. Það er allt og sumt. En maður gleymir slíku. Það er betra að muna frekar eftir því sem gott var.“ - Eru einhver andlit ennþá í hljómsveitinni sem þú þekkir frá því áður fyrr? „Já, Kristján sem leikur á fyrsta óbó, nokkrar konur í ííðl- unum og Ruth eiginkona Björns menntamálaráðherra. Ég þekki hana mjög vel. Guðný leikur ekki með núna, hún veiktist eitthvað held ég. Þannig að þetta eru fjór- ir eða finnn í allt. Hitt er allt mjög ungt fólk, og mjög góðir hljóðfæraleikarar. Fyrsti selló- leikarinn er frábær, og Sigrún konsertmeistari er mjög góð, mjög fagmannleg. Þau eru öll mjög góð, maður sér hvernig þau leika með vakandi athygli og með tilfinningu fyrir því sem þau eru að gera. Já, og Daði, sem hét Duncan áður. Eg man eftir honum, hann lék þá á ann- að óbó en er núna kominn á fyrsta óbó.“ Tvö öndvegisverk eru á efn- isskrá tónleikanna næstkom- andi fimmtudag, Sinfónía nr. 9 eftir Dímitrí Sjostakovitsj og Ljóð af jörðu eftir Gustav Ma- hler. „Þetta er frábær tónlist," segir Ashkenazy. „Stórkostleg. Verkið eftir Mahler er sérstak- lega yndisleg tónlist, ódauðleg. Alveg hreint ótrúleg. Og Shosta- kovitsj er ákafiega skemmtileg- ur. Þetta er sínfónía sem fjallar um smámuni og mikinn harm- leik, en gerir það samt á mjög samþjappaðan hátt, mjög hratt. Kommúnistaflokkurinn bað Sjostakovitsj um að semja sig- ursinfóníu að seinni heimstyrj- öldinni lokinni. Og hann kom með þetta verk, sem hljómar ekki eins og sigurtónlist. En hann gat ekki samið slíka tón- list því honum leið ekki þannig. Og þeir þoldu hann ekki fyrir vikið. Hann var beðinn um að semja dýrðaróð til Sovétríkj- anna, en hann gat það ekki.“ -GB „Ég fagna þessum fréttum þvi mér finnst kominn timi tii að þörf sjálfstæðu ieikhúsanna sé svarað vegna þess að framlag þeirra tii menningar í Reykjavík er orðið svo stórt, segir Þórarinn Eyfjörð, formaður bandalags sjálfstæðra ieikhúsa. Borgarráð samþykkti í gærað hækka framlög til starfsemi sjálf- stæðra leikhópa í borg- inni verulega á næstu árum. Á þessu ári verða þau sex milljónir króna en sú tala tvö- faldast á næsta ári og árið 2003 ergert ráð fyrir 15 milljónum króna tilþessarar menningarstarfsemi. í greinargerð með tillögunni segir að mikil gróska hafi verið í starfi sjálfstæðu leikhúsanna undanfarin ár og að þau gegni mikilvægu hlutverki í grasrótar- starfi. Framlag þeirra til lista og menningar sé mikilvægt fyrir allan þroska og framþróun leik- listarinnar, ekki síður en þorska þeirra listamanna sem þar starfi á hverjum tíma. „Þetta eru ánægjulegar frétt- ir,“ sagði Þórarinn Eyfjörð for- maður Bandalags sjálfstæðra leikhúsa er blaðamaður l'ræddi hann um þessa nýju samþykkt borgarráðs. Hann sagði banda- lagið hal'a unnið að því í mörg ár að reyna að laga starfsum- hverfi sjálfstæðu leikhúsanna og að þarna væri eflaust verið að bregðast við þeirri þróun sem þegar hefði átt sér stað. „Ég get ekki mikið sagt um akkúrat þessa tillögu því ég hef ekki séð hana og ekki fengið tækifæri til að kynna mér efni hennar. En ég fagna henni því mér finnst kominn tími til þess að þörf sjálfstæðu leikhúsanna sé svarað vegna þess að fram- lag þeirra til menningar í Reykjavík er orðið svo stórt." All Ieikhús atvinniunaiuia Að sögn Þórarins eru 27 mis- stór félög og sviðshópar innan bandalagsins. Þau eru öfl hér í Reykjavík að undanskildu Her- móði og Hávör sem hefur lög- heimili í Hafnarfirði. „Þetta eru allt leikhús atvinnulistamanna og það er ótölulegur fjiildi af fólki sem vinnur að leiklist á þessu svæði. Þarna eru stór leikhús eins og Hafnarfjarðar- leikhúsið, Leikfélag Islands, Möguleikhúsið, Kaffileikhúsið og fleiri og fleiri, „ segir Þórar- inn og bætir við að á síðasta ári hafi frumsýningar sjálfstæðu leikhúsanna verið 36 talsins, þar af 25 íslensk verk. „Það eru fáir, ef nokkrir, sem sinna ís- lenskri leikritun jafnvel og þeir sem vinna í sjálfstæðu leikhús- unum, segir hann. Hann kveðst líka vilja vekja athygli á því að þessi leikhús skili heilmiklum peningum til borgarinnar. Það segi sig sjálft að þegar haldið sé úti leikhúsi atvinnumanna þá þurli það margs við. „Leikhúsin kaupa þjónustu af fjölmiðlum, iðnað- armönnum, þeim sem reka fasteignir og fjölmörgum öðr- um, þannig að leiklistin hefur atvinnuskapandi áhrif.“ Fagnar viðbótmnl Þórarinn segir borgina hafa ár- lega veitt sjálfstæðu leikhópun- um samtals um fimm milljóna króna styrki til einstakra verk- efna og ástæða sé til að fagna þeirri viðbót sem þessi nýi samningur feli í sér. þótt aukn- ingin komi ekki að ráði fyrr en á næsta ári. En býst hann við að stóru leikhúsin taki til sín mest af styrkjunum? „Ég get vel ímyndað mér að þetta sé meðal annars hugsað fyrir þá leikhópa sem eru með fasteignir í rekstri í borginni. Það kæmi mér ekki á óvart þótt ég vilji ekkert full- yrða um það.“ gun.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.