Dagur - 27.01.2001, Page 4
4 - LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
JtJagur
Sniglaveislan
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
Leikfélag
Húsavíkur
Fröken
Nitouche
í leikstjórn Sigurðar
Hallmarssonar
Föstudag
26. janúar kl. 20.30
Laugardag
27. janúar kl. 17.00.
Miðasala í síma
464 1129
símsvari allan
sólarhringinn
IninÍnlIiilijFllíiÍ.tHrii
iu
ytfcKíiioi.rBBi
LEIKFELA6 AKUREYRAR
eftir:
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Sigurður Sigurjónsson.
Leikmynd og búningar: Elín
Edda Árnadóttir
Tónlist:
Hilmar Örn Hilmarsson
Lýsing:
Halldór Örn óskarsson
Aðstoðarleikstjórn:
Randver Þorláksson
Leikendur:
Gunnar Eyólfsson,
Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg og
Hrefna Hallgrímsdóttir.
Samstarfssýning við
Leikfélag íslands.
Frumsýning:
föstud. 02.02.kl.20.00
örfá sæti laus
2. sýning: laugard.
03.02.kl.20.
örfá sæti laus
3. sýning: sunnud.
04.02.kl. 16.00
Takmarkaður
sýningafjöldi á
Akureyrí
Kortasalan
í fullum gangi!
Verðlaun hér og þar
Nú er tími bók-
menntaverð-
launa í sumum
nágrannalanda
okkar. I þessum
pistli verður sagt
frá nokkrum
slíkum, nánar
tiltekið nýjum
handhöfum
verðlauna sem
kennd eru við
Whitbread, T.S.
Eliot og Gylden-
Mikil spenna hefur ríkt í Bret-
landi vegna vals á „bók ársins" -
en þau verðlaun eru kennd við
fyrirtækið Whitbread og gefa sig-
urvegaranum 26 þúsund sterl-
ingspund (nokkuð á fjórðu millj-
ón íslenskra króna) í aðra hönd.
Dómnefndin átti í
svo miklum vand-
ræðum með að kom-
ast að niðurstöðu að
formaðurinn, texta-
höfundurinn þekkti
Tim Rice, varð að
nýta aukaatkvæði sitt
til að fá fram meiri-
hluta.
Urélitin komu nold<-
uð á óvart. Skáldsagan
English Passengers
eftir Matthew Kneale
varð fyrir valinu. Sú
bók sem margir menn-
ingarpostular og fjöl-
miðlamcnn f Bretlandi
höfðu talið sjálfsagðan
vinningshafa - White Teeth eftir
Zadie Smith - fékk ekkert at-
kvæði í dómnefndinni. Bókin
sem veitti Kneale raunverulega
samkeppni var ævisagan Bad
Blood eftir Lorna Sage, en hún
er nýlátin langt fý'rir aldur fram.
Glæpir nýlenduherra
Þótt margir hafi haldið fram sér-
legum ágætum skáldsögu Zadie
Smith af nánast trúarlegum til-
finningahita, meðal annars
vegna þess að hún var sniðgeng-
in af þeim sem tilnefndu til
Booker-verðlaunanna í fyrra, eru
flestir sammála um að English
Passengers sé mjög vel heppnað
skáldverk. Hún er sögulegs eðlis;
byggir á raunverulegum athurð-
um og viðhorfum um miðja nítj-
ándu öldina þegar ensku ný-
lenduherrarnir fóru hraksmán-
Iega með innfædda frumhyggja
Astralíu - nánar tiltekið á
Tasmaníu. Höfundurinn dregur
upp mjög skýra mynd af viðhorf-
um sem voru ríkjandi á Viktoríu-
tímanum svonefnda.
Sagan er eins konar risavaxin
mósaikmynd, enda sögð frá sjón-
arhóli margra sögupersóna sem
koma úr ólíkum átt-
um. Þeirra á meðal er
enskur sérvitringur
sem hafnar kenning-
um jarðvfsindamanna
um það hvernig jörð-
in varð til og hyggst
finna hinn uppruna-
lega Edensgarð Bihlí-
unnar á Tasmaníu.
Með honum í för er
annar stórskrýtinn
Breti sem trúir á
ýmsar þær fáránlegu
kynþáttakenningar
sem útbreiddar voru
á þessum tíma.
Þessir tw'menningar
eru í hópi enskra far-
þega sem fá far með skipi sem
siglir til Tasmaníu árið 1857. Þar
eru hvítir landnemar í óða önn
að ganga að frumbyggjunum
dauðum, ýmist í nafni kristinnar
trúar cða einfaldlega af græðgi
og mannvonsku.
Kneale hefur áður skrifar
nokkrar skáldsögur og hafa sum-
ar þeirra unnið til annarra verð-
Matthew Kneale; fékk
Whitbreadverðlaunin.
Michael Longley: handhafi verðlauna
T.S. Eliot.
Jan Erik Vold verðlaunaður i Noregi.
launa í Bretlandi. Hann er mikill
ferðamaður; hefur að eigin sögn
heimsótt 82 lönd, þar á meðal
Tasmaníu.
Verðlaun Ijóðskálda
Mörg þekkt Ijóðskáld komu til
álita hjá dómnefnd enskra bók-
menntaverðlauna sem kennd eru
við stórskáldið T.S. Eliot - þeirra
á meðan Derek Walcott og Anne
Stevenson.
En það var norðurírskt skáld
sem fór með sigur af hólrni og
hlaut verðlaunin, sem nema tíu
þúsund sterlingspundum (um
125 þúsund krónum). Sá heitir
Michael Longley og hefur Iengi
verið í skugga frægs landa síns og
samtíðarmanns, Nóbelskáldsins
Seamus Heaney.
Longley, sem er 61 árs, fékk
viðurkenninguna fyrir ljóðabók-
ina The Weather in Japan. Fyrri
bækur hans sem mesta athygli
hafa vakið eru No Continuing
City, The Echo Gate og Gorse
Fires - en fyrir þá síðastnefndu
fékk hann verðlaun á sínum
tíma.
Gyldendalverðlaunin
Endum í Noregi. Þar eru árlega
veitt bókmenntaverðlaun sem
kennd eru við forlagið Gylden-
dal. Verðlaunaféð er 250 þús-
und krónur norskar (tæplega
tvær og hálf milljón íslenskra
króna).
Að þessu sinni hlaut Jan Erik
Vold „Gyldendal-prisen" fyrir
margháttuð ritstörf sín. „Við
þurfum eiginlega engan annan
rökstuðning en að nefna nafnið
hans," sagði formaður dóm-
nefndarinnar þegar úrslitin
voru tilkynnt. Nýjasta verk höf-
undarins er „Mörkets sanger-
ske" sem fjallar um skáldkon-
una Gunvor Hofmo.
„Það er alltaf ánægjulegt að fá
viðurkenningu," sagði Jan Erik
Vold sem tók fréttunum af mik-
illi hógværð. „En margir hafa
skrifað frábær verk án þess að
fá verðlaun. Enda vilja þau
gjarnan Ienida hjá röngum ein-
staklingum. Svo er spurningin
hvort það eigi líka við í þessu
tilviki.“
,-J^GU.SU .
Engtish Passengers - bók
ársins i Bretlandi.
Tveir fýrir einn
Schwarzenegger á I höggi við óvini sem eru ódrepandi, eða öllu heldur sem eru
lífgaðir við aftur og aftur í klónunarbúðum óvinarins.
★ ★
The 6th Day
Leikstjóri:
Roger Spott-
iswoode
Aðalhlutverk:
Arnold
Schwarzenegger,
Michael Rapa-
port, Tony
Goldwyn og
Michael
Rooker.
Arnold Schwarzenegger er hvorki
spæjari né sérsveitarmaður í
spennumyndinni The 6th Day,
heldur ljúfur og umhyggjusamur
fjölskyldufaðir og eigandi þyrlu-
vélar sem m.a. er notuð til að
skutla snjóhrettakrökkum upp á
snæviþakta tinda.
Þetta upppumpaða vöðvafjall
hefur aldrei getað leikið upphátt
að mínu mati. Það verður hein-
línis hallærislegt þegar hann
opnar munninn og þessi smá-
mælta rödd heyrist innan úr
þessum rosakroppi. En Arnold
er hæði stór og sterkur og getur
auðveldlega breyst úr rólegum
heimilisföður í ofurhetju eins
og hendi sé veifað. Og aðdáend-
ur þessarar súperhetju fá svo
sannalega eitthvað fyrir „monn-
ingana" sem þeir eyddu í
bíómiðann og gott betur, því
þeir fá tvo Arnolda á sama mið-
ann.
Klónunarkringla
Eins og Jesendum ætti nú að vera
orðið ljóst er ég ekki
S c h wa rze n egge ra ðdáaridi, e n
satt að segja hefur mér samt
aldrei leiðst í híó mcð honum. Ég
cr eins og ég hef opinberað áður
í þessum þætti spennufíkill og
flestar myndir sem
Schwarzenegger hefur leikið í
eru spennumvndir og svo er ein-
nig með The 6th Day.
„A sjötta degi skapaði guð
manninn", segir í hihlíunni og
höfðar titill myndarinnar til þess.
Nema hvað að nú háfa mennirn-
ir tekið vald guðs f sínar hendur
og framleiða menn og dýr á færi-
böndum í klónunarmollinu. Já,
hcilt moll eða öllu heldur kringla
með vöruval á öllum hæðum -
klónuð nýru, lungu og önnur Iíf-
færi af öllum stærðum og gerð-
um. Re-pat deildin er vinsælust,
heimiliskettir sem hafa orðið fyr-
ir híl eru klónaðir áður en ungur
eigandi kemur heim úr skólanum
og uppgötvar missinn. Eina sem
ekki er hægt að kaupa í klónun-
arkringlunni eru klónaðir menn.
Það er nefnilcga bannað með
lögum að klóna fólk, en auðvitað
er svartamarkaðsbrask hak við
tjöldin í því eins og öðru.
Eins og í tölvuleik
Myndinni á að gerast einhvern-
tíma í framtíðinni, en lfklega nær
nútímanum en við gerum okkur
grein fyrir. Við munum t.d. eftir
kind að nafni Dollv, skoskri rollu
sem klónuð var af vísindamönn-
um fyrir nokkrum árum. Við vit-
um að líffæri eru klónuð, en við
vitum ekki hvort verið er að
klóna menn hak við tjöldin, eða
viljum ekki vita það.
The 6th Day er sem sagt ágæt-
is afþreying ekki ósvipuð tölvu-
leik, laser-hyssur, sprengingar,
klesstir hílar og ævintýralegt Ilug
um stórkpstleg gljúfur. Kannski
þarna sé komin Playstation III-
-\\'