Dagur - 27.01.2001, Síða 14
LAUGARDAGUR 27 JANÚAR 2001
14 -
starfar í apótekinu í
Smáranum.
fyrir
„Ég get bent á vörur með
merkinu Actigener sem fram-
leiddar eru úr lífrænum
plöntuefnum og hafa gefið
góða raun. Sjampoið er búið
að vera á markaðinum hér á
landi í nokkur ár og þykir mjög
gott og græðandi. Það hefur
líka hlotið ótal viðurkenningar
heilbrigðisyfirvalda og neyt-
endasamtaka erlendis, hæði í
Evrópu ogAmeríku.
Við ráðleggjum þeim scm
hafa mikil húðvandamál að
nota sjampó sem bcr undirtit-
ilinn „strong". Það verkar bet-
ur ef það er látið liggia í hár-
inu í 3-5 mínútur. Síðan er
það skolað úr og hárnæring
sett í hárið á eftir. Milt sjam-
pó er líka til fyrir þá sem ekki
eru eins slæmir í hársverðin-
um og verka þá sem fyrir-
byggjandi. Það nýjasta sem
komið er á markaðinn af
þessu tagi er spray sem menn
nota ef um kláðabletti er að
ræða.
Fyrir viðkvæman hársvörð
Húðlæknarnir á hæðinni fyrir
ofan okkur og við erum í sam-
starfi við skrifa oft upp á
þessar hárvörur fyrir fólk sem
hafa viðkvæman hársvörð,
Bjarndís Markúsdóttir lumar á góðum ráðum fyrir þá sem hafa vandamál i hársverði
eksem í hárinu og flösu. Það
er líka gott við hárlosi, það er
að segja því hárlosi sem stafar
af vandamálum í hársverðin-
um. Ég get ekki tullyrt að það
vinni gegn því sem kallast
getur „ættarskalli", það er að
segja hárlosi sem rekja má til
erfðaeinkenna."
- Veistn hvciðn plöntur eru
notuðar í þessar vörur?
„Actigener var upphaflega
þróað af frönskum munkum
fyrir hundruðum ára og upp-
skriftin var leyndarmál þar til
fyrir 25 árum. Það er unnið
úr ýmsum blómum og plönt-
um, svo sem fagurfíflum,
brekkusóleyjum, gullblómum,
hvítlauki, húsapunkti, kar-
dimommu, hörfræolíu,
kókohnetuolíu og vatna-
kransi. Auk þess inniheldur
það 25 líffræðilega virk efni."
Eðlilegur erfðaskalli
Hjarndís bendir einnig á vörur
í öðru vörumerki sem heitir
Daucray sem hafa svipaöa eig-
inleika. Þær segir hún hafa
gefið góða raun við flösu -
hæði þurri og fituflösu svo og
eksemi í hársverði og sveppa-
sýkingum. „I Daucray línunni
eru bæði mjög virk sjamó og
önnur mildari til að nota inn á
milli. fyrir mismunandi gerðir
af hári. Einnig spray við hár-
Iosi af völdum sjúkdóma,
eksems, lyfjagjafa og þannig
vandamála. Það verkar hins
vegar ekki á það sem við getum
kallað eðlilegan erfðaskalla.""
- Er elihert við honum að
gera?
„Nei, það er lítið um ráð við
honum. Eina skallameðalið
sem við höfum verið með er
Reagin sem áður var selt út á
lyfseðil en nú er fáanlegt án
hans. Það er olía sem borin er
f hársvörðinn á hverjum ein-
asta degi. Það er staðreynd að
það kemur hár upp úr skall-
anum á nokkrum mánuðum
en um leið og meðferðinni
Iýkur þá minnkar það smátt
og smátt aftur. Þetta er því
mjög dýr meðferð. Heldur
hefur þetta lyf þó lækkað í
vcrði frá því það kom fyrst á
markað. Það kostar núna
2.600 kr. og pakkinn og dugar
í 1-2 mánuöi."
- En eru ekki einhver sérstök
steinefni sem gera hárinu gott?
„Jú, jú. Það eru til töflur,
sem seldar eru undir heitinu
Hárkúr. Það eru vítamín og
steinefnablöndur. Þaratöflur
eru líka vinsælar og góðar fyrir
húð, hár og neglur."
GUN.
Gott
Þegar flasa, kláði í
hársverði og háreyð-
ing herjar á fólk þarf
að grípa til einhverra
ráða. Sérstök sjampó
og spray gefa góða
raun og steinefna-
blöndur og þaratöflur
geta einnig komið að
notum. Um þetta
fræðir okkur Bjarndís
Markúsdóttir sem
hárið
________________________Da^ttr
Heilsumolar
Gætum að
geðheilsu barna
Geðsjúkdómar hjá börnum eru margs-
konar og koma einkennin oft ekki fram
fyrr en auknar kröfur eru gerðar til barns-
ins og áreiti eykst, til dæmis eftir að barn-
ið hefur skólagöngu. En þó er það ekki
algilt. Hér eru nokkrar vísbendingar sem
gætu bent til geðröskunar:
- Ef barn er mjög dapurt og vonlaust án
sýnilegrar ástæðu.
- Ef barn sveiflast milli ofsa gleði og at-
hafnaþrár og dýpsta þunglyndis.
- Ef barn er kvíðnara eða áhyggjufyllra en
jafnaldrar þess.
- Ef barn er félagslega einangrað og á í
samskiptaerfiðleikum við önnur börn.
- Ef barni fer allt í einu að ganga illa í
skóla og á erfitt með að einbeita sér.
- Ef barni finnst lífið of erfitt og talar um
að það vilji ekki lifa.
- Ef barnið beyri raddir sem ekki er hægt
að skýra og sér fólk eða hluti sem eru
ekki til.
- Ef barn lifir óeðlilega mikið í
dagdraumum og er framtakslaust.
- Ef svefn eða matarlyst barnsins raskast
án sýnilegrar ástæðu.
- Ef barnið borðar yfir sig og þvingar sig
síðan til að kasta upp.
- Ef barnið meiðir oft aðra, skemmir hluti
eða brýtur lög.
Þær vís-
bendingar
sem hér eru
taldar upp
eru engan
veginn
tæmandi en
höfum það í
huga að
okkur ber
að hlúa að
geðheilsu
barna okk-
ar. Eitt af
hverjum fimm ungmennum glíma við
röskun á geðheilsu. Lim eða yfir fimmtíu
prósent ungmenna með geðröskun leið-
ast út í vímuefnaneyslu. Of mörg ung-
menni með geðheilsuvanda fá ekki þá
hjálp sem þau þarfnast. Geðræn vanda-
mál eða geðsjúkdómar eru eins og aðrir
sjúkdómar, það þarf ekki að skammast
sín fyrir þá. Börnin háðu ckki um sjúk-
dóminn.
Heimild: Bæklingur foreldrafélags
geðsjúkra barna og unglinga
Að hitta menn
KYIMLIF
Ragnheiður
EiPíhsdóttír
skrifar
Kostimir við að
vera einhleyp
kona nú til dags
eru sannarlega
margir. Einhleyp-
ar konur eru laus-
ar við sambands-
flækjur og afbrýð-
issemi, misræmi í
kynlífsáhuga,
pirring vegna kló-
______________ settsetu sem er
skilin eftir uppi
og illa uppvaskað leirtau. Þó eru
nokkrir ókostir við ástandið eins
og t.d. að hafa engan til að njóta
ásta með þegar þörfin knýr dyra,
þurfa alltaf að standa í elda-
mennsku og uppvaski ein og geta
ekki kúrt í sófa og horft á Sex and
the city og rökrætt þáttinn í kjöl-
farið. Já, vel á minnst! Þærvinkon-
ur í áðurnefndum sjónvarpsþætti
virðast hreinlega vaða í karlmönn-
um sem staldra passlega
stutt/Iengí við og þjóna sínum til-
gangi prýðilega eftir því sem best
verður séð. Kannski að við ættum
að íhuga það alvarlega að koma
upp meiri stefnumótamenningu
hér á landi.
Nýr klúbbur
Um daginn lenti ég í óvæntu en
stórskemmtilegu matarboði þar
sem einungis var einhleypt fólk.
Það er skemmst frá því að segja
að undir borðum mynduðust
djúp og falleg sambönd milli
gesta enda hafði gestgjafinn val-
ið hópinn af kostgæfni og gætt
þess að láta tölu karla og kven-
na smellpassa saman. Umræðan
leiddist fljótt út á hálar brautir
kynlífsins (einkennilegt hvað
þetta gerist oft þar sem ég kem
við) og fyrr en varði vorum við
öll búin að komast að dimmum
og djúpum leyndarmálum hvers
annars. Kann ég vini mínum
bestu þakkir fyrir að hafa haft
frumkvæði að boðinu og veit að
fordæmisgildi þess á eftir að
verða gríðarlegt.
Ertu nokkuð
í þjóðernisflokknum?
Onnur leið til að hitta karlmenn er
að pína gifta vini til að bjóða
áhugaverðum, einhleypum \dnnu-
félögum í mat og þér auðvitað líka.
Matur er dásamlegt hjálpartæki ef
þarf að heilla einhvern upp úr
skónum. Þá mæli ég sérstaklega
með mat sem þarf að nota fingur
við að borða, til að mynda humar
eða ostrur. Haldið ykkur helst við
sjávarkvikindi, kjúklingavængir
gætu gert hið gagnstæða þó svo að
guðsgafflar séu lfka notaðir þegar
þeir eru á borðum. Léttvín og góð-
ur djass virka vel sem félagsleg
smurning við þessar aðstæður.
Gætið þess samt að vera búnar að
fá grunnupplýsingar um manninn
áður en þið látið töfrana flæða yfir
hann. Það væri verra að komast að
því eftir vel heppnað daður og
símanúmeraskipti að maðurinn sé
í þjóðernisflokknum.
...og í jeppa
Þriðja leiðin er að skella sér í
dæmigerða hressingarferð með
Utvist eða Ferðafélaginu. Slíkar
ferðir eru yfirleitt gjöfular og
spennandi, það sanna mýmörg
„Spennandi karlmenn eru duglegir að skjóta upp kollinum þegar síst er von á
þeim. Þeir koma gangandi yfir fjöll og firnindi, hálfskeggjaðir í óbyggðaklæðum..."
dæmi. Þrátt fyrir að 70% ferða-
langanna séu oftast pipraðir kven-
kyns hjúkrunarfræðingar (sorrý
stelpur!) má undrun sæta hvað
spennandi karlmenn eru dugleg-
ir að skjóta upp kollinum þegar
síst er von á þeim. Þeir koma
gangandi yfir fjöll og firnindi,
hálfskeggjaðir í óbyggðaklæðum
eða skröltandi yfir ár á jeppum
sem þeim þykir voðalega vænt
um og gaman að sýna sætum og
áhugasömum stelpum. Það er
allt í Iagi að falsa tímabundinn
áhuga á vélknúnum ökutækjum
ef eigandinn er þokkafullur og
spennandi.
Betur má ef?
Það er ljóst að upplýsingamar
hér að ofan eru langt frá því að
vera tæmandi. Möguleikarnir til
að hitta áhugaverða karlmenn
eru miklu fleiri og samvisku
minnar vegna lofa ég að gera
málinu betri skil í næsta helgar-
blaði. Góða helgi!
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi á persona.is