Dagur - 27.01.2001, Blaðsíða 23
XJs^wr'.
SKAKMOLAR
UMSJÓN:
HALLDOR B.
HALLDÓRSSON
Allt að gerast!
I>að er mikið um að vera í ís-
lensku jafnt sem al|jjóðlegu
skáklífi um þessar mundir. Of-
urmótið í Hollandi, sem margir
reyndar fullyrða að sé sterkasta
skákmót frá upphafi, stendur
nú sem hæst og er spennan
orðin ktTigimögnuð. Efstir eftir
10 umferðir af 13 eru þeir
Kasparov og Shirov með 7
vinninga en þriðji er svo
Morozevitz með 61 pólitískri
hringiðu vinning. Það er gam-
an að sjá þessa menn efsta því
að þetta eru allt saman sókn-
djarfir skákmenn á meðan „vél-
arnar“ eða Kramnik og Anand
eiga erfitt uppdráttar, Kramnik
með 6 og Anand 5A.
Morozevitz, eða Moro, hefur
sýnt oft á tíðum mjög skemmti-
leg tilþrif í mótinu og var eitt
þeirra gegn Federov á fimmtu-
daginn. Moro hafði svart í stöð-
unni og átti leik en Fedorov
hafði síðast gengið beint í gildr-
una með 25.c7? Moro svaraði
að
$L
SSi
bragði:
25. Rxg4!! 26.hxg4 Be5!
27.Dxe5 (annars verður hvítur
mát á h2) 27.d.xe5 og hvítur
gafst upp nokkrum leikjum síð-
ar.
Stefán og Bjöm efstir!
Stefán Kristjánsson og Björn
Þorfinnsson leiða með 6'/ vinn-
ing eftir 8 umferðir á Skákþingi
Reykjavíkur sem nú stendur
yfir. Mótið hefur verið hið
íjörugasta og hafa margar
skcmmtilegar skákir litið dags-
ins Ijós. Björn sigraði Stefán
snemma móts en tapaði svo
hálfldaufalega fyrir Arnari
Gunnarssyni í áttundu umlerð.
í 3.-6. sæti á mótinu eru svo
þeir Jón Viktor Gunnarsson,
Arnar, Róbert Harðarson og
Sigurbjörn Björnsson eða Pand-
an með 6 vinninga. Það verður
spennandi að fylgjast með
næstu umferð en þar mætast
m.a. Jón Viktor-Stefán og
Björn-Sigurbjörn.
Mót hjá S.A.
Tvö mót voru hjá Skákfélagi
Akureyrar í vikunni og var mik-
ið um dýrðir. A sunnudaginn
sigraði Olafur Kristjánsson á 15
mínútna móti með 6 vinninga
af sjö en annar varð Gylfi Þór-
hallsson með 5/, Guðmundur
Gíslason náði svo þriðja sætinu
með 4'A. Það var þó nokkuð
undarleg staða sem kom upp
en Gylfi vann bæði Olaf og
Guðmund! Eitthvað voru það
niinni spámennirnir sem að
vöfðust fyrir honum. A fimmtu-
dagskvöldið var svo janúarhrað-
skákmótið haldiö en þar kom
sveiflukóngurinn, sá og sigraði
með 12'A vinning úr fjórtán
skákum. Annar varð Guðmund-
ur Gíslason með 12 vinninga
en Ólafur Kristjánsson varð að
gera sér þriðja sætið að góðu
með I 1 vinninga. Skákþing Ak-
urevrar hefst á morgun, sunnu-
dag, klukkan 14 og verður teflt
í tveimur flokkum. Aætlað er að
mótinu Ijúki 18-febrúar.
Góðar skákir alltaf þegnar á
s. 'es
á á á
&
I & A
S=7
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 - 23
_J
FIIUA QG FRÆGA FQLKIÐ
STJORNUSPA
Robert Downey Jr. sem átt hefur í erfiðleikum vegna
fíkniefna mætir nú erfiðleikum frá eiginkonunni sem
vill losna endanlega úr hjónabandi þeirra.
Vill fullan skilnað
við Downey Jr.
Eiginkona Roberts Downey Jr. hefur nú sótt
um skilnað frá kappanum, en hann hefur
sem kunnugt er átt f nokkrum vandræðum
vegna fíkniefnámala og á nú yfir höfði sér að
fá annan dóminn á stuttum tíma. Kona Ro-
berts Downey heitir Deborah Falconer, og er
35 ára garnalt módel, en þau skildu að borði
og sæng fyrir sex árum en hafa þó alltaf ver-
ið formlega séð gift. Þau eiga 7 ára gamlan
son, Indio, sem Falconer hefur nú sótt um
forræði yfir. Þau skötuhjú giftu sig árið
1992 en slitu sámvistir árið 1996, og segir
eiginkonan að ástæðan fyrir því að hún vilji
nú fullan skilnað sé að milli þeirra sé óleys-
anlegur ágreiningur.
BARIV AHORNIÐ
Tveir alveg eins
Þótt allir þessir kóngar virðist við fyrstu sýn vera
eins þá eru. í rauninni bara tveir þeirra alveg
eins. Getur þú fundið út hvaða tveir það eru?
Rétta leíðin
(bannað eldri en 6 ára!)
Hér kemur þraut fyrir alla krakka yngri cn 6 ára.
Þeir scm eldri eru mega alls ekki leysa hana, en
þeir rnega samt lita myndina ef þeir vilja. Þrautin
felst í því að hjálpa kanínunni sem er niðri að finna
réttu leiðina til vinar síns sem bíður uppi. I lún má
ALLS ekki lenda hjá refnum!
Brandarar
Arnrnan við unga dóttur dóttur sína: „Vertu ekki
að toga í skottið á kettinum væna mín.“
Ömmustelpan: „Eg er ekkert að því. É held
bara í skottið en það er hann sem togar!"
„Oddur gamli er svo feitur að hann getur ekki
einu sinni leikið golf.“
„Hvað hull er þetta!"
„Bull?! Ef hann setur kúluna þar sem hann sér
hana nær hann ekki til hennar og ef hann setur
hana þar sem hann nær til hennar þá sér hann
hana ekki."
Vatnsberinn
Þú ferð á Kaffibar-
inn í kvöld og þar
verður ekki þver-
fótað fyrir hund-
leiðinlegum og
uppáþrengjandi
fiskum.
Fiskarnir
Þið farið á Kaffi-
barinn í kvöld og
rekist þar á ömur-
lega fúian vatns-
bera sem drekkur
óblandað allt
kvöldið.
Hrúturinn
Nú er úti veður
vott, verður allt að
klessu. Ertu hissa
á þessu?
Nautið
Nískur Norðmaður
kemur óvænt inn í
líf þitt og gerir mik-
inn usla. Láttu
hann róa og haltu
áfram að busla.
Tvíburarnir
Sumir eiga skilið
að vera flengdir
með vendi eða
blokkflautu. Hafa
skal það sem
hendi er næst.
Krabbinn
Þú ferð á Kaffi
Reykjavík í kvöld
og þar verður allt
yfirfljótandi af
snobbuðum mið-
aldra Lionsmönn-
Ljónið
Traustir skulu
harðviðir hárra
sala. En þú nærð
ekki síður langt á
sveigjanleikanum
og mýktinni.
Meyjan
Farðu fótgangandi
í vinnuna og á
vegi þinum verður
gamall kunningi,
eða kærasti eða
kærasta. Þetta er
svolítið óljóst.
Vogin
Lokaðu dyrunum
áður en drómed-
arinn smýgur þar
inn og rekur
kryppuna upp í
Ijósakrónuna í for-
stofunni.
Sporðdrekinn
Þú verður að
hætta að leggja
þér loðdýrin til
munns. Þau lifa
eingöngu á nauta-
kjötmjöli .
Bogamaðurinn
Því miöur, Egyptar
vinna 23 -19 í
dag. En Tékkarnir
boppa á morgun.
Steingeitin
Ekki láta fagurgala
afvegaleiða þig.
Lorelei liggur víða
í leyni.