Dagur - 22.02.2001, Síða 5
FIMMTUDAGUR 22. FF.BRÚAR 2001 - S
í>agur_
FRÉTTIR
Sajnið iun 6,9%
laimahækkun
Sanuiiiigiu til 10 mán-
aöa á milli flugumferö-
arstjóra og rflúsins.
Sagður framlenging á
Mðarferli. Ný viðræðu-
áætlun undir verk-
stjóm sáttasemjara.
Flugumfcrðarstjórar fá 6,9%
launahækkun í skammtímasamn-
ingi við samninganefnd ríkisins
sem gildir frá 1. febrúar sl. til 15.
nóvember nk. I framhaldi af |iví
var verkfalli þeirra aflýst í fyrrinótt.
Aætlanaflug Flugleiða var komið í
eðlilegt horf um miðjan dag í gær
og sömuleiðs innanlandsflug.
Kjarasamningurinn verður kynnt-
ur og horinn undir atkvæði flug-
umferðarstjóra eins fljótt og auðið
er.
Framlenging á friðarferli
Loftur Jóhannsson formaður Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra
segir að með þessum samningi sé
vcrið að framlengja friðarferli í
samskiptum við ríkið. Hann býst
við að skiptar skoðanir verði unt
samninginn meðal félagsmanna.
Verkfall flugumferðarstjóra stóð
yfir í einn dag en alls höfðu þeir
boðað til fimm daga verkfalls, tvo
daga í þessari viku og þrjá í þeirri
næstu.
MiMllláttir
Guðjón Arngrímsson upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða segir að það sé
mikill léttir fyrir félagið og við-
skiptavini þess að verkfallinu skuli
hafa verið aflýst og friður sé kom-
inn á. Hann segir erfitt að segja til
um það hversu mikið fjárhagslegt
tjón félagið hefur orðið fyrir vegna
verkfallsins og áhrifa þess.
Verkstjóm sáttasemjara
Samningnum lý'lgir einnig sérstakt
samkomulag um váðræðuáætlun á
samningstímanum og bókun um
upptöku nýs tluggagnakerfis. I við-
ræðuáætluninni er stefnt að því að
gera samning sem bvggir á niður-
stöðum réttarstöðunefndar frá
1997.
AIls verða sex manns í þeirri
nefnd sem kemur að gerð þessa
kjarasamnings, þ.e. einn fulltrúi
frá hverju ráðuneyti l’yrir sig, fjár-
málaráðuneyti, utanríkisráðuneyti
og samgönguráðuneyti og þrír frá
Félagi flugumferðarstjóra. Athygli
vekur að verkstjóri þessarar nefnd-
ar verður Þórir Einarsson ríkis-
sáttasemjari. Búist er vdð að samn-
ingaviðræður um gerð þessa samn-
ings geti hafist í apríl n.k. eða jafn-
vel fyrr. Það fer þó eftir því hversu
mikið verður að gera hjá ríkissátta-
semjara og samninganefnd ríkis-
ins.
Allt uppá borðum
Loftur Jóhannsson formaður Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra
segir að í komandi viðræðum verð-
ur reynt að leita leiða til framtíðar-
lausnar á kjörum og réttarstöðu fé-
lagsmanna. I þeim efnum verður
allt upp á borðum. Þar á meðal
álag, vinnutími, vinnuaðstæður og
samskipti við stjórnendur s\'o
nokkuð sé nefnt. Hann segir að líf-
eyrismál verði einnig ofarlega á
paugi í þessum viðræðum við ríkið.
- GRH
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra fær e.t.v. Gæsluna.
Gæslan til
Sturlu?
Að færa Landhelgisgæsluna undir
samgönguráðuneytið, sem fer
með yfirstjórn siglingamála, ör-
yggis- og björgunarmála og tengist
auk þess mengunarmálum á hafi
úti, gæti verið skvnsamleg Iausn á
ýmsum stjórnunarvanda hennar
að mati Ríkisendurskoðunar sem
gert hclur stjórnsýsluendurskoð-
un á skipulagi, rekstri og verkefn-
um hennar. Stærsti hluti af núver-
andi verkefnum Gæslunnar falli
nefnilega undir málaflokka sem
lúti vfirstjórn annarra ráðuneyta
en dómsmálaráðuneytisins. Þau
helstu séu siglingamál, öty'ggis- og
björgunarmál og fiskveiðieftirlit
auk mengunareftirlits á sjó. Að
mati Ríkisendurskoðunar skortir
stjórnunarlegar boðleiðir til sam-
hæfingar á milli verkefna Gæsl-
unnar og annarra aðila sem sinna
málaflokkum sem stofnunin kem-
ur að. — lll l
„Fáránlegar hug-
myndir Kristins“
LIÚ spyr vegna afla-
markshugmynda þing
flokksformanns Fram-
sóknar hvort Kristinn
hyggist endurúthluta
viiium sinum?
Framkvæmdastjóri LIU gefur lítið
f)TÍr hugmyndir lvristins H. Gunn-
arssonar, þingmanns Framsóknar-
llokks, um grundvallarbreytingar á
fiskveiðikerfinu. Kristinn telur
breytingar Iífsnauðsynlegar fýrir
vestfirskt atvinnulíf og vill innkalla
allan kvótann til að jafna að-
stöðumun. Hann vill að fýrst verði
dálftill hluti heimildanna tekinn og
sveitarfélögin fái þá sneið til að
leigja út. Þá megi setja skilmála
sem tryggi að heimildirnar Ieiði til
atvinnustarfsemi í viðkomandi
byggðarlagi.
Óútskýrt
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LIÚ, er harðoröur
vegna þessa: „Hvað á Kristinn við
þcgar hann talar um jafnrétti í
þessum efnum? Það er varla hægt
að tjá sig um þessar hugmyndir því
þetta er svo fáránlegt og óútskýrt
Friðrik J. Arngrímsson, LIÚ: Varla
svara vert.
af hans hálfu. Hann talar um að
endurúthluta á jafnréttisgrundvelli
- ætlar að hann að endurúthluta
vinum sínum? Eg held að þetta
taki enginn alvarlega. Hver getur
það í því ástandi sem við lifum í
dag þegar 80% kvótans eru búin að
skipta urn hendur með hagræð-
ingu greinarinnar að markmiði
eins og lögin gerðu ráð fyrir á sín-
um tíma,“ segir Friðrik.
LIÚ telur að skýring þess að
fiskveiðiheimildir hafi sópast burt
á stöðum eins og Vestljörðum, sýni
einfaldlega að þar hafi menn ekki
staðið sig sem skvldi í greininni. Af
orðum Friðriks má skilja að það sé
ekki hins opinbera að standa fyrir
einhvers konar félagsmálahjálp
með fulltingi Kristins H. Gunnars-
sonar heldur hljóti önnur sjónar-
mið að ráða.
Skussunum hegnt
„Kvótinn var fyrir vestan að veru-
legu leyti en hann verður ekki
færður þangað aftur nema taka
hann af einhverjum öðrum. Af
hveiju er ekki meiri kvóti lýrir vest-
an.eftir? Hvernig gckk reksturinn
hjá þeim? Á að taka það frá þeim
sem hafa gert vel og færa það hin-
um sem hafa gert illa - ætlum við
að Iifa á sjávarútvegi sem þjóð eða
ekld? Þetta er spurning um hvort
við ætlum að reka sjávarútveginn
með hagnaði eða láta menn eins
og Kristin H. Gunnarssonar út-
hluta þeirn sem hann telur verð-
uga?“ spyr framkvæmdastjóri LIU.
Hvað annað varðar segir Friðrik
að sæmilega horfi með samninga-
málin við sjómenn í augnablikinu.
I gær fór fram lundur þar sem
málin yoru rædd á breiðum grund-
velli. „Eg hef fulla trú á að við leys-
um þetta - að minnsta kosti eru
allir að leggja sig fram um að leysa
þennan hnút,“ segir Friðrik J. Arn-
grímsson. - isi>
Til vemdar Vatnsmýri
Halldór Jónsson fyrrverandi bæjar-
fulltrúi sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórn Isafjarðar segir að það sé full
alvara að baki stofnunar grasrótar-
samtaka til að vernda Vatnsmýr-
ina. Hann segir að tilgangur þess-
ara nýstofnuðu samtaka sé að vera
samnefnari allra þeirra sem á und-
anförnum árum hafa látið sig nátt-
úruvernd varða í baráttunni til að
endurheimta Vatnsmýrina.
Halldór sem er talsmaður þess-
ara nýju samtaka segir að í barátt-
unni gegn veru flugváuarins í
N'atnsmýrinni gefst fágætt tækifæri
til að ná til baka þessari horfnu
náttúruperlu í stað þess að láta
hana hverfa undir húshvggingar.
Hann segir að Vatnsmýrin sé ein-
stök í sinni röð og lítt snortin lýrir
gróðurlíf og fugla. Hann segist
vonast eftir góðum skilningi borg-
arstjórnar á þessari baráttu sam-
takanna enda séu innan hennar
margir sem barist hafa fvrir vernd-
un náttúrunnar. — GRll
Jóhann Páll hættur hjá JPV?
„Þetta er stormur í vatnsglasi. En ég vil ekki né get kommenterað
ncitt á þessa leiðindafrétt," sagði Tryggvi Pétursson stjórnarformað-
ur Genealogia Islandorum í samtali við Dag. Samkvæmt því sem
fram kom á Vísi.is í gær er Jóhann Páll Valdimarsson hættur störfum
hjá Gen.is, en þær sagnir eru á kreiki að Jóhanni hafi verið sagt upp
störfum sem framkvæmdastjóra Gen.is en forlag Jóhanns Páls, JPV-
forlag, hefur starfað sem dótturfyrirtæki Gen.is. „Eg vil ekkert segja
um þetta mál, kannski þó á föstudag," sagði Jóhann í samtali við Dag
- en samkvæmt því sem fram kom á Vísi hyggst hann stofna eigið for-
lag og reka frá heimili sinu f vesturborginni. — SBS.
Viimiiiiiarkaduriiin að mettast
„Svo virðist sem hin mikla eftirspurn eftir starfsfólki í ýmiss konar
þjónustu við atvinnuvegina á höfuðborgarvæðinu sem ríkt hefur síð-
ustu 4 árin fari minnkandi f upphafí árs 2001,“ segir Þjóðhagsstofn-
un í yfirliti um vinnumarkaðskönnun í janúar. Veitingamenn á höf-
uðborgarsvæðinu töldu um 100 starfsmönnum ofaukið og iðnrek-
endur vildu losna við um 50 manns. Á hinn bóginn vantaði sam-
göngufyrirtæki um 70 í viðbót, byggingaiðnaðinn álíka, fiskiðnaðinn
50 manns og aðra 50 vantaði í ýmiss þjónustustörf. Allt í allt vildu
atvinnurekendur á höfuðborgarsvæðinu bæta við sig um 110 starfs-
mönnum, borið saman við 300 í samsvarandi könnun fyrir ári.
Á landsbyggðinni hefur eftirspurn eftir fiskvinnslufólki ekki verið
minni í 10 ár og töldu fiskverkendur m.a.s. um 100 mönnum sínum
ofaukið, samkvæmt könnun Þjóðhagsstofnunar á atvinnuástandinu í
janúar. Samgöngufyrirtæki vildu líka fækka um 50 manns. Á hinn
bóginn vantaði álfka fjölda fólks í byggingastarfsemi, þjónustustörf
og verslun. I heild er markaðurinn því í jafnvægi, raunar í fyrsta skip-
ti á 3. ár. - HEI
Starfsmeim æskulýðsins um 6000
Samkvæmt svörurn Rjörns Bjarnasonar menntatnálaráðherra við fýr-
irspurn Guðrúnar Ogmundsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar,
starfa um þessar mundir 5.879 manns hjá aeskulýðssamtökum,
íþróttahreyfingunni, Samtökum félagsmiðstöðva og í grunn- og fram-
haldsskólum á sviði íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála. Hér er átt
við störf við rekstur starfseminnar, umsjón mannvirkja og við þjálf-
unar- og leiðbeinendastörf.
Samkvæmt upplýsingum frá Iþrótta- og ólympíusamhandi Islands
er áætlað að starfsmenn íþróttahreyfingarinnar séu um 170 auk þess
sem áætlað er að þjálfarar og leiðbeinendur í hlutastarfi séu um
2.700. Innan Samtaka félagsmiðstöðva og æskulvðs- og íþróttasam-
taka annarra en Iþrótta- og ólympíusambands Islands má ætla að
starfi 1.078 manns. \ vcgum þjóðkirkjunnar starfa að æskulvðsmál-
um um 213 manns.