Dagur - 22.02.2001, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2001 - 11
perrana
rsamkeppnum. Ekki bann, en eftirlit.
stofunnar sæti í undirbúnings-
nefndinni. „Eg get að vfsu ekki
tjáð mig um hið eiginlega frum-
varp, sem ekki hefur verið lagt
fram, því ljóst er að einhverjar
breytingar hafa orðið á tillögum
nefndarinnar. Þó má slá því föstu
að Barnaverndarstofa stendur á
hak við þetta frumvarp að mestu
leyti - ég hygg að Barnaverndar-
stofa sé að meginhluta til sátt við
frumvarpið."
Hrefna segir að fyrirhuguð laga-
breyting færi fram bætur á flestum
sviðum. „Nefna má fyrirhugaðar
breytingar á úrskurðarvaldinu, þar
sem verið er að stokka upp vald
harnaverndarnefndanna til að taka
ákvarðanir, enda ntá segja að dóm-
ar undanfarið beri með sér að fólk
vilji hera þessi mál undir dóm-
stóla. Þarna er verið að fækka úr-
skurðarstigum og það er til bóta."
Stórfækkim
bamavemdarnefnda
I eldri lögum var lögð áhersla á að
minni sveitarfélög sameinuðust
um skipan barnaverndarnefnda og
segir Hrefna að í frumvarpinu séu
mörkin skýr. „I lokaútgáfunni
verða umdæmin stækkuð og mið-
að við 1.500 íhúa að haki hverri
nefnd. I dag eru barnavcrndar-
nefndir 56 og gæti ég trúað að
þessi nýmæli geti leitt til fækkun-
ar nefndanna niður í 30-40, eða
því er að minnsta kosti spáð. Það
sem er þó mikilvægara er að það á
að efla starfið og gera nefndunum
betur kleift en áður að ráða til sín
fagmenntaða starfsmenn". Hrefna
segist ekki vita um áætlaða fækk-
un nefnda ef talan 2.000 hefði
orðið ofan á, en ekki fjarri lægi að
ætla að þá hefðu 25-30 nefndir
staðið eftir.
1 frumvarpinu verða ýmsar
hreytingar á heimildum og ráð-
stöfunarrétti barnaverndarnefnda,
með skýrari reglum, sem Hrefna
telur að muni henta betur en nú-
verandi reglur og heimildir.
„Nefna má þá mikilvægu breyt-
ingu að gert er ráð fyrir því að
börn verði málsaðilar í vissum til-
vikum. Nú er fý'rst og fremst litið
til foreldrana þegar til þvingunar-
úrræða kemur, en framvegis á líka
í vissum tilfellum að horfa til vilja
barnanna þegar til standa meiri-
háttar ákvarðanir og þegar barnið
er 15 ára eða eldra þarf að liggja
fyrir samþykki þess."
Könnim á hættulegum
umsækjendum
Hrefna segir að ný ákvæði um inn-
grip vegna áfengis- eða fíkniefna-
neyslu þungaðra kvenna feli í
sjálfu sér ekki mikla breytingu,
heldur eru heimildir gerðar skýr-
ari. „Þarna er réttarstaða þessara
þunguðu kvenna betur tr^'ggð, en
heimildin til inngripa er í raun fyr-
ir hendi. Það er ekki verið að
heimila að beita þungaða konu
valdi, heldur verður eftir sem áður
að láta reyna á lögræðislög."
Hvað upplýsingagjöf úr sakaskrá
varðar segir Hrefna að með breyt-
ingunum sé rétturinn til upplýs-
ingagjafarinnar skýrlega skráður.
„I þessu felast ákveðin nýmæli um
að Barnaverndarstofa fái þennan
rétt og geti látið barnaverndar-
nefndir vita, ef tilteknir umsækj-
endur teljast hættulegir, sé um að
ræða störf þar sem sýslað er með
börn. Hér er átt við tilteknar
kringumstæður, en ekki þannig að
menn geti hringt hvenær sem er
og spurt um hvern sem er. Það
verður að vera ákveðin auglýsing
að baki og aðeins má spyrja um
umsækjendur. Þetta er auðvitað
nýjung, en í raun hefur það ekki
þótt óeðlilegt fram að þessu að
umsækjendur um slík störf eru
beðnir um að framvísa sakavott-
orði,“ segir Hrefna.
Fyrirvarar hjá Persónuvemd
Sígrún Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri Persónuverndar
(sem áður hét Tölvunefnd) segir
að Persónuvernd hafi ekki komið
að undirbúningi og smíði frum-
varps félagsmálaráðherra. Þegar
lýsing ráðherra á upplýsingagjöf-
inni úr sakaskrá, vegna hugsan-
legra dóma vegna kynferðisbrota
gagnvart börnum, var lesin fyrir
Sigrúnu, kvaðst hún hafa á tilfinn-
ingunni að þessi háttur kunni að
vera fullkomlega málefnalegur.
„Mér fyndist þó eðlilegra að um-
sækjandinn leggi sjálfur fram
sakavottorð, í stað þess að sá sem
auglýsir starfið fari á stúfana. Þá
tel ég nauðsynlegt að barnavernd-
aryfirvöldum verði settar ákveðnar
reglur um hversu lengi megi
geyma slíkar upplýsingar, t.d. um
að þeim beri að eyða eftir að um-
sækjanda er hafnað. Einnig hef ég
fýrirvara á um hvaða störf er að
ræða, því skilgreiningin um störf
þar sem sýslað er með börn er
mjög víð og rétt að horfa á hvert
mál út frá eðli starfsins."
Sigrún segir það bót í máli að
aðeins skuli veittar upplýsingar úr
sakaskrá. „Þetta væri auðvitað erf-
iðara ef menn ætluðu sér að fiska
upp grunsemdir".
Skrifað undir samning um vímuvarnarfulltrúa. Ev.: Björn Jósef Arnviðarson, sýslumaður, Einar S. Bjarnason, for-
maður sóknarnefndar Akureyrarkirkju, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri og Einar Jóhannsson, varaformaður KA.
VÍJiiiivariiarfulltrúi
ráðinn á Akureyri
Akureyrarbær, Akureyrarkirkja,
embætti sýslumanns og KA hafa
sameinast um ráðningu vímu-
varnarfulltrúa. Samstarfið er til
þriggja ára, en tryggt hefur verið
(jármagn til eins árs, 1,8 milljón-
ir króna frá dómsmálaráðuneyti,
Forvarnasjóði og félagsmála-
ráðuneyti en einnig kemur ijár-
magn frá Akureyrarbæ, Akureyr-
arkirkju og KA, en leitað verður
til fleiri aðila sem vilja leggja
þessu máli lið. Starf vímuvarnar-
fulltrúa verður auglýst á næst-
unni og kemur hann til starfa
með vorinu. Hann á sem mest
að vera á vettvangi en ekki að
baki skrifborðs og samræma
krafta þeirra sem að þessum
málum koma á Akureyri.
Hlutverk vímuvarnarfulltrúa
verður að vinna með öllum þeim
aðilum, einstaklingum, bæjar-
stofnunum og félagasamtökum
sem Ieggja nú þegar og/eða vilja
leggja eitthvað af mörkum til
forvarnarstarfs gegn vímuefnum
á Akureyri. Stofnaður verður 5
manna samstarfshópur sem
jafnframt er stýrihópur að baki
vímuvarnarfulltrúanum. Leitað
verður samstarfs við framhalds-
skólana á Akurevri.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri, sagði að erfitt hefði reynst
að ná þessu samkomulagi. Gott
er að þeir aðilar nái saman sem
að þessu koma í stað þess að
dreifa kröftunum sem væri mjög
ómarkvisst. Einar S. Bjarnason
sagði Akureyrarkirkju stolta að
mega taka þátt í þessu verkefni,
þörfin væri augljós og vonandi
skilaði það árangri sem eftir yrði
tekið. Björn Jósef Arnviðarson,
sýslumaður, segir fíkniefnabrot á
Akureyri færri á árinu 2000 en
árið 1999, en erfitt sé að fullyrða
að þar með hafi fíkniefnaneysla
minnkað. Þó sé Ijóst að mun
færri mál hafi komið upp um
síðustu verslunarmannahelgi en
helgina árið á undan. Upphaf-
lega sóttu Akureyrarkirkja og KA
um styrk til þessa verkefnis, og
það skýrir af hverju Glerárkirkja
og Iþróttafélagið Þór eru ekki
aðilar að verkefninu á þessu
stigi. — GG
Bilskúrshurðir
Iðnaðaroi
bilskúrshuri
Smíðum
eftir máli
gerum /AFLRAS
tilboð
Einhöfða 14 • 110 Reykjavík
simi 587 8088 • fax 587 8087