Dagur - 22.02.2001, Side 15
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2001 - 1S
LAMDlNM
Freyvangi
Það ermikið um að vem bak-
sviðs í leikverkinu Bðfaleik á
Broadway semfrumsýnt verð-
uríFreyvangi um helgina.
íslandsfrumsýning verður á verki Woody
Allens, „Bullets Over Broadway" í Frey-
vangsleikhúsinu næstkomandi laugar-
dag. Verkið er unnið eftir samnefndri
kvikmynd og var leikritsgerð og þýðing í
höndum Hannesar Blandon og Ármanns
Guðmundssonar - að frumkvæði Frey-
vangsleikhússins. Bófaleikur á Broad-
way er viðamikið og íjörugt verk, krydd-
að ótrúlegum uppákomum, dramatík og
kímni, dansi og tónlist. Leikendur eru
vel á annan tug og spanna aldursbilið
frá 17 til 65 ára. Leikstjóri er Há-
kon Jens Waage.
Leikrit í leikritinu
Verkið gerist á bannárunum í
New York og íjallar um leikrita-
skáld sem þráir glæstan frama á
Broadway, en vill jafnframt vera
hugsjónum sínum trúr. Hann
neyðist til að gera ýmsar mála-
miðlanir til að koma verkinu á
fjalirnar og kemst þá að raun um
að heimurinn sem hann býr í er
miklu harðari en hann hafði órað
fyrir. Skyndilega er hann kominn
í félagsskap við Mafíuna, ungar
gjálífisglyðrur og ýmsar útgáfur
af misjafnlega erfiðum leikurum
og einkalíf hans verður jafnframt
sífellt flóknara.
„Þetta er leikrit í leikritinu",
segir Hannes Blandon, annar
þýðenda verksins, „og við fylgj-
umst með því sem fram fer á bak við
tjöldin - horfum á verkið baksviðs, þar
sem fram koma ýmsir mannlegir þættir
og vandamál, svo sem eins og dýrslegar
fýsnir, ofdrykkja og offita. Rithöfundur-
inn í verkinu er náttúrulega Woody
Allen sjálfur, sem er nú alltaf í einhverri
sjálfsskoðun í sínum verkum, en er
þarna að horfa á leikhúsheiminn."
Grinunur heimur listarinnar
Hákon Jens Waage, leikstjóri Bófaleiks á
Broadway hefur áður leikstýrt „Með víf-
ið í lúkunum" í Freyvangsleikhúsinu, en
þá var hann samtímis að leika í „Hart í
bak“ sem Leikfélag Akureyrar sýndi í
Samkomuhúsinu. Hann segir það vera
forréttindi að fá að vinna með áhuga-
leikurum.
„Það er alveg með ólíkindum hvað
Athygli áhorfandans er stöðugt haldið vakandi með nýjum sviðsmyndum sem birtast á þremur
sviðum til skiptis og stundum samtímis. Hér sést annað hliðarsviðið og er sviðsmyndin kaffihús,
þar sem verið er að halda upp á afmæli leikritaskáldsins sem er leikinn afStefáni Guðlaugssyni.
Olive, sem leikin erafHalldóru Magnúsdóttur, vefur mafíósanum Nick Vat-
entine um fingur sér, og þegar hana langar til að verða leikkona, þá kaupir
hann hana bara inn í leikhúsið, leikritaskáldinu til mikillar armæðu.
þetta fólk er efnilegt og duglegt. Þau eru
líka alveg óhrædd við að ráðast í eitt-
hvað nýtt eins og þetta verk til dæmis,
sem þau hafa látið skrifa
fyrir sig og hefur aldrei
verið sett á svið áður.
Það er búið að vera
virkilega gaman að
vinna með þeim.“
- Er höfundur verks-
ins, Woody Allen með
ádeilu á leikara og leik-
stjóra íþessu verki?
„Woody Allen er mik-
ill leikhúsmaður og þykir
mjög vænt um leikhúsið
og ber kvikmyndin „Bul-
lets Over Broadway“
auðsjáanleg merki þess.
Það er mikill undirtónn í
verkinu og einnig tölu-
verð ádeila og það lýsir
mjög vel hversu leiklist-
arheimurinn í Banda-
ríkjunum getur verið
harður, sem hann og er.
Tenging Mafíunnar og leikhúsheimsins
er ekki bara út í loftið, ég þekki líka
þennan grimma heim listarinnar", segir
Hákon.
Þrjú svið
Það er víst óhætt að segja að leiksviðið í
Freyvangi sé gjörnýtt og rúmlega það í
Bófaleiknum og er athygli áhorfendans
stöðugt haldið vakandi með nýjum sviðs-
myndum sem birtast á þremur sviðum
til skiptis og stundum samtímis, auk
þess sem sum atriði fara fram út í áhorf-
endasal.
Eins og fyrr segir eru leikararnir sem
að verkinu koma vel á annan tug, en
með hlutverk leikritaskáldsins fer Stefán
Guðlaugsson, Halldóra Magnúsdóttir
leikur Olive og Helga Ágústsdóttir leikur
Helen Sinclair, leikkonuna sem einu
sinni var stjarna í leikhúsheiminum, en
á nú við drykkjuvandamál að stríða.
Bófaleikur á Broadway verður frum-
sýndur í Freyvangsleikhúsinu laugar-
daginn 24. febrúar kl. 20.30.
-w
Bófaleikur í
Óþekktar víddir
Er ef til vill okkar fjórvíddar tilvera aðeins eyja á hafi margvídda óþekkts
veruleika?
Þau eru mörg
rannsóknarefn-
in sem bíða
þriðja árþús-
undsins. Hvað
er þyngdaraflið
og hvers vegna
breytist það í
heimi hins
smáa? Eru til
nýjar óþekktar
víddir í alheimi
okkar? Eru til
samhliða al-
heimar sem við ekki þekkjum?
Vinna rafsegulkraftarnir og
jafnvel allir kraftarnir fjórir
saman með þeim aíleiðingum
að aðdráttaraílið verður sterk-
ari kraftur en talið hefur verið?
Fram að þessu hefur verið
sagt að aðeins magn efnisins í
alheiminum stjórnaði því hvort
hann hættir að þenjast út og fer
að dragast saman aftur. Er ef til
vill okkar ijórvíddar tilvera að-
eins eyja á hafi margvídda
óþekkts veruleika? Það er erfitt
að sjá að til séu aðrar víddir en
þær fjórar sem við þekkjum.
Fyrsta víddin er aðeins lína,
lengd. Önnur vídd er breiddin,
sú þriðja hæðin. Þessar þrjár
víddir eru í rúmi. Fjórða víddin
er tíminn.
Skáldlegt tal
Þegar menn tala um einhverjar
nýjar víddir er venjulega um
skáldlegt tal að ræða. Þá eru
menn að tala um nýjan skilning
eða nýja sýn. En bæði stærð-
fræðingar og eðlisfræðingar
setja fram kenningar um nýjar
víddir. Hinar þekktu víddir eru
mjög stórar. Tímavíddin spann-
ar ekki minna en þrettán þús-
und milljón ár. Rúmvíddirnar
þrjár gætu verið óendanlegar
en það íjarlægasta sem menn
hafa séð er í tólf þúsund milljón
ljósára Ijarlægð. Víddir geta
líka verið takmarkaðar, þær
geta verið örsmáar.
Tveggja vidda heimur
Hvað þýðir heimur sem hefur
aðeins tvær víddir, til dæmis, og
hvernig væri að búa í slíkum
heimi? Rithöfundurinn Edwin
A. Abbott svarar þessari spurn-
ingu í bók sem hann nefnir
Flatland. í bókinni er söguhetja
sem höfundur kallar A. Sqware.
Þessi söguhetja lifir í tveggja
vídda heimi þar sem aðeins er
til lengd og breidd en hvorki
hæð, dýpt né tími.
íbúar þessa heims eru: Þrí-
hyrningar, Ferhyrningar, Fimm-
hyrningar og svo framvegis.
Þetta er gömul saga en höfund-
ur lætur hana gerast árið 2000.
1. janúar árið 2000 kemur ný
söguhetja í heimsókn. Sú sögu-
hetja er nefnd Teningur. Þetta
er þrívíð vera sem er gjörsam-
lega óþekkt fyrirbæri á
Flatlandi. Teningur kemur úr
veröld sem nefnist Spaceland.
Gesturinn býður Sqware með
sér í ferðalag til þess að sýna
bonum þrívíða tilveru á
Spacelandi. Þegar Sqware hef-
ur skilið hina nýju vídd, hæð
eða dýpt, hvarflar það að hon-
um að hugsanlega kunni að
vera til fleiri víddir sem hvorki
íbúar á Flatlandi né á
Spacelandi þekkja. Hann álykt-
ar að lokum að það sé vel hugs-
anlegt að í þeim alheimi sem
þeir eru hluti af kunni að finn-
ast fjórða víddin og jafnvel
fleiri.
HORN HEIM-
SPEKIIUGSIIMS