Dagur


Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 8

Dagur - 23.02.2001, Qupperneq 8
8- FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2001 2001 T>npir SMÁTT OG STÓRT Skítalyf í mjóLknrtotum Fyrir mörgum árum var kunngjörð á fundi sú gagngera breyting á mjólk- ursölumálum Kaupfélags Þingeyinga (blessuð sé minning þess), að mjólk yrði ekki lengur seld kaupendum í fötum, heldur gerilsneydd á flöskum og yrði vökvinn jafnframt dýrari fyrir vikið. Þá stóð upp maður einn, hraust- menni mikið sem hafði oft unnið óþrifastörf um dagana. Hann sagði hreinlætið of dýru verði keypt og kvaðst ekki hafa verið kvillasamur um dagana þótt etið hefði mikinn skít. Lyf væru líka unnin úr skít og mykju og fyndust sér því allir milliliðir óþarfir og því mótmælti hann þessum flutningi á mjólkinni úr fötum yfir á rándýrar glerflöskur. Hagyrðingurinn Egill Jónasson var á fundinum og kvað að bragði: Læknarnir bregðast lýðsins vonum lyfin þeir brugga einskis nýt. I stað þess að segja sjúklingonum að sitja heima og éta skit. UMSJÓN: JOHANNES SIGURJÓNSSON <hannes@simnet.is „Það er rangt sem stjórnmálamenn segja ungum at- kvæðum; að æskan i dag sé efnilegri en fyrri æskur. Hún er vitlausari ef eitthvað er. Æskan er ekki framtíðin. Fram- tíðin kemur þegar fólk lætur af æsku sinni.“ - Gunnar Smári Egilsson, í bíógagnrýni í DV. Lygin uni löngu biðraðimar Þegar kommúnistar réðu ríkjum í austurblokkinni var mikið fjallað um vöruskort og langar biðraðir við verslanir þar eystra. Um þetta flutti Mogg- inn m.a. daglegar fréttir. Stalínisti af gamla skólanum fyrir norðan var yfir sig hneykslaður á þess- um fréttaflutningi sem hann kvað vera örgustu lygi. „Biðraöir í Póllandi? Ef menn hugsa niálið þá sjá þeir að ekki er fræðilegur möguleiki á bið- raðamyndun í Póllandi. Það vita það allir að þar er mönnum bannað að koma saman fleiri en tveimur í senn og sömuleiðiser fólki harðbannað að tala saman lengur en í 3 mínútur á götum úti. Þannig að ef biðröð tæki að myndast þá myndi öryggislögreglan kæfa hana í fæðingu. Þess vegna eru allar sögur um biðraðir fyrir austan haugalygi og bara Iævís áróður íhalds- aflanna til að koma óorði á frelsiselskandi kommúnista." Báöir óviðjafnanlegir Einar Njálsson, núverandi bæjarstjóri í Grindavík, var vinsæll útibússtjóri Samvinnubankans og síðar bæjarstjóri á Húsavík hér áður fyrr á árunum. Einar auglýsti eitt sinn trausta Malibu bifreið sína til sölu með þeirn orð- um að nú væru síðustu forvöð að eignast glæsilega rennireið bankastjór- ans. Guðmundur G. Halldórsson, fyrrverandi hrognakaupmaður með meiru, las þessa auglýsingu og kvað: Malibúinn hesta stáls, brýst þó kárni vegur. Hann er eins og Einar Njáls óviðjafnanlegur. FÍNA OG FRÆGA FÓLKIÐ Eminein í sviðsljósinu Hinn umdeildi rappari Eminem var þungamiðjan í Grammyverðlaunaathöfninni í fyrrakvöld þó svo að á endanum hafi hann ekki hreppt stóra vinn- inginn sem var að eiga bestu plötu ársins. Sá heið- ur hlotnaðist gamla dúóinu í Steely Dan. En Eminem fékk engu að síður þrenn verðlaun fyrir rapp á hátíðinni, þó tvö þeirra hafi verið í hópi þeirra sem ekki var sjónvarpað frá. Og það sem meira var umræðan snerist meira og minna um Eminen, tónlist hans og skoðanir og hvað mönn- um fannst um að hann væri þarna á svæðinu með allar þessar tilnefningar. Þannig má segja að hann hafi verið í algerðu aðalhlutverki bæði hjá þeim sem dá hann og eins hjá hinum sem fyrirlíta hann! Eminen sem er 28 ára gamall og einn af fáum hvítum röppurum hefur gert lítið úr Grammy- verðlaunaafhendingum í Iagi á plötu og því kom það nokkuð á óvart þegar hann tilkynnti á sínum tíma að hann myndi yfir höfuð verða viðstaddur svona „betri borgara" samkomu. Þá vakti það ekki síður furðu þegar í Ijós kom að hann ætlaði ekki einvörðungu að mæta, heldur að hann ætlaði að syngja dúett með Elton John sem er yfirlýstur hommi, en Eminen er þekktur fyrir fjandsamlega texta í garð homma. Nema hvað í fyrrakvöld sungu þeir lagið „Stan" þar sem Elton John var á píanóinu og söng undir í viðlaginu en Eminem söng lagið og túlkaði þannig að mikla hrifningu vakti. Fengu þeir mikið klapp og viðstaddir risu úr sætum. Þá féllust þeir í sögulegt faðmlag og ýms- ir þótttust sjá að Eminem „gæfi áhorfendum fing- urinn“ í því faðmlagi! Og öðrum tónlistarmönnum á svæðinu sýndist sitt hvað um þessa uppákomu. Faömlagið sögulega, þar sem hinn „ hómófóbíski“ Eminem faðmar hommann Elton John. Teknó-rokkarinn Moby sagði einfaldlega að þetta væri söngur „hómófóbísks" kynþáttahatara, en hann virti rétt hans til að tjá sig opinberlega. Ann- ar helmingurinn úr Steeley Dan, Donald Fagen, sem hafði ekki fyrr séð eða heyrt mikið af Eminem sagðist hins vegar vera impóneraður fyrir sviðs- framkomunni og að Eminem væri góður leikari. YMISLEGT Fjármálaráðstefnan verður 10. mars Fjármálaráðstefna vegna rekstarvanda íþróttahreyfingarinnar, sem framkvæmdastjórn ISI samþykkti á fundi sínum í desember s.l. að boða til nú á vormánuðum, verður haldin í Bíósal Hótel Loftleiða faugardaginn 10. mars n.k. Dagskrá ráðstefnunnar, sem er opinn öll- um, er viðamikil og er áætlað að hún muni standa fram til kl. 14:30. Ellert B. Schram, forseti ISl, mun setja ráðstefnuna kl. 10:00 og síð- an mun Björn Bjarnason, menntamálaráðherra ávarpa ráðstefnu- gesti. Þar næst mun Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSI, ræða fjárhagsstöðu hreyfingarinnar, áður en þau Pétur H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKl, Gunnar Jónsson, framkvænidastjóri knatt- spyrnudeildar KA og Anna María Valtýsdóttir, formaður Fimleikafé- lagsins Bjarkar, ræða um rekstur og fjárhagsstöðu íþróttafélaga og sérsambanda. Þá mun Stefán Eggertsson, læknir, ræða málin frá sjónarhóli íþróttaáhugamannsins og Gisli Gíslason, bæjarstjóri Akra- nesi, frá sjónarhóli sveitarstjórnarmannsins og Ioks alþingismennirn- ir Hjálmar Árnason og Þorgerður K. Gunnarsdóttir frá sjónarhóli stjórnmálamannsins. Eftir það mun Hrannar Hólm, stjórnandi hjá KPMG ráðgjöf og formaður körfuknattleiksdeildar Keflava'kur, ræða hvað sé til ráða í stöðunni, áður en umræður fara fram og ráðstefnu- gestir fá tækifæri til að bera fram fyrirspurnir. Steinunn Valdís Osk- arsdóttir, formaður ITR verður ráðstefnustjóri. Fortíðarvandi og uppsafnað tap fyrri ára Mikill rekstarvandi íþróttahreyfingarinnar er löngu kunnur og því að mati framkvæmdastjómar kominn tími til að ræða málin gaumgæfi- lega með forystumönnuin í hreyfingunni og því ákveðið að boða til áðurnefndrar fjármálaráðstefnu. I greinargerð frá framkvæmdastjóm ÍSÍ um málið, segir að vandanum megi skipta upp í tvo flokka, ann- ars vegar rekstrarvanda j'þróttafélaganna í landinu og hins vegar rekstrarvanda sérsambandanna. Þar segir einnig: „Rekstur íþróttafé- laga, sérstaklega í efstu deildum boltagreinanna, gengur almennt afar illa. Árið 1994 og 1995 gerði ÍSÍ viðamikla úttekt á fjármálum félaganna og kom þá í ljós að rekstur þeirra var nálægt og yfir hættu- mörkum. Um orsakir þess vanda er þá Iá fyiár, sagði í skýrslu sem gef- in var út af hálfu framkvæmdastjórnar, að crfiðleikar rekstursins lægju ekki í rekstri ársins heldur væri um að ræða forti'ðarvanda, uppsafnað tap fyrri ára. Ástæðan virtist oft vera sú að stjórnarmenn hefðu keyrt áfram með of mikilli bjartsýni og með von urn að þetta „reddaðist allt einhvern veginn“. I skýrslunni kom einnig fram: „Tíð stjórnarskipti í deildunum hafa líka sín áhrif. Menn sem valist hafa til forystu eru oft metnaðarfullir, stefna hátt og ætla að standa sig vel. Boginn er spenntur til hins ítrasta. Skuldbindingar eru miklar, þjálf- arar eru ráðnir, nýir leikmenn fengnir eða keyptir, æfingaaðstaða er bætt og ferðast er til útlanda. Árangurinn lætur síðan oft á sér stan- da. Aðsóknin verður minni en björtustu vonir gerðu ráð fyrir og mik- il samkeppni er ríkjandi á auglýsingamarkaðnum. Oll tekjuöflun er erfið. Niðurstaðan er því hallarekstur. Stjórnin hættir, ný stjórn er kjörin, ný markmið eru sett og sagan endurtekur sig.“ í raun má segja að þessi lýsing þeirrar nefndar sem skilaði skýrslu til framkvæmda- stjórnar og íþróttaþings 1996, eigi við nú. Mál þetta var rætt mikið á íþróttaþinginu 1996 og áfangaskýrsla var lögð fram á sameiningar- þingi ÍSÍ og Óí árið 1997.“ Davíð sigraði með fullu húsi stiga Davíð Ólafsson sigraði með yfirburðum á Meistaramóti Hellis í skák sem lauk í fyrrakvöld. Davíð, sem sigraði með fullu húsi stiga, hafði þegar tryggt sér sigurinn eftir sjöttu og næstsíðustu umferðina, en þá vann hann sigur á Sigurbirni J. Björnsson og tryggði sér þar með tit- ilinn „Skákmeistari Hellis 2001.“ 1 sjöundu og si'ðustu umferðinni vann Davíð síðan sigur á Sævari Bjarnasyni, alþjóðlegum meistara, en Sævar hafnaði í 2. - 5. sæti. Þetta er í fyrsta skipti sem Davíð vinnur meistaratitil Hellis, en oft- ast hefur Björn Þorfinnsson unnið titilinn, eða alls þrisvar, þrjú ár í röð 1997-’99, en í fyrra sigraði Davíð Kjartansson. LokasUiðan: 1 Davíð Ólafsson 7 2-6 Sig. Daði Sigfússon 5 2-6 Sigurbj. J. Björnsson 5 2-6 Róbert Harðarson 5 2-6 Sævar Bjarnason 5 2-6 Jón Árni Halldórss. 5 7-10 Björn Þorfinnsson 4.5 7-10 Þorvarður F. Ólafss. 4.5 7-10 Baldur A. Kristinsson 4.5 7-10 Kjartan Guðmundss. 4.5 Dregið í afmælishappdrætti Breiðahliks Dregið hefur verið í afmælishappdrætti Breiðabliks og eru vinnings- númerin þessi: 1. vinningur, Toyota Yaris, miði nr. 1932 2. vinningur, Kanaríferð fyrir 2 með Urval-Utsýn, miði nr. 10930 3. vinningur, Kanaríferð fyrir 2 með Plúsferðum, miði nr. 33 4. vinningur, Philips 29“ sjónvarp, ELKÓ, miði nr. 6813 5. vinningur, Ferðavinningur með Urval-Utsýn, miði nr. 295 6. vinningur, Fiesta stórveislugrill frá ESSÓ, miði nr. 808 7. vinningur, Fiesta gasgrill frá ESSÓ, miði nr. 5991 8-20 vinningar ELU hleðsluboi-vélar frá BYKO, miðar nr: 388, 1472, 1717, 3118, 3479, 5448, 5722, 5938, 6097, 8110, 8122, 8577, 9482. Vinninganna má vitja hjá Breiðabliki í Smáranum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.