Dagur - 23.02.2001, Blaðsíða 11
l^w-
FÖSTUDAGVR 23. FEBRÚAR 2001 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Hillary Clinton kveðst leið yfir hlut bróður síns í náð-
unarmálinu.
Bróðirinn Hugh Rodam, sem þáði fé fyrir að aðstoða
menn við að fá náðun.
Bush endurskoðar
stefnu sína til náðana
Náðanir Clmtons á
síðustu staxfsdögum
hans draga dilk á eft-
ir sér og nú er George
W. Bush húinn að fyr-
irskipa endurskoðun
á eigin stefnu varð-
andi náðanir.
Embættismenn í Hvíta húsinu í
Washington tilkynntu í gær að
þar færi nú fram endurskoðun á
þeirri stefnu sem Bushstjórnin
hefði komið sér upp varðandi
náðanir sakamanna. Talsmaður
forsetans vildi ekkcrt segja um
það mikla fjaðrafok sem náðanir
Bills Clintons á síðustu dögum
sínum á forsetastóli hafa valdið.
„Við höfum öðrum hnöppum að
hneppa," sagði talsmaðurinn
einfaldlega.
Frú Clinton leið
Hillary’ Rodham Clinton, öld-
ungadeildarþingmaður og eigin-
kona Bills Clintons fyrrum for-
seta sagðist í gær vera afar von-
svikin yfir þætti hróður síns,
Hugh Rodam í því að hafa þegið
laun fyrir að vinna að því að tveir
menn yrðu náðaðir af forsetan-
um á síðustu dögum hans í emb-
ætti. „Þessi tíðindi, sem komu
mér gjörsamlega í opna skjöldu
ollu mér miklum vonbrigðum og
sorg,“ sagði hún.
Clinton viðurkenndi fyrr í vik-
unni að tveir þeirra manna sem
hann náðaði á síðasta degi sín-
um í embætti hafi greitt háar
upphæðir til mágs hans, bróður
Hillary, en Clintonhjónin
þvertóku fyrir að þau hefðu fyr-
irfram haft nokkra hugmynd um
að bróðirinn hafi fengið þessa
peninga hjá mönnunum. Þau
hafi krafist þess af bróðurnum
að hann skilaði peningunum aft-
ur og hann mun nú hafa gert
það.
Mörg spumingarmerki
Þetta síðasta mál hefur enn
fjölgað þeim spurningarmerkj-
um sem að undanförnu hafa
hrannast upp í kringum náðun
Clintons á sakamönum undir
lok forsetaferils síns, þó stærsta
málið sé hiklaust mál milljóna-
mæringsins Marx Rich sem hef-
ur nú orðið til þess að opinber
lögreglurannsókn á málinu er
hafin.
Það hefur því vakið athygli að
George W Bush skuli nú vera
farinn af stað með endurskoðun
á náðunarstefnu sinni, en A1
Gonzales sem er sérlegur trún-
aðarlögfræðingur forsetans í
dómsmálaráðuneytinu hefur nú
fengið það verkefni að fara yfir
þessi náðunarmál. Því er þó al-
farið neitað í Hvíta húsinu að
þessi endurskoðun sé til komin
vegna þeirra vandræða sem
Clinton hefur ratað í. Hins veg-
ar viðurkenna talsmenn forset-
ans að vissulega gefi hneykslis-
mál Clintons þeim vísbendingar
um hvað sé hægt að gera og þó
sérstaklega hvað sé ekki hægt að
gera.
HEIMURINN
Stríösglæpanauögim
HAG - Þrír fyrrum foringjar i nersveitum Bosníu-Serba hafa verið
sakfelldir fyrir glæpi gegn mannkyninu hjá Stríðsglæpadómstól Sam-
einuðu þjóðanna. Þeir voru fundnir sekir um að hafa nauðgað,
hneppt í þrældóm og pínt Múslimakonur og stúlkur árið 1992.
Mennirnir þrír fengu fangelsisdóma sem voru á bilinu frá 12 árum
til 28 ára. Þetta eru fyrstu réttarhöldin fyrir stríðsglæpadómstólnum
þar sem nauðgun cr meðhöndluð sem glæpur gegn mannkyninu.
„Nauðgun var notuð sem aðferð hersveita Bosníu-Serba til að búa til
skelfingu og hræðslu," sagði dómarinn Florence Mumba eftir að
hafa kveðið upp dóminn. „Þessir menn eru ekki venjulegir hermenn
sem misst hafa siðferðisviðmið sín vegna stríðsástands.... þeir eru
menn sem hafa þrifist í því myrka andrúmslofti þar sem meintur
óvinur er með kerfisbundnum hætti auðmýktur og reynt að svipta
hann mennsku sinni," sagði dómarinn ennfremur
Enn engin ríMsstjóm
JERUSALEM - Verðandi forsætisráðherra Isra-
el, Ariel Sliaron, lenti í nokkrum hremmingum í
gær með stjórnarmyndun sína, en hann stefnir
að því að mynda þjóðstjórn í landinu. Nokkrir
áhrifamiklir flokksmenn innan Verkamanna-
flokksins gerðu það að stórmáli og mótmæltu
harðlega að Sharon hygðist hafa með f rík-
isstjórninni nokkra fulltrúa smáflokka á hægri
væng ísraelskra stjórnmála. Þetta er nokkuð áfall
fyrir Sharon því hann hafði vonast til að geta ver-
ið búinn að mynda stjórnina og þar með að vera
orðinn formlegur forsætisráðherra áður en hann
hittir Colin Poweli utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna að máli nú um helgina.
Líran sett á flot
ANKARA - Tyrknesk stjórnvöld ákváðu í gær að setja tyrknesku
Iíruna, gjaldmiðil landsins á flot til þess að forða því að fjár-
málakreppa brysti á í landinu. Ákvörðunin um fljótandi gengi hefur
aftur á móti orðið til þess að auka þrýsting á Bulent Ecevit forsætis-
ráðherra um að stokka upp í stjórn sinni, enda sé þetta til marks um
að fyrri peningamála- og gengisstefna hafi verið röng. Ecevit lýsti því
yfir í gærmorgun að hann ætti von á því að gjaldeyrismarkaðurinn
ætti eftir að róast þegar Iíða tæld á daginn, en sú von hans gagnaðist
þó lírunni lítið enda féll hún um tæp 30 % gagnvart Bandaríkjadoll-
ar í gær.
Græningi neitar misnotkun
PARIS - Daniel Cohn-Bendit, sem er leiðtogi franskra græningja á
Evrópuþinginu hefur neitað því að hann hafi misnotað börn, sem
ungur maður þrátt fyrir að hann hafi á sínum tíma skrifað grein þar
sem hann gefur sterklega í skyn að hann hafi átt náin kynni við börn
undir aldri. Cohn-Bendit, sem er fæddur í Þýskalandi er býr í Frakk-
landi og var einn af forsprökkunum í stúdentauppreisninni 1968,
vann á sínum tíma á barnaheimili og skrifaði svo grein um það
hvernig samskipti hans við börnin hefðu þróast yfir í það að fá á sig
erótískan blæ. Þessi grein var birt í þýsku tímariti árið 1975 og hef-
ur nú skotið upp kollinum á ný eftir að Cohn -Bendit varð frægur á
ný. Sjálfur segir hann að þetta hafi verið „flipp“ skrif og þau hafi ekki
átt neina tilvísun til raunveruleikans.
Ariel Sharon verð-
andi forsætisráð-
herra ísrael.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR
54. dagur ársins, 311 dagar eftir.
Sólris kl. 8.56, sólarlag kl. 18.28.
Þau fæddust 23. fébrúar
• 1463 Giovanni Pico della Mirandola,
ítalskur heimspekingur.
• 1685 George Friedrich Hándel, þýskt
tónskáld.
• 1836 Winslow Homer, bandarískur
Iistmálari.
• 1934 Bettino Craxi, ítalskur stjórn-
málamaður.
• 1943 Johnny Winter, bandarískur tón-
listarmaður.
• 1955 Steven P. Jobs, stofnandi tölvu-
fyrirtækisins Apple.
• 1960 Helga Soffía Konráðsdóttir prest-
ur.
Það er auðveldara að berjast fy'rir lífs-
reglum sínum en að fara eftir þeim.
Alfred Adler
Þetta gerðist 23. febrúar
• 1836 hófst sögufrægt umsátur
mexíkóska hersins undir forystu forseta
Mexíkós um virkið í Alamo í Texas.
• 1919 stofnaði Benito Mussolini fasista-
flokkinn á Italíu.
• 1942 gerði japanskur kafbátur árás á
Kaliforníu.
• 1979 voru menningarverðlaun Dag-
blaðsins veitt í fyrsta sinn.
• 1981 gerðu Antonio Tejero Molina Iiðs-
foringi og tvö hundruð hermenn hans
tilraun til stjórnarfy’ltingar á spænska
þinginu, en sú bylting stóð aðeins í 18
ldukkustundir.
Vísa dagsins
Hrósa flugur haugunum,
hre)’stidugur taugunum,
dimmar smugur draugunum,
deildarbugur augunum.
Bólu-Hjálmar
Afmælisbarn dagsins
Peter Fonda var einu sinni ungur töf-
fari og vinsæll leikari, sonur annars
ennþá frægari leikara, Henry Fonda,
og bróðir Jane Fonda. Hans frægasta
verk er ennþá mótorhjólamyndin
Easy Rider, þar sem hann var bæði
leikari, handritshöfundur og fram-
Ieiðandi. Hann hefur verið að leika í
bíómyndum og sjónvarpi allt fram á
þennan dag. Peter Fonda fæddist í
New York árið 1939. Frásagnarvert
má teljast að tíu ára gamall skaut
hann sig óvart í magann með byssu.
Heilabrot
Eftirfarandi bókstafir eiga allir eitt ein-
kenni sameiginlegt: S, H, O, N, 1, X. Auk
þessara stafa er einn bókstafur í viðbót sem
hefur þetta sama einkenni. Hvaða stafur er
það?
Síðasta gáta endurbirt: Þorv’arður lagði
dag nokkurn leið sína inn í verslun þar sem
hann spurði eftir ákveðinni vörutegund.
Varan var til. „Hvað þarf ég að borga fyrir
fimm?“ spurði Þorvarður. „Fjögur hundruð
krónur,“ sagði afgreiðslumaðurinn. „En
hvað þarf ég þá að borga fyrir átta?“ spurði
Þorvarður þá. „Það gera einnig fjögur
hundruð krónur," sagói afgreiðslumaður-
inn. „En ef ég vil tíu, hvað þarf ég þá að
borga?" spurði Þorvarður loks. „Þá þarftu
aðeins að borga þrjú hundruð krónur,"
sagði afgreiðslumaðurinn. Nú er spurt:
Hvaða vöru var Þorvarður að spyrja um?
Svar: Hann hcfur væntanlega þurft að
nota stafina á einhvers konar skilti.
„FIMM“ eru fjórir bókstafir, og ef hver
bókstafur kostar hundrað krónur þá þarf
hann að borga 400. „ATTA“ eru líka fjórir
bókstafir, en „TIU“ eru aðeins þrír og kosta
því ekki nema 300.