Dagur - 23.02.2001, Síða 19

Dagur - 23.02.2001, Síða 19
LEIKHUS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR Gunnþóra ■ Valdís Gunnarsdóttir B Viðars FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2001 - 19 Spaðaball í KafmeiMiúsinu Spaðarnir á góðri stundu. Þeir munu halda uppi fjöri í Kaffileikhúsinu íkvöld með baikanpoppi, irskum danslögum, amerískri sveitatónlist og eigin lagasmíðum. Hljómsveitin Spaðar leikur í’yrir dansi í Kaffileikhúsinu í la'öld föstudagskvöld, og er hér á ferð- inni hið árlega „Spaðahall". Spað- arnir eru að verða vel þekkt gáfu- mannahljómsveit sem þó kemur ekki mjög oft fram. Einn burðar- meðlima hljómsveitarinnar er Guðmundur Guðmundsson gítar- leikari og samkvæmt upplýsing- um frá honum eru Spaðar eins konar saumaklúbbur sem hittist einu sinni í viku á Ránargötunni. „Stundum eru hljóðfærin tekin upp og stundum ekki. Stundum eru þau stillt og stundum el<ki. Hljómsveitin var stofnuð fyrir þrjátíu árum og man enginn leng- ur til hvers. Uppistaðan í tónlist- inni hefur ávallt verið sú sama, balkanpopp, írsk danslög, amerísk sveitatónlist og eigin lagasmíðar. Með árunum hefur hraðinn smám saman minnkað og er nú svo komið að hver sem er ætti að ráða við að fá sér snúning," segir Guðmundur. Talsverð hreyfing hefur verið á meðlimum sveitarinnar í gegnum árin, en á ballinu í Kaffileikhús- inu munu þessir skipa hana: Að- algeir Arason mandólín, Guð- mundur Guðmundsson gítar, Guðmundur Ingólfsson kontra- bassi, Guðmundur Pálsson fiðla, Guðmundur Andri Thorsson söngur, Gunnar Helgi Kristinsson harmonika, Hjörtur Hjartarson klarinett og þverflauta, Kristinn Pétur Magnússon söngur, Magn- ús Haraldsson gftar og Sigurður Valgeirsson trommur. Saga Spaða En þótt Guðmundur Gðmunds- son segi að enginn muni hvers vegna sveitin var stofnuð þá er ýmsar upplýsingar um það mál að finna á heimasíðu Spaðanna. Þar segir m.a. „Spaðar voru stofnaðir í janúar 1983 af nokkrum ungum mönnum sem höfðu verið að leika sér á hljóðfæri hver í sínu horni eða saman í minni hópum. Magnús Haraldsson gítarleikari og Guðmundur Ingólfsson bassa- leikari störfuðu saman í dúettin- um Lighthomers, og með Guð- jóni Grétari Oskarssyni söngvara, Guðmundi „litla jaka" Guð- mundssyni gítarleikara og Ragn- ari Pikkaló trommara í bílskúrs- hljómsveitinni DC 10. Gunnar Helgi Kristinsson bafði lært á píanó frá unga aldri og spil- aði m.a. með hjómsveitinni Trash á árum áður. Guðmundur Andri Thorsson dundaði sér \dð að semja sögur í anda Guðrúnar frá Lundi og viö að þýða blústexta. Guðmundur Guðmundsson spil- aði blúsa fyrir sjálfan sig og þá sem vildu heyra en kom ekki ná- lægt neinu sem tengdist músík eftir 1970. Aðalgeir Arason var eitthvað að glamra á gítar og fékk öðru hverju lánuð einhver skrýtin hjóðfæri hjá Nonna bróður sín- um. Guðmundur Ingólfsson bjó svo vel að eiga Sony sound-on-sound segulbandstæki og tók upp ýmis hugverk f\-rrgreindra rnanna, eins eða fleiri í senn. Brátt sáu þessir ungu menn að það var ekkert sniðugt að hver væri að spila í sínu horni þar sem hæfileikar og hugmyndaauðgi allra gætu leitt til einhvers ennþá meira og stórkost- legra. Þar með voru Spaðar stofn- aðir.“ Ballið í Kaffileikhúsinu hefst kl. 23:00 og stendur til 02:00 en húsið opnar 22:00. Miðaverð er 500 kr. Berfætlingamir 1 Samkoimuiúsmu Leikritið Berfætlingarnir fjallar um leitina í brjósti mannsins, leitina að sjálfum sér og tilgangi lífsins, og hversu okkur er gjarnt að villast á þeim vegi. Myndin er af leiklesurunum Fmmflutt verður leíkrit- ið Beifætlingamir í Samkomuhúsinu um helgirn. Það erlíklega einsdæmi að frumflutt sé leikverk eftir9S ára gamaltleikskáld. Leikfélag Akureyrar í samvinnu við MENOR og Leikfélag Sauð- árkróks stendur fyrir sviðsettum leiklestri í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri næstkomandi laugardags- kvöld 24. febrúar á leikritinu Ber- fætlingarnir eftir Guðmund L. Lriðfinnsson. Leikstjóri verksins er Skúli Gautason og sér hann jafnframt um útlit leiklestursins. Lesturinn er sviðsettur að vissu marki - með lágmarks leikmynd, búningum og Ijósum. Leikarar eru: Þráinn Karlsson, Saga Jóns- dóttir, Aðalsteinn Bergdal, Valgeir Skagfjörð, Þorsteinn Bacbmann, Hinrik Hoe Harlaldsson, Þóranna Kristín Jónsdóttir, Sigríður E\túii Friðriksdóttir, Bragi Haraldsson og Guðbrandur Guðbrandsson. Tveir síðastnefndu leikararnir koma Irá Leikfélagi Sauðárkróks. Allir hinir frá Leikfélagi Akureyrar. AíliíisíainikiII rithöfundur Guðmundur L. Friðfinnsson fagnaði 95 ára afmæli sínu í des- ember síðastliðnum og jafnframt átti hann 50 ára rithöfundaraf- mæli á sl. ári. Guðmundur er fæddur á Egilsá í Skagafirði 9. desember 1905. Hann hefur alla tíð verið búsettur á Egilsá og stundaði þar búskap samhliða rit- störfum, sem hann hefur jafnan sinnt í hjáverkum. Kona hans var Anna Sigurbjörg Gunnarsdóttir (d. 1982) og eignuðust þau þrjár dætur. Um langt árabil ráku þau hjónin barnaheimili á Egilsá. Síð- ari árin hefur Guðmundur stund- að skógrækt á jörð sinni. Guðmundur hefur verið af- kastamikill rithöfundur um dag- ana og fengist við allar höfuð- greinar ritlistar. Komið hafa út eftir hann 15 bækur um fjöl- breytileg efni, þær fyrstu árið 1950. Fyrir ritverk sitt Þjóðlíf og þjóðhættir (1991) hlaut Guð- mundur Davíðspennan, heiðurs- verðlaun Félags íslenskra rithöf- unda 1992. Er það ritverk mikið stórvirki og var jafnframt tilnefnt til Islensku bókmenntaverðlaun- anna. Guðmundur hefur skrifað nokkur framhaldsleikrit fyrir börn og unglinga og hafa tvö þeirra verið flutt í útvarpi - og einn stuttur þáttur í sjónvarpi. Þá hafa birst eftir Guðmund margar smá- sögur og ljóð í blöðum og tímarit- um, og nokkrar sögur hefur hann lesið upp í útvarpi. Vekur upp spurningar Leilsritið Berfætlingarnir fjallar um Ieitina í brjósti mannsins, leit- ina að sjálfum sér og tilgangi lífs- ins, og hversu okkur er gjarnt að villast á þeiin vegi. Samtöl verks- ins eru víða gamansöm á yfir- borðinu og ærslafengin, en undir- tónninn er alvarlegur. Leikritið vekur upp spurningar um mark- mið og tilgang, og gefur til kvnna að með því að varðveita barnið í okkur sjálfum öðlumst við ham- ingjuna. Flutningur verksins fer eins og f\'rr segir fram í Samkomuhúsinu á Akureyri og hefst hann kl. 20.00. Athugið að aðeins er um þessa einu sýningu að ræða. Að- gangseyrir er kr. 500. UM HELGINA og fegurdiii iii iui ixkja ein.“ „Veit duftsins son nokkra dýr- legri sýn ...“, spurði Einar Benediktsson þegar hann sá norðurljósin, löngu áður en sú sögn fór á kreik, að þau hefðu síðar Hulda. oröið að sölu- varningi í höndum hans. Erlingur Sigurðarson mun á ljóðakvöldinu á Sigur- hæðum í kvöld spjalla um fegurðina í íslenskum kveð- skap, og fara með Ijóð eftir helstu málara í skáldahópi. Auk Einars skal fyrstan telja hinn síunga Jónas Hallgríms- son - sem eins og allir vita orti það ljóð sem fegurst hef- ur verið kveðið á íslenska tungu! Huldu skáldkonu eða Unni Benediktsdóttur Bjarklind sem víða í ljóðum sínum dró nærfærnum orð- um upp undurfagrar náttúru- myndir. Snorra Hjartarson sem sá : „I morgun þegar sól af fjallsbrún flaug / og felldi úr rauðum vængjum gullinn dún / á daggarblámans djúpu himinlaug...". Og ekki verður fegurðarinnar notið til fulls í kveðskap samtíðar og fram- tíðar nema að koma við í blá- um dölum Hannesar Péturs- sonar um sumarnótt í Skaga- firði. Dagskráin hefst kl. 20.35 og stendur í tæpa klukku- stund. Hús skáldsins er opið kl. 20-22. Gerir upp við Pétur Gaut Gunnar Eyjólfsson verður 75 á morgun, laugardaginn 24. febrúar og af því tilefni ætlar bann að flytja einleik á Stóra sviðinu kl. 20.00, Einleikinn hefur hann kosið að nefna Uppgjör \ið Pétur Gaut. Gunnar flytur valda kafla úr þessu stórbrotna verki og tengjast þeir flestir á einn eða annan hátt konunum í Iífi Pét- urs Gauts. Flutningurinn tek- ur um eina og hálfa klukku- stund. Gunnar Iék Pétur Gaut í Þjóðleikhúsinu 1962 og þá vakti þessi ungi leikari gífur- lega athygli og hrifningu. Nú gcrir hann endanlega upp \ið þessa stór- brotnu per- sónu, tæplega fjörutíu árum síðar. Höfundur Pétur Gauts er Henrik Ibsen og þýðandi Gunnar verksins er Eyjólfsson. Einar Bene- diktsson. Ljósameistari Þjóðleikhússins, Páll Ragnars- son hannar lýsingu við einleik- inn og Þórhallur Sigurðsson hefur umsjón með uppfærsl- unni. v___________________________/

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.