Dagur - 09.03.2001, Qupperneq 1
Ofurálag á versl-
imarstarfsmenn
Sumtr starfsmaima á
Glerártorgi verða að
vinna sjö daga vik-
uimar. Ekki hægt að
bjóða fólki upp á slíkt
að mati formanns
Kaupmannasamtak-
anna á Akureyri,
Oeining er meðal kaupmanna í
verslunarmiðstöðinni Gleráreyr-
um á Akureyri um hvort verslan-
ir skuli almennt opnar á sunnu-
dögum. Ragnar Sverrisson, for-
maður Kaupmannasamtaka Ak-
ureyrar, segir dæmi hjá minni
verslunum klasans, um að starfs-
menn þurfi að vinna sjö daga í
viku og slíkt álag sé einfaldlega
ekki hoðlegt.
Glerártorg skiptist í nokkrar
stærri verslanir, s.s. Nettó, Byko
og Rúm-
fatalagerinn
en einnig
smáar eining-
ar. Mikið
hagsmunamál
er t.d. hjá að-
standendum
Nettó að hafa
matvöruversl-
unina opna
alla daga vik-
unnar og hef-
ur verið leitað
cftir sem
breiðastri
samstöðu um
að almennt
væri opið alla daga vikunnar.
Ragnar rekur sjálfur verslun á
Glerártorgi og segist hann hafa
sætt sig við ákvörðun meirihlut-
ans um að allir hefðu opið á
sunnudögum þótt tvær undan-
tekningar séu frá þessu. Hins
vegar neiti hann því ekki að ef
hann hefði
frjálst val,
myndi hann
hafa lokað á
sunnudög-
um, enda sé
öllum nauð-
synlegt að
eiga a.m.k.
einn frídag í
viku.
Ragnar
rifjar upp að
fyrir 10 árum
hafi hann
veriö í hópi
þeirra fyrstu
að hafa opið
eins og tvo sunnudaga í desem-
ber fyrir jólin. Þá hafi slík
ákvörðun mætt mikilli gagnrýni
en nú séu breyttir tímar.
Ekki kvartað
Páll H. Jónsson, varaformaður
Félags verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri, segist ekki
kannast við kvartanir urn að fólk
á Gleráreyrum sé skyldað til að
vinna meir en það sjálft kýs.
A.m.k. eigi það ekki við um
óbreytta starfsmenn en hitt
kunni að vera rétt að eigendur og
stjórnendur vinni meir en góðu
hófi gegnir. Ef almennir starfs-
menn séu beönir um að vinna
heila helgi, eigi þeir rétt á fríi í
kjölfarið. Einu málin sem komið
hafi á borð félagsins í þessum
efnum hafi lotið að hvíldartíma
og þá aðeins fyrst eftir að klasinn
tók til starfa.
Sjálfur segist Páll vera andvíg-
ur sunnudagsopnun og hvað sér-
vöru varði sem dæmi, telji hann
að bæjarbúar myndu kaupa nán-
ast jafnmikinn varning á sex dög-
um og annars er seldur á sunnu-
dögum einnig. Hins vegar líti
menn mjög til aökomufólks,
þ.e.a.s. ferðamanna þegar
sunnudagsopnun sé ákveðin. - BÞ
Ósagt skal látið hvort þessi starfsstúlka
vinnur alla daga vikunnar en dæmi eru
um slíkt í verslunarklasanum á Gler-
áreyrum á Akureyri. mynd brink
Hugvallar-
málskoðað
I gær hófu ýmis félög og stofn-
anir sem hafa tckið þátt í flug-
vallarumræðunni að kvnna hug-
mvndir sínar í básum í
Ráðhúsinu. Einnig var opnuð
söguleg yfirlitsýning um Vatns-
mýrina og flugvöllinn. Þarna er
m,a. hægt að kynna sér tillögur
flugvallarnefndar og samvinnu-
nefndar um svæðaskipulag höf-
uðhorgarsvæðisins. Þá hefur
e m hæ 11 i b orga rve rkfræði n gs
Iagt fram efni um byggðaþróun
á höfuðborgarsvæðinu og skipu-
lagsáætlanir. Talsverður áhugi
virðist vera á kosningunni þann
17. mars n.k. Könnun sem
Gallup hefur unnið fyrir Reykja-
víkurborg bendir til þess að tveir
af hverjum þremur borgarbúum
hyggisl taka þátt í atkvæða-
greiðslunni. Akveðið hefur verið
að Ijölga kjördeildum úr 30 í 50
og bæta við nýjum kjörstað í
Hagaskóla.
Þessar tvær stúdínur lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur í gær til að kynna sér flugvallarmálið frá öllum hliðum.
MYND HILLI
Bændur
einhuga
gegn ES
Búnaðarþing 2001 samþykkti
samhljóða í gær að aðild að Evr-
ópusambandinu sé íslenskum
bændum ekki til framdráttar og
komi ekki til greina við núver-
andi aðstæöur. Það beri að
tryggja hagsmuni íslenskra
bænda með öðrum hætti.
Búnaðarþing 2001 telur að
mikil óvissa sé urn marga þætti í
starfi og framtíðarstefnumótun
Evrópusambandsins. Jafnframt
sé ljóst að aðild að Evrópusam-
bandinu myndi hafa veruleg
áhrif á starfsumhverfi íslensks
landbúnaðar. Ætla niá að bænd-
ur og ekki síður afurðastöðvar
hérlendis mundu lenda í miklum
erfiðleikum á sameiginlegum
Evrópumarkaði. Mjög líklegt er
að mikill samdráttur verði í flest-
um greinum íslensks landbúnað-
ar, störfum muni fækka og tekjur
bænda lækka, gangi Island í Evr-
ópusambandið. Reynsla finnsks
Iandbúnaðar eftir inngöngu
Finnlands í Evrópusambandið
staðfesti ofángreinda ályktun.
Óvissa
Varðandi aðra þætti í starfsemi
Evrópusambandsins ríkir einnig
mikil óvissa og má þar nefna að
erfiðleikar eru í fiskveiðum og
veiðistjórnun og endurskoðun á
því sviði fyrirhuguð, mjög alvar-
leg vandamál hafa komið upp
varðandi húfjársjúkdóma og mat-
vælaöryggi, mikil óvissa ríkir í
gjaldeyrissamstarfi sambandsins,
uppi eru misvísandi hugmyndir
um breytingar á landbúnaðar-
stefnu sambandsins og margt
óljóst varðandi stækkun Evrópu-
sambandsins til austurs. Við
þessar aðstæður telur Búnaðar-
þing að aðild að Evrópusam-
bandinu komi ekki til greina,
heldur beri að tryggja hagsmuni
íslands með öðrum hætti. - GG
NYTT HEIMIUSFANG
Opid
mán-fös 10-18:
lau 12.00-17:00
sun 14:00-17:00
YATNSMYMRYEGUR E0 • (MX&mR Y/ MllCLATORG)
Wú mm 'fMt í hþrtn borgtirlnmf, cjóú íi'ókumn,
rúfnyutt útbMmm'úl, mmi gú'ou þjómwiti/i
EVR0PA
BILASALA
Tákn um traust
Vatnsmýrarvegur 20
(Alaska v/ Miklatorg)
Sími 511 1800
Fax 511 1801
evropa@evropa.is