Dagur - 09.03.2001, Síða 14

Dagur - 09.03.2001, Síða 14
14- FÖSTVDAGUR 9. MARS 2001 Oagur SMA AUGLYSING AR Til leigu Vantar þig íbúð til leigu á stór Reykja- víkursvæðinu, í viku eða yfir helgi, Hef eina fullbúna húsgögnum og helstu þægindum á mjög góðum stað, stutt í allt. Upplýsingar í síma 464 1138 eða 898 8305 Atvinna Mig vantar starfskraft í sumar við eldamennsku og fleira inni en mest útivið upp um fjall í vélavinnu og fleiru. Upplýsingar í síma 464 3254 Hreinn Pórhallsson, Ljósavatni Einkamál 35 ára karlmaður sem reykir ekki, hefur áhuga á að kynnast góðri vinkonu sem býr á Vestfjörðum. ^a^^^e^^o^ö^rausfrneS^oSa™ framkomu. Upplýsingar í síma 692 5632 Til sölu_______________________ Oska eftir tilboði í Fíat Uno árg. ‘93, ekinn 11.000 km. Skemmdur eftir tjón. Upplýsingar í síma 897 0235 REIKI Frá Reikifélagi Norðurlands. Félagið heldur fund sunnudaginn 11. mars kl. 17.00 í Brekkuskóla. Við fáum tarotlesara i heimsókn, höldum bænastund og heilum hvort annað. Mætum öll. Stjórnin Útfararskreytingar | A K U R E Y R 1 1 I igg 1 kistuskreytingar, krossar, kransar, blómaskreytingar, ( Býflugan og blómið ( 1 E H F ■ n i i 1 blómvendir, Sími 461 5444 Glerárgata 28 . Akureyri Fjármálaráðuneytið Viðræður um gerð/endurskoðun tvísköttunarsamninga við Ítalíu, írland og Bandaríkin á komandi mánuðum Samninganefnd fjármálaráðherra um gerð tvísköttunarsamninga hefur hafið undirbúning að viðræðum við samninganefnd ítalskra stjórnvalda, sem hefjast munu 26. mars nk. í Róm. Samhliða fer fram undirbúningur að viðræðum við fulltrúa írlands sem væntanlega hef- jast í lok apríl og verður fyrsti fundur samninganefndanna haldinn í Reykjavík. Pann 21. maí nk mun íslenska samninganefndin síðan set- jast að samningaborði með fulltrúum bandarískra stjórnvalda um endurskoðun á tvísköttunarsamningi okkar við Bandaríkin, en gildan- di tvísköttunarsamningur ríkjanna er frá árinu 1975. Markmið tvísköttunarsamninga er fyrst og fremst að koma í veg fyrir tvísköttun á tekjum og eignum sem óhjákvæmilega leiðir til ójafn- ræðis milli aðila, en einnig að koma í veg fyrir undanskot frá skatti. Meginefni tvísköttunarsamninga er allajafna það að báðum ríkjum er heimilt að halda eftir afdráttarskatti að tilteknu hámarki af þeim tekjum sem greiddar eru frá öðru samningsríkinu til aðila í hinu samningsríkinu. Síðarnefnda ríkið skuldbindur sig hins vegar til að veita þeim aðila, sem skatturinn var dreginn af, skattafslátt sem svarar til þess skatts sem þegar hefur verið greiddur í hinu ríkinu. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að koma að skriflegum ábendingum eða athugasemdum fyrir komandi samningaviðræður er vinsamlegast bent á að beina þeim til samninganefndar fjármálaráðherra um gerð tvísköttunarsamninga. Formaður nefndarinnar er Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyti. Erna Hjaltested, ritari nefndarinnar veitir allar frekari upplýsingar. Fjármálaráðuneyti Arnarhvoli 150 Reykjavík s. 560 9200 netfang: erna.hjaltested@fjr.stjr.is TILBOÐ A SIVIAAUGLYSINGUiyi FYRSTA BIRTING 800 KR. ENDURBIRTING 400 KR. MUwaaB|fi|lgM«>l.lll«ll»llllWIM<WI«iWMI.K.<l'....i....l,,.J^J... Ofangrotnd vorO mlOast vlO staOgralOslu aOa VI8A / EURO Slml auglýsingadeildar er 460 61 OO - Fax auglýsingadeildar or 460 6161 ISTJÖRNUSPA Vatnsberinn Tískan vill ei tengja sig við þig. Og þú sparar milljónir fyrir vik- ið. Fiskarnir Gauragangur á þriðju hæð heldur fyrir þér vöku þessar næturnar. Svaraðu fullum hálsi með enn meiri hávaða. Hrúturinn Legðu hallæris- legu bensín- gallabuxunum! í ár ganga allir í diesel-buxum. Nautið Þér býðst hlut- verk í þýskri heimildarmynd um Björn Bjarna- son. Henni verður dreift ókeypis um allan heim á net- inu. Tvíburarnir Gömlu teinóttu jakkafötin þín frá 1966 ganga í endurnýjun líf- daga. Þú ert aftur orðin töff eftir aldarþriðjungs hlé. Krabbinn Veikindi koma í veg fyrir að þú komist í bænda- ferðina til Bret- lands. Það verður háð fjölmenn bændaglíma um plássið sem losn- ar. Ljónið Þú tekur afstöðu með rjúpunni gegn skógrækt- inni. Og færð í fyllingu tímans fálkaorðuna fyrir framtakið. Meyjan Þú tekur þátt í stofnun hags- munasamtaka helgarpabba, dul- búinn sem eftir- miðdagsafi. Vogin Þú hannar nýja tískulínu sem slær í gegn í Burundi. Og auðgast ekki verulega á þeim viðskiptum. Sporðdrekinn Haltu þig á hor- mottunni. í dag er hvergi feitan gölt að flá. Bogamaðurinn Þú lokast óvart inni í kústaskáp og uppgötvar að nýir vendir sópa best. Steingeitin Þú temur þér gagnrýna hugsun í eiginn garð og skilur loks hvers vegna þú hefur ekki náð lengra í lífinu. LÍF OG LIST Ekki endilega hámenning —„Eg er fljót að lesa og hef alla tíð verið mikill lestrar- hestur. Lesefnið er samt ekki endilega neitt há- menningarlegt og fagurbókmenntirnar ekki efstar á lista,“ segir Auður H. Ingólfsdóttir, verkefnastjóri og stundakennari \ið Háskóla Islands. „I vinnunni þarf ég mikið að beita rökrænni hugsun til að takast á við ýmis konar veraldleg málefni. Þegar ég er heima hjá mér hef ég hins vegar gaman af að velta fyrir mér óræðari þáttum tilverunnar. Bækur um andleg málefni rata þ\ í oft á náttborðið og núna síðast var ég að Iesa tvær bækur eftir Michael Newton, amerískan sálfræðing. Bækurnar byggja á þeirri hugmynd að í hveijum einstaklingi búi sál, og þessi sál fæðist aftur og aftur. Höfundur hefur eytt síðustu áratugum í að dáleiða fólk og draga upp úr því fróðleik, ekki aðeins um fýrri líf, heldur einnig um hvað sálimar eru að sýsla á rnilli lífa. Eg er kona efans, og hef ekki hugmynd um hvcrju ég trúi, en fínnst áhugavert að lesa mér til um mis- munandi möguleika og ímynda mér að þeir séu sannir. Annars tók ég líka góða skoipu í bókalestri í jólafríinu og las m.a. Myndina af heimin- um, eftir Pétur Gunnarsson, I hlutvcrki leiðtogans eftir Asdísi Höllu Bragadóttur, og Dís eftir þær Birnu Onnu Björnsdóttur, Oddnýju Sturludóttur og Silju Hauksdóttur. Afar ólíkar bækur, sem segir kanns- ki eitthvað um bókmenntasmekkinn hjá mér? Eina nóttina hnupplaði ég síðan tv'eimur spennusögum sem pabbi fékk í jólagjöf og las í einni bunu. Þetta voru bækurnar Mýrin eftir Arnald Indriðason, og Hvíta kanínan eftir Arna Mattíasson. Báðar bráðskemmtilegar." Klassísk meistaraverk „Ég nota tónlist el<ki síst til að slaka á og losa mig við streitu eftir dagsins önn. Því fínnst mér gott að hafa við höndina geisladiska með rólegri og fallegri tónlist. Upp á síðkastið hefur safndiskur undir heit- inu Klassísk meistaraverk verið þaulsætinn í spilar- anum. Hann er fullkominn til að skapa þægilegt andrúmsloft ef gestir eru í heimsókn, en einnig góður að hlusta á þegar ég er ein heima og að dekra við sjálfa mig.“ TomHanks og Survivors æ„Ég er nýlega farin að fylgjast með sjónvarpsþáttun- “ um Survivors sem eru sýndir á Skjá einum. Þessir þættir fjalla um hóp fólks sem hefur verið valinn til að dvelja í óbyggðum Ástralíu í ákveðinn tíma. Hóp- urinn þarf að leysa ýmsar þrautir og með nokkurra daga millibili er ein manneskja í hópnum rekin í burtu, eftir atkvæða- greiðslu. Sá sem endist lengst er sigurvegari. Þegar ég sá þessa þætti fyrst auglýsta fannst mér hugmyndin fáránleg, og illa til fundið að skapa aðstæður þar sem fólk er hvatt til að vantreysta hvort öðru og svíkja náungann. Ég lýsti því yfir að svona vitleysu myndi ég aldrei horfa á, en nú þarf ég sem sagt að éta þessi orð mín aftur því ég er búin að horfa á þrjá þætti og orðin spennt að vita hver vinnur. Síðasta mynd- in sem ég sá í bíó var reyndar um skylt efni, það er að segja baráttu mannsins við að bjarga sér, þegar hann er fjarri öllum nútímaþægind- um. Þetta var myndin „Cast away“ með Tom Hanks. Mér fannst sér- staklega skemmtilegt að sjá hvernig nytsemi ákveðinna hluta breyttist snarlega þegar þeir voru teknir úr samhengi nútímans. Þegar bögglarn- ir úr flugvélabrakinu fóru að herast á eyðieyjuna voru gagnlegustu hlutirnir samkvæmiskjóll, vegna þess .að hægt var að nota net úr pils- inu til að veiða fisk, og skautar, því blöðin voru brúkleg sem verkfæri og einnig sem spegill." iGENGIB Gengisskráning Seölabanka islands 8. mars 2001 Dollari 85,57 85,97 85,77 Sterlp. 125,33 125,93 125,63 Kan.doll. 55,53 55,85 55,69 Dönsk kr. 10,704 10,766 10,735 Norsk kr. 9,727 9,785 9,756 Sænsk kr. 8,819 8,871 8,845 Finn.mark 13,441 13,5162 13,4786 Fr. franki 12,1832 12,2514 12,2173 Belg.frank 1,9811 1,9921 1,9866 Sv.franki 51,92 52,22 52,07 Holl.gyll. 36,2644 36,4674 36,3659 Þý. mark 40,8606 41,0892 40,9749 Ít.líra 0,04128 0,04151 0,04139 Aust.sch. 5,8078 5,8402 5,824 Port.esc. 0,3986 0,4008 0,3997 Sp.peseti 0,4804 0,483 0,4817 Jap.jen 0,712 0,7162 0,7141 (rskt pund 101,4729 102,0407 101,7568 GRD 0,2345 0,2359 0,2352 XDR 110,66 111,32 110,99 EUR 79,92 80,36 80,14 IKROSSGATAN Láréttri sjávar 5 stýra 7 eirðarlaus 9 hreyting 10nagg 12 kústur 14 hratt 16 ásaki 17 meginhluti 18ávinning 19 útlim Lóðrétt: 1 öskur 2 bugt 3 kyrtils 4 lát- bragð 6 þátttakandi 8 fitla 11 alda 13 eignist 15 tölu Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 kost 5 tálmi 7 klár 9 áð 10 salur 12gögn 14 blæ 16kæn 17 eldur 18aga 19 mak Lóðrétt: 1 koks 2 stál 3 tárug 4 smá 6 Ið- unn 8 lagleg 11 rökum 13 gæra 15æla

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.