Dagur - 09.03.2001, Síða 13

Dagur - 09.03.2001, Síða 13
FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 - 13 Thyur. íslands in mörg hundruð erlendra dansara koma sem starfar á grundvelli samnings- ins um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Þessi bókun var fullgilt að Islands hálfu nú í febr- úar og því hefur ekki gefist tími til að kynna efni hennar, en ljóst er að önnur ráðuneyti þurfa einnig að koma að þeirri kynningu," sagði Halldór. Hvað Þróunarsamvinnustofn- unina (ÞSSÍ) varðar sagði Halldór að miklar áherslubreytingar hafi orðið síðan 1997. „Nú er á döfinni hjá ÞSSÍ að gefa út leiðarvísi um það hvernig stofnunin skuli vinna að jafnréttismálum. Sá leiðarvísir á ekki einvörðungu að gilda um fé- Iagsleg verkefni heldur öll verk sem ÞSSI vinnur. Rauði þráðurinn er, að þegar ráðist er í verkefni liggi alltaf fyrir hver áhrifin verða á hag kvenna og barna. Höfuð- markmið ÞSSI er að draga úr fá- tækt og flestir eru sammála um að það verði ekki gert ncma með þvi að einbeita sér í ríkari mæli að jafnrétti kynjanna og hag kvenna og barna. KynlifsþræUauiin svartasti bletturinn Nefndi Halldór dæmi um verkefni þar sem ÞSSI hefur haft jafnrétti að leiðarljósi; fullorðinsfræðslu í Namibíu, íslenskur sérfræðingur í jafnréttis- og félagsmálum í félags- og kvennamálaráðuneyti Mósam- bík og aðstoð við fullorðins- fræðsluáætlun í Malaví. Nokkrir aðrir þingmenn tóku þátt í umræðunni og verður hér aðeins stiklað á stóru. Þuríður Backman, vinstri grænum, vildi beina athyglinni að mannréttind- um bæði hérlendis og á alþjóða- vettvangi. „Staða kvenna hér er ekki jafngóð og við viljum vera láta, því kjör kvenna eru Iakari en karla í sambærilegum störfum". Það er mismunun í gangi, sagði hún, konur verða fyrir ofbeldi meira en karlar, sérstaklega kyn- ferðislegu. Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálf- stæðisflokki, sagði Island hafa tek- ið virkan þátt í alþjóðlegu sam- starfi um málefnið, sérstaklega á sviði UNIFEM. Hún minnti og á framkvæmdaáætlun ríkisstjórnar- innar. Mannréttindabrot gegn konum eru ekki einkamál ein- stakra ríkja, heldur mál alls mann- kyns, sagði Arnbjörg og taldi að kynlífsþrælkun sé svartasti blettur lýðræðisrfkja á Vesturlöndum. „Það er skylda okkar að sjá til að slíkar skelfingar gangi ekki yfir nokkra konu hér á landi.“ ' 18% vtövarandi laiutamunur Bryndís Hlöðversdóttir, Samfs'lk- ingunni, sagði að ljpjdi kvenna um heim allan húi enn við kúgun. Beindi hún athyglinni ekki síst að aðgerðum talibana í Afganistan, þar séu fjöldamorð og mannrétt- indabrot tíð. Þar bafi talibanar beitt sér fvrst gegn konum, bann- að þeim atvinnuþátttöku og skert ferðafrelsi þeirra. Kolbrún Halldórsdóttir, vinstri grænum, sagði að konur ættu alls staðar undir högg að sækja. „Of- heldi gegn konum og börnum er mannréttindabrot. Launamunur er brot á mannréttindum. Enn eru konur með 18% lægri laun hér á landi en karlar, sem eingöngu er kynjabundinn launamunur." Einar K. Guðfinnsson, Sjálf- stæðisflokki, sagði það fagnaðar- efni að eiga þess kost að ræða þessi mál í alþjóðlegu samhengi. Málefni Islands væru agnarsmá í samanburði við mál víða erlendis, sérstaklega í þriðja heiminum, þar sem mannréttindi kvenna eru vaða fótum troðin og kynlífsþrælkun daglegt brauð. Mansalið er komið til íslands Össur Skarphéðinsson, Samfvlk- ingunni, sagði málefnið ekki vera einkamál kvenna, heldur varði það karlmenn líka. „Hér á landi hefur nokkru verið þokað áleiðis, en illu heilli er fjarri sanni að erlendis eigi svo víða við og vægast sagt ömurleg þróun á mörgum svið- um“. Össur sagði mansal og þrælkun leggja líf ótrúlega margra kvenna og barna í rúst. „Litla ríkið ísland'1 geti lagt þung lóð á v'ogar- skálarnar. Sagðist Össur eiga þá ósk heitasta lyrir hönd tvcggja Iít- illa dætra sinna að þær geti haslað sér völl án tillits til þess að þær séu konur. I lokun tók Þórunn Sveinbjarn- ardóttir aftur til máls og taldi aug- Ijóslega ekki nóg að ræða þessi mál einu sinni á ári. „Mansalið og kynlífsþrælkunin eru komin til ís- lands og er brýnasta verkefnið er varðar mannréttindi kvenna hér á landi um þessar mundir". Hún nefndi og að ekkert virtist geta hnekkt kynbundnum launamun uppá 18-20%. Hún nefndi loks kosti og galla alþjóðavæðingarinn- ar - kostirnir hafi algerlega farið framhjá þorra kvenna, en gallarnir lent harðar á þeim en körlum. FRÉTTIR Afkoma Samherja í fyrra var ásættanleg í Ijósi erfiðra skilyrða að dómi stjórnenda félagsins. 726 milljóna liagn- aður hjá Samherja Miklar hreylingar hafa orðið í rekstri Samherja sem ólíkt mörgum stærri sjáv- arútvegsfyrirtækjum skilaði talsverðum hagnaði í fyrra. Samherji hf. \'ar rekinn með 726 milljóna króna hagnaði á ný- liðnu ári, samanborið við 200 milljóna króna hagnað árið 1999. Veltufé frá rekstri félags- ins jókst um rúm 20% frá árinu áður og nam 1.060 milljónum króna. Töluverðar breytingar urðu á rekstri félagsins á árinu og ber þar hæst að 65% hlutafjár í Samherja GmbH, sem áður var dótturfélag Samherja hf., voru seld síðla árs og er það félag því ekki í samstæðuuppgjöri Sam- herja hf. nú. Þá eignaðist Sam- herji meirihluta í BGB-Snæfelli hf. í lok nýliðins árs. Ár mildlla breytinga „Nýliðið ár var erfitt að mörgu leyti en ég er hins vegar ágætlega sáttur við niðurstöðuna,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja. „Þetta var ár mikilla breytinga hjá Samherja. Þar ber vitanlega hæst þegar Vil- helm Þorsteinsson EA bættist í flota félagsins. Koma skipsins gerir okkur kleift að auka veru- lega verðmæti uppsjávarafurða með fullvinnslu á kolmunna og síld um borð. Yfirstandandi ár verður ákveðinn prófsteinn á þetta verkefni." Hann segir að sú öfluga land- vinnsla, sem félagið eignaðist með samrunanum við BGB- Snæfell, sé annað verkefni sem miklar vonir séu bundnar við. „Eg hef þá trú að samruni félag- anna tveggja skjóti styrkum stoð- um undir vinnsluna á Dalvík og efli jafnframt rekstur félagsins í heild sinni." Stóraukm þátttaka í fiskeldi Fjárfestingar Samhcrja í fiskeldi á nýliðnu ári námu tæpum 890 milljónum króna. Um það segir Þorsteinn Már: „Ef við íslend- ingar ætlum að vera áfram í for- ystu í alþjóðlegum sjávarútvegi verðum við að vera virkir þátt- takendur í fiskeldi. Samherji hefur að mínum dómi sýnt gott fordæmi með því að auka til muna þátttöku sína í þessari grein sjávarútvegs á síðustu misserum og \'ið höfum fullan hug á að leggja enn meiri rækt við þennan þátt í náinni framtíð. Þekking í fiskeldi hefur aukist mikið síðustu ár, sem leitt hefur til hagkvæmari framleiðslutækni og gert greinina að áhugaverðum fjárfestingarkosti. Það er von mín að íslensk stjórnvöld skapi þessari grein þau skilyrði scm hún þarf til þess að vera sam- keppnishæf á alþjóðavettvangi," segir hann. Bjartsýnn á horfumar á yfirstandandi ári „Það bendir margt til þess að yf- irstandandi ár verði gott ár fyrir Samherja og sjávarútveginn al- mennt. Því er hins vegar ekki að neita að það eru blikur á lofti og á ég þá sérstaklega við það ástand sem mun skapast í at- vinnugreininni ef ekki tekst að semja við sjómenn," segir Þor- steinn Már Baldvinsson. Stjórn félagsins gerir tillögu um að greiddur verði 15% arður til bluthafa vegna nýliðins árs. Björguðust úr snjóflóði Fjölskyldan að Giljalandi í Haukadal í Dalasýslu var á heimleið í skafrenningi og nán- ast engu skyggni skömmu íýrir kvöldmat á ntiðvikudag er jeppa- bifreiðin festist á veginunt skammt frá Stóra-Vatnshorni. Heimílisfaðirinn, Jóhannes lngi Böðvarsson, fór út úr bifreiðinni nteð skóflu til að losa bifreiðina er snjóflóð féll á hann og bifreið- ina og llutti þau niður á Hauka- dalsána neðan við veginn. Yngsti fjölskyldumeðlimu rin n grófst í fönn í bílnum en fljót- Iega tókst að ná honum og fór fjölskyldan í gömul fjárhús þar í grenndinni, en Jóhannes Ingi fór að bænum Hamri eftir hjálp. Fjölskyldan gisti f Búðardal um nóttina þar sem vegurinn um Haukadal var orðinn ófær vegna fannf’ergis. Það má telja mesta mildi að enginn slasaðist. Hér- aðslæknir ákvað í gær að senda fjölskylduna til frekari skoðunar á Sjúkrahúsið á Akranesi. Að Giljalandi er fjárbúskapur. — GG Álykta um fLugvölIiun Bæjarstjórn ísafjarðar lagði áherslu á mikilvægi greiðra flug- samgangna milli höfuðborgar Is- lands og landsbyggðar á bæjar- stjórnarfundi nýveriö. I bókun bæjarstjórnar segir m.a.: „I Reykjavík hefur verið byggð upp þjónusta hins opinbera, þar er Alþingi, öll ráðuneyti og flest- ar stofnanir, þ.m.t. sérhæfðar sjúkrastofnanir. Uppbygging á þessari þjónustu hefur skapað Reykjavík tækifæri til uppbygg- ingar og vaxtar og eflt bana sem höfuðborg Islands. Taki borgar- stjórn ákvörðun um að miðstöð innanlandsflugs verði ekki leng- ur í höfuðborginni, þarf að mati bæjarstjórnar Isafjarðar að end- urskilgreina hlutverk höfuðborg- ar með tilliti til aðgengis lands- manna að þjónustu hins opin- bera. Bæjarstjórn leggur áherslu á að flugsamgöngur innanlands þjóni notendum þeirra. I þessu máli fara saman hagsmunir Reykjavíkur og þeirra er nota innanlandsflugið mest. Miðað við nýlegar skoðanakannanir virðist meirihluti Reykvíkinga átta sig á þeirri staðreynd." - GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.