Dagur - 09.03.2001, Blaðsíða 19
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
GunnUóra ■ Valdís
Gunnarsdóttir ■ Viðars
FÖSTUDAGUR 9. MARS 2 00 1 - 19
T ónlist tveggj a alda
Einarjóhannesson klarínettu-
leikarí verður einleikarí á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands semframfara í
Glerárkirkju á sunnudag.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur nú
fjórðu efnisskrána á áttunda starfsári sínu
Glerárkirkju næstkomandi sunnudag og verð-
ur Einar Jóhannesson klarinettuleikari ein-
leikari á tónleikunum. Undanfarið hefur
hljómsveitin Ieikið á skólatónleikum verkið
Pétur og úlfinn, en alls eru haldnir þrjátíu
tónleikar víða í skólum á Norðurlandi og er
næsti viðkomustaður Hrfsey. Síðasta efnisskrá
starfsársins verður svo 13. maí nk. í samvinnu
við Kirkjulistarviku Akureyrarkirkju, en í |)\í
verkefni taka þátt; Kór Akureyrarkirkju, Kór
Glerárkirkju, Samkór Svarf'da-la og Karlakór
Akureyrar-Geysir ásamt einsöngvurunum
Michael Jóni Clark bariton og Jóhanni Frið-
geiri Valdimarssyni tenór og verða þeir
tónleikar haldnir í Iþróttaskemmunni.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er
sldpuð hljóðfæraleikurum sem flestir eru
starfandi tónlistarmenn á Norðurlandi,
allt frá Sauðárkróki austur til Vopna-
fjarðar. Einnig koma til leiks á tónleik-
unum á sunnudaginn tónlistarmenn frá
Isafirði, Reyðarfirði, Hvolsvellí og
Reykjavík.
Einar Jóhannesson nam klarinettuleik
við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan
sem hann lauk einleikaraprófí árið 1969.
Hann hélt síðan til Lundúna og lærði við
The Royal College of Music. Hann bjó
um árahil í Englandi og á írlandi og lckkst við
tónlistarstörf, þar til að hann tók til starfa
hjá Sinfóníuhljómsveit Islands. Einar hefur
verið tíður gestur á tónlistarhátíðum víða
um heim og hlotið verðlaun og viðurkenn-
ingar fyrir leik sinn.
Mozart hreifst af
klarineiíunni
Þrjú verk eru á efnisskránni og eru þau tónlist
tveggja alda, annars vegar þeirrar 18. og hins
Myndin er tekin á skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, en hljóm-
sveitin ferðast nú um þessar mundir milli grunnskóla á Norðurland/ með verkið
Pétur og úlfinn.
Einar Jóhannesson
klarinettuleikari.
vegar þeirrar 20. Verkin
frá tuttugustu öldinni
eiga það sameiginlegt að
þar eru tónskáldin að
taka fyrir tónlist lyrri
alda og vinna verk sín út
frá henni. Fyrsta verkið
á tónleikunum er
Renesans svíta eftir tutt-
ugustu aldar tónskáldið Francis Chagrin, sem
fæddur var í Rúmeníu en bjó stærstan hluta
ævá sinnar í Bretlandi. Verkið er samið í anda
endurreisnartímabilsins en litað tónum tutt-
ugustu aldar. Þá er horfið um stund aftur 18.
aldar og leikinn Klarinettukonsert f A-dúr eftir
W. A. Mozart. Klarinett kom fyrst fram á
sjónarsviðið upp úr aldamótunum 1700.
Mozart hreifst mjög af þessu hljóðfæri og tján-
ingarmöguleikum þess og lét það njóta sín í
tónsmíðum sfnum. Konsertinn þykir mjög fag-
ur og áhrifamikill en hann er eitt af síðustu
verkum Mozarts. Tónleikunum lýkur með
verki frá tuttugustu öld. Það er Puleinella
svítan, eitt vinsælasta verk Igors Stravinskís.
Stravinskí byggir það á verkum 18. aldar tón-
skáldsins Giovanni Pcrgolesi. Þannig gefur
hann tónlist Pergolesis nýtt líf en sýnir um
leið snilli sína í skrifum fyrir hljómsveit þar
sem hann nýtir möguleika hvers hljóðfæris
fýrir sig afar vel. Þannig er hinn vel þekkti
Klarinettukonsert Mozarts rammaður inn með
tveimur tuttugustu aldar tónverkum sem þó
eru tónlist fyrri alda, hvert á sinn hátt.
Tónleikarnir í Glerárkirkju eru undir stjórn
Guðmundar Ola Gunnarssonar sem er aðal-
stjórnandi hljómsveitarinnar og hefjast þeir kl.
16.00. Miðasala verður við innganginn og er
aðgangseyrir kr. 1.300 en frítt íyrir 20 ára og
yngri. -W
Vinir ráða
báðir
„Binna finnstþessi nýi félagi „skuggalega vitlaus", en vill samt hafa hann fyrir
vin. EF hann má sjálfur ráða öllu.“ Pétur og Bjarni í hlutverkum sínum.
mynd: e.ól.
Möguleikhúsiðfrum-
sýnirglænýtt íslenskt
bamaleikrít eftir Guð-
rúnu Helgadóttur nú á
sunnudagim, 11.
marskl. 14.00. Það
heitir Skuggaleikur.
Undirlitill leikritsins er „Það á
ekki bara annar að ráða, vinir
ráða háðir," og segir ansi mildð
um boðskap verksins. Annars er
söguþræðinum lýst á eftirfarandi
hátt af aðstandendum Möguleik-
hússins. „Rinni er lílili strákur
sem er mikið einn með sjálfum
sér og heldur vinafár. Hann á kött
og páfagauka og mömmu, sem er
alveg voðalega dugleg að vinna.
Stundum er Binni ferlega hrekkj-
óttur - í rauninni svo óþekkur
stundum er skugginn hans alveg
búinn að fá nóg af framkomu
hans. Það meira að segja hvarflar
að skugganum að fara bara eitt-
hvert annað. Aður en til þess
kemur gerist svolítið merkilegt.
Skugginn líkamnast og á meira að
segja sitt eigið nafn. Hann heitir
Uggi. Skuggadrengir geta vitað
Sumt en þeir eru sko líka alveg ga
- ga! Kunna varla baun af öllu því
sem þarf að gera á hverjum degi.
Binna finnst þessi nýi félagi
„skuggalega vitlaus", en vill samt
hafa hann fyrir vin. Ef hann má
sjálfur ráða öllu.
Hlutverkin tvö í leikritinu eru í
höndum Möguleikhúsmannanna
Péturs Eggerz og Bjarna Guð-
jónssonar sem ekkert er ómögu-
legt. Þcim stýrir kvenskörungurinn
Bniyja Benediktsdóttir og leik-
myndina hannaði Iistamaðurinn
Tryggvi Ólafsson sem þekktur er
fýrir fjörlegar myndir í sínum
bamabókum. Tónlistin er eftir
Stuðmanninn Valgeir Guðjónsson
og auk þessara listamanna allra
leggja þau Bessi Bjarnason, Arni
Tryggvason og Alda Arnardóttir til
raddir sínar og túlka kött, fugla og
móðurina sem er svo voðalega
dugleg að vinna. Frumsýning
Skuggaleiks verður í Möguleikhús-
inu við Hlemm. GUN.
■llM HELGINA)
Þórunn Ósk Marinósdóttir
víólule/kar/ og Kristinn Örn Kristins-
son ptanóleikari.
Af hjartans einlægni
Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari og Kristinn Örn
Kristinsson píanóleikari halda
tónleika í Salnum þann 11.
mars og hefjast þeir kl. 20.00.
Efnisskrá tónleikanna hefur að
gey ma nokkrar af perlum víólu-
tðnbókmenntanna. Af róman-
tísku 19. aldar eyrnakonfekti
má nefna Adagio og Allegro eft-
ir Robert Schumann sem Cl-
ara kona Schumanns Iýsti svo:
„Frábært verk, ferskt og ástrfðu-
fullt; einmitt eins og ég vil hafa
það.“ Þá verður flutt Rómansa
eftir Max Bruch, verk í síðróm-
antískum stíl. Tvö stærstu verk
efniskrárinnar eru frá ofan-
verðri síðustu öld. Það fsTra er
sónata eftir Paul Hindemith og
hið síðara sónata Dmitris
Shostakovich f’yrir víólu og pí-
anó op.147, en hún var hans
síðasta tónsmíð skrifuð rétt f\T-
ir andlátið árið 1973. Það má
segja að vcrkið sé skrifað af
hjartans einlægni þar sem
Shostakovich opinberar tilfinn-
ingar sínar við dauðans dyr.
Tómas Ingi
Olrich.
Ráðstefna
uin ineiiiiiiigaiTiiál
Akveðið er að halda ráðstefnu
um menningartengda ferða-
þjónustu á Akureyri á morgun
og verður hún haldin í Deigl
unni, Kaupvangsstræti og hefst
kl. 14:00.
Þröstur As-
mundsson, for-
maður menning-
armálanefndar
setur ráðstefn-
una. Tómas Ingi
Olrich, formað-
ur nefndar um
menningar-
tengda ferða-
þjónustu flytur
erindi sem
hann nefnir
„Imynd íslands sem menning-
arlands. Arthúr Björgvin Bolla-
son, forstöðumaður Söguset-
ursins á Hvolsvelli talar um
menningararfinn og ferðaþjón-
ustuna. Eftir kaffihlé verða
stuttar umræður.
Megintilgangur ráðstefnunn-
ar er liður í að styrkja þá starf-
semi í Akureyrarbæ sem hægt
er að líta á sem menningar-
tengda ferðaþjónustu, þannig
að markviss uppbygging geti
orðið í þeim málum á næstu
árum.
Ráðstefnan er opin öllum
sem áhuga hafa á málinu en
viðfangsefni hennar munu
einkum höfða til starfsfólks
stofnana sent tengjast menn-
ingarstarfsemi og ferðaþjón-
. ustu.