Dagur - 14.03.2001, Page 2
2 - MIDVIKUI) AGU R 14. M A R S 2001
FRÉTTIR
Stjómin hætti vegna
starfslokasamnings ?
Hvellux á Austurlandi
eftir að uppvist varð
að fyrrum fram-
kvæmdastjóri fengi
30 milljónir fyrir að
hætta störfum. Hag-
stæður samnmgur
fyrir sjóðinn að mati
formanns stjómar.
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Aust-
urlands, segir að það sé hægt að
segja stjórn sjóðsins upp störfum
vegna umdeilds starfslokasamn-
ings sem mjög er nú til umræðu.
Hins vegar sé ekki hægt að brey-
ta honum eða afturkalla.
Mikill kurr er í Austfirðingum
eftir að út spurðist nýverið að
gerður hefði verið starfsloka-
samningur upp á tæpar 30 millj-
ónir við Gísla Marteinsson, fyrr-
um framkvæmdastjóra Lífeyris-
sjóðs Austurlands. Hann lét af
störfum í ágúst í fyrra og tengd-
ist sú ákvörðun breyttu rekstrar-
fyrirkomuiagi sjóðsins. Gísli
starfaði
áður á
bankastjóra-
launum hjá
Visa Island
og sömdu
Austfirðing-
ar við hann
á svipuðum
kjörum og
Gísli hafi
áður haft.
Um annað
var einfald-
Iega ekki að
ræða, enda
brýnt fyrir
sjóðinn að
fá jafnhæf-
an mann, að
sögn Hrafn-
kels A. Jóns-
sonar.
Hneyksli?
Hrafnkell
vill hins
vegar ekki gefa upp nákvæma
tölu um upphæð starfslokanna
en heimildir Dags herma að alls
geti verið um upphæð frá 20
milljónum til 30 milljóna. Tals-
menn verkalýðsfélaga fyrir aust-
an eru
óhressir
með gang
mála, líkt og
almennir
sjóðsfélagar
í Lífeyris-
sjóði Aust-
urlands.
Einn við-
mælandi
blaðsins
sagði í gær
að það væri
hneyksli að
hægt væri
að semja
um slíkar
fjárhæðir
við það eitt
að hætta
störfum.
Erfitt væri
fyrir fólk
með minni
árstekjur en
1,5 milljónir
að skilja svona tölur.
Vornm í kreppu
Hrafnkell segir að bæði trygg-
ingastærðfræðingur, lögmaður
og endurskoðandi hafi verið kall-
Hrafnkell A. Jónsson: Getur vel verið að
stjórn verði sagt upp.
aðir til þegar kom að ákvörðun
um greiðsluna. En sýnist honum
ekki sem stjórnin hafi samið af
sér? „Nú er það þannig að stjórn-
in gekk að verki sem þurfti að
leysa. Ráðningarsamningurinn
var í fullu gildi og á þeim tíma
sem samningurinn var gerður
var Lífeyrissjóður Austurlands í
mjög alvarlegri kreppu og þurfti
mjög á því að halda að fá hæfan
mann til að ná sjóðnum upp.
Það er óumdeilt að Gísli Mar-
teinsson hefur gert það og ég
leyfi mér að halda því frarn að
þótt menn nefni háar upphæðir
þá hafi þrátt fyrir allt verið gerð-
ur samningur sem var hagstæður
fyrir okkur á þeim tíma.“
- Og elikert kemur í vegfyrir að
samningurinn verði fullnustaður?
„Nei, að sjálfsögðu er hægt að
setja okkur stjórnarmenn sjóðs-
ins af, það er félagslegur réttur
fólks að taka slíkar ákvarðanir og
það gctur vel verið að svo fari.
Hins vegar sé ég ekki að hægt
hefði verið að komast hjá því að
gera hliðstæðan samning og
þennan," segir formaður sjóðs-
stjórnar Lífeyrissjóðs Austur-
lands. — BÞ
Margir leggja leið sína í Ráðhúsið
þessa dagana til að skoða sýning-
una um flugvöllinn og framtíð
Vatnsmýrarinnar.
Mikil umferð
í Ráðhúsið
Töluverður straumur fólks hefur
verið í Ráðhús borgarinnar á síð-
ustu dögum í tengslum við sýn-
ingu og atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar vegna kosninga um
framtíðarnýtingu Vatnsmýrarinn-
ar. Búist er við að ekkert lát verði
á aðsókn fólks í Ráðhúsið það sem
eftir er vikunnar vegna þessa.
Ágætis aðsókn
Astvaldur Guðmundsson hús-
vörður í Ráðhúsinu segir að tölu-
verður sjónarmunur sé á aðsókn
fólks í húsið þessa dagana miðað
við það sem gengur og gerist
venjulega. Þá hefur ágætis aðsókn
verið á þá fundi sem haldnir hafa
verið í Ráðhúsinu þar sem hags-
munaðilar kvnna málstað sinn í
llugvallarmálinu. Áætlað er að 60
- 70 manns hafi sótt hvern fund til
þessa. Hann segir húsverði ekld
hafa þurft að hafa afskipti af fólki
það sem af er, enda ekkert óvænt
komið upp þótt umferðin sé mikil
í húsinu frá morgni til kvölds.
- Glil I
Margir tala með
flugveUinum
Þingmeim hlyuntir
flugveUi í Vatnsmýri
flölmenntu í ræðu-
stól Alþingis. Fátt
um andsvör tals-
manna vaUarins
burt. Ámi Johnsen
kaUaði Reykjavík
„Stóra bróður“, sem
sparkaði í minni-
máttar.
Talsmenn áframhaldandi stað-
setningar Reykjavíkurflugvall-
ar í Vatnsmýrinni fjölmenntu í
pontu á Alþingi í gær, þegar
Arni Johnsen, formaður sam-
göngunefndar þingsins, efndi
til utandagskrárumræðu um
flugvöllinn, með Sturlu Böðv-
arssson samgönguráðherra „til
andsvara". Gegnumgangandi
viðkvæði þessara talsmanna er
að aðeins tveir kostir komi til
greina; Vatnsmýrin eða Keflavík.
Arni ræddi stöðu og skyldur
höfuðborgarinnar og sagði að
flugvöllurinn í Vatnsmýri hefði
verið höfuðsamgöngumiðstöð
landsmanna um áratuga skeið.
Hann liti svo á að verið væri að
„sparka í þann sem á hallar" með
umræðu um að flytja flugvöllinn
til Keflavíkur og að það skyti
skökku við að „stóri hróðir f sam-
félaginu, höfuðborgin, skuli
bjóða upp á kosningar og um-
ræðu til að rugga bátnum og
skapa óvissu, óöryggi, tortryggni
og úll'úð".
Arni Johnsen sótti að ráðherra.
Kosið lun iimanlandsílugið
Samgönguráðherra sagði framtíð
vallarins í fullkominni óvissu og
að í raun væru borgarbúar að
kjósa um framtíð og framvindu
innanlandsflugsins á íslandi.
Hann rifjaði upp samþykktir og
framkvæmdir og vitnaði í bréf frá
borgarstjóra frá 1 I. nóvember
1996, þar sem fram kæmi að
ekki væri gert ráð íýrir að breyt-
ingar verði á fýrirætlunum um
framtíð llugvallarins - honum
væri ætlaður staður í Vatnsmýr-
inni og engin áform uppi um
annað.
Jóhanina Sigurðardóttir mót-
mælti kröftuglega þeim áróðri að
aðeins Keflavík komi til greina
fari flugvöllurinn úr Vatnsmýr-
inni. Með slíkum málflutningi
væri verið að rugla fólk f ríminu
og samgönguráðherra að hóta
fólki. Jóhanna sagði að mikill
þjóðhagslegur ávinningur væri
fólginn í flutningi vallarins.
Borgarbúar eigi að ákveða það
sjálfir, án atbeina og hótana
ráðherra, hver framtíð vallar-
ins verður.
Ráðherra standi fast á
sínu
Margir aðrir þingmenn tóku til
máls og allflestir á bandi
Vatnsmýrarvallar. Jón Krist-
jánsson sagði aðeins um tvo
kosti að ræða; Vatnsmýrina
eða Keflavík. Kolbrún Hall-
dórsdóttir átaldi Arna og ráð-
herrann fyrir sleggjudóma og
þvergirðingshátt. Guðjón A.
Kristjánsson sagði staðsetn-
ingu Uugvallarins ekki vera
einkamál horgarbúa. Guð-
mundur Hallvarðsson sagði
Reykvíkinga stuðla að byggða-
röskun með því að vísa vellinum
burt úr Vatnsmýrinni.
Kristján L. Möller sagði völl-
inn best settan þar sem hann er
nú, Keflavík væri fþyngjandi og
ógnun við framtíð innanlands-
Uugsins. Undir það tók ísólfur
Gylfi Pálmason. Jón Bjarnason
hvatti menn til að finna sameig-
inlega lausn. Tómas Ingi Olrich
sagði að það væri að fara marga
áratugi aftúr í tímann að færa
.völlinn. I lokin kom Arni aftur í
pontu auk samgönguráðherra.
Skoraði Árni á ráðherra að stan-
da fast á sínu og voru andsvör
ráðherra þau að segja að hann
væri að framfylgja samþykktum
Alþingis. — l-'ÞG
Olían úr EI-Grillo hreinsuð í haust
Ák\'eðið hefur verið að olía úr flaki breska olíuskipsins
El-Grillo á botni Seyðisfjarðar vcrði hreinsuð. El-Grillo
var sökkt í Seyðisfjörð af Þjóðverjum í síðari heimstyrj-
öldinni. Ljóst er að veruleg mengunarhætta stafar af
flakinu og mikilvægt að grípa til viðeigandi ráðstafana
til að koma í veg f\TÍr frekari mengun. Málið hefur ver-
ið í undirbúningi í umhverfisráðuneytinu undanfarna
mánuði.
Aætlað er að allt að fjögur þúsund tonn af olíu séu í
El-GriIIo og hefur verið tryggt fjármagn til verksins og
olíuhreinsunin boðin út. Stefnt er að því að hreinsunin
fari fram í haust. Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdótt-
ir, ásamt forstjóra Rfkiskaupa, Júlíusi Olafssyni, heim-
sóttu í gær Seyðisfjörð og kynntu sér aðstæður og
ræddu við bæjarstjórn og Ueiri aðila. — GG
Siv Friðleifs-
dóttir umhverf-
isráðherra var á
Seyðisfirði í
gær.
Hávaðinn ekki hættulegur
Hávaði á diskótekum, rokktónleikum, frá vasadiskóum eða öðru slíku
hefur lítil áhrif á heyrn fólks segir norski Dagsavisen, sem vitnar til nið-
urstaðna úr 20 ára rannsóknum á 31.000 Norðmönnum búsettum í
Norður-Þrændalögum, sem norsk heilbrigðisyfirvöld hafa gengist fyrir.
Hávaði á vinnustöðum er heldur ekki sagður svo hættulegur heyrninni
eins og menn hingað til hafi talið. ~ IIEI
Á myndinni má sjá fulltrúa Neistans, Guðnýju Sigurðardóttur og Hafdísi
Ingimundardóttur, veita gjöfinni móttöku úr hendi Huga Sævarssonar,
markaðsstjóra Íslensk-ameríska ehf.
Gáfu pening hleiur og hamamat
Islensk-ameríska verslunarfélagið eliL l'.h. Pampers og Gerber styrkti
"Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna, í átaki sínu „Gefum þeim von“.
Islensk-ameríska veitti Neistanum styrk að upphæð 200.000 krónur og
að auki Pampersbleiur og Gerber barnamat að andvirði 100.000 krónur.