Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Side 3
Jlagur-®mrám
Þriðjudagur 14. janúar 1997- 3
F R É T T I R
Verkamannasambandið
Ný skýrsla sýnir að
ójöfnuðuriiin eykst
Verkamannasambandið krefst 70 þúsund króna mánaðarlauna fyrir sína menn.
Ráðstöfunartekjur
aukist 2% meira hjá
tekjuhæstu hjónum
en þeim tekjulægstu
egar litið er á þróun
tekjudreifingar atvinnu-
tekna á íslandi samkvæmt
skattframtölum á undanförnum
10 árum, kemur í ljós að ójöfn-
uður hefur aukist," segir Krist-
ján Bragason í nýrri skýrslu
sem hann liefur unnið fyrir
Verkamannasambandið. Bendir
hann m.a. á að tekjuójöfnuður
meðal hjóna (25-65 ára) hafi
aukist um 22% á umliðnum
áratug. í annan stað, að ráð-
stöfunartekjur þess 1/10 hjóna
sem hæst hafa launin hafi
hækkað um 5,5% á meðan
launalægsti 10. hlutinn fékk að-
eins 3,3% hækkun.
f úttekt sinni segist Kristján
einungis hafa unnið með gögn
sem birst hafa almenningi upp
á síðkastið, m.a. um fátækt á ís-
landi, skuldasöfnun heimil-
anna, dreifingu atvinnutekna
og það vaxandi tekjubil sem
fram hefur komið í árlegri úr-
vinnslu Þjóðhagstofnunar úr
skattframtölum landsmanna -
eins og Dagur- Tíminn sagði frá
fyrir nokkrum vikum.
Niðurstaða Kristjáns er að
hægt sé að álykta að fátækt á
íslandi hafi aukist á síðustu 10
árum. Þótt fátæklingum hafi
kannski ekki fjölgað á síðasta
ári hafi örbirgð þeirra varið
vaxandi. Langt sé síðan svo stór
hluti íslensks samfélags hafi
búið við eins lök kjör og í dag.
Meginástæða þessa sé efalítið
atvinnuleysið og vaxandi skuld-
ir heimilanna.
„í ljósi þessara upplýsinga
hefur stefnumörkun Verka-
mannasambands íslands í kom-
Nauðsynlegt að koma
í veg fyrir að verð-
bólga fari af stað.
andi kjarasamningum verið sú
að hækka lægstu taxta í 70.000
kr. á samningstímanum, en
hækka önnur laun minna.
Nauðsynlegt er að koma í veg
fyrir að verðbólga fari af stað á
ný því stöðugt verðlag, lágir
vextir og aukinn kaupmáttur
eru nauðsynleg efnaminni og
skuldugum einstaklingum á ís-
landi,“ segir í niðurstöðum
skýrslunnar.
Brunabótafélagið
Engar við
ræður um
sölu á hlut
Eignarhaldsfélag Bruna-
bótafélags íslands heldur
áfram að eiga sinn hlut í
VÍS. Allavega kvaðst Hilmar
Pálsson, stjórnarformaður
VÍS og forstjóri Eignarhalds-
félags Brunabótar, ekki
kannast við annað í samtali
við Dag-Tímann í gær.
„Einhverjir aðilar kunna
að vera að spekúlera að
kaupa, - en þeir eru ekki í
neinu sambandi við okkur.
Það eru engir að ræða við
okkur og við erum ekkert að
selja, svo það er fátt um
svör hjá mér,“ sagði Hilmar
Pálsson í gær. Morgunblaðið
segir þreifingar í gangi um
sölu á helmingshlut Eignar-
haldsfélagsins á bréfum í
VÍS, Vátryggingafélagi ís-
lands.
í Morgunblaðinu er haft
eftir Þorgeiri Eyjólfssyni,
framkvæmdastjóra Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna, að
málið sé á „algjöru byrjun-
arstigi".
„Ég bókstaflega næ þessu
ekki, forstjóri lífeyrissjóðsins
segir þetta á byrjunarstigi.
Ég þekki bara ekki þetta
byrjunarstig hjá honum,“
sagði Hilmar Pálsson í gær.
Málið er einfalt að sögn
Hilmars: „Lífeyrissjóðir og
aðrir hafa ekki verið í við-
ræðum við okkur," sagði
hann. - JBP
Skagafjörður
Hrapaði til bana
Banasiys varð á sunnu-
dag í Skagafirði þegar
einbúinn Helgi Jónsson,
59 ára gamall bóndi á
Merkigili, hrapaði á annað
hundrað metra niður í gil-
ið. Slysið er rakið til hálku.
Helgi haíði mælt sér mót
við annan bónda á hádegi í
Gilsbakka, sem er eyðibýli
hinum megin gilsins. Hann
kom ekki fram á tilsettum
tíma og fór þá bóndinn við
annan mann að svipast um
og sáu þeir ummerki við
svellbunka sem bentu til að
maður hefði hrapað. Ilaft
var samband við lögreglu á
Sauðárkróki og komust
björgunarsveitir ofan í gilið
um þremur tímum seinna.
Talið er að Helgi hafi Iátist
samstundis.
Helgi Jónsson.
Ilelgi var eina sóknar-
barn Abæjarsóknar og jafn-
framt meðhjálpari við mess-
ur. Hefð hefur verið fyrir
messuhaldi í Ábæjarkirkju
um verslunarmannahelgi.
BÞ
Akureyri
Gæsluvarðhald
kynferðisafibrotamanns
framlengt
Héraðsdómur Norður-
lands eystra á Akureyri
hefur framlengt gæsluvarð-
hald yfir meintum kynferð-
isafbrotamanni á Akureyri
til 45 daga eða þar til dóm-
ur gengur í máli hans hjá
Iléraðsdómi Norðurlands
eystra. Maðurinn er ákærð-
ur fyrir kynferðisafbrot gegn
stúlkum á aldrinum 7 til 9
ára og fyrir dreifingu á
klámi á Internetinu. GG
Leikfélag Reykjavíkur
Stóðu einir gesta
ekki upp fyrir forseta
Þegar leikverk Jökuls
Jakobssonar, Dómínó,
var frumsýnt á dögun-
um vakti athygli að tveir gest-
ir á fremsta bekk, brcaðurnir
Hrafn og lllugi Jökulssynir,
risu ekki úr sætum þegar for-
seti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og frú gengu í sal-
inn. Voru þeir einu gestir
hússins sem sátu, en eigin-
konur beggja risu úr sætum.
„Þarna var um einstaklings-
framtak að ræða hjá okkur
bræðrum en ekki samantekin
ráð, enda höfðum við ekki rætt
þetta fyrir sýninguna. Ég hef
ekkert á móti forseta íslands
nema síður sé, tel hann reynd-
ar fyrirmyndarforseta. Hins
vegar hefur mér alltaf fundist
sá kóngasiður íslendinga hvim-
leiður, að geta ekki setið kjurrir
þótt forsetinn láti sjá sig. Frá
því að ég fór barnungur að
sækja leikhús hef ég ekki séð
ástæðu til að standa upp fyrir
forseta, hver sem hann hefur
verið," sagði Hrafn Jökulsson í
samtali við Dag-Tímann í gær.
í ljósi ofangreinds hafnar
Ilrafn því alfarið að í athæfinu
hafi falist nein pólitísk yfirlýs-
ing. Gjörningurinn tengist alls
ekki persónu Ólafs Ragnars og
ágætrar eiginkonu. „Ég held að
við bræður séum báðir einkar
lukkulegir með Ól-
af og hans frammi-
stöðu í embættinu.
Það er sjálfsagt að
heiðra hann á allla
lund en það er
óþarfi að sýna eitt-
hvert forneskjulegt
flaður sem hæfir
ekki samfélagi
jafnréttisins.“ sagði
Hrafn. BÞ
Hrafn Jökulsson
ritstjóri Mannlífs og varaþingmaður
„Það er sjálfsagt að
heiðra forsetann en það
er óþarfi að sýna eitt-
hvertforneskjulegt Jlað-
ur sem hœjir ekki samfé-
lagi jafnréttisins. “
Hagstofan
Vöruskiptin enn í járnum
Um 11,5 milljarðar fengust
fyrir útfluttar vörur
landsmanna í nóvember
og nánast sama upphæð var
borguð fyrir innflutninginn á
fobverði. Ári áður var 1,7 millj-
arða afgangur á vöruskiptum
landsmanna í sama mánuði.
Frá áramótum til nóvember-
loka er afgangur á vöruskipta-
jöfnuði rúmlega 11 milljörðum
minni en í fyrra, þ.e. jafnvirði
eins mánaðar innflutnings.
Þessi munur minnkaði í rúma 6
milljarða að frátöldum út- og
innflutningi skipa og flugvéla.
Skipakaup hafa þrefaldast milli
ára, í 5,1 milljarð á fyrstu ellefu
mánuðum ársins.
Útflutningur hefur aukist um
tæp 8% milli ára en innflutning-
ur meira en 20% á sama tíma-
bili. Þar af hefur almennur inn-
flutningur verið 17% meiri og
15% hærri upphæð farið í fólks-
bíla og neysluvarning.