Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Qupperneq 6
6 - Priðjudagur 14. janúar 1997
IDagur-'ðKmttm
|| Valgerður
| Jóhannsdóttir
Hatrammt stríð virðist í
uppsiglingu milli einka-
reknu sjónvarpsstöðv-
anna tveggja, eftir að 5
yfirmenn Stöðvar 2
færðu sig yfir til keppi-
nautanna á Stöð 3.
Það er um fátt meira rætt
þessa dagana en ráðningu
5 yfirmanna íslenska út-
varpsfélagsins til keppinautar-
ins Stöðvar 3. Það er að vísu vel
þekkt í íslensku viðskiptalífi að
fyrirtæki „kaupi“ starfsmenn
hvert frá öðru, en fá ef nokkur
dæmi eru til um jafn dramat-
ískar mannahrókeringar og
þessar. Fimm yfirmenn af u.þ.b.
20 hættu hjá Stöð 2 og Bylgj-
unni á einu bretti. Það er tals-
verð blóðtaka, þótt forsvars-
menn Stöðvar 2 geri lítið úr því
og tali um að maður komi í
manns stað. Þeir eru hins veg-
ar augljóslega ósáttir við brott-
hvarf fimmmenninga.
Málssókn
„Þeir hafa ekki verið leystir
undan starfsskyldum sínum og
við þá hefur ekkert verið hægt
að ræða,“ segir Sigurður Guð-
jónsson, lögfræðingur og vara-
formaður stjórnar Stöðvar 2.
Hann segir að verið sé að skoða
hvort höfða eigi mál á hendur
fimmmenningunum fyrir brot á
ráðningarsamningum og sam-
keppnislögum. Hann fullyrðir
að þeir hafi haft á brott með sér
atvinnleyndarmál. „Magnús
Kristjánsson sat stjórnarfund í
félaginu 4.janúar 1997. Þar var
verið að samþykkja rekstrar-
áætlun, fjárfestingaráætlun og
fleira fyrir félagið til næstu ára.
Það var verið að fjalla um
kjarnann í lífi þessa fyrirtækis
og þessi gögn labbar nýr sjón-
Stöðvastríð!
varpsstjóri Stöðvar 3 með út úr
húsi.“
Magnús Kristjánsson, fyrr-
verandi markaðsstjóri Stöðvar
2 og nýráðinn sjónvarpsstjóri
Stöðvar 3, þvertekur fyrir að
hann eða félagar hans hafi haft
trúnaðarupplýsingar á brott
með sér. „Við höfum ekki upp-
lýst einn eða neinn um nein
trúnaðarmál íslenska útvarps-
félagsins, hvorki skriflega né
munnlega, og það verður að
sjálfsögðu ekki gert,“ segir
hann.
Atvinnuleyndarmál
Höfði Stöð 2 mál verður það
væntanlega gert á grundvelli
27.greinar samkeppnislaga,
þar sem segir „Óheimilt er í at-
vinnustarfsemi er lög þessi taka
Sigurður
Guðjónsson
Stöð2:
„Efað launþeginn getur
labbað út án samþykkis
okkar, get ég þá ekki alveg
eins hent honum út án þess
að borga honum nokkuð?"
til, að afla sér eða reyna að
afla sér með ótilhlýðilegum
hætti upplýsinga um eða um-
ráða yfir atvinnuleyndarmálum
starfseminnar. Sá sem hefur
fengið vitneskju um eða umráð
yflr atvinnuleyndarmálum á
réttmætan hátt í starfi sínu fyrir
annan eða í félagi við annan,
sbr. 1. mgr. má ekki án heimild-
ar veita upplýsingar um eða
hagnýta sér slík leyndarmál.
Bann þetta gildir í þrjú ár frá
því starfi er lokið eða samning
slitið. Þeim sem vegna starfs
síns eða stöðu að öðru leyti hef-
ur verið trúað fyrir uppdrátt-
um, lýsingu, uppskriftum, lík-
önum eða þess háttar er óheim-
ilt að hagnýta sér eða veita
öðrum afnot af slíku án sér-
stakrar heimildar."
Samkvæmt upplýsingum
Dags-Tímans hefur aldrei verið
höfðað dómsmál á grundvelli
þessarar lagagreinar og aðeins
einu sinni hefur slíkt mál borist
inn á borð Samkeppnisstofnun-
ar. Guðmundur Sigurðsson, hjá
Samkeppnisstofnun segir að í
því tilviki hafi verið kærð brot á
3 greinum samkeppnislaga,
þ.a.m. þeirri 27., en viðkom-
andi ekki verið tahnn hafa gerst
brotlegur við hana.
Brotthlaup
Sem fyrr sagði íhuga ráðamenn
á Stöð 2 einnig málsókn vegna
meintra brota fimmmenning-
anna á ráðningarsamningi.
„Þessi menn eru einfaldlega
bundnir vinnuskyldu gagnvart
okkur í 3 mánuði og þeir áttu
að mæta hér í gærmorgun. Það
er okkar að ákveða það hvenær
þeir fara út en ekki þeirra,“
segir Sigurður Guðjónsson og
bætir við. „Ef að launþeginn
getur labbað út án þess að fá
nokkurt samþykki, get ég þá
ekki alveg eins hent honum út
án þess að borga honum nokk-
uð. Þetta er gagnkvæmur upp-
sagnarfrestur og gagnkvæmur
róttur."
Magnús Kristjánsson segir
hins vegar að þeir fimmmenn-
ingar hafi óskað eftir því að fá
að hætta tafarlaust, en ráða-
menn á Stöð 2 farið í hart um
leið.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins eru þess fá ef nokkur
dæmi að atvinnurekendur hafi
höfðað mál gegn starfsmanni
fyrir ólögmætt brotthlaup. Lög-
fræðingur í vinnurétti sem
blaðið ræddi við í gær, segir að
atvinnurekendur geti krafist
skaðabóta í slíkum tilfellum á
grundvelli almennra skaða-
bótareglna. Fordæmi séu fyrir
því að dómsstólar hafi dæmt at-
vinnurekendum bætur, ef
starfsmenn hafa ekki virt
ákvæði kjarasamnings eða
ráðningarsamnings um upp-
sagnarfrest. í þeim tilvikum
hafi verið byggt á gömlu hjúa-
lögunum og viðmiðunin verið
sú að skaðabætur til atvinnu-
rekenda gætu orðið allt að jafn-
háar og laun viðkomandi
starfsmanns hálfan uppsagnar-
frestinn. Eftir því sem næst
verður komist eiga þessi mál
það hins vegar öll sameiginlegt
að það voru starfsmenn sem
fóru í mál til þess að fá greidd
laun út uppsagnarfrest sinn, en
ekki atvinnurekendur sem
stefndu vegna ólögmæts brott-
hlaups. Fari svo að Stöð 2
ákveði að höfða mál gegn
fimmmenningunum fyrir að
hlaupast á brott, verður það
væntanlega í fyrsta sinn sem
það er gert.
Magnús
Kristjánsson
Stöð 3:
„Við höfum ekki upplýst
einn eða neinn um nein
trúnaðarmál íslenska út-
varpsfélagsins og það verð-
ur að sjálfsögðu ekki gert. “
Samkeppnisbann
Það er nokkuð algengt í við-
skiptalífinu að í ráðningar-
samningum yfirmanna, eða
annarra sem taldir eru gegna
lykilhlutverki, séu ákvæði um
að viðkomandi starfsmaður
megi ekki ráða sig hjá keppi-
nautum í tiltekinn tíma, eftir að
hann hættir hjá fyrirtækinu.
Samkeppnisbann af þessu tagi
færist í vöxt að því er virðist.
Nýlegt dæmi um slíkt er að
finna í ráðningarsamningum
við yfirmenn og millistjórnend-
ur Pósts og síma hf, sem greint
var frá í Degi-Tímanum nýlega.
Það hefur vakið nokkra at-
hygli að fimmmenningarnir hafi
ekki verið með slík ákvæði í
sínum samningum við Stöð 2.
Magnús Kristjánsson staðfestir
að svo hafi ekki verið. Hann
vill hins vegar ekki upplýsa
hvort þeir hafi samið um slíkt
við Stöð 3. „Ég get ekkert upp-
lýst það hvernig ráðningar-
samningar eru gerðir hér. Þeir
eru trúnaðarmál, en mönnum
er ekki stillt neitt upp við vegg.“
Sigurður Guðjónsson segir
að ekki hafi verið talin þörf á
svona bannákvæði í ráðningar-
samningum mannanna fimm.
„Þeir mega fara til samkeppnis-
aðila okkar vegna, bara ef þeir
nota ekki gögnin okkar.“ Hann
telur samkeppnislögin duga og
alls óvíst sé einnig hversu mikið
hald sé í ákvæðum af þessu tagi
í ráðningarsamningum. Því séu
takmörk sett hversu miklar
skorður megi setja aflahæfi
manna, eða möguleikum þeirra
á að afla sér tekna.
Stefnir í stríð
Hvort til málaferla kemur í
þessari deilu Stöðvanna tveggja
eða hvernig þau fara er
ómögulegt að segja. Hitt er ljóst
að stefnir í hart stríð. Hjá Stöð
3 virðast menn líta svo á að
forsvarsmenn íslenska útvarps-
félagsins ætli sér með hótunum
um rannsókn og málaferli að
ófrægja starfsmennina og Stöð
3 um leið og ekki síður að
reyna að halda þeim upptekn-
um í þessu máli og gera þeim
eins erfitt fyrir og mögulegt sé
við að starfa á nýjum vinnu-
stað. Upp á Krókhálsi virðast
menn jafnsannfærðir um að
eigendur Stöðvar 3 hafi ekki
bara verið að kaupa sér góða
starfsmenn, heldur hafi til-
gangurinn beinh'nis verið að
koma höggi á Stöð 2. Eigendur
og hlutahafar Stöðvar 3 hafi
aldrei og muni aldrei geta sætt
sig við velgengni Jóns Ólafsson-
ar á þessu sviði.