Dagur - Tíminn Akureyri - 14.01.1997, Síða 11
|Dagur-®nrám
Þriðjudagur 14. janúar 1997 -11
]wnrwh T T 1 R
f f f fl
HANDKNATTLEiKUR • Bikarkeppni HSÍ
Nágrannaslagur í undanúrslitum
Halldór Ingólfsson og félagar úr Haukum fögnuðu innilega í leikslok, eftir sigur í framlengingunni gegn Stjörn-
unni á laugardaginn. Mynd:
Bikarmeistarar KA
mæta ÍR
Stórleikur undanúrslitanna
í Bikarkeppni HSÍ verður
án efa slagur Haf'narfjarð-
arliðanna, Hauka og FIi, en lið-
in munu mætast á heimavelli
Haukanna, á Strandgötunni
þann 22. janúar. Bikarmeistar-
ar KA sem unnu sér réttinn til
að Ieika í undanúrslitunum,
fimmta árið í röð, fengu heima-
leik gegn ÍR.
Höfum alltaf farið
Krýsuvíkurleiðina
„Það er ekkert nýtt að við fáum
útileik. Við höfinn ekki fengið
heimaleik síðan 1993 og við
höfum alltaf farið Krýsuvíkur-
leiðina í bikarnum - og yfirleitt í
blindbyl. Ég er hins vegar
ánægður með að þurfa ekki að
fara norður. Það er ljóst að það
fer eitt Hafnarfjarðarlið í úrslit-
in, en það hefði óneitanlega
verið gaman að mæta Haukun-
um í hreinum úrslitaleik í
keppninni," sagði Gunnar Bein-
teinsson, þjálfari FH.
Tvísýnir leikir
„Mér líst ágætlega á þetta. Það
er enginn leikur auðveldur í 4-
liða úrslitum og nánast sama
hvaða lið við hefðum fengið,
þetta verða tvísýnir leikir,"
sagði Sigurður Gunnarsson, en
lið hans Haukar, komst með
ævintýralegum hætti í undanúr-
slitin, með sigri á Stjörnunni.
Fátt virtist geta komið í veg
fyrir að Haukar féllu úr keppn-
inni fyrir Stjörnunni á laugar-
daginn. Stjarnan leiddi með 2-3
mörkum þegar skammt var til
leiksloka, en Haukamenn náðu
að knýja fram framlengingu. En
hafði Haukaþjálfarinn trú á
sigri sinna manna?
„Já, ég hafði fulla trú á
þessu allan tímann. Ég gerði
mér hins vegar grein fyrir því,
þegar við vorum þremur mörk-
um undir, að við þyrftum að
spila afburðavel og einhverjar
af heilladísunum þyrftu að
ganga í lið með okkur og það
gekk eftir að þessu sinni,“ sagði
Sigurður.
Ánægjulegt að
fá heimaleik
„Það eru önnur lögmál sem
gilda í bikarnum, heldur en í
deildinni eins og við vitum. ÍR-
ingar hafa verið á uppleið að
undanförnu og eru með sterkt
lið, þannig að við þurfum að
hafa okkur alla við ef við eigum
að komast áfram. Það var hins
vegar ánægjulegt að fá heima-
leik,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA, þegar þjálfarinn
var inntur um viðbrögð við
drættinum í keppninni. KA-
menn eru meistarar tveggja
síðustu ára og Akureyrarliðið
hefur náð í imdanúrslitin, sl.
fimm ár. Þess má reyndar geta
að KA-menn hafa oft fengið
harðari mótspyrnu en í vetur,
en liðið hefur sloppið við að
mæta 1. deildarliði, þangað til
nú.
Vonast eftir
betri móttökum
„Ef við ætlum okkur að verða
bikarmeistarar, þá þurfum við
að vinna alla leiki okkar í
keppninni og ég hef sagt að það
skipti ekki öllu máli hverjir
mótherjarnir eru, það eru allir
leikir erfiðir," sagði Matthías
Matthíasson, þjálfari ÍR. „Það
verður bara að koma í ljós
hvernig fer í KA-heimilinu, en
ég vona að mótttökurnar verði
betri en síðast því þá voru þær
til háborinnar skammar," sagði
Matthías, en lið hans varð fyrir
truflun x deildarleiknum gegn
KA í haust.
Matthías sagðist ekki óttast
lætin í KA-heimilinu, ÍR-ingar
væru vanir hávaðanum úr
Seljaskólanum þar sem þeir
leika heimaleiki sína. Þess má
geta að liðin mætast í deildinni
þann 19. þ.m, þremur dögum
fyrir bikarleik liðanna.
8-liða úrslit í
Bikarkeppni HSÍ:
Karlaflokkur
KA-KR 25:21
KA leiddi leikinn frá fyrstu
mínútu og oftast var 2-4
marka munur á liðunum.
Barátta KR-inga var aðdá-
unarverð, en hún var langt
frá því að vera nóg gegn
bikarmeisturunum.
Stjarnan-Haukar 22:26
Stjarnan leiddi leikinn
lengst af, en Haukar náðu
að jafna 21:21 á síðustu
mínútu leiksins. Þeir
reyndust sfðan mun sterk-
ari aðilinn í framlenging-
unni.
ÍR-Grótta 29:26
Gróttumenn byrjuðu vel,
en ÍR-ingar reyndust sterk-
ari á lokakaflanum.
Valur-FH 25:31
FH tryggði sér framleng-
ingu með marki Guðjóns
Árnasonar á lokasekúnd-
unum. Staðan var þá 25:25
og Valsmönnum gekk illa
að ráða við Lee, markvörð
FH í framlengingunni.
Leikir í undanúrslitum fara
fram 22. og 23. janúar en
þá mætast:
KA-ÍR
Haukar-FH
Kvennaflokkur
Stjarnan-FH 22:21
KR-ÍBV 16:11
V íkingur-Valur 12:14
Haukar-Fram 28:20
Leikir undanxirslitanna
fara fram 25. og 26. janúar
en þá mætast:
Valur-KR
Stjarnan-Haukar
ÍÞRÓTTAMAÐUR KA
Vemharð valinn
fjórða árið í röð
Vérnharð Þorleifsson júdó-
maður varð fyrir valinu
sem íþróttamaður KA ár-
ið 1996. Valið var tilkynnt við
hátíðlega athöfn í KA-heimil-
inu, en þetta er ijórða árið í röð
sem Vernharð hlýtur nafnbót-
ina íþróttamaður KA, en hann
var einnig útnefndur Iþrótta-
maður Akureyrar fyrir stuttu og
fær því til vörslu bikar, sem KA-
klúbburinn í Reykjavík gaf fé-
laginu á sextíu ára afmælinu
fyrir níu árum.
Vernharð náði 3. sæti á
tveimur A-mótum í júdó og
vann sér sæti á Ólympíuleikun-
um. Hann varð í 9. sæti á styrk-
leikalista Evrópu í júdó í sínum
þyngdarflokki og var valinn
júdómaður ársins. Vernharð
lýsti því yfir í haust að hann
væri hættur að keppa í júdó, en
hann hefur nú endurskoðað af-
stöðu sína og hefur hafið æfing-
ar á nýjan Ieik.
Róbert Julian Duranona
handknattleiksmaður hafnaði í
öðru sæti í kjörinu, en hann var
einn af lykilmönnum KA á síð-
asta ári og var jafnframt valinn
besti sóknarmaðurinn á ís-
landsmótinu. Kristimx Magnús-
son, sem hafnaði í 3. sæti, er
skíðamaður en hann varð fjór-
faldur íslandsmeistari í sínum
aldursflokki.
Aðrir sem voru tilnefndir af
hinum ýmsu deildum innan fé-
lagsins voru þeir Atli Þórarins-
son og Bjarni Jónsson knatt-
spyrnumenn, Birna Baldurs-
dóttir og Davíð Halldórsson í
blaki, júdómaðurinn Freyr
Gauti Sigmundsson, skíðakonan
Þeir urðu í þremur efstu sætunum í valinu á íþróttamanni ársins. Frá vinstri Róbert Julian Duranona sem varð í 2.
sæti, þá Vernharð Þorleifsson íþróttamaður KA og þá Magnús Gíslason, sem tók við verðlaununum fyrir 3. sætið
fyrir hönd sonar síns, Kristins Magnússonar sem er við æfingar erlendis. M,nd:ie
Dagný Kristjánsdóttir og hand-
knattleiksmennirnir Jóhann G.
Jóhannsson og Halldór Sigfús-
son.
Allar deildir innan KA til-
efndu þrjá x'þróttamenn, tvo
innan deildarinnar og einn úr
annarri deild innan félagsins.
Aðalstjórn félagsins kaus síðan
um þá íþróttamenn sem til-
nefndir voru.