Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 2
14 - Föstudagur 14. febrúar 1997 3IktgurÁ!Imttrai LÍFIÐ í LANDINU / ranni íslendinga er uppskriftin aö góðum sunnudagsmat lambalœri í brúnni sósu, borið fram með brúnuðum kartöflum og rauðkáli. Þetta er það sem sumir mgndu kalla lierramannsmat - og það fólk sem við spurð- um um sunnudagsmat er ginnkegpt fyrir þessu. En þetta er kannski ekki endalega það sem það borðar alla sunnudaga, enda hafa matarvenjur þjóðarinnar breyst með nýrri kynslóð. En það gamla stendur þó fyrir sínu, þegar við spyrjum um sunnudagssteikina... -sbs. Svín með puru ,Danir borða svína- og kjúkl- ingakjöt í sama mœli og við borðum lambakjöt“ Snæbjörn Kristjánsson Góð svínarifjasteik með puru er sunnudagssteik. Ég kynntist svína- kjötinu fyrst að ráði þegar ég var að vinna úti í Danmörku. Danir borða svína- og kjúklingakjöt í sama mæli og við lambakjötið. En það væri ekki úr vegi fyrir íslenska kaupmenn að bjóða uppá þessa rifjasteik í helgarmatinn, því þetta er fínn matur,“ segir Snæbjörn Kristjánsson, yfirkokkur á Fiðlaranum á þakinu á Akureyri. Um matreiðsluna á þessu góðmeti segir Snæbjörn að hita skuli svínið í ofni á um 200 gráðu hita í um 45 mínútur, en síðan á topphita í lokin. „Þetta bragð- bætir maður rétt í lokin með salti og pip- ar. Ber þetta síðan fram, skorið niður í sneiðar, með ýmsu góðgæti, svo sem brúnuðum kartöflum, rauðkáli, grænum baunum, súrsuðum gúrkum og brúnni sósu. Þetta er svona það sem kalla má einfaldan heimilismat," segir yfirkokkur- inn. „Sá sunnudagsmatur sem ég er helst vanur af æskuheimilinu er lambalæri, kótelettur eða hryggur. Ég gæti nú reyndar best trúað því að þetta væri —— sunnudagsmat- ur enn í dag á mörgum heim- ilum landsins," segir hann. -sbs. Indverskur helgar- matur í miðri viku „Kannski er það vegna tímaskorts sem ég gef mér ekki meiri tíma í eldamennsku “ Eg er ekki frumlegur kokkur. Kannski er það vegna tímaskorts sem ég gef mér ekki meiri tíma í eldamennsku. En á góðum stundum finnst mér gaman að reiða fram til dæm- is indverskan mat,“ segir Ágústa Kristín Ævarsdóttir flugfreyja. Aðspurð um matinn indverska segir Ágústa að hráefni í honum sé gjarnan kjúklingur, og síðan til dæmis þarlend krydd, af ýmsum toga. Þessa rétti megi síðan .....bera fram með djúpsteiktu brauði og nógu af hrísgrjónum. Síðan hefur maður gjarnan með ís og íssósu, sem auðvitað er algjör kaloríubomba," segir hún. í fluginu vinnur Ágústa vaktavinnu. Þá er vinnufyrirkomulag eiginmanns hennar, Sveins Helgasonar, fréttamanns á útvarpinu, með sama hætti. „Vegna vinnunnar verðum við stundum að búa okkur til helgi í miðri viku. Borðum þá góðan mat og slöppum af. Setjum góða tónlist á fóninn, kveikjum á kerti, borð- um og spjöllum um atvik síðustu daga. Þessar stundir finnast mér afar nauð- synlegar," segir hún. -sbs. Sunnudags- matur á iaugar- dagskvöldum Lamadýrakjöt og froskalappir Ágústa Kristín Ævarsdóttir að er lambalæri, matbúið á hefðbundinn íslenskan máta sem er eftirlæti mitt sem sunnudagsmatur," segir Steinn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og starfsmaður á Leiðbeiningastöð heimilanna. „Læri sem er borðið fram með brúnuðum kartöflum, brúnni sósu, rauðkáli og græn- um baunum. Ekki spillir fyrir ef með er drukkið malt og appels- ín, blandað í því sem næst jöfn- um hlutföllum. Við erum ekki nema þrjú í heimili og þar sem „Ekki spillir fyrir ef með er drukkið malt og appelsín, blandað í því sem nœst jöfn- um hlutföllum. Svona jólabland. “ nokkur fyrirhöfn er að matbúa lærið finnst ekki í þessa elda- mennsku leggjandi, nema þegar margir koma saman,“ segir Steinunn. „Ég hef þá tilfinningu að Steinunn Valdís Óskarsdóttir sunnudagsmatur yngra fólks hafi verið að færast yfir á laug- .ardagskvöldið. Þá setjist fólk niður og borði góðan mat og drekki jafnvel rauðvín með. Síð- an setjist öll fjölskyldan niður að máltíð lokinni og horfi á Spaugstofuna í Sjónvarpinu.“ -sbs varpsmaður á Akureyri. „Á sumrin er maður alltaf að grilla. Nautakjöt eða lambakjöt, eða þá svona rusl eins og puls- ur. Nei, ég er ekki mikill mat- maður. En mér finnst gaman að gera mér dagamun í mat.“ Gestur Einar Jónasson segir að sitt eftirlætishráefni til mat- „Ég er ekki hrifinn af þessu pastarusli“ argerðar sé lambakjöt. Það standi alltaf fyrir sínu. „Ég er ekki hrifinn af þessu pastarusli sem víða er á borðum. Síðan get ég náttúrlega sagt frá því að á ferðalögum erlendis hef ég borðað til dæmis froskalappir og lamadýrakjöt. En hrifnastur er ég þó af lambinu því sem kennt er við Ijöllin,“ segir Gest- ur Einar. -sbs Gestur Einar Jónasson. Þegar ég var strákur var það föst regla að við feðg- arnir færum saman í bíl- túr á sunnudagsmorgnum. Þegar við komum svo heim um hádegisbil var það föst regla að mamma væri búin að matbúa læri eða hrygg. Þetta var toppurinn og ís- lenskt lambakjöt er það besta sem ég fæ,“ segir Gestur Einar Jónas- son, út-

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.