Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 3
íkgur-®mmm Föstudagur 14.febrúar 1997 - 15 HEILSULÍFIÐ í L A N D I N U Nú er okkar fólk búið að brenna fitu og styrkja líkama sína í 6 vikur og kílóin reytast af yfirvegað en örugglega. Hjá Vaxtarrœktinni fyrir norðan er allt í sóm- anum, Guðmundur Lárus hefur misst 11 kíló frá byrjun og Halla 6 kíló, Páll er Raúl, sem þjálfar okkar fólk í Reykjavík. stunginn afmeð KA til Ungverjalands. í Airobic Sport er einnig allt á niðurleið: Magnús Ólafsson þjálfar nú sem vitlaus vœri, er búinn að missa 23 kíló síðan í haust og Halldóra hefur lést um tœp 10 kíló. Sannkallaðar hetjur holdsins! Magnús Ólafsson er kom- inn niður í 142 kíló og hefur misst fimm kíló síðustu tvær vikurnar. Raúl þjálfari segir að Magnús sé orð- inn svo meðvitaður um heilbrigt líferni að hann hafi ákveðið að fara að þjálfa fimm sinnum í viku í stað þrisvar og þá hafi kilóin byrjað að fjúka. „Þegar hann byrjaði sagði ég honum að svona þungur maður þyrfti að þjálfa fimm sinnum en hann vildi byrja á því að koma þrisv- ar. Hann hefur náð ótrúlegum árangri, þetta var maður sem gat varla gengið í fimm mínútur án þess að standa á öndinni en núna hamast hann í 60 mínútur án þess að finna verulega fyrir því.“ Halldóra er nú 72 kfló og hefur því misst um þrjú kfló frá því að við athuguðum gang mála fyrir hálfum mánuði. Hún þjálfar líka fimm sinnum í viku. En hvað segir Raúl er það aðal- málið að þjálfa svona oft, fimm sinnum í viku? „Ég held að ef menn vilja. koma fitubrennslunni í gang þá sé ijórum til fimm sinnum í viku lágmarkið. Til þess að viðhalda þyngd og þoli er þrisvar sinnum í viku aftur á móti nægjanlegt." Allir þurfa fitu Gullvæga samsetningin, hreyf- ing og rétt matarræði, gildir auðvitað enn, þetta tvíeyki sveimar um eins og allsherjar- uppgötvun þessa dagana og vonandi eitthvað áfram því allir sem „vit hafa á málunum" eru sammála um að jörðin er kringlótt! Raúl þrælar því liðinu ekki bara út heldur fylgist grannt með mataræði Magnús- ar og Halldóru, enda er hann næringarfræðingur. „Aðalvandi Halldóru var t.d. sá að hún borðaði of mikið af kolvetnum, eða um 80% af inn- töku hennar var kolvetnaríkur matur. Hún borðaði t.d. of mik- ið af brauði, ég kom betra jafn- vægi á mataræðið og núna er hún á 60% kolvetnum, 30% prótínum og 10% af fítu.“ Já fitan er nauðsynleg segir Raúl. „Líkaminn þarfnast fitu þar sem fitan er næst stærsti orkugjafinn. Til að fylgjast vel með mataræðinu hjá þeim þá skoða ég matardagbækur þeirra og get þannig fylgst vel með.“ Konan hringdi, svo ánægð með sinn mann Fyrir hálfum mánuði sagði Raúl lesendum Dags-Tímans frá sjó- manni sem ákvað að breyta lífs- stfl sínum algjörlega. Ilann er í þjálfun hjá Raúl og passar líka vel upp á matarræðið. „Hann hefur misst 12 kfló í allt. Hann er núna úti á sjó og vegna þess hve fæðið er oft þungt á sjónum tók hann mat með sér sem hann getur borðað á milli stóru máltíðanna. Þannig þarf hann ekki að borða eins mikið í einu og heldur brennslunni gangandi. Já, hann hefur al- gjörlega breytt um stfl og konan hans hringdi meira segja í mig til að þakka mér fyrir.“ En getur hann þjálfað á sjón- um? „Já, þeir eru með hlaupa- bretti og hjól þannig að ég setti saman þjálfunarprógram fyrir þessi tæki. Hann ætlar að æfa í 20 mínútur á dag en ég sagði honum að hvfla sig um helgar, enda er hann í erfiðri vinnu.“ Saltið ekki hræðilegt Iljá fólkinu sem við fylgjumst með í Vaxtarræktinni á Akur- eyri er allt í góðum gangi. Sig- urður Gestsson þjálfari segir að Guðmundur Lárus hafi nú misst 11 kfló í allt eða á sex vikum. Halla hefur misst tvö kfló á síð- asta hálfum mánuði og er núna 77 kfló. „Tvö kfló hjá henni á þessum tíma er einmitt eins og við viljum hafa það, það er ekki raunhæft að hún léttist hraðar." Sigurður segir að það sé mikilvægt þegar fólk svindlar aðeins að gefast ekki upp. „Ef fólk borðar óhóflega einu sinni, kannski í veislu, á það að hugsa sem svo að það tefjist bara um einn dag og halda ótrautt áfram.“ Einhver góð ráð? „Það er fyrst og fremst að gefast ekki upp þótt menn tefj- ist aðeins. Það koma alltaf dag- ar eins og bolludagur og sprengidagur og við verðum að taka þátt í þeim. Það er líka ríkjandi misskilningur þetta með saltið. „Menn álíta alltaf að salt hafi með fitubrennslu að gera en það er ekki rétt, menn geta borðað salt eins og þeir vilja. Ef menn borða alltaf mik- ið salt myndast ákveðið jafh- vægi í lflcamanum þannig að það er bara hætta á að salt bindi vatn í líkamanum ef salt- neysla er stöðugt að breytast. -mar Hlaupið á staðnum - með góðum árangri Sannir skokkarar eru sennilega sammála um að fátt sé leiðinlegra en hlaupa á hlaupabretti. Þeir vilja hlaupa úti, anda að sér ferska loftinu og njóta þess að takast á við veður og vinda. En á landinu okkar góða koma dagar þar sem jafnvel hörðustu útiskokkar- arnir beygja sig fyrir veður- öflunum og játa sig sigraða. Aðrir höfða til skynseminnar og hreinlega sleppa því að hlaupa úti þegar frostið er sem mest, hálkan sem verst og snjóruðn- ingar uppi á öllum gang- stéttum, enda er svo sem engin ástæða til þess að bjóða hættunni heim og haltra síðasta spöl- inn með snúinn ökkla. Hlaup á vefnum En engin ástæða er til þess að hætta að hlaupa þótt skil- yrðin úti fyrir séu ekki þau allra bestu. Illaupabrettin geta nefnilega verið stór- skemmtileg og fjölbreytt æf- ingatæki sem geta meira að segja bætt árangur skokkara umtalsvert. Hér er ein skemmtileg og krefjandi æf- ing sem á rætur að rekja gegnum veraldarvefinn alla leið til Runners world. Þessi æfing tekur innan við klukkutíma og ætti því að vera hentug fyrir skokkara í þokkalegri þjálfun. Ekki er talið ráðlegt að fara offari við þessa æfingu frekar en aðrar, tvær æfingar í viku og létt skokk á brettinu þess á milli þykir hæfilegt. Hraðaleikur Hitaðu þig vel upp með ró- legu skokki í 10 mínútur. Auktu síðan hraðan, þannig að hann verði 20 sekúndum meiri á klukkustund en með- alhraði þinn í 5 km. hlaupi. Hlauptu þrjár lotur á þess- um hraða í 3 mínútur með þriggja mín- útna mjög ró- legu skokki á milli. Að þess- um lotum loknum tekur við 5 mínútna rólegt skokk og síð- an endurtekning á lotunum þremur og síðan rólegt skokk í 5 mínútur til að kæla sig niður. Mundu að erfiðið skilar sér með betri árangri og teygjur eru nauðsynlegar í lok hverrar æfingar. Þorsteinn G. Gunnarsson IÞROTTIfl FVHIR RLLR

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.