Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 11
^Dagur-tlImrám
Föstudagur 14. febrúar - 23
FÍNA FRÆGA FÓLKIÐ
Undirsáti Klein í
Amsterdam
Sumir geta þetta, eru svona,
tala svona, ganga svona og
myndast svona. Og þá er
bara að öfunda þá. Mark
Vanderloo á íbúð í París,
aðra íNew York, er einn dag-
inn í Barcelona og þann
nœsta í Sao Paulo - en hvergi
finnst honum betra að vera
en íAmsterdam.
Vanderloo er reyndar getinn
og fœddur í þessu láglenda
landi þótt œskunni hafi hann
varið í Kenía þar sem faðir
hans starfaðl Fyrir þá sem
ekki þekkja gjörla til starfa
og einkalífs Vanderloos má
gela þess að hann á þann
kynþokkafulla líkama sem
selur Eternity-ilmvatnið frá
Náttúrulegur maður eins og Mark endar daginn oft á Obibio, búð sem sel-
ur aðeins vistvænar vörur. Á efstu hæðinni er testofa sem hefur yfir 30 te-
tegundir á boðstólum. Og þótt maður heiti Mark Vanderloo og sé fyrir-
sæta hjá Klein þá tekur maður nú samt af sér skóna þarna - því hér eru
allir jafnir.
Leiðarvísir Marks um Amslerdam:
Calvin Klein.
Kafíihús:
The Christmas Brother’s Backstage
Utrchlsed-Warsstraat 6.
Veitinqahús:
Kapitein Zeppo’s, Gebed Zonder End 5 (lifandi
tónlisl og flœmskur matur).
Bókabúð:
Scheltema Holkema Vermeulen, Koningsplein 20.
Kyrrð og þögn heillar Mark. Á
morgnana fer hann gjarnan í Ríkis-
listasafnið, áður en holskefla túr-
ista skellur á safninu, og teygar
verk hollenskra meistara. Þegar
hávaðinn er að æra hann er Bijen-
hof-hverfið honum griðastaður. En
þegar blóðið ólgar og nóttin brest-
ur á er tónleikastaðurinn Paradiso,
fyrrum kirkja, efstur á lista.
Tvíburarnir Gary og Greg eiga vinsælustu kaffibúlluna í bænum (búllan
heitir Backstage fyrir þá sem geta fetað í fótspor Marks og skroppið til
Amsterdam á næstunni). Þeir eru sviðsleikarar frá Bandaríkjunum en leist
svo vel á Amsterdam á einhverri leikferðinni að þeir skutu rótum og
keyptu kaffihús.
Clatar&ífið
Teitur Þorkeisson
skrifar
Valentínus-
ardagur
Hvað gengur eiginlega á, verða
allir að vera ástfangnir í dag
eða hvað? Geta konur hiklaust
afskrifað eiginmenn sína og
elskhuga ef þeir láta ekki blóm-
um og silkinærfötum rigna yflr
þær, bjóða þeim út að borða í
kvöld og elskast heitt með þeim
í alla nótt? Er dagurinn jafnvel
íluttur inn og markaðssettur af
leynifélagi veitingastaðaeigenda
og blómasala? Ekki alveg. Þessi
dagur elskenda er upprunninn í
Evrópu, þaðan sem hann flutt-
ist vestur um haf með landnem-
um Ameríku. Einhverra hluta
vegna gleymdist hann svo í Evr-
ópu þangað til byrjað var að
ílytja hann aftur yfir hafið á
þessari öld. Og ísiand er einmitt
á leiðinni yfir hafið. Og eins og
jólin og aðrar hefðir er vissu-
lega hægt að gera hann að
söluvöru. En það breytir ekki
því að dagurinn í dag er tilefni
til að gera eitthvað fyrir þann
sem maður elskar. Og eins og á
jólunum er það hugurinn sem
skiptir mestu máli. Það getur
varla verið svo erfitt að eiga
nokkrar klukkustundir saman,
og ef þú átt ekki pening er allt-
af hægt að teikna blómvöndinn,
semja ástarljóð.
Blóma- og silkinærfataregnið
er náttúrulega í góðu lagi líka.
Svo maður tali nú ekki um
kvöldverðinn og svona eins og
næturlangan ástarfund. Er ekki
laugardagur á morgun hvort eð
er?
Þegar fætur Marks gerast lúnir eftir vafrið um stræti Amsterdam tekur
hann stundum sjálfan sig á orðinu og leigir sér bát.
^Dagur-^Eúttmrt
———...... .........
- besti tími dagsins! JJ''
TILBOÐ A
SMÁAUGLÝSINGUM
FYRSTA BIRTING
800 KR.
ENDURBIRTING
400 KR.
Ofangrelnd verö miðast vlö staögreiðslu eöa VISA I EURO
Sími auglýsingadeildar er 460 6100 ________
ShSSi Fax auglysingadeildar er 460 6161 |
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. febrúar 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 25. útdráttur
1. flokki 1990 - 22. útdráttur
2. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. flokki 1991 - 19. útdráttur
3. flokki 1992 - 14. útdráttur
2. flokki 1993 - 10. útdráttur
2. flokki 1994 - 7. útdráttur
3. flokki 1994 - 6. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 14. febrúar.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKIAVÍK • SÍMI 569 6900
I