Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Blaðsíða 10
22 - Föstudagur 14. febrúar 1997 Akureyri Athyglisverðir tónleikar / Athyglisverðir tónleikar 1 verða á Akureyri um næstu helgi, en þá munu Mariola Kowalczyk mezzósópran og Jerzy Tosik- Warszawiak píanóleikari halda einsöngstónleika. Tónleikarnir verða í A-sal Tónlistarskólans á Akureyri sunnudaginn 16. febrúar og heljast kl. 17:00. Á efnisskránni eru m.a. lög sem sjaldan heyrast á íslandi þannig að hún er að hluta til óvenjuleg fyrir íslenska áheyrendur. Á henni eru lög eftir Biset, Chopin, Dvorák, Karlowicz, Moniuszko, Mozart, Musgorski, Obradors, Rossini, Schubert, Verdi og íslensku tónskáldin Björgvin Guðmundsson, Eyþór Stefánsson, Maríu Brynjólfs- dóttur, Sigvalda Kaldslóns og Þórarinn Guðmundsson. Bingó Norðurlands- deildar SÁÁ ip-jps^-^jNorðurlandsdeild SÁÁ verður með bingó laugardaginn 14. febrúar kl. 15 í húsi Aldraðra á Akureyri. Góðir vinningar í boði. í Hollandi við Jan van Eyck Akademíuna. Aðalstarf hennar hefur verið myndlist og ritstörf. Hún hefur víða sýnt og eftir hana liggja nokkrar bækur og vídeóverk. ísafjörður Einar Garibaldi sýnir í Slunkaríki Laugardaginn 15. 0/ _°) janúar opnar Einar Garibaldi Eiríksson myndhstarsýninguna „Bönd“ í Gallerí Slunkaríki á ísafirði. Einar stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og Brera Akademíuna á Ítalíu. Þessi sýning mun vera áttunda einkasýning hans, en einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga. Á sýning- unni á ísafirði verða átján ný málverk sem Einar hefur unnið með sérstöku tilliti til sýningar- staðarins. Yfirskrift sýningar- innar er ætlað að vísa til þeirra margvíslegu banda er hnýta saman menn og staði. Bönd sem geta hvorutveggja í senn; aukið samskipti og fjötraö í ein- angrun Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga á milli kl. 16.00 - 18.00. Henni lýkur hinn 9. mars næstkomandi. Kaffihlaðborð og söngur í Lóni Kaffisala verður í Lóni v/Hrísalund nk. sunnudag frá kl. 15. Karlakór Akureyrar-Geysir syngur nokkur létt lög kl. 16 undir stjórn Roars Kvam við undirleik Richards Simm. Glæsilegt kaffihlaðborð og söngur á kr. 700 fyrir fullorðna, hálft gjald fyrir börn. Karlakór Akureyrar-Geysir, Kvennaklúbburinn. Fræðslufundur FAASAN Fræðslufundur verður haldinn hjá FAASAN, félagi aðstand- enda Alzheimersjúklinga á Ak- ureyri og nágrenni, laugardag- inn 15. febrúar kl. 13 í Dvalar- heimilinu Hlíð. Gestur fundar- ins verður séra Svavar A. Jóns- son. Allir velkomnir. Flóamarkaður Hjálpræðishersins Flóamarkaður Hjálpræðishers- ins verður opinn í dag, föstu- dag, frá kl. 10-17. í hverri viku er mikið af nýjum vörum og alltaf hægt að gera góð kaup því verðið er mjög lágt. Mark- aðurinn er í húsnæði Hjálpræð- ishersins á Hvannavöllum 10. Ásta Ólafsdóttir sýnir í Gallerí+ Yfir helgina er opin sýning Ástu Ólafsdótt- ur í Gallerí+, Brekku- götu 35, Akureyri. Sýningin stendur til og með 23. febrúar. Galleríið er opið laugar- og sunnudaga frá kl. 14-18 eða eftir samkomulagi. Ásta Ólafsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands og framhaldsnám Höfuðborgar- svæðið Félagsvist Breiðfirðingafélagsins Félagsvist verður spiluð sunnu- daginn 16. febrúar kl. 14 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Kvennakirkjan í Reykjavík Kvennakirkjan heldur messu í Neskirkju sunnudaginn 16. febrúar kl. 20.30. Þann 14. febrúar eru fjögur ár síðan Kvennakirkjan var stofnuð og í messunni munu þrjár konur ræða tengsl sín við Kvenna- kirkjuna; þær Rannveig Jóns- dóttir kennari, Gyða Baldurs- dóttir hjúkrunarfræðingur og Heiðrún Sverrisdóttir leikskóla- ráðgjafi. Séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir flytur stutta pred- ikun. Námskeið um Ijóðagerð rEnd urmenn tun ars t o f'n un Háskóla íslands mun á næstu tveimur mánuðum bjóða áhugafólki um ljóðagerð upp á kvöldnámskeiðið Listin að yrkja. Námskeiðið fer fram næstu sjö miðvikudagskvöld og er ætl- að þeim sem hafa áhuga á að þjálfa sig í ljóðagerð. Kennari verður Þórður Helgason bók- menntafræðingur og rithöfund- ur, lektor við KHÍ. Upplýsingar og skráning í símum 525 4923 og 525 4924, myndsíma 525 4080 og tölvupósti end- urm@rhi.hi.is Námskeið í kínversku Námskeiðið „Kínversk frásagnarlist - skáldsögur frá seinni öldum“ verður haldið fimm mánudagskvöld og hefst þann 17. febrúar. Kennari verður Hjörleifur Sveinbjörns- son, en hann nam við Peking- háskóla ’76-’81. Þá verða byrjenda- og fram- haldsnámskeið í Kínversku, þar sem kennd verða undirstöðuat- riði kínverskrar tungu. Byrj- endanámskeiðið er níu kvöld, hefst 26. febrúar og stendur til 23. apríl, kennari verður Hjör- leifur Sveinbjörnsson. Fram- haldsnámskeiðið hefst 18. mars og stendur í níu kvöld til 13. maí, leiðbeinandi á því verður Edda Kristjánsdóttir BA í kín- versku og heimspeki frá Pek- ingháskóla og BA frá Kaup- mannahafnarháskóla í Austur- landasögu. Nánari upplýsingar og skráning í símum 525 4923, - 24, og -25, myndsíma 525 4080 og tölvupósti endurm@rhi.hi.is Myrkir músíkdagar n / Sunnudagskvöldið 16. Lf febrúar kl. 20.30 verða Myrkir músíkdagar í Gerðarsafni. Þar frumflytur Örn Magnússon, píanóleikari, Svip- myndir, flokk píanóverka eftir Pál ísólfsson. Verkin voru gefin út á nótum árið 1994 af ís- lenskri tónverkamiðstöð en hafa ekki verið leikin á tónleik- um enn. Verð aðgöngumiða er 1.000 krónur og verða þeir seldir við innganginn. Tölvuleikjapopp í Hinu húsinu Hin frábæra hljómsveit Bag of Joys heldur síðdegistónleika í Hinu húsinu þann 14. febrúar kl. 17.00. Bag of Joys er tríó úr Breiðholtshverfi sem skipað er tveimur strákum og einni stelpu, og saman framleiða þau tölvuleikjatónlist. Félag eldri borgara Kópavogi Spiluð verður félagsvist að Fannborg 8 (Gjábakka) föstu- daginn 14. febrúar kl. 20.30. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. Guðmundur stjórnar. Leika fjórhent á píanó Um þessar mundir 1 stendur yfir tónlistarhá- * -l tíð í Garðabæ í tilefni af því að liðin eru 200 ár frá fæð- ingu austurríska tónskáldsins Franz Schubert. Þriðju tónleik- ar hátíðarinnar verða haldnir laugardaginn 15. febrúar, kl. 17. Þar munu Jónas Ingimund- arson og Gerrit Schuil leika fjórhent á píanó verk eftir Schubert. Tónleikarnir eru haldnir í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ. Forsala aðgöngumiða er í Bókabúð Máls og menning- ar, Laugavegi 18, en miðasala |Dagur-'3ImTtmt er opin í Kirkjuhvoli við Vídal- ínskirkju í Garðabæ milli 15-17 tónleikadaginn. Miðaverð er 1.400 krónur. Gallerí Sævars Karls s^o-ö-5x Sigurborg Stefánsdótt- j) ir opnar sýningu í Gall- eríi Sævars Karls föstudaginn 14. febrúar. Sigur- borg stundaði nám hjá Hans Cr. H-jer, listmálara í Kaupmanna- höfn og Skolen for Brugskunst (Danmark Design skole) í sömu borg og lauk þaðan prófi úr teikni- og grafíkdeild 1987. Sig- urborg hefur starfað sem kenn- ari við Myndlista- og handíða- skóla íslands frá 1989. Laugardagsgangan Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10.00 húskjallarans nk. mánudags- kvöld tileinkaða nútímaleikrit- um eftir breskar konur. Dagskráin hefst kl. 21 en húsið er opnað kl. 20.30. Að- gangseyrir er 600 krónur, en 400 krónur fyrir meðlimi Lista- klúbbsins. Evróputónleikar í Langholtskirkju J Mánudaginn 17. febrú- 1 ar kl. 19.30 efnir Ríkis- útvarpið til Evróputón- leika í Langholtskirkju. Tónleik- arnir eru framlag Rflcisútvarps- ins til tónleikaraðarinnar „Söngmessan", sem skipulögð er af Evrópusambandi útvarps- stöðva. Tónleikunum verður út- varpað beint til fjölmargra út- varpsstöðva á meginlandi Evr- ópu. Tónleikarnir hefjast, stund- víslega kl. 19.30 og verða miðar seldir við innganginn. Skækjan á leiklistarhátíð í Svíþjóð Þjóðleikhúsinu hefur verið boðið með sýninguna Leitt hún skyldi vera skækja, í leikstjórn Baltasar Kormáks, á leiklist- arliátíð í Stokkhólmi í lok maí. Hátíð þessi er haldin árlega á vegum sænska ríkisleikhússins og er stærsti viðburður af þessu tagi á Norðurlöndum. Um fjörtíu leiksýningar verða í boði, frá írlandi, Noregi, Þýskalandi, Rússlandi, Argentfnu, íslandi og Svíþjóð. Meginviðfangsefni hátíðarinnar er „leik- húsið og framtíðin” og verða íjölmargar námsstefnur tengd- ar því efni. Þrítugasta sýningin er á laugardaginn 8. febrúar. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10, laugardag, létt ganga um borgina. Snúður og Snælda frumsýna í Risinu leikritið Ástandið kl. 16 á morgun, sýn- ingar sunnudag, þriðjudag og fimmtudag. Miðaafhending við inngang og á skrifstofu félags- ins. Fyrirlestur um J.P. Jacobsen f' / í fyrirlestraröðinn i Ork- jjú anens 0je: Sunnudaginn 16. febrúar mun Siri Karlsen sendikennari í dönsku við Háskóla íslands halda fyrir- lestur í Norræna húsinu. Fyrir- lesturinn nefnist „Roserne og J.R Jacobsen". í fyrirlestrinum ætlar Siri Karlssen lektor að segja frá danska skáldinu J.P. Jacobsen (1847-1885) og skáld- skap hans. Verðlaunuð stríðsmynd Nk. sunnudag, 16. febrú- ar kl. 16, verður kvik- myndin „Uppgangan" (Voskhozdenie) sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd þessi var gerð í Moskvu árið 1976 og byggð á skáldsögunni „Sotnikov” eftir Vasilí Bykov. Skýringar á ensku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. „Breskir villikettir“ Hópur ungs leikhúsfólks verður með dagskrá í Listaklúbbi Leik- Jazzkvartett Reykja- víkur í Gerðarsafni J Mánudagskvöldið 17. ! febrúar kl. 20.30 verða haldnir jazztónleikar í Listasafni Kópavogs - Gerðar- safni. Fram kemur Jazzkvartett Reykjavíkur, en kvartettinn hef- ur nýlokið við að leika fyrir um 5.000 skólabörn í Kópavogi og Árnessýslu á undanförnum tveimur vikum á vegum ís- lenskra skólatónleika - Tónlist fyrir alla. Verð aðgöngumiða er 1.000 krónur og verða þeir seldir við innganginn. Sýning Morten Krogvolds Laugardaginn 1. febrúar var opnuð sýning í Norræna húsinu á Ijósmyndum eftir Norð- manninn Morten Krogvold. Sýningunni lýkur á sunnudag 16. febrúar og er hún opin um helgin frá kl. 14-19. Útsaumuð kirkjuklæði / Elsa E. Guðjónsson held- JLf ur fyrirlestur um útsaum- uð kirkjuklæði á íslandi í safnaðarsal Hallgrímskirkju á sunnudaginn kl. 17. Gömul kirkjuklæði hafa hreint ekki fallið í gleymskunnar dá og hafa margar nútímakonur not- að þau sem fyrirmyndir við út- saum enda mörg þeirra sérlega falleg. Fimm útsaumuð klæði verða til sýnis í forsal kirkjunn- ar.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.