Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Side 7
,21agur-®mxmrx
Föstudagur 21. febrúar 1997 -19
Helgin
framundan
Líf
W æ Umsjón
fm MarínG.
S Hrafnsdóttir
uy i áf0^ ^
^ AknrRuri/NnrAnrlanri
Akureyri/Norðurland
Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA, er
keikur fyrir bikarleikinn á morgun
„Ég er bjartsýnn og ég spái að leikurinn fari
29-26 fyrir KA. En það er óþarfi að fagna sigri
fyrirfram og við skulum taka þessu með hóg-
værð,“ segir Erlingur Kristjánsson, fyrirliði í
handknattleiksliði KA.
Mikil stemmning er á Akureyri fyrir úrslita-
leikinn í bikarkeppninni, sem háður verður
milli KA og Hauka í Laugardalshöllinni síðdeg-
is á laugardag. Rútuferðir verða suður á leik-
inn og fyrirséð er að margir fara til að hvetja
sína menn til dáða. KA-menn syðra verða
einnig margir í Laugardalshöllinni og eins
áhangendur Hauka.
„Undirbúningur fyrir svona leiki er kominn í
nokkuð fastar skorður hjá okkur. Við förum
suður á föstudagsmorgun og munum dveljast á
Hótel Örk í Hveragerði. Æfum þar í íþróttahús-
inu um kvöldið, en að öðru leyti tökum við því
rólega og búum okkur undir átökin,“ segir
Erlingur. -sbs
Með hýrri há. Komið með bikarinn í handbolta norður til Akureyrar fyrir ári síðan. Erlingur Kristjánsson, fyrirliði, og Pétur Bjarnason,
dyggur stuðningsmaður. Skyldu þeir fagna með hýrri há aftur í ár. Mynd: bg
Duflað og daðrað í
Freyvangi
Freyvangsleikhúsið frumsýnir í kvöld, föstudagskvöld,
kassastykkið Með vífið í lúkunum. Hákon Waage leik-
stýrir verkinu. Fyrir daðrara og dekrara er auðvitað
ekki úr vegi að bregða sér fram í Eyjaijarðarsveit og sjá þetta
verk, þar sem tugir eyfirskra áhugaleikara leggja gjörva
hönd á plóg. Af nafni leikritsins má einnig ráða að þar sé
duflað og daðrað af tvíefldum þrótti, þótt nafngift verksins
bendi líka til þess að herramönnum geti brugðist bogalistin í
að eiga við snotrar snótir. Menn geta jú alltaf verið með vífið
rétt einsog lífið, í lúkunum. En sjón í Freyvangi er sögu rík-
ari. -sbs.
Skíði, skautar og jeppar
Margt í boði á Dekur-
dögum og daðurhelgi
á Akureyri
„Ég ætla að skella mér á
skíði á laugardaginn og
síðan langar mig auðvitað
í jeppaferðina sem Jeppa-
klúbburinn 4x4 býður
uppá á sunnudaginn. Þar
verður jeppalausum
einnig leyft að fljóta með
einsog pláss leyfir. Annað
hvort verður farið að
Sörlastöðum í Fnjóskadal
eða að Gili í Fjörðum,"
sagði Guðmundur Birgir
Heiðarsson, forstöðumað-
ur Upplýsingamiðstöðvar
ferðamála á Akureyri og
framkvæmdastjóri Dekur-
daga og daðurhelgarinn-
ar í bænum, sem nú er að
fara af stað. Margt spenn-
andi er í boði í bænum og
af nógu að taka fyrir
dekrara og daðrara.
Hver veit nema þau
Helgi magri og Þór-
unn hyrna taki á rás
og dekri svolítið við
sjálf sig og fari á
skíði og skauta -
eða geri eitthvað
álíka skemmtilegt.