Dagur - Tíminn Akureyri - 21.02.1997, Page 11
|Dagur-®ímírat
Föstudagur 21. febrúar - 23
FÍNA FRÆGA
FÓLKIÐ
Mickey Hargitay, eiginmaður nr. 2 og faðir
þriggja barna hennar, sá víst ekki sólina fyr-
ir Jayne. Þau skildu. Hún laðaðist fremur að
mönnum sem töldu henni trú um að geta
orðið henni hjálp á framabrautinni því hún
þráði að vera tekin alvarlega sem leikkona
en slík hlutverk voru ekki á lausu.
Jayne krafðist þess að fá hjartalaga hús og
sundlaug. Hún fékk það - og lét eiginmaður-
inn m.a.s. útbúa gyilta mósaíkáletrun á
sundlaugarbotnintum: Ég elska þig Jayne.
30 ár frá dauða
Jayne Mansfield
Það var fyrir um 40 árum að leikkonan Jayne Mansfield
og eiginmaður hennar Mickey Hargitay, Hr. alheimur, hófu
leit að húsi sem tákngerði ást þeirra og rísandi frœgð.
Húsið fannst á Sunset Boulevard nr. 10.100 og taldi 25
svefnherbergi auk 11 baðherbergja. Húsið breytti um
karakter eftir kaupin og var allt málað bleikt sem bleikt
gat orðið. Húsið fór fljótlega að ganga undir nafninu
Bleika höllin. „Alla mína œvi, “ sagði Jayne eitt sinn, „hef-
ur mig dreymt um heimili fullt af amorum, englum og
hjörtum. Það er verst að vatnsdroparnir úr gosbrunninum
í stofunni eru ekki hjartalaga. “
Skilnaðarpappírarnir vegna hjóna-
bands hennar við umboðsmann
sinn, Matt Cimber nr. 3, voru að
verða klárir kvöldið sem hún, 3
börn hennar (átti alls 5) og nýr um-
boðsmaður fóru til Biloxi þar sem
hún átti að taka þátt í skemmtiat-
riði á næturklúbbi sem fólst eink-
um í því að sitja í fangi eldri karl-
manna meðal áhorfenda. Eftir sýn-
inguna óku þau heim á leið í svarta
þoku. Bíllinn lenti á kyrrstæðum
vörubíl. Jayne og umbinn létust
samstundis. Börnin þrjú sem sváfu
í aftursætinu, slösuðust lítillega.
Jayne var 34ra ára. Félagar í Aðdá-
endaklúbbi Jayne Manfields létu
reisa bleikan legstein með orðun-
um: „Við elskum þig meira með
hverjum deginum."
rétt er að rauður er kynferðislega örv-
idi litur þá hefur vinnandi vart verið
srt í þessari skrifstofu sem Jayne lét
•Istra, loft og veggi, með rauðu leðri.
> má vera að ritarinn hafi komið
ihverju í verk ef hún hefur setið með
igun samviskusamlega límd við ritvél-
a - því hún var bleik.
Clótwííífid
Teitur Þorkelsson
skrifar
Víltu Ópal?
egar strák líst á stelpu
gengur hann að henni og
segir blátt áfram: Hæ,
sæta, viltu Ópal? Ef það er hins
vegar stelpa sem er eitthvað
skotin í stráknum dettur henni
sjaldnast í hug að gera eitthvað
þessu líkt. Nei, hún plottar á
bak við tjöldin, talar við bestu
vinkonu sína og talar við besta
vin stráksins og þannig er reynt
að komast að því hvort hann sé
eitthvað að spá. Og þó hún sé
ær af ást getur vel verið að hún
heilsi honum ekki einu sinni á
ganginum.
Konur eru alltaf eitthvað að
plotta. Eru það ekki þær sem
eru hinar ósýnilegu drifijaðrir
íslendingasagnanna og allrar
heimssögunnar ef út í það er
farið? Það virðist einfaldlega
hafa verið þeirra aðferð í gegn-
um tíðina til að hafa áhrif á at-
burðarás, lifa eigin lífi. Hvort
sem ástæðan er sú að þær gátu
tæplega staðið í því fyrr á öld-
um að hlaupa út um grænar
grundir og vega mann og ann-
an eða einfaldlega að þeim
finnst skemmtilegra að toga í
ósýniiega spotta á bak við tjöid-
in er ekki gott að segja. Og
sennilega skiptir það ekki miklu
máli. En það er bráðnauðsyn-
legt að vita af þessari ólíku
samskiptaaðferð til þess að það
gangi betur að skilja konur og
þeirra þangagang, einfaldlega
til þess að skilja hvað er að ger-
ast í kringum mann.
Takið eftir
Söngskemmtun
og dans!!!
KÓRARNIR
Sandlóurnar og Lóuþrælarnir frá Hvamms-
tanga verða með söngskemmtun á Breiðumýri
laugardagskvöldið 22. febrúar kl. 21.
Dansleikur verður á eftir
Félagar í Harmonikuf élagi Þingeyinga
leika fyrir dansi.
Stjórnin
Sam-Frímúrarareglan
á Akureyrí
heldur kynningarfund sunnudaginn 23.
febrúar kl. 14 að Glerárgötu 32, 3. hæð
(gengið inn að austan).
Njörður P. Njarðvík kynnir regluna og starfsemi
hennar og svarar fyrirspumum.
Allir velkomnir.
^__________________________________r
Vinafundur
eldri borgara
verður í Glerárkirkjunni á dag,
föstudaginn 21. febrúar kl. 15.
Samveran hefst með stuttri helgistund.
Upplestur, söngur og kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Matvæla- og veitinga-
samband íslands
Bakarar, framreiðslumenn, kjöt-
iðnaðarmenn og matreiðslumenn
á Akureyri og í nágrenni.
Almennur félagsfundur Matvís
verður haldinn á Fiðlaranum
mánudaginn 24.febrúar kl. 16.
Dagskrá:
Kjaramál. i
Fræðslumál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
mtttttmttttttmtttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttm