Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Page 2
Jktgur-'3Rmtrat
2 - Þriðjudagur 27. maí 1997
-cr
Heiti Potturinn
Það vakti talsverða at-
hygli í heita pottinum
að fjármálaráðuneytið var
að auglýsa eftir starfskrafti í
mötuneyti. Sagt var að
æskilegt væri að viðkom-
andi kynni eitthvað fyrir sér í
matargerð.....
Og nú eru menn hættir
að velta því fyrir sér
hvort Jón Baldvin sé að
hætta í pólitík eða ekki -
það virðast allir vera vissir
um að svo sé. í pottinum
var haft eftir einum sjálf-
stæðisráðherranum í pottin-
um að þetta væri nú ein-
kennilegt með kratana og
forustumálin hjá þeim. Árum
saman hafi þeir búið við
stormasamt samstarf Jóns
B. og Jóhönnu, sem síðan
hafi blessunarlega endað í
skilnaði. Nú þurfi Jón að
fara alla leið til Washington
til að vera ekki fyrir þegar
Jóhanna kemur aftir í Al-
þýðuflokkinn....
Sameining jafnaðar-
manna er nú komin á
nýtt stig eftir opinbera and-
látstilkynningu á Þjóðvaka.
Það var sem kunnugt er
Svanfríður Jónasdóttir sem
tilkynnti um andlátið og
sagði að ekki yrði snúið aft-
ur með sameiningu jafnað-
armanna og því ætti Þjóð-
vaki ekki lengur erindi. Jó-
hanna Sigurðardóttir er
sögð hafa verið á annarri
skoðun og ekki alveg tilbúin
til að viðurkenna dauða
flokksins síns og óbreyttir
flokksmenn vita nú ekki sitt
rjúkandi ráð - er floKkurinn
lifandi eða dauður? í pottin-
um trúa menn á að Jóhanna
verði ofan á og segja að líf
sé eftir dauðann....
F R É T T I R
Tíska
Pils og toppur
úr rekaviði
Egill Kalevi Karlsson
sigraði í hönnunar-
keppni Smirnoff um
síðustu helgi. Hann
var með pils og topp
úr rekaviði norðan af
Skagaströnd.
Vinkona mömmu sendi mér
nokkra drumba sem búið
var að þurrka. Ég sagaði
þá í sundur og kíkti inn í þá,
li'mdi svo saman til að ná stærri
fleti og tálgaði svo út úr drumb-
unum og utan af þeim. Ég tók
gifsmót af módelinu mínu og
mátaði svo gifsmótið þegar ég
var að smíða,“ segir Egill Kalevi
Karlsson en hann bar sigur úr
býtum í hönnunarkeppni Smirn-
off um síðustu helgi og verður
því fulltrúi íslands í Smirnoff-
kepprii erlendis síðar á árinu.
Egill var með búning, pils og
topp, úr rekaviði af Skagaströnd
ásamt skóm. Hvert stykki var í
tveimur einingum og því var
hvor flík boltuð saman á hliðun-
um með þotuboltum. Einingarn-
ar voru límdar saman í smiðju
Fjölbrautaskólans í Breiðholti en
að öðru leyti var búningurinn
unninn heima. Þá smíðaði Egill
skó úr viði á tveimur hæðum
með gúmmífóðringum á milli
þannig að þeir eru stillanlegir og
dúa.
Svo skemmtilega vill til að
unnusta hans, Brynja Emilsdótt-
ir, tók einnig þátt í keppninni
með kjól úr fiskroði og lenti hún í fimmta sæti.
Karlkyns keppendur voru tveir og er það reyndar
Egill K. Karlsson með búninginn, sem bar sigur úr býtum í fatahönnunar-
keppni Smirnoff. Búningurinn er í tveimur hlutum, pils og toppur úr reka-
viði. Flíkurnar eru boitaðar saman með þotuboltum. Mynd: Hilmar Þór
í fyrsta sinn sem karlmenn taka þátt í keppninni.
-GHS
Jóhanna Sigurðardóttir.
Hlutverki
Þjóðvaka
lokið
Jóhanna Sigurðardóttir, for-
maður Þjóðvaka, vill ekki tjá
sig um ummæli varaformanns
flokksins um að hlutverki hans
sé lokið. Svanfríður Jónasdóttir,
þingmaður og varaformaður
Þjóðvaka, sagði í þættinum í
Vikulokin í Útvarpinu um helgina
að hún teldi að hlutverki flokks-
ins í íslenskri pólitík væri lokið
og kannanir sýndu að kjósendur
væru henni sammála um það.
Fylgi flokksins hefur sem kunn-
ugt er mælst innan við 1 prósent
í hverri könnuninni fætur ann-
arri. Svanfríður sagðist sannfærð
um að jafnaðarmenn byðu fram
sameiginlega í næstu kosningum.
Jóhanna hefur til þessa ekki
viljað útiloka að Þjóðvaki bjóði
fram aftur í næstu kosningum, ef
ekki náist samstaða um sameig-
inlegt framboð félagshyggju-
flokka. Hún vildi ekki tjá sig um
ummæli Svanfríðar, þegar Dag-
ur-Tíminn spurði hana í gær og
bendir það til þess að yfirlýsing
varaformannsins hafi komið for-
manninum á óvart. -vj
Akureyri
Lýst eftir vitnum
Lögreglan á Akureyri lýstir eft-
ir vitnum að ákeyrslu við
Tjarnarlund á sunnudag. Keyrt
var á kyrrstæða bifreið, R-65103,
gráa Toyotu milli kl. 13.45 og
14.00 og eru skemmdir töluverð-
ar. Þeir sem hafi upplýsingar
snúi sér til lögreglu.
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Blátt blóð við setninguna
Stefán Konráðsson
framkvœmdastjóri .
Smáþjóðaleikanna
Það er stutt í setningu Smá-
þjóðaleikanna, stœrsta verk-
efnis sem íþróttahreyfingin
hefur tekið að sér til þessa.
„Já, þetta er ansi stórt mót og það
hefst með setningarathöfn á mánu-
dagskvöldið þann 2. júní kl. 18.30 á
Laugardalsvelli. Viðstaddir verða þjóð-
höfðingjar og vonandi þúsundir íslend-
inga. Ilingað koma margir góðir gestir,
meðal annars tignir gestir með „blátt
blóð“, eins og Albert Mónakóprins,
Henrí af Lúxembúrg og fleiri, að ekki
só talað um forseta íslands og nokkra
ráðherra okkar. Þá mun Samaranch,
forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar,
verða viðstaddur setningu leikanna.
Hér verða gestir frá einum 50 til 60
þjóölöndum."
- Og auðvitað allt tilbúið til að
hejja keppni?
„Já, það er núna verið að leggja
lokahönd á Laugardalsvöllinn. Frábær-
ar endurbætur hafa verið gerðar á
Laugardalslauginni. Hún hefur verið
snikkuð til og mér skilst að borgin hafi
lagt einar 20 til 22 milljónir í þær end-
urbætur á tveim árum. Við erum auð-
vitað þakklátir fyrir það. Almennt séð
held ég að mannvirkin verði okkur til
sóma.“
- Þetta er stór biti fyrir litla
íþróttahreyjingu að halda leika sem
þessa.
„Þetta er 95 milljóna króna heildar-
fjárhagsáætlun. Þjóðirnar borga um 40
milljónir fyrir gistinguna, en við borg-
um á móti þeim fæðiskostnað. En nettó
mun dæmið nema 50-55 milljónum
króna. Við höfum fengið afskaplega
góðan stuðning frá því opinbera, 20
milljónir króna frá Alþingi, 6 milljónir
frá Reykjavíkurborg, auk þess sem
íþróttasambandið, Ólympíunefnd ís-
lands og Alþjóðaólympíunefndin leggja
fram fé. Þá erum við með níu góða
styrktaraðila.“
- Hvað er von á mörgu fólki frá
þessum smáþjóðum?
„Keppendur frá þessum átta þjóð-
um með íslandi, eru um 830 í dag,
metþátttaka. Þessum keppendum
fylgja meira en 400 manns. Pakkinn er
upp á 1.250 til 1.300 manns erlendis
frá. Við erum að gæla við að það verði
allt að 1.750 til 1.850 manns sem að
mótinu koma á einn eða annan hátt,
meðal þeirra um 500 sjálfboðaliðar.“
- Eru ekki ýmsar nýstárlegar
keppnisgreinar sem íslendingar
kunna lítil skil á?
„Við þekkjum til þeirra allra. En til
dæmis höfum við ekki haldið svona
stórt siglingamót fyrr hér á landi. Það
mót verður haldið á Skerjafirði. Við er-
um að fá eina 50 seglbáta með Eim-
skip í dag eða morgun. Skotfimin er
skemmtileg keppni, keppt í leirdúfu-
skotfimi. Miklir athafnamenn í Reykja-
nesbæ hafa byggt uppi í heiðinni við
Hafnir frábæra skotaðstöðu, mikla
palla sem stinga talsvert í stúf við
landslagið, sem er nánast eins og á
tunglinu." -JBP