Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Síða 3
jDagur-©mthtti
Þriðjudagur 27. maí 1997 - 3
Forsetaframboðið 1996 m Barnageðdeild
Ólafur Ragnar skuldar
Rassvasa-
pólitík?
sautján milljónir
Framboð Ólafs Ragnars Grímssonar kostaði um 35 milljónir króna. Enn vantar 17 milljónir upp á að endar nái
saman.
enn
Engin uppgjöf að
sögn Sigurðar G.
Guðjónssonar. „Tekur
tíma að Ijúka svona
má!um.“
Framboð Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta ís-
lands skuldar 17 milljónir
króna. Sigurður G. Guðjónsson
lögmaður sagði í gær að hann
vissi ekki betur en að Ijármálin
væru í stakasta lagi og vissi
ekki af skuldum í óreiðu.
„Við sem tókum að okkur að
stýra þessu framboði teljum
okkur náttúrlega hafa einhver
skilyrði til að ljúka þessu. En
Ólafur hefur lagt fé í þetta sjálf-
ur og sett eignir sínar að veði,“
sagði Sigurður G. Guðjónsson
hæstaréttarlögmaður í gær.
Sigurður sagði að framboðið
hefði kostað um 35 milljónir
króna. Stuðningsmenn höfðu
safnað 12 milljónum króna um
það leyti sem kosið var fyrir
einu ári. Síðan var farið út í
bókaútgáfu og sölu á myndum.
Fullur rekstur hefði verið á
framboðinu eftir forsetakjörið
og verið er að selja bæði bækur
og myndir.
„Það er enga uppgjöf á okk-
ur að finna. Við þurfum að
klára þetta og gerum það, en
það tekur sinn tíma að ljúka
svona málum,“ sagði Sigurður.
„Fjölmiðlar ijalla alltaf um
styrki til stjórnmálaflokka og
stjórnmálamanna og forseta-
framboða sem einskonar gjafa-
fé, ekki út frá því að þarna sé
verið að styrkja lýðræðið í land-
inu,“ sagði Sigurður.
Fulltrúar flestra framboð-
anna óskuðu eftir því við ijár-
laganefnd Alþingis að ríkissjóð-
ur léti niðurfalla virðisauka-
skatt vegna kostnaðar við fram-
boðin. Á það var ekki fallist.
„Það er aldrei hlustað á
svona nokkuð á Alþingi, frekar
ef á að búa til nýtt embætti fyrir
ráðherra, eða hækka laun þing-
manna. Það er alveg ljóst að
enginn hefur grætt annað eins
á forsetakjörinu og einmitt rík-
issjóður," sagði Sigurður G.
Guðjónsson. - JBP
að
mundi
ekki
leysa þenn-
an vanda.
Þetta er sér-
grein en
hún situr
stundum
undir því að
aðrir telja
sig geta haft
hana í rassavasanum,“ segir
Valgerður Baldursdóttir, yfir-
læknir barnageðdeildar Land-
spítalans, um hugmyndir um að
fá barna- eða heimilislækna án
menntunar á sviði geðheilbrigð-
ismála til starfa á barna- og
unglingadeildinni að Dalbraut
9.
Valgerður hefur sagt upp
vegna orða heilbrigðisráðherra
og aðstoðarmanns hans um að
auknar íjárveitingar til deildar-
innar skiluðu sér ekki í bættu
starfi. Hún var á leiðinni í ársfrí
frá störfum, aðallega vegna
óánægju með aðbúnað geðfatl-
aðra barna, að hennar sögn,
þegar þetta kom fram.
„Ég sá mér ekki fært að
starfa áfram eftir þessi orð.
Þetta leit þannig út fyrir mér
sem verið væri að lýsa yfir van-
trausti á mig,“ segir Valgerður.
Heilbrigðisráðherra og Val-
gerður hafa hist nýverið og skv.
heimildum Dags-Tímans er ver-
ið að skoða innan ráðuneytisins
hvort grundvöllur sé á e.k.
samkomulagi. BÞ
Valgerður Baldurs-
dóttir, yfirlæknir.
Brynjar Brynjarsson var að gera klárt fyrir málun Torfunefsbryggju í
gær. Það er liður í fegrun umhverfis fyrir sjómannadaginn en á
Vestfjörðum kann flotinn að stöðvast fyrir sjómannadaginn. Myn& jhf
Flotinn í hættu
á Vestfjörðum fengu bæjar-
leyfi úr Karphúsinu um
miðjan dag í gær. Búist var
við að þeir mundu halda
áfram óformlegum viðræð-
um fram eftir kvöldi. Þá
benti ekkert til þess að í far-
vatninu væri sáttatillaga
fyrir samninganefndirnar
eða miðlunartillaga sem fé-
lagsmenn verða greiða at-
kvæði um.
„Við ætlum að athuga
hvort þeir séu traustsins
verðir," sagði Trausti
Ágústsson verkfallsvörður í
gær. Þá hættu verkamenn
að vakta Bessann í Súðavík-
urhöfn eftir að þeir höfðu
fengið vilyrði frá Frosta hf.
að ekki yrði landað úr skip-
inu. -grh
Vestfirski flotinn
gæti stöðvast um
næstu helgi, hafi
ekki samist fyrir
sjómannadag.
Svo kann að fara að
vestfirski togaraflotinn
stöðvist um næstu helgi
þegar hann kemur í land
vegna sjómannadagsins.
Þótt skipin þurfi ekki að
fara til heimahafnar er óvíst
hvort þau fái löndun í öðr-
um höfnum hafi ekki samist
fyrir þann tíma.
Samninganefndir at-
vinnurekenda og launafólks
Reykjahverfi
Gífurlegur ávinningur
fyrir Þingeyinga
Ef rétt verður spilað úr
þessu þá er þarna um gíf-
urlegan ávinning að ræða
fyrir Húsvíkinga og Þingey-
inga,“ segir Hreinn Hjartarson,
bæjarvekfræðingur og veitu-
stjóri á Húsavík, eftir ið gríðar-
legt magn af heitu vatni fannst
á Hveravöllum í Reykjahverfi
við borun fyrr í vikunni.
Jarðboranir önnuðust bor-
arnir fyrir Húsavíkurbæ á
þessu svæði en aðeins var farið
að bera á vatnsskorti yfir há-
veturinn á Húsavík og því
ákveðið að hefja leit að meira
vatni á svæðinu. Gamla holan
sem dugað hefur Húsvíkingum
um árabil skilar 44 sek.l. af
heitu vatni og er mjög öflug. En
nýja holan, sem er um 60 metr-
um frá, skilar 100 sek.l. af sjálf-
rennandi vatni 130-140 gráðu
heitu. „Þetta er tvöföldun á ís-
landsmeti miðað við lághita-
svæði og miðað við orku telst
þetta raunar mikið fyrir háhita-
svæði, því holan skilar 50-60
megawöttum," segir Hreinn.
Hann segir að enginn hefði
átt von á þessum árangri. „Við
þurftum að bæta við okkur
svona 10 sek.l. þannig að þetta
er tíföld þörfin, og menn hefðu
verið mjög ánægðir með 20-50
sek.l.“ Þessi orka ætti að duga
til að anna þörfum 10.000
manna byggðar, en á Húsavik
búa nú 2.500 manns.
Að sögn jarðfræðinga er
svæðið við Hveravelli jafnstórt
og Reykjahlíðarsvæðið í Mos-
fellssveit sem talið hefur verið
stærsta lághitasvæði í heimi og
sá m.a. fyrir 60-70% af þörf
Reykvíkinga áður en Nesjavelhr
komu til sögunnar.
„Þetta er það mikið magn að
okkur ber skylda til að reyna
nýta okkur það og koma í verð,
leita til Ijárfesta og kanna at-
vinnuppbyggingu sem nýtir
þessa miklu orku. Það tekur
væntanlega nokkur ár, en við
þurfum að fara að skoða þau
mál í fullri alvöru,“ sagði
Hreinn Hjartarson. js
Fáskrúðsfjörður
Nýr meirihluti íBúðahreppi
Nýr meirihluti hefur verið
myndaður í Búðahreppi
á Fáskrúðsfirði. Meiri-
hluti var áður skipaður fulltrú-
um Sjálfstæðisflokks, Alþýðu-
bandalags og Framsóknar-
flokks, en nýr meirihluti er
skipaður einum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks, Alberti Kemp, sem
jafnframt er oddviti; fulltrúa Al-
þýðubandalags, Magnúsi Stef-
ánssyni og tveimur fulltrúum
óháðra, Eiríki Stefánssyni og
Eiði Sveinssyni. Minnihlutann
skipa framsóknarmennirnir
Lars Gunnarsson, Guðmundur
Þorsteinsson og Unnsteinn
Kárason. Á fyrsta fundi hrepps-
ráðs á fimmtudag var Eiríkur
Stefánsson kjörinn formaður;
varaformaður Magnús Stefáns-
son en Lars Gunnarsson situr í
hreppsráði sem fulltrúi minni-
hluta.
Albert Kemp segir að síðustu
mánuði hafi farið fram mál-
efnavinna milli sjálfstæðis-
manna, alþýðubandalagsmanna
og óháðra um sameiginlegt
framboð, og þegar þeirri mál-
efnavinnu lauk nýverið voru að-
ilar sammála um að eðlilegt
væri að samstarfið hæfist nú
þegar einhver reynsla væri
komin á það þegar gengið yrði
til kosninga í hreppsnefnd vorið
1998. Sveitarstjóri er Steinþór
Pétursson. GG