Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Qupperneq 4
4 - Þriðjudagur 27. maí 1997
■íDagur-ÍEtmtrat
F R E T T I R
Hæstiréttur
Öldungar
Æfingar fyrir
Pollamót
hefjast þriðjudaginn
27. maí kl. 20.30 á
íþróttasvæði Þórs.
Afellisdómur ylir
Landhelgisgæslimni
I ótakröfur útgerðarinnar
|á hendur íslenska rík-
'ínu eiga við að mati
Stefáns Más Stefánssonar
prófessors, en meirihluti
Hæstaréttar komst að annarri
niðurstöðu.
Bókval
- vantar starfskraft
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða
starfskrafta til starfa strax.
Góð þjónustulund og stundvísi skilyrði.
I. Um er að ræða fullt starf í ritfangadeild. Vinnu-
tími frá kl. 9-18.
Æskilegt að viðkomandi hafi unnið í verslun, sé reyk-
laus og geti byrjað strax.
II. í Hljómdeild vantar starfskraft til afleysinga fram
á haust. Vinnutími er breytilegur.
Leitað er eftir þroskaðri manneskju, reyklausri, með
frumkvæði og ábyrgðartilfinningu. Þarf að geta byrjað
sem fyrst.
Umsóknir sendist afgreiðslu Dags fyrir föstudaginn 30.
maí merkt Bókval.
Utgerðarfyrirtækið Höfði hf.
á Húsavík kærði íslenska ríkið á
síðasta ári fyrir handtöku á
skipverjum á togaranum Kol-
beinsey ÞH-10 í júnímánuði
1993, en 25. júni þ.á. fóru skip-
verjar á varðskipinu Tý um
borð í togarann til að mæla
möskvastærð og var skipstjóra
síðan tjáð að möskvar hak-
borðspoka og botnvörpu togar-
ans væru undir leyíllegri stærð.
Við mælingu skal eftirlitsmaður
stinga mæli inn í möskvann
með handafli án þess að nota
lóð eða aflmæli. Ekki reis upp
ágreiningur um að varðskips-
menn notuðu aflmæli í umrætt
sinn, og liggur því ekki fyrir
staðfest handmæling á möskva-
stærð veiðarfærisins. Því not-
uöu skipverjar á Tý ekki réttar
aðferðir og var skipstjórinn,
Bjarni Eyjólfsson, sýknaður af
Héraðsdómi Austurlands um að
vera með óiögmæt veiðarfæri.
Meirhluti Hæstaréttar taldi hins
vegar ekki sannað að skipstjór-
inn væri frekar saklaus en sek-
ur af háttsemi þeirri sem hann
var ákærður fyrir. Því var ekki
talið rétt að fella skaðabóta-
skyldu á stefnda, þ.e. íslenska
ríkið, en krafist var þess að
stefndi yrði dæmdur til greiðslu
754.979 króna ásamt dráttar-
vöxtum og málskostnaðar fyrir
Hæstarétti. Því var áfrýjaður
dómur látinn standa óraskaður.
Stefán Már Stefánsson prófess-
or var með sératkvæði í málinu
ög segir m.a. að þar sem ætlað
brot skipstjórans var ekki rann-
Einar Svansson
framkvæmastjóri FH
Dómurinn undir-
strikar að ekki var
rétt staðið að
málum hjá
varðskipinu.
sakað með þeim hætti sem lög-
boðinn var gat sú rannsókn
aldrei orðið réttmætur grund-
völlur frekari rannsókna á
málsatvikum og meðferðar
málsins. Með hliðsjón af því
taldi Stefán Már að skilyrði
skaðabóta ættu við en þar sem
meirihluti dómsins hafi komist
að annarri niðurstöðu hafi ekki
verið ástæða til að fjalla um
bótakröfur í málinu.
Höfði hf. hefur síðan verið
sameinað Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur hf. Einar Svansson,
framkvæmdastjóri FH, segir að
dóm Hæstaréttar mun sterkari
en dóm Héraðsdóms Austur-
lands, og undirstriki að ekki
hafi verið rétt að mál-
um staðið hjá áhöfn
varðskipsins Týs þeg-
ar möskvastærð Kol-
beinseyjar var mæld.
Sératkvæði Stefáns
Más Stefánssonar
staðfesti einnig að
skaðabótaréttur hafi
verið í málinu, en það
hafi frekar verið
„prinsippmál“ en upp-
hæð bóta sem olli því
að málið fór fyrir Hæstarétt, og
viðurkenning á því að rétt hafi
verið að fara með málið fyrir
Hæstarétt, mannorð skipstjór-
ans hafi verið hreinsað. Dómur
Hæstaréttar sé áfellisdómur yfir
Landhelgisgæslunni. GG
Knattspyrna
f/$\t FráTónlistarskóla
Eyjafjarðar
Staða skólastjóra er laus til umsóknar.
Skólinn er rekinn af nokkrum sveitarfélögum við Eyja-
fjörð og starfar hann í grunnskólum þeirra, þ.e. Þela-
merkurskóla, Hrafnagilsskóla og Grenivíkurskóla.
Nánari upplýsingar veita:
Atli Guðlaugsson í síma 463 1171 og 462 2582 og
Ragna Úlfsdóttir í síma 463 1311.
Umsóknarfrestur er til 6. júní.
Almennir
stjórnmálafundir á
Akureyri og Dalvík
Halldór Blöndal samgönguráðherra og
Tómas Ingi Olrich alþingismaður verða
með fundi sem hér segir:
Akureyri kl. 20.30 í Gamla Lundi,
Eiðsvallagötu 14, miðvikudaginn
28. maí.
Dalvík kl. 20.30 í Café Menning,
fimmtudaginn 29. maí.
Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna
á Akureyri.
Sjálfstæðisfélag
Dalvíkur.
Feðgarnir Guðmundur Guðjónsson og Guðjón Guðmundsson að loknum leik Þróttar gegn Vöisungi.
Feðgar spila í
sama liði
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Sími 462 6900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri, föstudaginn 30. maí
1997 kl. 10 á neðangreindri eign:
Klapparstígur 15, Árskógshreppi,
þingl. eig. Kristján Ásmundsson og
Sveinbjörg R. Ólafsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður verka-
manna, Sýslumaðurinn á Akureyri
og Vörður vátryggingafélag.
Sýslumaöurinn á Akureyri,
26. maf 1997.
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
jJUf/iFERDAR ám
S
slendingar bíða enn eftir því
að feðgarnir Arnór Guðjohn-
sen og Eiður Smári spili
saman í landsliðinu sem yrði
heimsviðburður. Og raunar er
það yíirhöfuð afar sjaldgæft
hvar sem er í veröldinni að
feðgar spili saman í knatt-
spyrnuliði, og m.a. þótti það
frétt á flestum sjónvarpsstöðv-
um heimsins að fegðar í Rúss-
landi spiluðu í sama liði þar í
deild.
Ólrklogt er að það veki
heimsathygli þó að feðgar spili
saman í 2. deildinni á íslandi
eins og gerðist s.l. laugardag
þegar Þróttur frá Neskaupstað
lék gegn Völsungi á Ilúsavík. í
liði Þróttar spiluðu þeir fegðar
Guðjón Guðmundsson og Guð-
mundur Guðjónsson. Guðjón er
þjálfari Þróttar og gamall refur
í boltanum og hefur víða farið.
Hann er traustur varnarmaður
og fastur fyrir en Guðmundur
sonur hans er leikinn og fljótur
sóknarmaður. Þeir feðgar léku
báðir vel gegn Völsungi, þrátt
fyrir tap Þróttar.
Það væri e.t.v. ekki síðra að
sjá þá feðga spila gegn hvor
öðrum og vita hvor hefði betur.
Myndi strákur rúlla kallinum
upp eða kallinn salta strákinn?
js