Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 27.05.1997, Qupperneq 5
(®tigur-‘3Imtnm mssmmm Þriðjudagur 27. maí 1997 - 5 F R É T T I R | Samkeppnisstofnun Flugleiðir njóta opínberrar aðstoðar, m.a. skattalegra ívilnana umfram önnur fyrirtæki skv. mati Sam- keppnisstofnunar Flugleiðir á ríkisstyrkjum Flugleiðir hafa náð ein- stæðri stöðu á íslenskum flugmarkaði „í skjóli opin- berra einkaleyfa og opinbers stuðnings," segir Samkeppnis- stofnun sem hefur gefið út skýrslu um ílugmarkaðinn og tengda starfsemi. Stofnunin fellir enga áfellisdóma í skýrsl- unni en bendir á að Flugleiðir njóti opinberrar aðstoðar, með- al annars skattalegra ívilnana umfram önnur fyrirtæki. Bent er á ýmsar ívilnanir eins og undanþágu frá greiðslu eldsneytisgjalda, niðurfellingu stimilgjalda af flugvélum og úr- ræði sem miða að því að gera virðisaukaskatt sem lægstan af samfléttaðri þjónustu, flugi, hóteli, bfl. Stofnunin varar almennt séð við misnotkun þeirra miklu markaðsyfirráða sem Flugleiðir hafa og minnir fyrirtækið á þær skyldur sem því hafa verið lagðar á herðar, enda sé ljóst að Flugleiðir muni njóta yfir- burðanna um langan aldur. Keppinautar Flugleiða, þeir fáu sem hér starfa, hafa kvartað undan ijölmiirgu sem þeir telja að stangist á við samkeppnislög í starfsemi Flugleiða. Meðál ann- ars undan undirverðlagningu sem sé oft til komin í þeim til- gangi einum að drepa sam- keppni. Samkeppnisráð tekur ekki beina afstöðu til slíkra ásakana, en bendir Flugleiðum á ýmislegt í samkeppni flugfélaga sem mundi stríða gegn sam- keppnislögum ef það kæmi upp á yfirborðið með óyggjandi hætti. -JBP Járnblendifélagið Úr kísilnum í járnblendið Bjarni hefur verið framkvæmda- stjóri Kísiliðjunn- ar í Mývatnssveit, en þar áður var hann tæknistjóri Jarðborana um fimm ára skeið. Hann lauk prófi í jarðfræði frá IJáskóla íslands 1981, en hefur auk þess licensiatpróf í námaverkfræði frá há- skólanum í Luleá. í Svíþjóð starfaði Bjarni sem ráðgjafi í jarðfræði Bjarni Bjarnason, fertugur jarð- fræðingur, er næsti framkvæmda- stjóri íslenska járnblendi- félagsins. Og bergverkfræði í nokkur ár. Jón Sigurðsson sem gegnt hefur starfi frarn- kvæmdastjóra Járn- blendifélagsins undan- farin 20 ár, lætur af störfum 15. júlí næst- komandi, 62 ára að aldri. Bjarni Bjarnason er fæddur í Reykjavík, sonur Bjarna Júlíus- sonar iðnfræðings og Guðrúnar Helgu Krist- insdóttur. Hann er kvæntur Björgu Árna- dóttur blaðamanni og eiga þau þrjú börn. Fjölskyldan mun búa að Grundartanga. -JBP Akureyri Tvisvar í sjóinn Ung kona fór í sjóinn við Strandgötu á Akureyri aðfaranótt sunnudags og neitaði að snúa í land, þegar lögreglan kom á staðinn. Grétar Viðarsson lögreglumaður óð strax út og var dýpið það mikið að hann þurl'ti að synda. Ilann og félagar hans náðu stúlkunni í land og var hún lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið. Stúlkan, sem er 21 árs, strauk hins veg- ar þaðan og fannst í fjörunni neðan við sjúkrahúsið. Lögregl- an sótti hana aftur í sjóinn og lét hún sér síðari innlögnina á sjúkrahúsið lynda og varð ekki illa meint af volkinu. „Ég ákvað að fara strax út því að hún flaut og maður þorði ekkert að bíða með að sækja hana. En ég fór ekki út eftir henni í seinna skiptið, enda enn á nærbuxunum þegar hringt var frá sjúkrahúsinu," sagði Grétar í gær. BI> Stutt & laggott Dýrkeypt bréf Eins og fram kom í Degi-Tímanum ný- verið urðu innflytjendur snyrtivara hissa á bréfi sem forstjóri Fríhafnar- innar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sendi þeim. Par sagði að kynningar á snyrtivörum væru orðnar mikið vanda- mál og væri ilmefnum jafnvel sprautað á gesti og gangandi án þess að vilji væri fyrir því hjá viðtakendum. Allar kynningar á snyrtivörum yrði því að banna. Ennfremur sagði að vinnufrið- ur væri í hættu innan fyrirtækisins. Halldór Ásgrímsson utanrfldsráðherra hefur nú sem yfirmaður forstjóra Frí- hafnarinnar beðið heildsala afsökunar á bréfi þessu vegna vafasamrar framsetningar textans. Bl> Gjörningamaður með hleðsiunámskeið í fyrra voru haldin vinsæl hleðslunámskeið að Þingborg í Flóa og hlaðnir upp veggir að 17. aldar kotbæ með ijósbað- stofu. Tryggvi Ilansen hleðslumeistari stýrði verkinu og var lokið við að hlaða að mestu veggina á hióðaeldhúsi, bað- stofu, ónhúsi og innri hluta ganga. Ætlunin er nú að ljúka í júm við fremri hluta kotbæjarins, skála, dyrahús og skemmu og verður hleðslunámskeið að Þingborg vegna þessa, helgarnar 7.-8. júní og 14.-15. júní frá kl. 10.00- 18.00. Fólk þarf að hafa með sér skrínukost en svefnpokapláss og eldunaraðstaða er innifalið í námskeiðsgjaldi sem er að jafnaði 2.500 kr. en lækkar niður í 2000 ef þrír eða ljórir dagar eru valdir. Búast má við ýmsum þjóðlegum uppákom- um með hleðslunni segir í fréttatilkynningu enda Tryggvi mikill gjörningamaður. Nemendum frá fyrra ári er boðið að taka þátt án endurgjalds en skráningu og upplýsingar veitir Sigurgeir í síma 482-1028. Gróðursamtök fá styrk Keflavíkurverktakar hafa í tilefni 40 ára afmælis félagsins afhent samtökunum „Gróður fyrir fólk í Iandnámi Ingólfs" 5 millj. kr. styrk. Stjórn Keflavíkurverktaka vill þannig leggja samtökunum lið í baráttunni gegn gróðureyðingu svæðisins, eins og það er orðað í gjafabréfi. Ingvi Þorsteinsson, for- maður samtakanna, tók við gjöfinni úr hendi Jakobs Árna- sonar, formanns stjórnar Keflavíkurverktaka. í frétt frá gróðurverndarsamtökunum segir að gjöfin hafi ómetanlegt gildi og veiti samtökunum mikilvægt brautar- gengi nú í upphafi starfs. Markmiðið með stofnun sé að vinna að stöðvun gróðurs- og jarðvegseyðingar, auka og bæta gróður og styrkja vistkerfi svæðisins í þeim tilgangi að endurheimta glötuð landgæði. Óshlíðarhlaupið 1997 Óshlíðarhlaup 1997 fer fram í fimmta skipti 21. júní nk. Hlaupið verður hálfmaraþon frá Bolungarvík til ísafjarðar, 10 km frá Hnífsdal til ísafjarðar og 4 km skemmtiskokk fyr- ir alla íjölskylduna á Skutulsfjarðarbraut á ísafirði. Undan- farnin ár hafa vel á annað hundrað manns keppt í hlaupinu sem er fastur liður í dagskrá sumarsins á ísafirði. Skráning annast Upplýsingamiðstöð ferðamála á ísafirði í síma 456- 5121. Flugleiðir bjóða afsláttarkjör fyrir hlaupara. Frá Óshlíðarhlaupinu í fyrra. Tveir sóttu um fangelsisstjórastöðu Nýlega var auglýst staða embættis forstjóra Fangelsismála- stofnunar. Tveir sóttu um, Kristinn Ólafsson hæstaréttarlög- maður og Þorsteinn A. Jónsson, settur forstjóri Fangelsis- málastofnunar. Nýr yfirlögregluþjónn Dómsmálaráðherra hefur skipað Jónmund Kjartansson, yfirlögregluþjón í dómsmálaráðuneytinu, sem yfirlögreglu- þjón við embætti lögreglustjórans í Reykjavík frá og með 12. júlí nk. Jónmundur mun taka við stjórn almennrar deildar lögreglunnar í Reykjavík. Guðmundur Guðjónsson yfirlög- regluþjónn sem stjórnað hefur þeim störfum tekur við stjórn rannsóknardeildar embættisins af Arnþóri Ingólfssyni yfirlögregluþjóni sem látið hefur af störfum eftir 41 árs starf ílögreglu.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.