Dagur - Tíminn Akureyri - 29.05.1997, Page 5

Dagur - Tíminn Akureyri - 29.05.1997, Page 5
ÍDagur-®ímtmt Fimmtudagur 29. maí 1997 - 5 F R E T T I R Þórshöfn/Vopnafjörður Reynt að sætta menn Fiskvinnslufólk að störfum á Þórshöfn. Hluthafar í útgerðar- fyrirtækinu Skálum freista þess nú að sætta stjórnarfor- mann fyrirtækisins og framkvæmdasfjóra hraðfrystihússins á Þórshöfn. Hluthafafundi í útgerðar- fyrirtækinu Skálum, sem átti að halda á Þórshöfn fyrr í mánuðinum, var frestað að beiðni tveggja hluthafa, Sjó- vá-Almennra og OLÍS, til að freista þess að ná sáttum milli stjórnarformanns, Friðriks Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Tangans á Vopnafirði, og Jó- hanns A. Jónssonar, fram- kvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Fundurinn verður haldinn í næstu viku. Ágreining- ur reis út af kaupum á nóta- skipinu Bjarna Ólafssyni frá Akranesi, nú Neptúnus Í>H, sem stjórnarformaðurinn segist ekki hafa vitað af. Friðrik segist mjög ósáttur við það. „Við kaupin á skipinu var gengið fram hjá stjórnarfor- manni og einum stjórnarmanni sem nánast er eins og uppsögn. Svona vinnubrögð gerast ekki á árinu 1997 í nútímaþjóðfélagi, en ég á ekki von á því að félagið leysist upp. Ég vona að fram- hald verði á þessu samstarfi í útgerð milli Vopnfirðinga og Þórshafnarbúa,“ sagði hann. Jóhann segir að rædd hafi verið og mörkuð sú stefna að bæta við skipi á aðalfundi Skála í desember, enda séu veiðiheim- ildir fyrirtækisins ríflegar fyrir 1 skip og náist ekki nema sigla ávallt stystu leið til hafnar á vertíðinni. „Helmingur fulltrúa Vopn- firðinga studdi þessa stefnu en hinir tjáðu sig ekki. Bjarni Ól- afsson hafði verið til sölu í sex mánuði í framhaldi af kaupum á nýju skipi. Verðið var hins vegar allt of hátt, og höfðu Básafell á ísafirði og Loðnu- Vopnfirðingar vildu ekki kaupa Neptúnus, heldur fara út úr Skálum með kvótann og setja hann á Sunnubergið sem Tangi á, segir Jóhann A. Jónsson á Þórs- höfn. vinnslan á Fáskrúðsfirði kannað alvarlega að kaupa skipið fyrir 250 milljónir króna. Við vissum að tíminn til að selja skipið var að renna út, og því var reynt að ná samkomulagi við seljandann, Runólf Hallfreðsson, eftir útttekt á skipinu, og það gekk eftir á um 180 milljónir króna. Á því var fyrirvari um ijármögnun og samþykki stjórnar. Við vissum að Friðrik og fleiri á Vopnafirði vildu ekki kaupa skipið, heldur fara út úr Skálum með loðnukvóta sem settur yrði á Sunnubergið. Það er enginn grundvöllur fyrir því eftir kaup- in. Friðrik hefur setið fyrir kaupum á loðnukvóta um allt land, ekki sem stjórnarformað- ur Skála heldur sem fram- kvæmdastjóri Tanga, og því ljóst hvert hann lenti, yrði talað við stjórnarformanninn. Við vissum einnig að Básafell og Loðnu- vinnslan gætu orðið hættulegir keppninautar um bátinn, á allt öðru verði,“ sagði Jóhann A. Jónsson. Hefurðu trú á því að Vopn- firðingar dragi sig út úr félag- inu? „Ég hef ekki trú á því að þeir ætli sér að vera í þessu sam- starfi með óbreytta stefnu. Þeir eiga 23% í félaginu, sem er með 3,5% loðnukvótans." GG Hópur krakka úr Reykjavík hljóp boðhlaup á milli 9 skóla til að minna á boðskap alþjóðlega friðarhlaupsins, sem er að friðurinn byrji hjá hverjum einstaklingi. Mynd:E.öi. Krakkar til Mðs * Aíjórða hundrað krakkar á aldrinum 8 til 12 ára úr 9 skólum í Reykjavík hlupu friðarboðhlaup í gær. Byrjað var Austurbæjar- og Fossvogsskóla árla morguns og hlaupið milli skóla og endað í Laugarnesskóla. Álþjóðlega friðarhlaupið fagnar 10 ára af- mæli á þessu ári. Þetta er al- þjóðlegt kyndilboðhlaup sem hlaupið er í yfir 70 löndum og öllum heimsálfum og haldið annað hvert ár. Á þessu ári er hlaupið samtals 80 þúsund kíló- metra. Rúmlega ein milljón hef- ur tekið þátt frá upphafi. Hlaupið byrjað hjá höfuðstöðv- um Sameinuðu Þjóðanna 19. apríl síðastliðinn. Boðskapur þessa lengsta boðhlaups heims er einfaldur: Friður byrjar hjá hverjum einstaklingi. Hver og einn getur lagt sitt af mörkum til friðar. Reykjavík Milljarð á ári til skólabyggiiiga Allir grunnskólar borgarinnar einsetnir eftir fimm ár. Sam- felldur vinnudagur nemenda. egar við höfum náð þessu markmiði okkar um alda- mótin verður gjörbreyting á högum fjölskyldunnar hvað varðar festun og ögun,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, formaður skólamálaráðs. Borgarráð hefur samþykkt samhljóða fimm ára áætlun um einsetningu allra grunnskóla borgarinnar, eða til ársins 2001. Á þessu tímabili verður varið um einum milljarði króna á ári til skólabygginga, ýmist til nýbygginga eða viðbygginga við eldri skóla. Einsetinn grunn- skóli og samfelldur 6-7 stunda vinnudagur nemenda er hluti af grunnskólastarfi nýrrar aldar. í haust verða 18 af 29 grunnskólum borgarinnar ein- setnir. Til marks um uppbygg- inguna þá voru 4 grunnskólar einsetnir skólaárið 1993-1994 og 8 skólar haustið 1994. Áætlun borgaryfirvalda, sem verður endurskoðuð árlega við gerð fjárhagsáætlunar tekur mið af niðurstöðum um rýmis- þörf skólanna og mannflölda- spá. Samkvæmt því fá þeir skól- ar forgang sem eru mjög að- þrengdir með pláss, fækkun nemenda ekki fyrirsjáanleg og þar sem hægt er að einsetja með tiltölulega litlum kostnaði. -grh Fleiri bflar á götuna Mun fleiri bflar voru flutt- ir inn í aprfl síðastliðn- um en í marsmánuði. Alls voru skráðir 1335 nýir bfl- ar í aprfl en einungis 740 í mars. Þetta kemur fram í nýj- ustu Hagvísum Þjóðhagsstofn- unar. Miklar árstiðasveiflur eru í nýskráningu bifreiða og á undanförnum árum hafa flestir bílar verið skráðir í júní. Bfla- innflutningur hefur vaxið jafnt og þétt frá 1995 og stefnir í um 13 þúsund bfla á þessu ári. Tollar á bfla voru lækkaðir í kjölfar kjarasamninga 1987 og jókst innflutningur þá verulega. Það varð hins vegar til þess að mun minna var flutt inn af bfl- um næstu árin á eftir. Nú er innflutningur aftur að aukast með batnandi þjóðarhag.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.