Dagur - Tíminn Akureyri - 11.06.1997, Page 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.06.1997, Page 3
^JDitgur-Œtrtmtn Miðvikudagur 11. júní 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Gjafa gjafaklúbbur- inn er keðjubréfa- klúbbur sem var stofnaður íMiami, Floridafyrir rúmu ári ennú er einn angi hans staðsett- ur í Breiðholti. s IlítiUi blokkaríbúð að Grýtu- bakka í Breiðholti komu tæplega fimmtán manns saman á fundi síðastliðinn fimmtudag. Fundarhöldur- um var áfram um að fundin- um miðaði vel vegna þess að von var á öðr- um slíkum hópi sama kvöld. Hvaða félags- skapur er hér á ferðinni? Þetta er hin svokallaði Gjafa gjafa- klúbbur sem stofnaður var í Mi- ami, Florida, í febrúar 1996. Gjafa gjafaklúbburinn er í raun annað heiti yfir fyrirbæri sem flestir kalla keðjubréf og hefur oftsinnis skotið upp koll- inum hérlendis. Ilér hefur verið breytt út af venjunni og í stað bréfasendinga kemur fólk sam- an í klúbbnum og skiptist á íjármunum. í stað þess að fólk færist ofar á listum keðjubréfa, hækkar fólk um virðingarstöðu innan klúbbsins. Á byrjunar- þrepi eru stjórnarformanni greiddar 5000 krónur. Þegar þú hefur safnað 8 nýjum meðlim- um í klúbbinn færist þú upp um eitt þrep. Alls eru þrepin þrjú fyrir utan byrjunarþrepið. Eftir byrjunarþrepið er varafor- mennska, svo formennska, þá forstjóri og loks stjórnarfor- maður sem fær 5000 krónur frá öllum sem undir hann heyra. Mafía íslands Heimildarmaður Dags-Tímans, sem ekki vill láta nafn síns get- ið, mætti á umræddan fund sl. fimmtudag. Hann hlustaði á 15 mínútna kynningu á starfsemi klúbbsins en ákvað að hann hefði ekki áhuga á að vera með. Hann tók hins vegar með sér sex síðna bækling með reglum klúbbsins. í þessum bæklingi er auk reglna um þagmælsku og nafnleynd, að finna leiðbein- ingar um hvernig eigi að finna nýtt fólk í klúbbinn. Jafn- framt eru En hvar í stendur í lögum að vinir og cettingjar megi ekki hjdlpa öðrum vinum og œttingjum? eina ijölskylda þarna svör við algengustu spurningunum. Þannig er spurningunni um hvernig geng- ið skuli í klúbbinn svarað með þessum hætti: „Aðild að klúbbnum er eingöngu með boði. Þér verður að vera boðið af ættingja eða nánum vini, sem er klúbbmeðlimur eða hefur verið meðlimur. Eftir að þú ert orðinn meðlimur er skyldan sú að fylgja verður reglum klúbbs- ins. Meðlimum sem ekki fylgja reglunum verður endurgreitt og þeim síðan vísað úr klúbbnum." Sem íýrr segir Ieist heimildar- manninum ekki betur á klúbb- inn en svo en að hann ákvað að hypja sig eftir 15 mínútna kynningu. Hon- um leist ekki á stemmninguna: „Það var ein- hver Ijölskylda sem stóð fyrir fundinum og einhvern veg- inn hafði mað- ur á tilfinning- unni að þessi myndi græða á þessu. Þetta var svona eins og maður myndi ímynda sér mafíu íslands," segir heimildarmaður- inn. Er þetta löglegt? Eftir að búið er að útskýra hvernig menn færast upp í virð- ingar- og ábatastöðum klúbbs- ins er þeirri spurningu svarað í bæklingnum hvort klúbburinn sé löglegur. Svarið er kostulegt: „Samkvæmt lögum verður að tilgreina allar tekjur á skatt- skýrslu. En hvar stendur það að vinur eða ættingi megi ekki hjálpa öðrum vini eða ættingja. Þaðan er nafn klúbbsins komið og það er það sem við ger- um.“ Sem fyrr segir er hægt að færast upp um þrjú þrep. Þannig verður nýr meðlimur að stjórnarformanni eftir að 24 nýir einstaklingar hafa gengið í klúbbinn. Sá stjórnarformaður fær í sinn hlut 120.000 krónur. Síðan færist hann aftur niður í röðinni og bíður þess að verða stjórnarformaður að nýju. í bæklingnum er ljárhagsáhætta Þetta var svona eins og maður ímyndar sér mafíu Islands skýrð svona: „Eins og í allri íjárfestingu er möguleiki á því að þú tapir upphaflegu framlagi þínu. Árangurinn fer alfarið eft- ir vinnuframlagi vina við að hjálpa vinum.“ Traust lykillinn að árangri Hverjum er boðin aðild að klúbbnum? í bæklingnum eru skýr fyrirmæli um þá fram- kvæmd og tekið fram að þú verðir að vera „vandlát/ur“ í vali þínu. Einstaklingur sem bjóða á aðild verður að uppfylla ákveðnar hæfniskröfur. Það verður að vera „einstaklingur sem þú þekkir vel, eins og ætt- ingi, vinur eða ættingi góðs vin- ar. Ástæðan fyrir því að klúbb- urinn virkar er sú að við þekkj- umst vel og sjáum sömu andíit- in á fundunum. TRAUST er lyk- illinn að árangri. Einstaklingur sem ræður við byrjunarútgjöld og þarfnast lijálpar, íjárhagslega - hug- myndin er sú að vinir hjálpa vinum. Einstaklingur sem er áhuga- söm/samur og líklegur til að kynna nýja meðlimi inn í klúbb- inn. Klúbburinn er eins sterkur og veikasti hlekkurinn. Ilinir treysta á þig eins og þú treystir á þá. Einstaklingur sem mun taka aðild sína alvarlega og fylgja reglum klúbbsins. Ástæðan fyr- ir því að við náum árangri er sú að allir meðlimir leggja hart að sér við að styrkja klúbbinn.“ Kalli Kanína eða Súpermann Um nafnleynd er.Qallað með ít- arlegum hætti enda hún, eðli málsins samkvæmt, ákaflega mikilvæg. „Alger nafn- leynd ríkir klúbb þessum (og) undir eng- um kringum- stæðum má gefa upp nöfn meðlina; það er brottrekstr- arsök. Einnig skal bent á þegar fólk er að hringja sig saman á blöðunum, að tala einungis við klúbbmeðlim, ekki aðra er hugsanleg út- svara símanum, held- ur skilja eftir nafn og símanúmer, ekki nánari útskýring- ar. Sumir vilja eiga þetta útaf fyrir sig og ber að virða það og einnig undirstrika enn og aftur nafnleynd. Einnig kemur það fyrir að fólk kaupi sér íleiri en 2 sæti (stöður) og þá undir öðru nafni og að íleiri en einn eru saman með fleiri en eina stöðu, hvort sem það er skráð undir heit- unum Kalli Kan- ína eða Súper- mann eða nöfnum barnanna er það al- farið þeirra mál hvaða nöfn þeir nota svo fremur sem kannast er við Súpermann í skráðu símanúmeri." í bæklingnum er að lok- um undirstrikað að já- kvætt hugarfar er for- senda árangurs: „Mun- um að vera jákvæð, dug- leg og hress, því ef já- kvætt hugarfar er haft meðferðis, verður vinnan skemmtilegri og gengur margfalt betur." rm iH:.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.