Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Blaðsíða 2
14 - Laugardagur 21. júní 1997 |Dagur-'3ImTmn Bamahomkí Mjallhvít í Húsdýragarðinum Fyrir furðulega krakka er stórskemmtilegt að fylgjast með Furðuijölskyldunni dularfullu þegar hún er á ferð um Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinn. í dag er Furðuijölskyldan til dæmis að sjá Mjallhvíti og dvergana sjö og í veitingatjáld- inu í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum. Ókeypis er inn á sýn- inguna og því um að gera að drífa sig á staðinn. Krakkaveisla Krakkaveisla verður við DV- húsið í Þverholtinu í Reykjavík á morgun frá 14-19. Krakka- klúbbur DV er fimm ára og heldur upp á afmælið sitt með skemmtun fyrir alla fjölskyld- una, hljómsveitum, Magnúsi Scheving og ýmsum skemmti- legheitum. I Þverholtið geta all- ir veisluglaðir komið. Skátamót Það er um helgina sem skátar ætla að hittast í Kjarnaskógi við Akureyri. Þeir halda þar veg- legt skátamót sem gaman er fyrir krakka á öllum aldri að kíkja á og hlusta á skátana syngja „Kveikjum eld“. Gaman í sundi Út um allt land er verið að opna nýjar og spennandi sundlaugar. Hvernig væri að bregða sér í sund með fjölskyldu eða góðum vinum. Sitja undir sveppi og renna sér eina bunu. Gísli Björgvin Gíslason, 6 ára „Núna er lang skemmtilegast að vera í fót- bolta. Mér finnst gaman að keppa við strákana, kannski lika stelpurnar, en þær eru ekki alveg eins góðar og við.“ Karl Ásgeir Geirsson, 7 ára „Mér finnst skemmtilegast að leika mér úti og þá í apaleik. í honum erum við að klifra og það fáum við að gera í sport- kennslunni sem ég er í í sumar- vistuninni. Síðast vorum við að klifra í skipinu úti og það er fjör.“ Tumi Bjartur Valdason, 6 ára „í sumarvist- uninni á Akur- eyri hefur mér fundist gaman í apaleiknum í sportkennsl- unni. Hann er aðalmálið. Annars er skemmti- legt að hitta vini sína, vera með þeim og fara í sund sem er frá- bært.“ LIFIÐ I LANDINU Óskar H. Óskarsson er karlmaður- inn sem sýndi af sér það fádæma hugrekki að verða fyrstur karla til að sitja í ritnefnd Kvenréttindafé- laosins við útgáfu 19. júní. I^pms viö utgafu 19. jum. Sá hugrakki heitir Oskar Óskar H. Óskarsson guðfrœðinemi er eini karlmaðurinn sem setið hefur í ritnefnd 19. júní. Hann var sá eini í sjö manna nefnd og líkaði vel. Hver er hann þessi hug- rakki maður? að var komið að máh við mig og ég ákvað að slá til. Það tengdist því líka að ég er jafnréttissinnaður og hef áhuga á jafnréttismálum, ég sit í jafnréttisnefnd Stúdentaráðs og hef áhuga á jafnréttismálum innan kirkjunnar. Þar vil ég sjá gerða bragarbót á. Það má ekki einskorða umræðuna við kynin heldur á að horfa á þessi mál í víðara samhengi," segir Óskar H. Óskarsson guðfræðinemi. Félagsmálaforkur Óskar er mikill félagsmálafork- ur og sérlegur áhugamaður um jafnréttismál. Hann er formað- ur félags guðfræðinema og situr í jafnréttisnefnd Stúdentaráðs. Hann hefur mikinn áhuga á jafnréttismálum innan kirkj- unnar en þegar hann er spurð- ur um stuðning við séra Auði Eir í komandi biskupskjöri seg- ist hann þó ekki vera það neitt endilega. Umræða og upplýs- ingar um biskupsefnin hafi ver- ið af skornum skammti. Frá Laugarvatni „Það þarf að fara fram miklu meiri umræða um þetta. Kirkj- an er svo lokuð. Hún þarf að opna sig þannig að almenning- ur geti fylgst með því sem er að gerast innan kirkjunnar og kynnt sér biskupsefnin,“ segir hann. Óskar er 24 ára gamall frá Laugarvatni. Hann starfar í sumar á Kleppsspítala en á vet- urna er hann í ýmsum auka- störfum samhliða námi, meðal annars æskulýðsstarfi á vegum kirkjunnar. -GHS Konur í messu Konur létufara vel um sig þar sem þœr sátu í grasinu í kvennamessunni við Þvottalaugarn- ar í Laugardalnum á 19. júní. Það var séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir sem predikaði í blíðviðri og góðri stemmn- ingu. Nokkur hundruð konur söfnuðust saman við laugarnar en einnig mátti sjá tíu til tólf karla. I kvennahópnum mátti sjá nokkra karla, meðal ann- ars þessa tvo, sem voru nógu víðsýnir og kannski „hugrakkir" tii að mæta. Myndir: Pjetur Konurnar létu fara vel um sig í grasinu og sumar þeirra settu upp skemmtileg höfuð- föt á þessum fallega degi. ^ílikur Var ,... yf'rhv°«alaZCÍrÍnanrað

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.