Dagur - Tíminn Akureyri - 21.06.1997, Blaðsíða 3
^Dagur-Œtmirat
Laugardagur 21. júní 1997 -15
LIFIÐ I LANDINU
Hamingj uhelgi
Á meðan þeir fullorðnu
eru við andlega og lík-
amlega rœkt geta börn-
in leikið sér í vísinda-
smiðju, sköpunar-
smiðju, leiksmiðju, nú
eða smiðju með brúðu-
gerð.
Þriðja sumarhátíð Sólstöðuhópsins
„í hjartans einlægni" stendur nú yfir
að Laugalandi í Holtum. Þarna kem-
ur fólk með sitt tjald, svefnpoka og
nesti og hlýðir á fyrirlestra og fer á
námskeið um lífsgildin, ástina, vin-
áttuna, virðinguna, trúna og annað
jákvætt og gott.
Fjöldi listamanna og fræðimanna
kemur að þessari hátíð þar sem ætl-
unin er að kynslóðirnar sameinist og
rækti hin jákvæðu lífsgildi að sjálf-
sögðu án vímuefna. Sólstöðuhópur-
inn á sér þann tilgang að koma af
stað hreyfingu í átt að betra lífi og
langar í „hjartans einlægni" að
hvetja til þess að við lifum saman í
sátt, að við sýnum hvert öðru virð-
ingu, traust og ábyrgð.
Náttúruleit
„í nútíma þjóðfélagi veitir ekki af já-
kvæðri hvatningu. Gildi eins og nánd,
ást, virðing og friður verða í heiðri
höfð á hátíðinni hjá okkur,“ segir
Inga Stefánsdöttir, sálfræðingur og
dagskrárstjóri sumarhátíðarinnar.
Hún ætlar að vera með námskeið um
hamingjuna.
„Ég ætla að íjalla um val fólks til
að lifa hamingjusömu lífi. Ég hugsa
þetta aðallega út frá þeim hraða sem
við lifum á og í og þá nauðsyn að við
gírum okkur aðeins niður. Að menn
„Við strunsum flest í
gegnum lífið án þess
aðfatta að lifa þvi og
mig langar að fá fólk á
námskeiðinu til að
íhuga þetta og þá á
hvaða leiðþað er. “
finni sinn takt og hlusti á sjálfa sig og
finni út hvers þeir sakna úr lífi sínu.
Við strunsum flest í gegnum lífið án
þess að fatta að lifa því og mig langar
að fá fólk á námskeiðinu til að íhuga
þetta og þá á hvaða leið það er.“
Á þessu námskeiði, sem og á öðr-
um á hátíðinni, vinnur fólk ýmis
verkefni. Inga sendir m.a. alla út í
náttúruna til að finna kyrrðina og
taktinn í henni. „Við verðum öll að
finna okkar eigin skilgreiningu á
hamingju en ég segi fyrir mig að ef
að ég er sátt við sjálfa mig, aðra og
guð þá líður mér vel. En auðvitað
getur maður síðan gert líf sitt ríkara,
bætt það enn frekar með ýmsu.“
Sumarhátíðin „f hjartans ein-
lægni“ er hugsuð fyrir alla sem hafa
áhuga á að bæta mannlífið. Þátttöku-
gjald fyrir fullorðna er 7000 krónur,
1000 krónur fyrir 4-12 ára og frítt
fyrir yngri en 4 ára. Unglingar, 13-18
ára, greiða 3000 krónur. -mar
Maður vikunnar
Tryggvi Gíslason skólameistari er maður vikunnar fyrir
tæpitungulausar yfirlýsingar um skólamál, skólagjöld,
laun kennara og hvað 'það nú liggur á bak við gildismat
samfélagsins sem heimtar utanlandsferðir en ekki betri
skólabækur. 150 þúsund kall á mánuði fyrir kennara?
Hvað myndi breytast? Tryggvi heldur að krakkarnir
myndu læra meira og það er nokkuð sem við getum rætt í
kaffiboðum Jónsmessuhelgarinnar. Tryggvi er maður vik-
unnar.
Tryggvi Gíslason skólameistari.
Ófrumleg og klisju-
kennd sýning?
Bandaríski listamaðurinn Bruce Conkle opnaði á
fimmtudaginn sýningu í „International Gallery of
Snorri Ásmundsson" á Akureyri. Bruce er búsettur í
Bandaríkjunum og hefur, að sögn Snorra Ásmundssonar,
eiganda gallerísins, verið með skondnar sýningar víðsveg-
ar um Bandaríkin. Snorri er þó ekki par hrifinn af sýning-
unni sem Bruce hefur sett upp á Akureyri. „Þetta er
ófrumleg og klisjukennd sýning og ég tek hana niður sem
allra fyrst. Ef einhver hefur áhuga á að sjá þessa lélegu
sýningu ætti hann því að gera það sem allra fyrst.“ AI
Snorri Ásmundsson: „Enga páfagauka og ófrjóa listamenn í
mitt gallerí."
Sigríður
Jóhannesdóttir.
HELGARPOTTURINN
Rokkararnir Ester Ás-
geirsdóttir úr Kolrössu
krókríðandi og Pétur
Heiðar Þórðarson úr Tex-
as Jesú láta ekki sitt eftir
liggja við mannfjölgun í
heiminum því að í byrjun
júní eignuðust þau dreng
sem hlotið hefur nafnið
Ásgeir Júníus, Ásgeir eftir
móðurafanum og Júníus
af því að hann er fæddur í
júní. Litli drengurinn er
fæddur inn í góða og gegna allaballaijöl-
skyldu því að amma hans er engin önnur
en Sigríður Jóhannesdóttir alþingiskona.
Og talandi um barneignir.
Söngkonan elskaða, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, er löngu komin á
steypirinn og átti von á sér
í síðustu viku. Eitthvað
virðist sú litla eða sá stutti
samt ætla að láta bíða eft-
ir sér því að hann/hún er
ekki enn komin í heiminn,
en það gæti þó gerst á
hverri stundu.
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir.
Ingvar Viktorsson.
Hátíðahöldin á 17. júní
fóru vel fram enda besta
veður um allt land. í Hafn-
arfirði mátti sjá stjórn-
málamennina fjölmenna.
Þar var bæjarstjórinn Ing-
var Viktorsson, bæjarfull-
trúinn Tryggvi Harðarson
og ijölskylda, allaballinn
Magnús Jón Árnason,
fyrrverandi bæjarstjóri, og
Magnús Gunnarsson, foringi Sjálfstæðis-
fiokksins, og frú. Óvenjumargt miðað við
17. júní síðustu ár. Eru kannski kosningar
í nánd...?
Bæjarfulltrúinn Jóhann G.
Bergþórsson í Hafnarfirði
hefur ekki látið deigan
síga undanfarin misseri
eins og alþjóð veit þó að
hann só að mestu hættur í
verktakabransanum. Fyrir
utan stefnumál af ýmsu
tagi hefur Jóhann unnið
sem verkfræðingur og
byggt upp verkfræðistofu
sína af miklum krafti.
Ilann hefur meðal annars keypt nýja hús-
eign, gamla kaupfélagshúsið við Strand-
götu í Ilafnarfirði. Væntanlega undir
starfsemina!
í íslensku handverki eru fáir karlmenn en
svo skemmtilega vill til að þessir fáu
blómstra akkúrat samtímis og það um
þessa helgi. í húsnæði Handverks og
Hönnunar við Amtmannsstíg opnar hinn
hollenskættaði Georg Hollander sýningu,
Fransmaðurinn Philippe Richart opnar
sýningu í Stöðlakoti og svo er trérenni-
smiður með sýningu í Viðarmiðluninni í
Fossvoginum.
Jóhann G.
Bergþórsson.